Pressan - 10.11.1988, Qupperneq 14
14
Fimmtudagur 10. nóvember 1988
Ný heilsufæða er komin á markað í Kaliforníu. Um er að
ræða sérstök egg, sem innihalda mun minna kólesteról en
venjuleg hænuegg. Þa_u eru auðvitað rándýr, en hvað gerir
fólk ekki til að minnka áhættuna á kransæðastiflu og hjarta-
sjúkdómum... Það þarf vart að taka það fram að hænsnabónd-
inn, sem ungaði út þessari snjöllu hugmynd, harðneitar að
gefa upp á hverju hann fóðrar fuglana sína.
Hrlngdu í sima 680790 eða skrífaðu og við sendum
þér íslenskan kynnlngarbaakllng um hael.
IAÐA
FRAM ÞAÐ BISTA
í ÚTIITI ÞÍNU
COLOURS litgreining byggist á nákvœmri
athugun á litarafti þinu og ráðgjöf um litaval
samkvœmt því. í notalegu umhverfifinnum við
þá liti sem best laða fram og undirstrika þína
eigin eðlilegu liti og þersónuleika. Leiðbeint er
um litaval á kUeðnaði og fylgihlutum og veitt
aðstoð við snyrtingu
með Colours snyrtivör-
um. Að lokinni
litgreiningu fœrð þú
vandað leðurveski með
þrufum af þeim litum sem þér heefa best. Við
Colours-litgreiningu er rik áhersla lögð á
þersónulega þjónustu. Þvi er ráðgjöfin veitt i
einkatímum og er að sjálfsögðu jafnt fyrir
konur sem karla.
Timaþantanir og allar uþþlýsingar i síma 680790.
VISA OG EUROCARD
STYÐJA GRÆNFRIÐUNGA
íBandaríkjunum er í gangi fyrirkomulag sem gerir Grœnfriðung-
/ um kleift að fá í sjóð sinn ákveðið hlutfall af veltu greiðslukorta.
VISA og EUROCARD (MASTER CARD) styrkja
starfsemi GRÆNFRIÐUNGA í Bandaríkjunum með
sérstökum kortum sem bankar gefa út á ákveðin sam-
tök. í hvert skipti sem slíkt kort er síðan notað sem
greiðslumiðill rennur ákveðið hlutfall af upphæðinni
til samtakanna.
DAVID BRANCOLY hjá VISA
INTERNATIONAL í Bandaríkj-
unum sagði í samtali við PRESS-
UNA að bankarnir gæfu kortin út
sjálfir og nytu ýmis góðgerðar-
samtök í Bandaríkjunum góðs af
þeim. Það kort sem færir Græn-
friðungum fé með þessum hætti
er gefið út á nafn samtaka er heita
WORKING ASSETS.
WORKING ASSETS hafa und-
anfarin tvö ár látið fé af hendi
rakna til fjölda samtaka eftir
þessum leiðum og samkvæmt
þeim upplýsingum sem PRESS-
AN aflaði sér þaðan hafa Græn-
friðungar fengið framlög bæði ár-
in. Þeir korthafar sem áhuga hafa
á að stýrkja starfið geta tilnefnt
ákveðin samtök, en síðan er það
stjórn WORKING ASSETS sem
ákveður nánari skiptingu fjárins.
Ekki er hins vegar hægt að gefa fé
til GRÆNFRIÐUNGA eða ann-
arra samtaka eftir þessum leiðum,
nema nota kortið.
Það er því ljóst að bæði
greiðslukortafyrirtækin VISA og
EUROCARD og GRÆNFRIÐ-
UNGAR hagnast á fyrirkomulag-
inu. Greiðslukort eru gífurlega
mikið notaður greiðslumiðill í
Bandaríkjunum og þvi verulegar
upphæðir sem þar fara í gegn,
GRÆNFRIÐUNGUM að
nokkru til góðs. GRÆNFRIÐ-
UNGAR virðast vera í mikilli
sókn í Bandaríkjunum, sem og
víðar, þannig að það ætti ekki að
draga úr áhuganum á þeim kort-
um sem upp á svona fyrirkomulag
bjóða. HH
Washington Post
greindi frá
stuðningi VISA
við Greenpeace
HAUSTGJALDDAGI
HÚSNÆÐISLÁNA VAR 1. NÓVEMBER SL.
FORÐIST ÓÞARFA AUKAKOSTNAÐ
VEGNA DRÁTTARVAXTA
HÚSNÆDISSTOFNUN RÍKISINS
LJ LAUGAVEGI 77 101 REYKJAVÍK S: 69 69 00
Fyrir allnokkru greindi banda-
ríska stórblaðið Washington Post
frá því að meðal styrktaraðila
Greenpeace-samtakanna vceri
VISA International. Þessi frétt
komst aldrei í islenska umræðu,
en þegar það er haft í huga að ís-
lendingar eru heimsins mestu not-
endur VISA-korta miðað við
höfðatölu þótti víst ýmsum þar
vestra, sem þekkja til íslenskra
málefna, þetta nokkuð þver-
sagnakennt. Hvalveiðiþjóðin
brúkaði meira en nokkur annar
greiðslukort fyrirtœkis sem styð-
ur við bakið á hvalfriðunarmönn-
um í gegnum margflókið korta-
kerfi sitt (sbr. útskýringar hér á
síðunni). Raunar hefur þessum
þrautskipulögðu hvalfriðunar-
samtökum einnig tekist að koma
sér upp styrktarkerfi í gegnum
EUROCARD.
Greenpeace eru að verða að
mikilli stofnun sem beitir sér fyrir
náttúruverndarmálum á fjöl-
mörgum sviðum auk hvalfriðun-
arbaráttunnar. Þau eru lang-
stærstu náttúruverndarsamtök
heims á þessum sviðum.
Samtökin starfa nú í 19 löndum
og telur starfsliðið ríflega 200
manns. Fjárlög samtakanna
hlaupa á tugum milljóna kr. á ári.
í Bandaríkjunum er háð gífurlega
hörð barátta náttúrufriðunar-
samtaka um styrki og hafa Græn-
friðungar verið þar heppnir með
afbrigðum. ÓF