Pressan - 10.11.1988, Síða 28
28
dagbókin
hennar
Kœra clagbók.
Það er alveg makalaust hvað
þessir kennarar fá mikið út úr því
að pína mann til að fylgjast með
pólitik. Dönskukennarinn heimt-
aði að við fylgdumst með stefnu-
ræðuröflinu í sjónvarpinu um dag-
inn og skrifuðum svo (á dönsku!)
lýsingu á íslensku stjórnmálaflokk-
unum. Ég meina það... Það er eins
og maður sé í stjórnmálafræði við
Kaupmannahafnarháskóla, en ekki
á fyrsta ári í MR! En það var nátt-
úrulega ekkert annað að gera en
hlusta á þessar óskiljanlegu ræður í
heilt kvöld, því dönskukennarinn er
svo ógeðslega strangur. (Það er
reyndar kona... Þær eru oft helm-
ingi verri en kallarnir, eins og mað-
ur sér t.d. á tollvörðunum í Kefla-
vík. Kellingarvargarnir (eins og
pabbi kallar þær) bókstallega tæta
allt upp úr töskunum hjá fólkinu,
en kallarnir eru oftast ósköp næs.)
Mér fannst forsætisráðherrann
(af hverju ætli þetta sé skrifað með
te-i, þegar maður segir alltaf for-
sEtisráðherra?) voða leiðinlegur og
ég þori að veðja að ég hef heyrt
þessa nákvæmlega sömu ræðu ein-
hvern tímann áður. Þetta var svona
ekta þvæla um að allt væri í steik,
en góðu gæjarnir í ríkisstjórninni
skyldu redda þessu eftir soldinn
tíma, ef fólkið lofaði að biðja ekki
um meira kaup og hætti að eyða
svona rosalega í innkaupaferðir til
útlanda og þannig. Það var miklu
óvanalegra að hlusta á kommana,
vegna þess að núna gátu þeir sko
ekkert æst sig út af aumingjunum í
ríkisstjórninni, sem l'æru illa með
gamla fólkið, sjúklingana og börn-
in. (Þeir eru nefnilega „komnir í
klúbbinn“, eins og mamma segir.)
Ein konan var t.d. alveg á fullu að
afsaka af hverju kommarnir væru
með í ríkisstjórninni. Hún sagði að
ástandið á landinu hel'ði verið svo
ferlegt og þau hefðu barasta
NEYÐST til að bjarga málunum.
Meira að segja ÉG fattaði hvað hún
var í sjúklegri vörn, manneskjan!
Og þá hlýtur það að hal'a verið aug-
ljóst, því amma á Einimelnum seg-
ir, að ég sé algjörlega „blottuð" á
þessu sviði.
Eitt var samt æðislega spennandi
við þessar umræður. Það var að
fylgjast með því livað röddin myndi
endast hjá konunni, sem stjórnaði
sjóinu, en hún var hreinlega spitala-
matur af kvefi. Pabbi kallaði það
„exebisjónisma“, en mamma sagði
að þetta væri aðdáunarvert og
sýndi hvað konur væru miklu sam-
viskusamari en kallar.
Bless, Dúlla.
FiWriitucfáGTtJr'tO.'rióvemb'ér Í9Ö8
EKKI RAÐINN
TIL AÐ VINNA
KRAFTAVERK
■'r’ ■ ^
Guðmundur Magnússon
breytir skipulagi á flokks-
kontór Sjálfstœðisflokksins.
Allt er undirorpid breytingum,
meira að segja Sjálfstæðisflokkur-
inn. Guðmundur Magnússon, fyrr-
um blaðamaður á Morgunblaðinu
og aðstoðarmaður menntamála-
ráðherra, er nú sestur að I Valhöll
og tekinn til við undirbúning nýs
starfsskipulags á skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins og endurskoðun á
starfsháttum þar. Pressan átti spjall
við Guðmund og spurði hann hvort
hann vœri ef til vill nýr bjargvœttur
innan Sjálfstœðisflokksins?
„Bjargvættur er kannski heldur
stórt orð. Ég er ekki ráðinn hingað
til að vinna nein kraftaverk. Hug-
myndin er sú að breyta starfshátt-
um skrifstofu Sjálfstæðisflokksins
hér í Reykjavík í þá átt að skipu-
lagið taki mið af eðli þeirra verka
sem vinna þarf, en ekki því hvar þau
eru unnin eða fyrir hvern. Hingað
til hafa verið hér i húsinu skrif-
stofur ýmissa félaga og stofnana
innan flokksins, en nú vill mið-
stjórnin kanna hvort ekki sé hægt
að skipta skrifstofunni í þrjár deildir.
í fyrsta lagi rekstrardeild, sem sinni
rekstrarmálum flokksins, starfs-
mannahaldi og öðru af því tagi. í
öðru lagi fræðslu- og útbreiðslu-
deild, sem sinni innra fræðslustarfi
flokksins, stjórnmálaskóla, nám-
skeiðahaldi, aðstoð við landsmála-
blöð og tímarit, og ennfremur
kynningu á flokknum og stefnu-
málum hans út á við. í þriðja lagi er
svo rætt um að koma á fót sérstakri
skipulags- og félagsdeild sem sinni
ýmsum störfum fyrir landssamtök
og flokksfélög. Skrifstofan á sem-
sagt að þjóna flokknum á lands-
vísu, frekar en einstökum félögum.
Það er trú okkar að með þessu verði
hægt að nýta betur þá starfskrafta
sem hér eru.“
— Hefur skipulag Sjálfstæðis-
flokksins þá verið bágborið?
„Skipulag flokksins er gamalt.
Það má ef til vill segja að það taki
mið af öðruvísi þjóðfélagi. Það er
sjálfsagt að endurskoða skipulag
með breyttum tímum. Sjálfstæðis-
mönnum finnst að starfið hafi ekki
alltaf nýst jafnvel, það hafi til
dæmis verið of mikið um tví-
verknað. Þess vegna vilja menn
prófa þetta nýja skipulag, sem
hefur verið lögð mikil vinna í að
undirbúa áður en ég kom hingað.
Meðal annars hefur talsvert verið
leitað fyrirmynda hjá stjórnmála-
flokkum erlendis. Hins vegar er
nauðsynlegt að menn átti sig á þvi
að skipulag, tækni eða tæki eru
ekki það sem starf Sjálfstæðis-
flokksins snýst um. Meginmark-
miðið er auðvitað eftir sem áður að
koma stefnumálum flokksins á
framfæri og vinna þeim framgang í
þjóðfélaginu."
— Nú hefur Sjálfstœðisflokkur-
inn oft verið gagnrýndur fyrir að
honum sé stjórnað af fámennum
hópi og hinn almenni flokksmaður
komist sáralítið að. A að reyna að
breyta þessu með nýju skipulagi?
„Ég er ekki viss um að við leysum
þau vandamál sem tengjast mið-
stýringu og vöntun á virkni og
fjöldaþátttöku með skipulaginu
einu saman. En þetta skipulag gerir
vissulega kröfur til þess að forysta
flokksins í einstökum félögum og
landssamtökum verði virkari. Hug-
myndin er sú að búa til farveg sem
auðveldi mönnum flokksstarfið.
Að því leyti er stefnt að meiri virkni
hins almenna flokksmanns."
— Nú ert þú allt í einu orðinn
innsti koppur í búri á flokksskrif-
stofunni. Er nokkuð farið að hitna
undir Kjartani Gunnarssyni fram-
k væmdastjóra?
„Hér verður áfram fram-
kvæmdastjóri sem kemur til með
að stjórna þessum nýju deildum. í
okkar huga er auðvitað ekkert
annað á döfinni en að Kjartan sé sá
maður. Hanner framkvæmdastjóri
flokksins og jafnframt sá maður
sem hefur lagt mesta vinnu í að
móta þetta nýja skipulag. Það er
varla ofsagt að hann sé aðal-
höfundur þess.“
— Nú varstu lengi vel blaða-
inaður, síðan aðstoðarmaður ráð-
herra og ert nú kominn á flokks-
kontór. Ertu rnáski á hægri og bít-
andi leið inn í pólitíkina?
„Ég hef aldrei litið á mig sem
stjórnmálamann. Mér finnst ég
einna helst vera blaðamaður. Þótt
ég sé kominn hingað til ákveðinna
starfa fyrir flokkinn lít ég ekki svo
á að ég sé búinn að segja skilið við
blaðamennskuna. Hún á alltaf
sterkustu tökin í mér.“
— Þú þurftir að segja skilið við
menntamálaráðuneytið eftir heldur
stuttan stans...
„Því miður fór það svo. Mér
finnst afskaplega leiðinlegt að sjá á
bak því starfi. Ég var að vinna þar
að heillandi og mikilvægum verk-
efnum, að því er ég taldi. Því miður
tókst ekki að ljúka þeim öllum, til
dæmis tókst ekki að ganga frá aðal-
námskrá grunnskóla. Ég hef veru-
legar áhyggjur af afdrifum hennar,
nú þegar Alþýðubandalagið er
komið í ráðuneytið. í kjölfar yfir-
lýsinga nýs ráðherra held ég að sé
mikil tortryggni meðal margra sem
fylgjast með skólamálum, menn
óttast að það sé verið að innleiða
hugmyndafræði Alþýðubandalags-
ins í grunnskólana. Sem væri auð-
vitað hörmulegt slys.“ ■
FRÖKEN MARPLE FÆR ORÐU. Breska
leikkonan Joan Hickson, sem PRESS-
AN birti einkaviðtal við fyrir hálfum
mánuði, var fyrir skemmstu boðuð á
fund Elísabetar drottningar í Bucking-
ham-höll. Ástæðan var sú, að ákveðið
hafði verið að veita Joan, sem m.a. hefur
hlotið góða dóma fyrir túlkun sína á
Fröken Marple, orðu fyrir vel unnin
störf. Hin 81 árs gamla leikkona mætti
auðvitað í sínu fínasta pússi í höllinni
og á meðfylgjandi mynd má sjá hana
með oröuna að athöfninni lokinni.
ROKKPRESSA N
T O P P F 1 M M T Á N
1.(1 ) RATTLE AND HUM U2
2.(3) YUMMI YUMMI KIM LARSEN ‘
3.(14) COCKTAIL ÚR KVIKMYND
4.(2) SUNSHINE ON LEITH THE PROCLAIMERS
5.(6) UB-40 UB-40
6.(4) MONEY FOR NOTHING DIRE STRAITS
7. ( 5 ) BUSTER ÚR KVIKMYND
8.(7) EFTIR PÓLSKIPTIN STRAX
9.(9) l’M YOUR MAN LEONARD COHEN
10. (—) II OF THE BEST BILLY IDOL
11.(8) PET SHOP BOYS INTROSPECTIVE
12. (—) NEW ’ERSEY BON JOVI
13. (-) SIMPI PLEASURES BOBBY McFERRIN
14.(10) BIG T ilNG DURAN DURAN
15. (—) THAW FOETUS
Listinn er byggður á smásölu úr verslunum Steina hf., Skífunnar og Grammsins.
I BÆJARBÍÓI
luugard. kl. 17.00
sunnud. kl. 17.00
Síðustusýningar.
Miðapantanir i síma 50184 allan
sólarhringinn.