Pressan - 10.11.1988, Side 32
PRESSU
MCLfiR
Í^Éenn hafa spáð mikið og
spekúlerað eftir að fréttist af hinu
freistandi tilboði, sem Albert
Guðmundsson fékk um að gerast
sendiherra íslands í Frakklandi.
Segja einhverjir að um leið og
Albert hverfi af landi brott muni
Borgaraflokkurinn koma inn í
ríkisstjórnina, Júlíus Sólnes verða
iðnaðarráðherra og Óli Þ. Guð-
bjartsson samgönguráðherra. Sam-
kvæmt þessari tilgátu var það sem
sagt með vilja gert að hafa ráðherra
núverandi stjórnar eins fáa og raun
ber vitni. Þeir hafi bara átt að halda
stólunum volgum fyrir Borgarana.'
Formaður flokksins? Samkvæmt
framangreindri kenningu verður
það Ingi Björn Albertsson...
#•
I dag verður haldinn úrslitafund-
ur í útgáfustjórn Þjóðviljans um
ritstjóramálið. Traustar heimildir
eru fyrir því að nú þegar hafi verið
endanlega ákveðið að láta Mörð
Arnason vikja úr ritstjórastólnum.
Þrátt fyrir vísa andstöðu starfs-
manna blaðsins ætlar meirihlutinn
að keyra þetta í gegn og láta sig það
engu skipta þótt blaðamenn gangi
út á eftir Merði. Minnast menn
svipaðrar stöðu á Þjóðviljanum
þegar Svavar Gestsson tók við rit-
stjórastarfi um eða upp úr 1970, en
þá var algerlega hreinsað út af rit-
stjórn Þjóðviljans og nýir menn og
hollari ráðnir í staðinn...
Löksins geturöu
lagað gott
kaffi heima:
Kaffivélin frá Pavoni fæst á (s-
landi, espresso-kaffivélin, sem
slær allar aðrar vélar út, í
óbreyttri mynd frá 1921, steypt
og sett saman í höndunum,
kopar eða látún, hitar vatnið í
120 gráður, lagar þess vegna
heimsins besta espresso og
capuccino. Alltaf reiðubúin,
endist í aldarfjórðung, lista-
verk I sjálfu sér, hentar hvar
sem er. P.S. Einnig fyrirliggj-
andi vélar fyrir veitingastaði.
Enn á kynningarverði frá kr.
19.900. Visa/Euro. Kaffiboð sf.
S: 621029.
ins og kunnugt er káuþa
greiðslukortafyfírtækin tryggingar
fyrir korthafa hjá tryggingafélög-
unum hér á landi og þykir það feit-
ur biti að fá fyrir félögin i sam-
kéþpninni. Síðastliðinn rpánudag
opnaði VISA tilboð frá félogunum
■ og kom þá í Ijós að bæði Sjóvá og
Almennar tryggingar áttu lægstu
tilboðin og skutu þar með Reyk-
vískri endurtryggingu ref fyrir rass,
en það félag hefur haft alla trygg-
ingasamninga við VISA til þessa.
Reykvísk endurtrygging mun hafa
verið með mun hærra tilboð, sem
taliðer víst að útiloki það frá VISA-
tryggingunum að þessu sinni. V.ISA
hefur enn ekki ákveðið hvort það .
tekur tilboði Sjóvár eða Almepnra,
en það skiptir víst litlu þar sem
félögin eru u.þ.b. að sameinast um
stofnun nýs tryggingafélags...
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
Verð frá kr. 19.900 á mann.
Miðað er við staðgreiðsluverð á vikuferð og fjóra saman
í íbúð á Landhaus Heim. Brottför: 7/1, 14/1 og 21/1.
Allar nánari upplýsingar færðu á söluskrifstofum
Flugleiða, hjá umboðsmönnum og ferða-
skrifstofum.
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju
og Kringlunni. Upplýsingar og farpantanir
í síma 25 100.
Vetrarfrí í austurrísku Ölpunum, á skíðum í heimsins
bestu brekkum... það er sannarlega engu líkt! í hinum
dýrlegu fjallabæjum er loftið tært og heilnæmt og þar
muntu kynnast heillandi stemningu sem líður þér seint
úr minni.
Mayrhofen, Zell am See og Kitzbúhel eru staðirnir
þrír sem Flugleiðir bjóða ferðir til í vetur. Beint
áætlunarflug er til Salzburg vikulega, en þaðan er stutt
til allra áfangastaða.
Fararstjórar verða sem fyrr hinn góðkunni Rudi Knapp,
sem er innfæddur Tíróli og íslenskumælandi, og Ingunn
Guðmundsdóttir.
P.S. Byrjandi eða meistari á skíðum
jafnir í austurrísku brekkunum!
- það eru allir