Pressan - 01.12.1988, Síða 2
2
Fimmtudagur T. desember 1988
PRESSU
MOLAR
■ ~ að er oft sem löggan er höfð
að háði og spotti, einmitt þegar
lögreglumenn telja sig vera að vinna
góðverkin í þágu borgaranna. Sag-
an segir að lögreglumenn í Kópa-
vogi hafi brugðist hratt og vel við
þegar tveir ungir piltar hringdu á
dögunum og sögðust þurfa hjálp
við að endurheimta bátsvél eina
fyrir framan bílskúr í bænum. Lög-
reglan er sögð hafa mætt stundvís-
lega á staðinn og hjálpað strákun-
um við verkið. Eigandi bátsins sem
vélinni var ætlað að þjóna var hins
vegar ekki allskostar ánægður með
framgöngu lögreglunnar. Hann er
sagður hafa kært vélarstuld og sak-
að lögregluna um fulla hlutdeild að
málinu. Ekki eru þó öll kurl komin
til grafar, því vélareigandinn svo-
kallaði hefur enn ekki getað sannað
eignarrétt sinn. Sama gildir reyndar
um piltana tvo, sem þó fengu
aðstoð lögreglu við að „endur-
heimta“ vélina...
Ellert B. Schram, ritstjóri DVog fyrr-
um alþingismaður, á tali við lokka-
flóð og herðapúða.
Hans Kristján Árnason, einn af for-
svarsmönnum Stöðvar 2. Hann
dettur aldrei úr rullunni og notar hér
leikskrána til að taka imyndaö viðtal
við einhverja konu, spyr hana sjálf-
sagt út í verkið og frammistöðu ein-
stakra leikara...
Tveir góðkunnir leikarar af eldri kyn-
slóðinni, Erlingur Gíslason og Flosi
Ólafsson, sem hvílir arminn á herð-
um konu sinnar, Lilju Margeirs-
dóttur.
Á þessari mynd má meðal annarra þekkja Gylfa Þ. Gislason, prófessor og
menntamálaráðherra i hundrað ár eða a.m.k. mjög mjög lengi.
yelkomin i heiminn!
Pressan minnir alla
nýbakaða foreidra á
að þeir geta fengið
birta mynd af barninu
sínu í blaöinu, ef þeir
senda okkur Ijós-
mynd.
1. Orugg og áhyggjulaus er tilvera
barns í örmum móður. Þessi litla
stúlka fæddist þeim Ingibjörgu
Sæmundsdóttur og Trausta
Traustasyni 27da dag nóvember-
mánaðar. Hún var 14 merkur og 50
sentimetrar.
2. Maður þarf að hugsa svo mikið
þegar maður kemur út úr mömmu
sinni. Og setur hönd undir kinn.
Svo fast að það myndast litil tota
á munninn. Þetta er dóttir þeirra
Mildred Irene Steinberg og
Ragnars Kristins Kristjánssonar
og hún á stóra systur, tveggja ára,
sem heitir Svava. Stúlkan iitla
fæddist 26. nóvember
Heimilisfangið er:
PRESSAN, Armúla 36,
108 Reykjavík.
3. Lítill drengur strýkur hvarm og
klemmir aftur augun. Hann heitir
Asgrimurog er sonur þeirra Gunn-
hildar Stefánsdóttur og Einars
Ólafssonar. Hann fæddist 23.
nóvember, var 12 merkur og 53
sentimetrar. Snöfurlegur dreng-
ur.
4. Tóneyra þessa drengs verður án
efa skarpt og skýrt. Hann er sonur
tónlistarfólksins Camillu Söder-
berg og Snorra Arnar Snorrason-
ar. Kannski verður hann samt alls
ekki tónlistarmaður, hver veit.
Hann fæddist 25. nóvember og
var 53 sentimetrar að lengd og 15
merkur að þyngd.
5. Þau Jóhanna Jóhannsdóttir og
Birgir Þórisson eignuðust þessa
stúlku þann 27da nóvember. Og
þarna liggur hún og gerir fingra-
æfingar; kreppa, rétta, kreppa,
rétta. Stúikan var 2.440 grömm að
þyngd og 48 sentimetrar að lengd.
Þessir náungar virkuðu svolítið úr takt við broddborgarana. Þeireru þó ekki
úr takt við verkið sem verið var að sýna, enda eru hér mættir hljómsveitar-
gæjar, úr Langa Sela og skuggunum, en sú hljómsveit samdi hluta tónlist-
arinnar við leikritið. Þetta eru þeir Kormákur, Jón bassi og Steingrimur.
Stór og smár
i Þjóðfeikhúsi
Nýverið frumsýndi Þjóðleikhúsið leikritið
Stór og smár eftir Botho Strauss, verk sem hvar-
vetna hefur hlotið góða dóma þar sem það hefur
verið sýnt. Leikstjórn er í höndum Guðjóns P.
Pedersen og er þetta frumraun hans sem leik-
stjóra hjá Þjóðleikhúsinu, en hann hefur áður
vakið athygli, bœði sem leikari og ekki síður
sem leikstjóri, hjá smœrri leikfélögum, einkum
sínu eigin, Frú Emelíu.
Stór og smár er annars viðamikið verk þar
sem tekist er á við stórar spurningar, kannski
hinstu rök tilverunnar, svo gamall frasi sé not-
aður — verkið er nokkuð óvenjulegt í byggingu,
í því er ekki sögð saga í eiginlegum skilningi,
heldur byggist það á afmörkuðum þáttum sem
tengjast í gegnum aðalpersónuna, Lottu, sem
leikin er af Önnu Kristínu Arngrímsdóttur.
Þetta ererfitt verk, skrugguerfitt, bœðifyrir að-
standendur og áhorfendur. Hinsvegar vita það
allir sem reynt hafa: Það er ekkert skemmtilegra
en að erfiða svolítið og uppskera svo árangur
erfiðisins. Brjóta heilann svo braki í. Helga Vil-
helmsdóttir, Ijósmyndari PRESSUNNAR, fór á
frumsýninguna og tók myndir afnokkrum gest-
um í hléi.