Pressan - 01.12.1988, Síða 7

Pressan - 01.12.1988, Síða 7
imr NVdoisvoNiSAwnv Fvmmtödagur 1j desember 1988 7 FJARSTYRÐ BONDSTEC H U ÓMTÆ KJ ASAMSTÆÐA MEÐ DANTAX HÁTÖLURUM! ÞESSA BONDSTEC HUÓM- TÆKJASAMSTÆÐU BJÓÐUM VIÐ NÚ Á EINSTÖKU JÓLA- BOÐI MEÐ HINUM FRÁBÆRU DANTAX HÁTÖLURUM SEM ERU EKKI BARA EINSTAKLEGA HUÓMFAGRIR HE-LDUR BÝÐ- UR FRÁBÆR HÖNNUN ÞEIRRA UPP Á FJÖLBREYTTA STAÐSETNINGU HVORT SEM ER Á GÓLFI EÐA VEGG. LÁTTU HUÓMINN ÚR DANTAX KOMA ÞÉR SKEMMTILEGA Á ÓVART. í SAMSTÆÐUNNI ERU: MAGNARI. 60 SÍNUSVÖTT (130 MÚSIKVÖTT). ÞRÁÐLAUS FJARSTÝRING. STAFRÆNT (DIGITAL) ÚTVARP MEÐ 16 STÖÐVA MINNI OG SJÁLFLEITARA. TVÖ KASSETTUTÆKI MEÐ SJÁLF- SKIPTINGU (AUTO REVERSE), DOLBY OG RAÐSPILUN. HUÓÐNEMATENGI MEÐ HUÓÐ- BLÖNDUN. TVÖFALDUR TÓNJAFNARI MEÐ SÉRSTILLINGU FYRIR HÆGRI OG VINSTRI RÁS. HÁLFSJÁLFVIRKUR PLÖTUSPIL- ARI. TVEIR DANTAX SQ-45 HÁTALAR- AR. SNORRABRAUT29 SÍMI 62-25-55 HAFNARFJÖRÐUR DALSHRAUN 13 SÍMI65 -19-57 PRESSU A ítt unfdeildasta mál sem upp kom á síðustu vikum ríkis- stjórnar Þorsteins Pálssonar var sú ráðagerð Jóns Baldvins í fjármála- ráðuneytinu að veita afslátt á drátt- arvöxtum vegna vangoldinna opin- berra gjalda. Þau sjónarmið sem vöktu fyrir mönnum í fjármála- ráðuneytinu voru, að með skuld- breytingum og niðurfellingu drátt- arvaxta mætti auka líkur á inn- heimtu. Slíkt þekkist m.a. í banka- kerfinu og er rætt nú þegar greiða á úr erfiðleikum fyrirtækjanna. í 'yfirlýsingu ríkisstjórnar Steingríms er gert ráð fyrir þessum möguleika og í tíð fyrri stjórnar hafði þegar verið samin reglugerð vegna þessa. Hins vegar voru uppi efasemdir um lögmæti og var þess vegna í undir- búningi sérstök löggjöf. Stærstu sveitarfélögin ætluðu að vera sam- stiga ríkisvaldinu og gera samskon- ar ráðstafanir til að auka inn- heimtu. Eftir að Ólafur Kagnar Grímsson settist í ráðuneytið hefur málið hins vegar tekið aðra stefnu. Hann vill nefnilega skoða það upp á nýtt og er sagður áskilja sér rétt til að hætta við. Þessi umbylting er þegar talin hafa valdið ómældum erfiðleikum við innheimtu, þar sem slakað var á innheimtu þegar ráða- gerðin komst í hámæli í haust... I nnan samvinnuhreyfingarinnar hefur athygli manna sérstaklega beinst að gifurlegum rekstrarhalla sambandsins sjálfs. Sama gildir auðvitað um fjölmiðla, sem hafa keppst við að greina vandann, sem talinn er felast í hinum ýmsu deild- um SÍS. Það vill hins vegar stund- um gleymast að þeir aðilar sem standa að SÍS gamla eru fyrst og fremst kaupfélögin sjálf. Þegar þar er litið yfir akur má sjá svipaða mynd, ef ekki mun ískyggilegri en þá sem blasir við í höfuðfyrirtæk- inu. Talið er að mörg kaupfélög sem skiluðu hagnaði á síðasta ári muni t.d. skila verulegu tapi í ár. Eitt þessara fyrirtækja er KEA. Rekstr- arhalli þess á þessu ári er talinn verða um 150 milljónir króna. Það er því ekki glæsileg staða sem blasir við Val Arnþórssyni þegar hann sest hinum megin við borðið eftir ára- mót og veltir fyrir sér skuldastöðu viðskiptavinarins út frá sjónarhóli bankastjórans... I^íefndarmenn í atvinnutrygg- ingasjóði eru eflaust ekki öfunds- verðir af hlutskipti sínu. Eitthvað fá þeir þó fyrir verkið, eða skítverkið, eins og sumir myndu kalla það. Þrátt fyrir stíf fundahöld eru laun- in þó bundin föstum greiðslum. Það skiptir þvi engu máli þótt þeir fundi 4—5 sinnum í mánuði, launin eru 30 þúsund á mánuði. Einhver myndi eflaust telja sig ánægðan með slíka búbót, eða 360 þusund á ári...

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.