Pressan - 31.08.1989, Page 8
EIGA ÍOÁRA AFMÆLI
Bátafólkið hefur sannað sig
i september eru tiu ár siðan liðlega 30
manna hópur Vietnama kom til fislands.
Það var umdeilt á fislandi hvort aetti að
taka við þessu fframandi ffólki. Ýmsir
töldu það bjamargreiða að bjóða Víet-
nömum ff rambúðarvist i landi sem er svo
gerólikt ffyrri heimkynnum þessa ffólks.
Þeir Vietnamar sem tóku áhaettuna eg
þáðu boðið um fislandsvist haffa á tiu ár-
um sannað að ólík monning eg uppruni
þurffa ekki að kema í veg ffyrir aðfólklifi
i sátt. Vietnamamir haffa spjarað sig vel
i islensku samffólagi.
EFTIR PÁL VILHJÁLMSSON MYNDIR: BJÖRG O.FL.
Er ánægö með frammistöðu Víetnama á íslandi: Hólmfríður
Gísladóttir hjá Rauða krossinum.
Fjögur ár voru liðin frá lokum
Víetnamstríðsins þegar Bjðrn Frið-
finnsson, ráðuneytisstjóri við-
skiptaráðuneytis, og Björn Þór-
leifsson skólastjóri heimsóttu
flóttamannabúðirnar á eyjunni Pula
Tengah í Malasíu. TVímenningarnir
voru fulltrúar Rauða kross íslands
og í samræmi við samþykkt ríkis-
stjórnar íslands buðu þeir 30 til 35
Víetnömum landvist.
Flóttafólkið hafði dvalið lengri
eða skemmri tíma í búðum á eyj-
unni. Þetta fólk var kallað „báta-
fólkið", en bátur var oftast farkostur
flóttamanna frá Víetnam.
„Aðstæðurnar í búðunum voru
skelfilegar. Fólkið bjó í skýlum og
mörgum raðað saman á fletin sem
voru trébekkir. Þarna var mikið um
rottur sem voru á stærð við ketti.
Fólk varð að hengja hlutina sína upp
í rjáfur til að forða þeim frá rottun-
um,“ segir Björn Friðfinnsson þegar
hann rifjar upp kynni sín af flótta-
mannabúðunum.
Þeir nafnar auglýstu eftir umsækj-
endum í búðunum og mörg hundr-
uð Víetnamar lýstu áhuga sínum. Af
hálfu Rauða krossins var reynt að
koma því svo fyrir að íslandsfararn-
ir yrðu nokkurs konar þversnið af
flóttamönnunum. Oft er tilhneiging
í þá átt að mismuna flóttafólki sem
boðin er landvist á Vesturlöndum
og það yngra og skólagengna er
tekið framyfir eldra fólk og ósjálf-
bjarga.
Víetnamar sem flúðu land sitt
skiptust í tvær fylkingar. Annars-
vegar voru Víetnamar af kínversk-
um ættum og hinsvegar þeir sem
höfðu fylgt herforingjastjórninni í
Saigon að málum. Stjórnin í Saigon
tapaði stríðinu og eftir að kommún-
istar tóku völdin varð fullur fjand-
skapur milli Víetnam og Kína, sem
bitnaði meðal annars á Víetnömum
af kínversku bergi.
„Þetta fólk var á barmi örvænt-
ingarinnar. Það átti ekki aftur-
kvæmt til Víetnam og bjó við þessar
ömurlegu aðstæður í flóttamanna-
búðum," segir Björn.
Eftir þrjá daga og yfir hundrað
viðtöl var ákveðið hverjir færu til fs-
lands. AIIs voru þeir 34, hvort-
tveggja fjölskyldur og einstaklingar,
sem komu til íslands með millilend-
ingu í Singapoor og Kaupmanna-
höfn.
Enginn Víetnamanna þekkti til ís-
lands og fæstir þeirra töluðu önnur
tungumál en víetnömsku og kín-
versku. Nguyen Van Ho, sem fékk
íslenska nafnið Halldór, hafði að
vísu lesið um Norðurlönd í skóla en
í námsefninu var ísland ekki talið til
Norðurlanda.
Á skólabekk og í
fiskvinnslu
Þegar hingað kom var flóttafólk-
inu komið fyrir og það sett á skóla-
bekk til að læra íslensku. Til að
byrja með var deginum skipt á milli
vinnu og íslenskunáms. Halldór
vann til dæmis hjá Bæjarútgerðinni
og svo var um fleiri.
Von bráðar stóðu Víetnamarnir á
eigin fótum og tóku þátt í íslensku
samfélagi á við hvern annan. Hólm-
fríður Gísladóttlr hefur fylgst með
nýju íslendingunum frá því hún hóf
störf hjá Rauða krossinum fyrir átta
árum. Hólmfríður segir það einstakt
hversu snemma Víetnamarnir urðu
sjálfbjarga á íslandi.
„Erlendis er víða gert ráð fyrir að
það taki 18 mánuði fyrir flóttafólk
að samlagast nýjum heimkynnum
og fólkið þurfi stuðning þann tíma.
Hér voru sumir hverjir farnir að
spjara sig eftir rúmt hálft ár,“ segir
Hólmfríður og tekur dæmi af ung-
um Víetnama sem þakkaði fyrir sig
eftir sjö mánuði undir handarjaðri
Rauða krossins, leigði sér litla íbúð
og var kominn í fasta vinnu.
Að sögn Hólmfríðar voru margir
íslendingar boðnir og búnir að
hjálpa flóttafólkinu og það hafði sitt
að segja.
Ekkl bara dans á
rósum
Það er ekki þar með sagt að líf
Víetnamanna hafi verið dans á rós-
um. Fyrstu misserin eftir komu