Pressan - 31.08.1989, Qupperneq 10
10
Fimmtudagur 31. ágúst 1989
Steypist Ós hf?
Nauðungaruppboð í
september á eignum
steypuverksmiðjunnar
Óss hf. í Garðabæ að
kröfu allra stærstu lán-
ardrottna. „Ég fæ
skuldbreytingu/' segir
Ólafur Björnsson for-
stjóri. „Fyrstu sex
mánuðirnir fóru fram
úr áætlunum og við
eigum að ráða við
skuldirnar."
Þeaar Steypustöðin 6s hff. i Garðabæ
ffór atstað ffyrir f imm árum effuðust marg-
ir um að dæmið gengi upp. Það liagur við
aðhægt sé að seaia að lieffð sé fyrir þvi að
þriðjjasteypustöoin á höfuðborgarsvæð-
inu fiffi ekki til langframa. Steypustöðin
hff. og BM Vallá hf. haffa á undanförnum
árum drepið aff sér þrjár steypustöðvar;
Ok hf., Verk hff. og Breiðholt nff.
EFTIR ÓMAR FRIÐRIKSSON MYND BJÖRG
Ýmsir hafa spurt sig þeirrar spurn-
ingar hvort nú sé komið að Ósi hf. í
Ijósi þess að nýverið ákvað Bæjar-
fógetinn í Hafnarfirði og Garðabæ
aðra og síðari nauðungarsölu á fast-
eignum Óss hf., í Suðurhrauni 2 í
Garðabæ. Uppboðið á að fara fram
13. sept. og er boðað að kröfu allra
helstu veðhafa í fasteigninni, en það
eru Iðnþróunarsjóður, Iðniánasjóð-
ur, Iðnaðarbankinn auk lífeyris-
sjóða og Gjaldheimtunnar í Reykja-
vík. Þar sem Iðnlánasjóður og Iðn-
þróunarsjóður eru langstærstu lán-
ardrottnar Óss hf., og skv. veðmála-
bókum bæjarfógetans í Hafnarfirði
hvíla hátt í 300 milljónir á eignum
Óss hf. við Suðurhraun 2 og 2a,
spyrja menn einfaldlega hvort fall-
völt örlög „þriðju steypustöðvarinn-
ar“ blasi nú við Ólafi S. Björnssyni
forstjóra og fyrirtæki hans. ,,Nei,“
segir hann ákveðið. „Við vorum að
ganga frá fyrstu sex mánuðum árs-
ins og erum yfir þeim áætlunum
sem við gerðum. Við lögðum þetta
fyrir Iðnlánasjóð og höfum fengið
bréf upp á skuldbreytingu. Það
verður svo gengið frá þessum mál-
um í haust og uppboðinu frestað.
Þetta segir okkur að við eigum að
geta borgað niður skuldir okkar á
8—10 árum. það þykir nú gott í dag,“
segir Ólafur í samtali við PRESS-
UNA og er engan bilbug á honum
að finna.
„Set siélfan mig
að veoi#'
Steypustöðin Ós hf. er fimm ára
gamalt fyrirtæki, sem rekið hefur
verið af miklum krafti, og auk
steypustöðvar þar eru hellugerð og
húseiningaverksmiðja. Ólafur er að-
aleigandinn. „Ég nýt þess að eiga
þetta einn, með fjölskyIdu minni, og
get því tekið ákvarðanir á stundinni
— þær þarf ekki að leggja fyrir fund
eftir fund eins og hjá þeim stóru. Ég
er mjög ánægður með árangurinn
enda hef ég alla tíð sett sjálfan mig
að veði fyrir öllu því sem ég er að
gera,“ segir Ólafur. „Einingaverk-
smiðjan er rétt rúmlega eins árs og
þar er kannski mesta brotalömin í
rekstrinum. En við erum ekki
óánægðir með það því það tekur
tíma að keyra upp nýjungar."
Skv. veðmálabókum hvíla sem
fyrr segir hátt í 300 milljónir á fast-
eignum Óss hf. Brunabótamat þess-
ara eigna er 415 milljónir, þannig að
veðsetning þeirra er um 70% af
brunabótamati. Þrátt fyrir aðeins
fimm ára aldur hefur Ósi hf. tekist
að komast í hóp fimm stærstu skuld-
ara Iðnlánasjóðs.
Ólafur segir að á síðasta ári hafi
velta fyrirtækisins verið 450 millj-
ónir fyrir utan söluskatt. Miklir erf-
iðleikar hljóta að steðja að fyrirtæk-
inu þegar það þarf að standa undir
skuldbindingum með greiðslu
vaxta, gengistrygginga og afborg-
ana af lánum. „Við vorum yfir áætl-
unum fyrstu sex mánuðina en það
voru reyndar varfærnar áætlanir,"
segir Ólafur. „í allri uppbyggingu
tekur auðvitað virkilega í en okkur
hefur tekist að borga þessum
70—80 starfsmönnum okkar laun.
Það er talað um 15% samdrátt í
þessum iðnaði en hann er enginn
hjá okkur. Það munar kannski um
1—2% í steypunni. Eins og staðan er
í dag ætti ég að geta aukið við mig
en er bara á 90—95% afkastagetu
og við önnum ekki eftirspurn eftir
steypu. Við notum landefni í
steypuna til að vinna gegn
alkalískemmdum og þvi er hún
mjög eftirsótt."
Veðbókarvottorð fyrir eignir Óss
hf. við Suðurhraun 2 og 2a er viða-
mikið. Lán eru þar skráð á fjórtán
veðréttum og auk þess átta lögtök
vegna skulda við lífeyrissjóði. Sem
fyrr segir eru það Iðnþróunarsjóður,
Iðnaðarbankinn og Iðnlánasjóður
sem eru helstu lánveitendur og sá
síðasttaldi langstærstur. Þá vekur at-
hygli, að þar er Borgarsjóður
Reykjavíkur með eitt lán á 21. veð-
rétti upp á 2,9 milljónir. Er lánið
veitt í júní sl., verðtryggt og með
hæstu vöxtum. Þykir nokkrum tíð-
indum sæta að Borgarsjóður skuli
samþykkja veð í fasteign á eftir sex
lögtökum, sem hvíla á Suðurhrauni
2 og eru vegna vanskila við lífeyris-
sjóði.
Uppboðinu frestað?
Breiðholtsútibú Landsbankans er
viðskiptabanki Óss hf. en áður var
Iðnaðarbankinn í því hlutverki.
Frægar eru frásagnir Ólafs af því
þegar honum var sagt upp viðskipt-
um í Iðnaðarbankanum þegar hann
hóf rekstur steypustöðvarinnar. Þar
eiga sem kunnugt er stóru steypu-
stöðvarnar sterk ítök og taldi Ólafur
að þarna hefðu samkeppnisaðilar
verið að loka á sig dyrum.
Það eru eignirnar i Suðurhrauni 2
sem eiga að fara undir hamarinn 13.
sept. verði uppboðinu ekki frestað
með nýjum samningum við helstu
lánveitendur, eins og Ólafur segir að
verði gert. í gær fengust þó þær
upplýsingar hjá fógeta að engin
frestun hefði verið ákveðin enn
a.m.k.
Viðskiptabanki Óss hf., Lands-
bankinn, hefur tekið veð í Suður-
hrauni 2a til tryggingar viðskiptum
sínum við fyrirtækið — um 15—20
milljónir kr. á fyrsta og öðrum veð-
rétti. í desember árið 1987 tók Iðn-
lánasjóður veð í eignum Óss hf.,
bæði Suðurhrauni 2 og 2a skv. þing-
lýstum skjölum til tryggingar lánum
sem nemi nærri 100 milljónum kr. í
bókum bæjarfógeta er þetta bara
fært undir Suðurhraun 2, en veðið
sem Landsbankinn tók í Suður-
hrauni 2a er hins vegar tekið átta
mánuðum síðar. Lögfróðir menn
segja að ef rétt sé virðist Landsbank-
inn með tugmilljónum króna lakari
veð en talið er í þeim tryggingabréf-
um sem bankinn hefur þinglýst
vegna viðskipta við Ós hf.
Það verður spennandi að sjá
Efalaust hefur Bandaríkjamönn-
unum þótt til þess koma að sjálfur
forsætisráðherra íslands skyldi vera
gestur Stöðvar 2.
Það er líka annað sem hangir á
spýtunni. Steingrímur Her-
mannsson er í krafti embættis síns
yfirmaður Byggðastofnunar og þar
liggur fyrir lánsumsókn Stöðvar 2
um 12 milljóna króna lán.
Hinir amerísku veiðifélagar Stein-
gríms eru Nicholas Bingham, yfir-
maður hjá kvikmyndaframleiðend-
unum Warner Brothers, og Michael
Jay Solomon, en hann á stóran hlut
í Lorimar-Telepictures. Fyrirtækið
Lorimar-Telepictures er umfangs-
mikið á sviði framleiðslu og sölu á
sjónvarpsþáttum og kvikmyndum,
til dæmis Dallas-þáttunum.
Hugmynd Jóns Óttars Ragnars-
sonar, aðaleiganda Stöðvar 2, er að
selja bandarískum aðilum 10 pró-
sent af hlutafé Stöðvar 2. Jón Óttar
gerði samning við fjárfestingarfé-
lagið Furman Selz Mager Dietz &
Birney um að vera milligönguaðili.
í viðtali við dagblaðið Variety (28.
feb.), sem er fagblað bandaríska
skemmtanaiðnarins, segir Jón Óttar
að nauðsynlegt sé að væntanlegir
samstarfsaðilar hafi góðan aðgang
að bandarísku sjónvarpsefni og
hvernig Ólafur í Ósi hf. drífur fyrir-
tæki sitt áfram þrátt fyrir erfiðleika
og grimmilega samkeppni og hvort
honum tekst að losa sig út úr þeim
skuldum sem að steðja. Ræðst það
væntanlega á næstu vikum. „Það
grípur menn oft vonleysi í versta
ástandinu, en eins og ég sagði segja
fyrstu sex mánuðir þessa árs okkur
að það tekst að borga niður það sem
að var stefnt. Við erum með á annað
hundrað milljónir útistandandi í við-
skiptakröfum þegar mest er. Velta
fyrirtækisins verður á sjötta hundr-
að milljónir í ár og hagnaðurinn fer
að skila sér á síðari hluta ársins, eins
og vera vill í þessum bransa því
fyrstu mánuðina safnar maðuri
birgðum. Ég er bæði bjartsýnn og
ánægður með stöðuna," segir Ólaf-
ur.
kvikmyndum. A móti býður Stöð 2
bandarískum aðilum möguleika á
að komast inn á evrópska sjónvarps-
markaðinn. Jón Óttar segir í viðtal-
inu að íslendingar kunni á því lagið
að færa bandarískt sjónvarpsefni í
umbúðir sem henti evrópskum
áhorfendum. Auk þess, segir Jón
Óttar, eru ríkisreknar sjónvarps-
stöðvar í Bretlandi og Vestur-Þýska-
landi ekki vanar samkeppni við
einkarekið sjónvarp.
Góðar hugmyndir
= peningar?
Það er haft eftir Jóni Óttari að við-
skipti byggist fyrst og fremst á góð-
um hugmyndum. Hann hyggst selja
bandarískum aðilum aðgang að
evrópskum markaði með því að fá
þá til að kaupa hlutafé í Stöð 2.
í viðtalinu í Variety er meginrök-
semd Jóns Óttars sú að árið 1992
falli úr gildi allar hömlur um við-
skipti milli landa Evrópubandalags-
ins. Innri markaður Evrópubanda-
lagsins er hinsvegar ísiendingum
ekki opnari en Bandaríkjamönnum
vegna þess að hvorug þjóðin er aðili
að bandalaginu. Eins og staðan er
núna breytir litlu fyrir bandarískt
fyrirtæki, sem ætlar sér inn á
Hann er hvergi banginn. Verk-
takafyrirtækið Byggðaverk hf. er
t.d. að byggja fyrir hann rúmlega
sexþúsund fermetra húsnæði við
Fákafen. Það ætlar Ós hf. að greiða
með steypu og er húsnæðið í Fáka-
feni nánast allt selt að sögn. Og svo
má geta þess að hann á þátt í endur-
uppbyggingunni á rústum Gúmmí-
vinnustofunnar við Réttarháls. Hins
vegar hefur fengist staðfest að hjá
Sementsverksmiðju ríkisins fær Os
hf. aðeins sement gegn stað-
greiðslu. Mun hann einnig hafa gert
upp skuldir sínar við Garðabæ ný-
verið með skolprörum. Það er því
morgunljóst að hann hyggst hvergi
láta deigan síga þrátt fyrir að kreppi
að. „Þetta er mitt „hobbý" að vera í
atvinnurekstri," segir hann.
evrópskan markað, að eiga hlut í
Stöð 2.
Samstarf íslands við Evrópu-
bandalagið og möguleg innganga
verða ákveðin á pólitískum vett-
vangi. Það er þess vegna ekki ónýtt
fyrir þá bandarísku aðila sem Stöð 2
ber víurnar í að eiga aðgang að for-
sætisráðherra landsins. Þeir Bing-
ham og Solomon hafa ugglaust
spurt Steingrím um hans áiit á hvert
stefndi í samskiptum íslands og
Evrópubandalagsins, svona á með-
an laxinn í Haffjarðará fékk hvíld.
Leita til
Byggðastofnunar
Vegna samdráttar í auglýsinga-
tekjum horfir erfiðlega með rekstur
fjölmiðla. Við slíkar aðstæður gera
fyrirtæki annað af tvennu; draga úr
umsvifum eða færa út kvíarnar og
reyna að vinna nýja markaði. Stöð 2
reyndi fyrri kostinn í vetur, fækkaði
starfsfólki og dagskráin varð fá-
breyttari. Það hefur borið þann
árangur að vikuna 23. til 30. ágúst
voru tíu afruglarar auglýstir til sölu
í smáauglýsingadálki DV.
í haust verður söðlað um og Stöð
2 hyggst sigrast á erfiðleikunum
með bættri dagskrá, sem á að gefa
fleiri áskrifendur og meiri auglýs-
ingar.
Einn liður í markaðssókn Stöðvar
2 er að bæta dreifikerfi sitt úti um
land. Það er dýrt og þess vegna leit-
aði Stöð 2 eftir láni hjá Byggðastofn-
un í sumar og bað fyrst um 74 millj-
ónir króna. Erindinu var hafnað en
þá lagði Stöð 2 inn umsókn um 12
milljónir. Ekki er enn búið að af-
greiða seinni umsóknina.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra er yfirmaður Byggða-
stofnunar. Á sama tíma og hann var
við veiðar í boði Jóns Óttars var for-
stjóri Byggðastofnunar, Guðmund-
ur Malmquist, með lánsumsókn
Stöðvar 2 á skrifborðinu hjá sér.
I samtali við Pressuna sagði Guð-
mundur það ósennilegt að Stöð 2
fengi umbeðið lán vegna þess að
ekki væri lögð fram nægileg trygg-
ing. Guðmundur neitaði því að
Steingrímur Hermannsson hefði
rætt við hann um umsókn Stöðvar
2.
Forsætisráðherra
skrautfjöður
í laxveioi
Aðra vikuna i ágúst veiddi Steingrimur
Hermannsson forsætisráðherra i Haff-
fjarðará i boði Stöðvar 2. Veiðiffélagar
Steingrims voru tveir ameriskir kvik-
myndaframleiðendur og yfirmenn
Stöðvar 2. Veiðifferðin er þáttur i áfform-
um Jóns Óttars á Stöð 2 um að gera fyrir-
tækið að stórveldi: í samvinnu við
bandariska sjónvarps- og kvikmynda-
framleiðendur ætlar Stöð 2 sér hlut i
evrópskum sjónvarpsiðnaði.
EFTIR PÁL VILHJÁLMSSON