Pressan - 31.08.1989, Síða 16
16
Fimmtudagur 31. ágúst 1989
sjúkdómar og fólk
VESEN AÐ
í gamla daga, þegar amma á Eini-
melnum var lítil, var farið með
blæðingar eins og mannsmorð, en
það var byrjað að hvísla um svona
hluti, þegar mamma var ung. (Þá
sögðust stelpurnar vera „forfallað-
ar” eða „með mánaðarstandið”...
Pempíugangurinn, maður!!!) Núna
er þetta sko hins vegar ekkert mál.
Það eru meira að segja oft dömu-
bindaauglýsingar í sjónvarpinu!
Það er voða misjafnt hvenær
stelpur byrja á túr. Amma byrjaði
þegar hún var fjórtán, mamma var
þrettán, en ég var bara ellefu ára.
Þetta er soldið dæmigert, vegna
þess að stelpur eru víst alltaf að
byrja fyrr og fyrr. (Ég sá það í bók,
sem ég las til að kynna mér allt um
blæðingar áður en ég færi að skrifa
um þær, svo þetta er ekkert bull.)
Það er nú ekki alveg á hreinu af
hverju stelpur byrja svona ungar, en
vísindamenn halda að það sé út af
velmegun og þannig. Ríkar stelpur
fá nefnilega blæðingar miklu fyrr
en þær, sem búa í fátæku löndun-
um.
18 lítrar og 440 skipti
Ef einhver kona myndi aldrei
eignast krakka færi hún 440 sinn-
um á túr. (Mamma las það í enskri
líkamsfræðibók.) Ég fatta það nú
ekki alveg, því það er ógeðslega
misjafnt hvað þessi blessaði tíða-
hringur er langur. Sumar konur fá
blæðingar á 19 daga fresti, takk
fyrir kærlega, en hjá þeim heppn-
ustu geta liðið 30 til 40 dagar á
milli. Og stelpur, sem fara í ógeðs-
lega stranga megrun, hætta gjör-
samlega. En þær geta dáið, svo það
er ekkert sniðugt.
í líkamsfræðinni stendur líka að
konur missi 40 millilítra af blóði í
hvert skipti sem þær fara á túr. Sam-
kvæmt vasatölvunni hans pabba
missir maður (þ.e.a.s. kona!) næstum
18 blóðlítra á ævinni. Það er ekk-
ert smáræði og þess vegna verða
konur að vera rosa duglegar að
borða rúsínur og blóðmðr og lif-
ur og allt mögulegt svoleiðis, sem
getur aukið við blóðið í manni.
í gamla daga, löngu áður en
amma á Einimelnum fæddist, vissi
fólk ferlega lítið um blæðingar af
því að vísindamenn voru ekki enn
orðnir til. Þá voru sko alls konar vit-
leysishugmyndir í gangi. Fólk hélt
t.d. að blæðingar þýddu að legið í
konum væri að grenja út af því að
þær væru ekki óléttar! Glætan,
maður... Svo héldu menn líka (að-
allega kallarnir, held ég) aö konur
væru eitthvað ofsa óhreinar á sál-
inni á meðan þær væru á túr. En
núna erum við með það alveg á
hreinu hvað gerist, þegar konur fá
blæðingar. Það er búið að skoða
þetta allt saman með gegnumlýs-
ingartækjum og smásjám og þann-
ig-
Alls konar möguleikar
Ég nenni ekki að fara út í þetta
með eggin og það, en stelpur þurfa
helst að vita hvernig þær eiga að
bregðast við þessu veseni einu sinni
í mánuði. Það er nefnilega um ým-
islegt að velja. í gamla daga voru
bara til dömubindi (ég fer sko ekki
út í ógeðið fyrir tíma dömubind-
anna til að engum verði óglatt) og
þau voru ekki einu sinni með lím-
rönd, svo konurnar urðu að festa
þau með „sikkrisnælum” (eins og
amma á Einimelnum kallar öryggis-
nælur). Núna eru til sjúkiega margar
tegundir af svona bindum, bæði
þykk og þunn og mismunandi í lag-
inu. Sum eru þar að auki með ilmi,
sem mér finnst eiginlega alveg út i
Hróa hött.
Síðan eru það tapparnir. Þeir eru
líka misjafnlega stórir. Það er voða
gott að nota þá þykkustu fyrstu tvo
dagana, en svo litla tappa eftir það.
(Síðasta daginn er æðislega sniðugt
að nota þunnt dömubindi til vonar
og vara.) Mér finnst best að nota
tappa, sem eru í löngu pappahylki.
Ég barasta skil ekki hvernig hægt er
að koma litlu títlunum fyrir, án þess
að hafa hólkinn til að ýta þeim
með... (Rólegan æsing, ég ætla
ekkert nánar út í þessa sálma, svo
það er óþarfi að kúgast.)
Sjúkleg skapvonska
Sumar konur verða alveg ofsa
lasnar, þegar þær fá blæðingar.
Þessu fylgir nefnilega ferleg maga-
pína svona alneðst í maganum.
Maður verður helst að liggja saman-
krepptur til að lifa þetta af, en það er
náttúrulega upplagt að taka verkja-
töflur, þegar túrpínan er mjög
slæm. Það er soldið misjafnt hvað
konur finna mikið til. Ég finn sko
aldrei fyrir þessu, en mamma verð-
ur æöislega „sloj” og leggst í rúmið
og allt.
Mamma verður líka hryllilega
skapvond og leiðinleg í svona viku á
undan. Á slíkum tímabilum gerir
enginn neitt rétt á heimilinu —
nema hún. Hún skammar kannski
pabba fyrir að spyrja hvað sé í mat-
inn og segir að hann geti bara sjálfur
séð um að kokka. En næsta dag
skammar hún hann fyrir að spyrja
ekki hvað sé i matinn og segir að
hann sýni engan áhuga á því, sem
hún er að gleðja magann í honum
með. Við Addi bróðir reynum að láta
lítið á okkur bera, þegar mamma er
á þessu stigi, og fáum oft að gista á
Einimelnum hjá ömmu. Og það er
svaka duló hvað pabbi þarf alltaf að
vinna geðveikislega mikla eftir-
vinnu rétt áður en mamma fer á túr.
En hún getur sjálfri sér um kennt.
Ég las í blaði að konur, sem yrðu
svona, ættu að taka B6-vítamín og
stunda líkamsrækt, en mamma
henti í mig Mogganum fyrir að
minnast á þetta. Eg valdi líklega vit-
lausa viku til að fræða hana um fyr-
irtíðakvilla...
Aftur og nýbúin!
Það besta við blæðingarnar er að
þær hætta, þegar maður er svona
44 tíl 57 ára. Ég er strax farin að
hlakka til. En sumar konur fá þá
svitaköst, rauða flekki á hálsinn
og verða voða viðkvæmar og
klökkar. Það er samt ekkert mál,
því læknar eiga alveg meiriháttar
plástra við þessu. Konurnar líma
þá bara á sig og allt verður í lagi,
nema eitt: Þær byrja aftur á túr!
pressupenni
HREIÐURGERÐ
Þegar ég var beðin í tilefni afmæl-
isins að hafa pennaskipti við kollega
mína á Pressunni og sagt um leið að
skrifa t.d. eitthvað á alvarlegu nót-
unum var ég ekki lengi að komast
að því hvað ég vildi skrifa um. Bless-
uð húsnæðismálin. Alvarlegra mál
liggur varla á fólki í dag sem vill fara
að huga að hreiðurgerð fyrir sig og
sína. Eg skal segja ykkur hvaða strá,
hálmstrá og önnur strá svona fugl
eins og ég með einn unga hef fund-
ið. Ég vil ítreka að þetta er grafalvar-
legt mál.
Torf og grjót
Jæja, mér býðst að kaupa jarðar-
skika á Snæfellsnesi á 50.000-kall,
en þau skilyrði fylgja að ég, líkt og
aðrir sem kaupa land þarna á sama
stað, verð að byggja úr náttúruleg-
um efnum; torfi, mold, við og grjóti.
Sömuleiðis verður byggingin að
hafa þannig form að hún falli sem
best að umhverfinu, til dæmis kúlu-
hússlag. Þetta væri kannski ailt í lagi
ef það væri lögð góð hraðbraut á
milli Snæfellsness og höfuðstaðar-
ins. Svo er bygging kúluhúss annar
spennandi möguleiki. Ég eyddi heil-
um dag í gönguferð inni í Morsárdal
í Skaftafelli í sumar að hugleiða
kúluhússhreiður og ímynda mér
hvernig ég gæti innréttað það: Ar-
inn í fjólubláum Rudolf Steiner-lit,
hvítkalkaðir veggir, tvö svefnher-
bergi uppi, eldhús og stofa niðri, sér-
dallar fyrir lífrænan úrgang, plast,
batterí... Morguninn eftir kúlu-
hússhugleiðsluna frétti ég að aðal-
kúluhússkallinn okkar, hann Einar,
hefði komið í heimsókn til okkar
landvarða um kvöldið og setið inni
í stofu, en þá var ég steinsofnuð í
herbergi mínu við hliðina. Tilviljun?
Alls ekki, en þótt náttúruhugleiðsla
sé mögnuð missti ég af honum í
þetta skiptið. Ætli kúluhúsið bíði
ekki betri tíma.
Svo er hægt að sækja um hjá
Verkó og fá uppörvandi svör til-
baka: „Alls bárust 1.129 umsóknir
um þessar íbúðir, en aðeins var unnt
að ráðstafa 301 íbúð og þér eruð
einn af þeim 828 umsækjendum,
sem ekki var unnt að sinna í þetta
skipti." En hvað með Búseta? I dag
eru þar á fjórða þúsund félagar á
skrá og fjörutíu og sex búnir að fá
íbúð frá því Búseti hóf starfsemi. Þú
borgar bara félagsgjöld í nokkur ár
og kannski verða þeir þá farnir að
byggja að nýju. í dag hefur Búseti
fjóra byggingarstaði í sigtinu, en
þetta strandar allt á flóknum lána-
reglum. Semsagt; nokkur þúsund fé-
lagsmenn en engar íbúðir er verið
að byggja í augnablikinu. Bara
nokkurra ára bið þar til línur skýr-
ast. Gott fyrirkomulag fyrir þá sem
hafa nógan tíma.
Innan við milljón
Þeir sem eru svo „heppnir" að
hafa lánsrétt geta líka sótt um hjá
Byggingarsjóði ríkisins í gegnum
Húsnæðismálastofnun. Verðtryggð
lán með 3,5% ársvöxtum. Gaman,
gaman. Svo verður ennþá meira
gaman þegar nýja húsbréfakerfið
fer í gang. Þá þarf ekki að bíða! Að
endingu má ekki gleyma enn einum
valkosti í hreiðurgerð. Húsvagni!
Starfsmaður í félagsmáiaráði í
ónefndum bæ gaf einum sem var í
örvæntingu sinni að leita þar ásjár
þetta ráð og sagði að húsvagnar
væru ekki vitlaust úrræði. „Kosta
bara innan við milljón.”
En enginn þarf að standa einn í
hreiðurgerðinni. Ættingjarnir eru
aliir af vilja gerðir. Mamma mín
spurði mig ofurljúft og nærri því
ísmeygilega um daginn: Hefur þér
ekkert dottið í hug að ná þér í
mann? Og sonur minn, þessi elska,
bauðst einn morguninn, eftir að ég
var nýstigin úr sturtunni, til að
kaupa handa mér tippi. Fannst ég
sárlega vanta eitt stykki! Reyndar
vissi hann Kári minn ekki alveg
hvernig hann ætlaði að redda því
svo hann bætti við eftir svolítið hik:
— „Á morgun!” Kannski er það bara
þetta líffæri sem mig vantar. Þá væri
ég líklega komin í villu einhvers
staðar og sæti núna í heitum nudd-
potti með nýhristan heilsudrykk.
Og þó. Ég held að það sé kominn
tími á æðruleysisbænina: „Guð,
gefðu mér styrk til að sætta mig við
það sem ég fæ ekki breytt, kjark til
að breyta því sem ég get breytt og
vit til að greina þar á milli."