Pressan - 31.08.1989, Qupperneq 22
, . 22
FYRSTA
t.
Á einu ári hefur Pressan komið víða við. Reglulega birtust stærri sem
smærri fréttir í blaðinu sem vöktu mikla athygli og viðbrögð. ítarlegar frétta-
skýringar og úttektir á sviði stjórnmála, viðskipta og félagsmála svo daémi séu
tekin hafa ávallt verið þakklátt lesefni. Fréttaviðtöl, opinská viðtöl við fólk um
viðkvæm vandamál og hressileg opnuviðtöl hafa oftlega verið aðalforsíðu-
uppsláttur Pressunnar. Lögð hefur verið höfuðáhersla á að bjóða lesendum
hæfilega blöndu gamans og alvöru. Þá hafa verið vinsælir fastir þættir í blað-
inu s.s. hinn firnavinsæli lófalestur Amy Engilberts, og fastir pistlar Flosa Ól-
afssonar, Óttars Guðmundssonar, pressupennanna og Jónu Ingibjargar kyn-
lífsfræðings njóta mikilla vinsælda. Ekki má gleyma leikaranum og bridgespil-
aranum heimskunna Omar Sharif sem aldrei hefur brugðist í bridgehorninu og
svo mætti lengi telja. Við stiklum hér á stóru í fyrsta ári Pressunnar og tökum
dæmi af frettaskrifum, viðtölum, úttektum og öðrum skrifum sem birst hafa
á síðum blaðsins á fyrsta Pressuárinu...
STINGANDI FORSÍ
u F R 1 T T I I R
\ Sverrir og biðlounin. Sverrir Hermannsson, bankastjóri Lands-
bankans, fékk 820 þúsund kr. í biðlaun frá alþingi í desember sl. Á sama
tíma var Sverrir á fullum bankastjóralaunum í Landsbankanum. Þessi
frétt Pressunnar, sem birtist 19. janúar, hristi ærlega upp í þjóðarsálinni
og í kjölfarið fy Igdu fréttir og umræður sem standa enn. Fluttu nokkr-
ir þingmenn frumvarp á alþingi til að útiloka að biðlaunagreiðslur
af þessu tagi gætu endurtekið sig. Fréttamenn könnuðu rækilega
biðlaunagreiðslur annarra þingmanna sem létu af þingmennsku
en Sverrir svaraði fyrir sig og ásakaði m.a. Pressuna fyrir að
hafa tekið við upplýsingaleka frá Ólafi Ragnari Grímssyni.
Þessu mótmælti blaðið enda kom fjármálaráðherra hvergi
nærri þegar fréttin var unnin...
Tjarnarskólamálíð. „Nemandi niðurlægður við útskrift vegna tíu
þúsund króna skuldar!" var forsíðufrétt Pressunnar 8. júní. Þar sagði að
skólastjórar Tjarnarskóla hefðu neitað að afhenda 15 ára stúlku prófskír-
teini sitt í vor vegna þess að foreldrar hennar skulduðu skólanum rúm-
ar tíu þúsund krónur í dráttarvexti af vangoldnum skólagjöldum.
Menntamálaráðherra brást hart við þessum fréttum og kallaði
skólastjórana til sín og krafðist skýringa. Málið fékk mikla um-
fjöllun í fjölmiðlum og báðu skólastýrurnar nemandann opin-
berlega afsökunar. Þessi frétt Pressunnar varð einnig til að
kveikja umræður um rekstur einkaskóla og þegar mennta-
málaráðherra hafnaði umsókn um stofnun einkaskóla í
haust var m.a. vísað í þetta atvik í Tjarnarskólanum.. .
ASKÝRINGAR VÖ K T, U A T H Y G L I
„1.200 milljóna króna
holal" var fyrirsögn fréttaúttektar
í október þar sem greint var frá þvi
að skv. skattframtölum tannlækna
1986 hefðu þeir haft um milljarð í
tekjur en tölur Tryggingastofnunar
yfir tryggða sjúklinga og könnun Fé-
lagsvisindastofnunar yfir tannlækn-
ingaútgjöld ótryggðra sýndu að á
sama tíma hefðu tannlæknum verið
greiddir 2,2 milljarðar fyrir tannvið-
gerðir. Munurinn væri því 1.200
milljónir, eða nálægt 6 milljónum á
hvern tannlækni í landinu. Fréttin
vakti óskipta athygli og varð tilefni
nokkurrar umræðu í fjölmiðlum.
Enn hefur þó engin haldbær skýr-
ing fengist á þessari 1,2 milljarða
svörtu holu...
Hljóðlót valdataka í Eim-
skip. Pressan fékk aðgang að hlut-
hafaskrá Eimskipafélagsins. Birtur
var listi yfir stærstu hluthafa í fyrir-
tækinu 3. nóvember og greint frá
því að á umliðnum árum hefði
nokkrum einstaklingum, fjölskyld-
um og fyrirtækjum tekist að tryggja
sér yfirburðastöðu í þessu almenn-
ingshlutafélagi með því að nýta sér
aðstöðu sína til að kaupa hluti á
nafnvirði. Þessi ítarlega úttekt á
Eimskip og upplýsingar blaðsins um
helstu eignaraðila fyrirtækisins
vöktu geysilega athygli og ollu enn-
fremur skv. okkar heimildum all-
miklum taugatitringi i stjórn fyrir-
tækisins...
Loitað að hlerunorbúnaði í
stjórnarróðinu. Þann sjötta
apríl upplýsti Pressan að um árabil
hefðu íslensk stjórnvöld fengið sér-
fræðinga Bandaríkjastjórnar til að
leita að hlerunarbúnaði á nokkurra
mánaða fresti í stjórnarráðinu. Blað-
ið hefur öruggar heimildir fyrir
þessu og í viðtölum við blaðið viður-
kenndi forsætisráðherra að banda-
rískir aðilar hefðu farið um helstu
byggingar í leit að hlerunarútbún-_(
aði og dómsmálaráðherra sagði að
leitað hefði verið aðstoðar erlendis
frá í þessu skyni án þess að vilja
ræða það nánar. Skv. frásögn trausts
heimildarmanns á þessi leit Banda-
ríkjamannanna sér yfirleitt stað
seint að kvöldi eða að næturlagi og
hvílir mikil leynd yfir þessu. Ekkert
hefur komið fram sem bendir til
þess að hlerunarbúrtaður hafi fund-
ist. . .
Hörmulegt slys ó fœðingardeild. 30. september upplýsti
Pressan að hörmulegt slys hefði orðið á fæðingardeild Landspítalans tveim-
ur árum áður og hefðu þrír nýburar sýkst alvarlega vegna rangrar með-
höndlunar þurrmjólkur. Eitt barnanna lést en tvö hlutu varanlegan skaða
af heilahimnubólgu, sem sýkingin olli. Yfirvöld viðurkenndu bótaskyldu
ríkisins en Pressan hafði eftir landlækni að þarna hefðu átt sér stað alvarleg
mistök þar sem ekki var farið eftir settum reglum...
Uynlskýrslur um Sjálfstœðisflokkinn. Á 60 ára afmæii
Sjálfstæðisflokksins birti Pressan leyniskýrslur naflaskoðunarnefndar
flokksins frá árinu 1987. Nokkrir valinkunnir sjálfstæðismenn gagnrýndu
þar forystuna, ímynd flokksins, skipulag o.fl. harkalega. Var flokkurinn
sagður kaldur, húmorslaus og fráhrindandi. Þvo þyrfti frjálshyggjuímyndina
af flokknum. Allt yfirbragð hans væri að harðna og þrengjast o.fl. o.fl. Við-
brögð við þessari birtingu Pressunnar urðu að vonum mikil. Forystumenn
Sjálfstæðisflokksins svöruðu því til að hér væri verið að rifja upp gamalt og
úrelt mál. Því var jafnvel haldið fram að efni leyniskýrslnanna hefði áður
birst í fréttum. En sannleikurinn var sá að áður höfðu aðeins lekið upplýs-
ingar um efni einnar skýrslu til fjölmiðla...
Stjórnmólaflokkarnir enn að
borga kosningaskuldirnar. í
fréttaskýringu í byrjun júní sögðum
við frá baráttu flokkanna við að
greiða niður kosningaskuldirnar frá
síðustu kosningum og þar kom jafn-
framt fram að flokkarnir eru teknir
að kvíða mjög fyrir sveitarstjórnar-
kosningunum að ári. Ástæðan:
óbærilegur kostnaður auglýsinga-
kapphlaupsins...
..Inn í þessa vinnu fléttast skemmtiþættir sem
eg a að koma fram í og ýmiss konar viðtöl og það
er í þeim þáttum sem ég ætla að reyna að sann-
færa Japanina um kosti þess að kaupa fisk af ís-
lendingum.“
Brynja Sverrisdóttir, ein eftirsóttasta fyrirsæta
heims, i viðtali við Pressuna 18. mai. . .
Rússagull. í apríl fylgdist frétta-
maður Pressunar náið með viðræð-
um sovéskrar viðskiptanefnar og ís-
lenskra útflytjenda og stjórnmála-
manna. Viðræðunum var lítill
gaumur gefinn af öðrum fréttamiðl-
um en þar voru merk tíðindi á ferð-
inni. Greindi fréttamaður frá því að
Sovétmenn byðu m.a. upp á sameig-
inlegan fyrirtækjarekstur íslend-
inga og Sovétmanna og vildu enn-
fremur fá veiðiheimildir í íslenskri
landhelgi. Hugmyndir Sovétmann-
anna um aðgang að fiskveiðilögsög-
unni vöktu strax hörð viðbrögð.
Þegar verið var að vinna að þessari
frétt Pressunnar átti sá óvenjulegi
atburður sér stað að frétt biaðsins
kom til umræðu á aiþingi, áður en
fréttin birtist. Fréttamaður blaðs-
ins bar hugmynd Sovétmannanna
um aðgang að fiskveiðilögsögunni
undir þingmann í utanríkismála-
nefnd þingsins, sem kom af fjöllum
og sá þegar í stað ástæðu til að vara
við þessari kröfu Sovétmannanna í
umræðum um utanríkismál á al-
þingi. Sköpuðust miklar umræður
um málið en daginn eftir birti Press-
an tveggja síðna fréttafrásögn af
málinu ndir fyrirsögninni: Glóir
rússagull. . .