Pressan - 31.08.1989, Blaðsíða 23
FYRST MEÐ
FRÉTTIRNAR
r
Armann Reynísson aftur kominn á fulla ferð. í bvrjun
nóvember sögðum við frá því að Ármann Reynisson í Ávöxtun væri kom-
inn af stað með nýtt fyrirtæki, þótt aðeins væru liðnir tveir mánuðir frá
lokun Ávöxtunar sf. . .
Stjórnin að springa. 9. september var því slegið upp að bak-
tjaTdaviðræður ættu sér stað á milli Framsóknarflokks og Alþýðuflokks
um uppstokkun eða nýja stjórnarmyndun með Alþýðubandalaginu.
Greint var ítarlega frá etni viðræðnanna og sagt að skv. þessu yrði líka
reynt að fá stuðning Stefáns Valgeirssonar. Þegar fréttin birtist hafði ekk-
ert spurst út um þessi mál til annarra fjölmiðla. Aðeins viku síðar sprakk
ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar óg mynduð var ný ríkisstjórn í lok mánað-
arins á sama grundvelli og greint var frá í frétt Pressunnar 9. sept. . .
Jóhanna leggur ráðherradóminn að veðl. Pressan birti
fyrst fjölmiðla yfirlýsingu félagsmálaráðherra um að hún segði af sér
ráðherrastöðunni ef húsbréfakerfið fengist ekki lögfest fyrir vorið. „Það
gefur auaaleið að éa get ekki átt samleið með ríkisstjórn sem ekki nær
saman á pingi um að leysa húsnæðismálin úr þeirri sjálfheldu sem þau
eru í," sagði Jóhanna í skotmarki Pressunnar 23. febrúar. . .
„Firn af lyfjum í fórum látinna.“
— Þorkell Jóhannesson, prófessor í lyfjafræði, 29. júní í greina-
skrifum um fórnarlömb læknadopsins — otæpilegar’ og eftir-
litslitlar ávísanir nokkurra lækna á róandi lyf og voveifleg
mannslát af þeim vöidum...
„rramtíðardraumarnir? Verða hár, grannur og
myndarlegur og fara í fallhlífarstökk áður en ég
dey.“
— Stefán Friðfinnsson, aðstoöarmaður utanríkisráð-
herra, i eldhressu Pressuviðtaii 17. nóvember.. .
Vinlconurnar Linda Péturs og Elsa Lund.
Blaðamaður og ljósmy ndari Pressunnar hittu þær Lindu alheimsfeg-
urðardrottningu og Elsu Lund fatahönnuð og sjónvarpsstjörnu að
máli þar sem þær voru í hrókasamræðum um tísku, förðun, ferðalög
o.fl. o.fl. Út úr því kom bráðskemmtilegt viðtal við þær stöllur með
myndum sem m.a. prýddu forsíðu Pressunnar 27. apríl. ..
Amy spáir ffyrir árið 1989. í áramótabiaðinu bin-
ist þriggja síðna löng og ítarleg spá Amy Engilberts fyrir komandi
ár. Þar kom m.a. fram að húsbrunar yrðu tíðir á árinu, ungir íslend-
ingar yrðu heimsfrægir og mikið yrði um skandala í kringum opin-
bera kerfið. . .
Skoðanakönnun meðal ffanga. Birtvareinstæð
skoðanakönnun í nóvember þegar greint var frá niðurstöðum úr
skoðanakönnun sem gerð var meðal fanga á Litla-Hrauni. Athygli
vakti m.a. að í langflestum tilvikum hefjast afbrot þeirra og vímu-
efnaneysla fyrir tvítugsaldurinn. Fæstir hafa þeir stundað fram-
haldsnám og nálega helmingur þeirra hefur misst öll tengsl við fjöl-
skyldu...
Á Súkku 600 i svefnherberginu. Afar óvenju-
legt forsíðuviðtal birtist í Pressunni 2. mars. Par var rætt við 24 ára
Reykjavíkurstúlku sem lýsti áhugamálum sínum; flugi, köfun, bif-
reiðaviðgerðum, fjallgöngum, skotfimi, sjómennsku, strætóakstri
o.fl. o.fl. . .
Brúðkaup ársins. Forsíða Pressunnar hefur sjaldan lað-
að að sér eins marga forvitna lesendur og þann 18. maí þegar birt
var mynd af brúðhjónunum Jóni Óttari Ragnarssyni og Elfu Gísla-
dóttur og vísað á ítarlega frásögn og myndir í blaðinu frá brúðkaups-
veislunni glæsilegu, sem haldin var í skíðaskálanum í Hveradölum,
ásamt viðtali við sjónvarpsstjórann um hjónabandið og framtíð-
ina. ..
„Ef stærsta fyrirtæki
landsins getur ekki verið
í friði með bíl af þessu
tagi, þá sé ég ekki hvert
við erum komnir.“
— Halldor Jónatansson, for-
stjóri Landsvirkjunar, um nýj-
an 3,7 milljóna kr. Range Rov-
er-bíl Landsvirkjunar, sem
hann hafði til eigin nota í vet-
ur á meðan einkabilnum var
lagt í bílskúrnum. Frétt 16.
mars...
í vetur stóð Pressan að sönglagakeppni fyrir íslenska dægurlaga-
höfunda sem hlaut heitið „Sönglagakeppni íslands ’89 — Landslag-
ið“. Viðbrögðin urðu meiri en bjartsýnustu menn þorðu að vona.
Alls bárust á fjörða hundrað lög í keppnina og sérstök dómnefnd
fékk það hlutverk að velja tíu lög í sjálf úrslitin. Auk Pressunnar stóð
upptökuverið Stöðin aö framkvæmdinni en fjölmargir aðilar gengu
til samstarfs, þ.á m. Bylgjan og Stöð 2, sem sjónvarpaði beint frá
glæsilegu úrslitakvöldi á Hótel íslandi þann 28. apríl. Það var svo lag
Jóhanns G. Jóhannssonar, Við eigum samleið, sem bar sigur úr být-
um eftir tvísýna keppni. Það er ekki ofmælt að öll þjóðin hafi fylgst
með keppninni og úrslitalögin eiga lengi eftir að hljóma meðal
landsmanna. Allt mælir því með að Landslagið verði árviss viðburð-
ur í dægurlagamenningu íslendinga. . .