Pressan


Pressan - 17.05.1990, Qupperneq 27

Pressan - 17.05.1990, Qupperneq 27
Fimmtudagur 17. maí 1990 kvikmyndir helgarinnar FIMMTUDACUR 19. maí Þessari er ekki alls varnað — þ.e.a.s. ef maður hefur áhuga á vísindasög- um. Hún fjallar um einkennilegt efni, sem verður afar vinsælt, en hefur óskemmtileg áhrif. Reynt er að slá á létta strengi, en myndin er þó hvorki almennileg grínmynd né almennilegur hryllir. Atridi í myndinni eru ekki við hæfi ungra barna. Stöð 2 kl. 20.55 ÞAGNARMÚR **» (Bridge to Silence) Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1989 Leiksljóri: Karen Arthur Adalhlutverk: Lee Remick, Marlee Matlin, Michael O’Keefe Þessi sjónvarpsmynd fjallar um unga heyrnardaufa konu, sem misst hefur eiginmann sinn í bílslysi. Móð- ir hennar hefur ákveðnar skoðanir á því hvernig hún eigi að haga lífinu eftir slysið, en unga konan er ekki sammála. Lee Remick leikur vel, eins og hennar er von og vísa, og Stöð 2 kl. 00.20 BÓFAHASAR **' (Johnny Dangerously) Bandarísk kvikmynd frá 1984 Leikstjóri: Amy Heckerling Adalhlutverk: Michael Keaton, Joe Piscopo, Marilu Henner Máttlaus grínmynd um glæpona í Ameríku. Myndin minnir helst á sjónvarpsþátt, því söguþráðurinn er ekki af sterkari gerðinni. Það versta er þó að brandararnir eru afskap- lega lítið fyndnir. Stöð 2 kl. 22.50 ÓFÖGUR FRAMTÍÐ *,/2 (Damnation Alley) Bandarísk kvikmynd frá 1977 Leikstjóri: Jack Smight Adalhlutverk: Jan-Michael Vincent, George Fkppard Mynd í vísindaskáldsögu-stíl, sem gerist þar af leiðandi í framtíðinni. Hún fjallar um fimm persónur, sem lifa af kjarnorkustyrjöld, og fylgst er með ferð hópsins í leit að öðrum eft- irlifendum. A leiðinni er barist við risakakkalakka ogannað í þeim dúr. Það má sem sagt finna sér ýmislegt meira uppbyggjandi að gera. FfinK'Sil eftir Mike Atkmson HHl LAU6ARDACUR 17. maí Stöð 2 kl. 22.15 GIMSTEINARANIÐ *** (The Sicilian Clan) Frönsk kvikmynd frá 1969 Leikstjóri: Henri Verneuil Adalhlutverk: Jean Gabin, Alain Delon, Lino Ventura Bráðsniðug mynd um glæpafjöl- skyldu, sem stendur fyrir gimsteina- ráni, en málið flækist hressilega fyr- ir þeim. Söguþráðurinn er raunar svolítið ótrúverðugur, en það gerir engin ósköp til því myndin er bráð- skemmtileg. Stöð 2 kl. 00.15 SAMNINGUR ALDARINNAR ** (Deal of the Century) Bandarísk kvikmynd frá 1983 Leikstjóri: William Friedkin Adalhlutverk: Chevy Chase, Sigourney Weaver, Gregory Hines Þetta á að vera ádeila á alþjóðlega vopnasmyglhringi. Aðalpersónurn- ar eru hins vegar ómanneskjulegar og óaðlaðandi og söguþráðurinn slitróttur, svo útkoman verður ekk- ert sérstök. F0STUDAGUR 18. maí Ríkissjónvarpið kl. 22.00 EFNIÐ *** (The Stuff) Bandarísk kvikmynd frá 1985 Leikstjóri: Larry Cohen Adalhlutverk: Michael Moriarty, Andrea Marcovicci, Garrett Morris það gerir Marlee Matlin líka, en sag- an er dálítið ófrumleg. Ríkissjónvarpið kl. 21.10 TÁR f REGNI *** (Tears in the Rain) Bresk sjónvarpsmynd frá 1988 Leikstjóri: Don Sharp Adalhlutverk: Sharon Stone, Christopher Cazenove, Leigh Lawson Sjónvarpsmynd á rómantísku nót- unum um unga ameríska stúlku, sem kemur til Englands til að upp- fylla hinstu ósk móður sinnar. Stúlk- an verður ástfangin af ríkum Breta, en hann er sonur fyrrum elskhuga hinnar látnu móður hennar og út af þessu spinnast ýmis vandamál. Sem sagt mynd fyrir þá, sem vilja vera á Ijúfu nótunum. Stöð 2 kl. 23.00 HÚSIÐ Á 92. STRÆTI ★ ★★Ví2 (The House on 92nd Street) Bandarísk svart/hvít kvikmynd frá 1945 Leikstjóri: Henry Hathaway Adalhlutverk: William Eythe, Lloyd Nolan Þessi er klassísk. Hún fjallar um sannsögulega atburði og er tekin á þeim stöðum, sem þeir áttu sér stað. Sögusviðið er New York í síðari heimsstyrjöldinni og þar reyna út- sendarar nasista að komast yfir formúlu til framleiðslu á kjarnorku- sprengju. Handritshöfundur mynd- arinnar fékk Óskarsverðlaunin, enda þykir söguþráðurinn bæði frumlegur og spennandi. Stöð 2 kl. 01.10 HETJAN **** (The Man who Shot Liberty Valance) Bandarísk mynd frá 1983 Leikstjóri: John Ford Adalhlutverk: James Stewart, Jolm Wayne, Vera Miles, Lee Marvin Þetta ku vera einn af betri vestrum, sem framleiddir hafa verið, þó myndinni hafi ekki verið neitt sér- lega vel tekið í upphafi. Nú þykir hún hins vegar klassísk, svo vestra-aðdáendur ættu ekki að láta hana framhjá sér fara. SUNNUDA6UR 20. maí Stöð 2 kl. 13.00 TOOTSIE ★★★★ Bandarísk kvikmynd frá 1982 Leikstjóri: Syndney Pollack Adalhlutverk: Dustin Hoffman, Jessica Lange Það er náttúrulega búið að marg- sýna þessa mynd áStöð 2, en hún er ein af þessum fáu, sem hægt er að horfa á aftur og aftur og aftur og aft- ur. Dustin Hoffman er óborganlegur í hlutverki leikara, sem þykist vera kona og fær kvenhlutverk í sápu- óperu. Hann er feginn að fá vinnu, en það versnar í því, þegar hann verður skotinn í einni leikkonunni í þáttunum. Stöð 2 kl. 23.00 ELSKUMST *** (Let's Make Love) Bandarísk kvikmynd frá 1960 Leikstjóri: George Cukor Adalhlutverk: Marilyn Monroe, Yves Montand Endursýning á mynd, sem var á dagskrá fyrir skömmu. Ef einhver skyldi eiga eftir að sjá hana, þá er kvikmyndin létt og skemmtileg og kynbomban Marilyn Monroe gleður auga gagnstæða kynsins. Hún fjall- ar um milljónamæring, sem verður ástfanginn af leikkonu sem heldur að hann sé af allt öðru sauðahúsi en raun ber vitni. 27 dagbókin hennar / Það er stundum eins og að vera í leikhúsi að fylgjast með pabba og mömmu svona frá degi til dags. Og ég er sko farip að kunna leikritið al- gjörlega utan að. Eiginlega er hjónabandið hjá þeim bara voöa einföld formúla, svo ég fatta ekki af hverju þau sjá það ekki sjálf og hlæja sig í spreng yfir því hvernig þeim tekst að forklúðra þessu aftur og aftur. Pabbi gæti sko haft mömmu meiriháttar góða og Ijúfa, ef hann passaði barasta upp á örfáa hluti. Hann þyrfti til dæmis aö taka eftir því, þegar hún er búin aö fara í klippingu, og gefa henni ein- staka sinnum blóm af engu tilefni. (Hún verður stjörnuvitlaus, ef hann kemur með blóm á mæðra- eða konudaginn. Mamma vill nefnilega ekki aö fólk láti blómasala segja sér fyrir verkum.) Pabbi yrði líka að taka soldið vel í það, þegar mamma biður hann um að koma með sér í helgarinnkaupin. Það fer svo ofsalega í taugarnar á henni að honum skuli finnast það al- gjört einkamál hennar að kaupa í matinn. Og ekki myndi það spilla fyrir, ef hann læröi í hvaða skápum handklæöin eru og hvar skærin eru geymd. Það að auki gæti hann ein- staka sinnum stungið upp á því að fyrrabragði að þau skelltu sér í bíó — að maöur tali nú ekki um leikhús eða málverkasýningar. Þetta myndi pottþétt gerbreyta skapinu í mömmu, en til öryggis gæti pabbi náttúrulega passað betur að pissa ekki út fyrir klósettið. Og síðan væri málið endanlega í höfn, ef hann hreinsaði eldavélina vel, þegar hann er búinn aö elda spak- éttí. (Þá er alltaf eins og vélin hafi fengið rauöu hundana út af tómat- sósuslettunum.) Mamma gæti líka gert pabba sjúk- lega ánægðan með sig með voða lít- illi fyrirhöfn. Hún yrði auðvitað að mála sig á hverjum degi, en hún þyrfti ekki aö vera í kjól eða pilsi nema nokkrum sinnum í mánuöi til aö gleðja hann. Svo mætti hún ekki nota gömlu útslitnu ömmunáttkjól- ana nema þegar hún væri fárveik. (Hún á tvo geggjaða silkináttkjóla, sem pabbi hefur gefið henni, en mömmu finnst þeir alltof djarfir fyr- ir sig. Ég skil nú ekki af hverju hún getur ekki gert þaö fyrir hann aö nota þá. Hún sefur hvort sem er eins og steinn allar nætur og veit þá ekk- ert í hverju hún er. En hún er kannski hrædd um að fá engan svefnfrið fyrir pabba, ef hún er orð- in svona sexí. . .) Pabbi yrði þar að auki ofsa ánægður, ef mamma byði ömmu á Einimelnum af og til í mat, án þess að hann píndi hana til þess. Og ef hún gæti nú þar að auki setið á sér með að rífast viö hana myndi pabbi verða alsæll. Þá þyrfti mamma ekki að gera nema eitt enn til að tryggja hjónabandssæluna fyrir pabba — þ.e. aö kaupa stundum hvítt aum- ingjabrauð í staðinn fyrir öll grófu heilsubrauðin. En þau sjá bara ekki sjálf hvaö þetta er skítsimpilt mál, heldur halda hvort um sig áfram aOugera alla litlu hlutina, sem fara svo^rosa- lega í taugarnar á hinu. Er það von að manni finnist þessu fullorðna fólki ekki við bjargandi. . .

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.