Pressan - 28.06.1990, Side 3
3
Fimmtudagur 28. júní 1990
PRESSU
Islenski hundurinn vakti aðdáun
Elísabetar Englandsdrottningar,
enda minntist hún á það í einni af
ræðum sínum að Bretar þekktu vel
til hans frá fornu fari. Nefndi hún í
því sambandi að íslenska hundsins
er getið í verkum sjálfs Shake-
speares. Þeir sem hafa lesið Shake-
speare muna ef til vill eftir því að í
leikritinu Hinriki V er hundsins
okkar getið, þó ekki sé það beinlínis
að góðu. Tilvitnunin er úr öðrum
þætti leikritsins þar sem tveir dólg-
ar eru að spjalla saman og annar
dólgurinn segir við hinn: Svei þér
þú Islands eyrnasperrti hundur.
Þannig hljóðar þetta í þýðingu
Helga Hálfdanarsonar. Það má
kannski segja að tilvísun drottning-
arinnar hafi ekki verið mjög smekk-
leg, en þetta var áreiðanlega fallega
meint. . .
M
Sky News-sjónvarpsrasinni
var í gærkvöldi frétt um að Bretar
væru að halda upp á níutíu ára af-
mæli Elísabetar drottningar-
móður. Ekki virðast breskir frétta-
menn sérstaklega uppteknir af Is-
landsheimsókn sjálfrar drottning-
arinnar, því í fréttum var sérstaklega
tekið fram að Elísabet Englands-
drottning hefði ákveðið að vera
ekki „til staðar" þegar hátíðahöldin
færu fram til að skyggja ekki á móð-
ur sína. ísland var ekki nefnt einu
orði í fréttinni. . .
ii
^^^tvarpsréttarnefnd, sem fram
til þessa hefur fyrst og fremst verið
úthlutunarnefnd á leyfum til út-
varpsrekstrar, hefur úrskurðarvald í
kærum sem fram koma vegna brota
á útvarpslögum. Hún hefur nú beitt
því valdi í fyrsta sinn. Neytenda-
samtökin leituðu til nefndarinnar
vegna þáttar um tísku sem sýndur
var á Stöð 2 í maí sl. Töldu samtökin
að þátturinn hefði öðru fremur ver-
ið fataauglýsing enda var mjög
rækilega tekið fram hvaða verslanir
seldu þann fatpað sem sýndur var
hverju sinni. Útvarpsréttarnefnd
úrskurðaði í málinu á mánudaginn
og niðurstaða hennar var sú, að
þátturinn bryti gegn útvarpslögum.
I framhaldi af þessu mun nefndin
fyrirhuga að halda ráðstefnu í haust
um auglýsingar og auglýsingareglur
í Ijósvakafjölmiðlum. Þykir ýmsum
nefndarmönnum það löngu tima-
bært þar sem óbeinar auglýsingar
setji æ meiri svip á þáttagerð frjálsu
fjölmiðlanna...
W^Éiðað við mannfjöldatölur
1979 og 1989 fjölgaði landsmönn-
um á þessum áratug um 27.143 eða
um 12%. Þar af fjölgaði íbúum
Reykjavíkur og Reykjaneskjör-
dæmis um 25.708 og segir það sína
sögu um þróunina. Annars staðar
hefur fólki fjölgað lítið og fækkun
Vestfirdinga er sláandi. Þeir voru
1979 alls 10.360 en áratug siðar
9.840, hafði fækkað um 520 eða
5%. Miðað við sama áframhald má
búast við því að Reykvíkingar og -
Reyknesingar verði um næstu alda-
mót nær 190 þúsundum talsins og
þá tveir þriðju hlutar lands-
manna . ..
STAÐGREIÐSLA 1990
PERSÓNUAFSLÁTTUR
HÆKKAR l JÚLÍ
—
PERSONUAFSLA TTUR VERÐUR
22.114 KR. Á MÁNUÐI
VERÐUR 610KR.A DAG
Þann 1. júlí nk. hækkar persónuafsláttur í 22.114 kr. á mánuði
og sjómannaafsláttur í 610 kr. á dag.
Hækkunin nemur 6,06%.
Hækkunin nær ekki til launagreiðslnafyrirjúní og hefur ekki í
för með sér að ný skattkort verði gefin út til þeirra sem
þegar hafa fengið kort.
Ekki skal breyta upphæð persónuafsláttar launamannsþegar
um er að ræða:
• Persónuafslátt samkvæmt námsmannaskattkorti 1990.
• Persónuafslátt samkvæmt skattkorti með uppsöfnuðum
persónuafslætti 1990.
Ónýttur uppsafnaður persónuafsláttur sem myndast hefur á
tímabilinu 1. janúar til 30. júní 1990ogverðurmillifærðursíðar
hækkar ekki.
Á sama hátt gildir hækkun sjómannaafsláttar ekki um
millifærslu á ónýttum uppsöfnuðum sjómannaafslætti sem
myndast hefur á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 1990. s
o
IS)
o
X
<
>
Launagreiðendur! Munið að hœkka persónuafsláit
vegna júlílauna.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI