Pressan - 28.06.1990, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 28. júní 1990
11
erulegrar óánægju hefur
gætt í sambandi við val á hestum til
keppni á landsmóti hestamanna á
Vindheimamelum í næstu viku.
Ástæða þess er ekki síst að sá dóm-
ur sem hross hlýtur getur skipt
sköpum um verðmæti þess upp á
hundruð þúsunda króna. Þá er hér í
húfi margra ára ræktunarárangur
kynbótamanna í hrossarækt sem og
stolt þeirra og heiður. Það hefur
flækt þessi mál að skala í hrossa-
dómum var breytt fyrr á þessu ári,
m.a. að ósk Félags hrossabænda.
Breytingin var einkum fólgin í því
að víkka út skalann þar sem ein-
kunnir þóttu safnast á of þröngt bil.
Þá hefur mikið fjölgað þeim mönn-
um sem stunda hrossakynbætur ög
gamalgrónir ræktunarmenn fengið
meiri samkeppni en áður. Sumir
þeirra hafa því fengið lélegri út-
komu en þeir töldu sig eiga skilið...
M
Wð einhverju leyti á það þatt í
þeirri spennu sem ríkir fyrir iands-
mót hestamanna að nokkur tog-
streita er milli búgreinafélaga og
Búnaðarfélags íslands og á Félag
hrossabænda hlut að henni. Það
eru ráðunautar Búnaðarfélags ís-
lands í hrossarækt, þeir Þorkell
Bjarnason og Kristinn Hugason,
sem bera meginábyrgð á úrtöku-
dómunum. Hefur gagnrýnieinkum
beinst að Kristni sem sagður er hafa
tekið völdin af Þorkeli sem þó er
mun eldri í starfi. Voru kröfur á lofti
um að Kristinn véki úr dómarasæti
á landsmótinu. Gagnrýni á Kristin
mun m.a. vera sú að hann sé ekki
eins þjáll í lund né sjóaður í starfi og
Þorkell. í síðustu viku var haldinn
fundur í kynbótanefnd hrossa-
ræktar til að fara yfir stöðuna.
Nokkur gagnrýni var þar borin á þá
Þorkel og Kristin en þeir báru hana
af sér og lögðu fram meðaltalsút-
reikninga á einkunnum, máli sínu til
stuðnings. Þá kom þar fram að Þor-
kell stillti sér fast upp við Kristin og
kvað eitt skyldi yfir þá báða ganga.
Ef Kristinn véki úr dómarasæti á
landsmóti þá véki Þorkell einnig. Á
fundinum varð sátt um að láta við
svo búið standa og stefna ekki
landsmótinu í hættu. Hins vegar
yrðu mál tekin fyrir að nýju síðar á
árinu og má þá vænta átaka. . .
Mlýlega tók Þorsteinn I. Sig-
fússon eðlisfræðiprófessor sæti í
stjórn Félagsstofnunar stúdenta.
Hann gegnir stöðu prófessors við
háskólann en staða hans er launuð
af járnblendifélaginu. Þorsteinn
er skipaður í stjórnina af háskóla-
ráði til næstu fjögurra ára. Bróðir
Þorsteins er Árni Sigfússon, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík ...
^^Fftir að Íþróttahátíð ÍSÍ lýkur
mun framkvæmdastjóri hátíðarinn-
ar, Stefán Konráðsson, taka_ við
starfi framkvæmdastjóra KSÍ, en
knattspyrnusambandið hefur ekki
haft framkvæmdastjóra á sínum
snærum um langa hríð . . .
I Morgunblaðinu í gær slæddist
með skemmtileg prentvilla í sam-
bandi við drottningarheimsóknina
frægu. Hér var um að ræða gesta-
lista til hádegisverðar forsætisráð-
herra á Þingvöllum, en Mogginn
hélt því fram að meðal gesta væri
fornmaðurinn Ólafur G. Einars-
son. Það mátti þó ráða af samheng-
inu að átt var við að Ólafur væri for-
maður Þingvallanefndar en ekki
fornmaður nefndarinnar. Þetta þyk-
ir okkur leitt, drottningarinnar
vegna, því eflaust hefði henni fund-
ist enn meira spennandi að snæða
hádegisverð með raunverulegum ís-
lenskum fornmanni...
s
^Pem kunnugt er spáir SIS nú
mikið í hlutafélagaformið og vonast
til að get.a bætt fjárhag sinn og kaup-
félaga sinna með einum eða öðrum
hætti. Segja má að táknrænn hlutur
í þessa átt hafi þegar gerst á Eski-
firði. Þar var til skamms tíma kaup-
félagsverslunin Pöntunarfélag
Eskifjarðar, ekkert stórveldi en
átti þó sinn fulltrúa á aðalfundum
SIS. Pöntunarfélagið fór undir
græna torfu fyrir fáum árum og var
yfirtekið af Kaupfélagi Héraðs-
búa. En nú hafa Hraðfrystihús
Eskifjarðar, bæjarsjóðurinn,
Sæberg og 29 einstaklingar stofnað
Pöntunarfélag Eskifjarðar hf.
upp úr rústunum og stjórnarfor-
maður er enginn annar en Aðal-
steinn „Alli ríki“ Jónsson. Kaup-
félagið er sem sé fallið í hendur lif-
andi tákni einkaframtaksins . ..
o
^^ins og komið hefur fram hef-
ur Svavar Egilsson algerlega dreg-
ið sig út úr stjórn málefna Arnar-
flugs en aftur á móti er samningur
hans við félagið enn í fullu gildi.
Þegar Arnarflug hefur staðið við
skilyrði samningsins á ekkert að
standa í vegi fyrir því að Svavar reiði
fram 200 milljónirnar sem hann
hugðist leggja til fyrirtækisins . . .
Iþrótta- og tómstundaráö Reykjavíkur, í samráði við
íþróttabandalag Reykjavíkur og íþróttasamband íslands halda íþróttadag Reykjavíkur 30. júní.n.k.
Ákveðið er að halda daginn í tengslum við Íþróttahátíð ÍSÍ, en hún stendur yfir frá 28. júní - 1. júlk
I VESTUBÆJARLAUG,
LAUGARDALSLAUG,
SUNDHÖLLINNI og BREIÐHOLTS
LAUG veröur opið frá kl. 7.30-17.3(
Enginn aðgangseyrir er og jafnfrai
leiðsögn í SKOKKI og SUNDI.
BARNALEIKTÆKI eru við Laugard
frá kl. 13 -17. í öllum laugunum ve
flotleikföng fyrir börn.
I NAUTHÓLSVÍK verður almenningi boðin
afnot af bátum siglingaklúbbsins ásamt leið-
sögn frá kl. 13-17.
TENNISVELLIR VÍKINGS og við GERVI-
GRASVÖLLINN I LAUGARDAL verða opnir
almenningi, án endurgjalds, frá kl. 13-16.
Leiðsögn í grunnatriöum tennisíþróttarinnar
verður á sama tíma.
Það sem boðið verður uppá verður m.a.:
GÖNGUFERÐ UM VIÐEY. Skipulagðar verða
gönguferðir um Viðey, frá kl. 13-17, með
vönum fararstjórum. Ferðir til og frá Viðey
verða ókeypis.
GOLFVÖLLURINN
VIÐ KORPÚLFSSTAÐi
verður opinn almenningi,
án endurgjalds, frá
kl. 13-17. Leiðsögn fyrir
byrjendur verður á staðnum.
KEILUSALURINN
í ÖSKJUHLÍÐ verður með
kennslu fyrir byrjendur frá
kl. 13-16. Aðgangur er ókeypis.
HJÓLABRETTAPALLAR
verða við Seljaskóla, Ársel
og Grandaskóla.
SEGLBRETTI
Á sama tíma verður boðin ókeypis kennsla í
siglingu á SEGLBRETTUM sem lánuð eru á
staðnum.
Eins og sést á dagskránni er einkum lögð
áhersla á fjölskylduíþróttir, enda verður
mjög viðamikil íþróttastarfsemi fyrir börn og
unglinga, á sama tíma á vegum ÍSÍ.