Pressan - 28.06.1990, Blaðsíða 27

Pressan - 28.06.1990, Blaðsíða 27
Fimmtudagur 28. júní 1990 27 kvikmyndir helgarinnar FIMMTUDACUR 28. júní Stöð 2 kl. 22.20 HASAR í HÁLOFTUNUM ** (Steal the Sky) Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1988 Leikstjóri: John Hancock Adalhlutverk: Mariel Hemingway og Ben Cross Þetta er spennumynd sem segir frá bandarískum njósnara sem ráðinn er til þess að fá íraskan flugmann til að svíkjast undan merkjum og fljúga MIG-orrustuþotu sinni til ísra- els. Maltin telur myndina slarkfæra. Flugsenurnar ættu að gleðja flug- áhugamenn. Stöð 2 kl. 00.00 HEIMSINS BESTI ELSKHUGI**'4 (World's Greatest Lover) Bandarísk bíómynd frá 1977 Leikstjóri: Gene Wilder Aöalhlutverk: Gene Wilder, Dom DeLuise og Carol Kane Þessi er sprenghlægileg en heldur mistæk á köflum. Greinir hér frá manni nokkrum á þriðja áratug ald- arinnar sem afræður að taka þátt í samkeppni kvikmyndavers um það hver líkist mest hjartaknúsaranum Valentínó. Valentínó sjálfur kemur til leiks og gefur honum góð ráð en þegar á hólminn er komið á hann í mestu erfiðleikum. Eiginkonan, sem er trúr aðdáandi Valentínós, á mestan þátt í að hann lætur til skar- ar skríða. F0STUDAGUR 29. júní Stöð 2 kl. 21.20 LEIGUMORÐ ** (Downpayment on Murder) Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1987 Leikstjóri: Waris Morse Aðalhlutverk: Connie Sellecca, Ben Gazzara og David Morse Gamalkunnugt stef; geðklofa mað- ur ræður leigumorðingja til að koma eiginkonunni fyrir kattarnef. Ekki algalin afþreying en fátt um fína drætti umfram það. Ríkissjónvarpið kl. 22.23 í HITA DAGSINS ★★★V'2 (The Heat of the Day) Bresk sjónvarpsmynd frá 1989 Leikstjóri: Christopher Morahan Aðalhlutverk: Peggy Ashcroft, Michael Gambon, Patricia Hodge og Michael York Höfundur handrits: Harold Pinter Einvalalið á bak við þessa bresku gæðasmíð sem gerist í umróti heimsstyrjaldaráranna (síðari). Sögusviðið er London. Konu nokk- urri eru góð ráð dýr er henni er gert að velja milli fylgilags við mann nokkurn, er henni er lítt kunnur, og frelsissviptingar ástmanns síns. Myndin er margslungin og geysi- lega vel gerð. Handritið skrifaði Harold Pinter eftir skáldsögu Eliza- beth Bowen. Bestu meðmæli. Stöð 2 kl. 23.25 FRÆGÐ 0G FRAMI **» (W.W. and the Dixie Danceking) Bandarísk bíómynd frá 1975 Leikstjóri: John G. Avildsen Aðalhlutverk: Burt Reynolds, Art Carney og Conny van Dyke Burt Reynolds fer létt með að leika aðlaðandi bragðaref sem tekur að sér að æfa þriðjaflokks sveitatónlist- arflokk, þar sem ung stúlka fer með aðalhlutverkið. Brátt kemst hópur- inn svo langt að troða upp á þekkt- asta skemmtistað í Nashville. Á meðan dundar bragðarefurinn sér við að ræna nálægar bensínstöðvar. Lunkin gamanmynd og bærilega vel heppnuð Stöð 2 kl. 00.55 HUNDRAÐ RIFFLAR ** (100 Rifles) Bandarísk bíómynd frá 1969 Leikstjóri: Tom Gries Aðalhlutverk: Burt Reynolds, Jim Brown, Raquel Welch og Fernando Lamas Burt Reynolds aftur á ferð og hér í öllu lakari mynd en Frægð og frama. Þetta er vestri sem gerist í Mexíkó í kringum 1912. Lögreglu- stjóri hefur elt útlaga suður fyrir landamærin og flækist í stríðserjur milli heimamanna og herstjórnar gráðugs herforingja. Það er engin spurning að Burt Reynolds heldur myndinni uppi, sem ella fyllti stóran hóp mislukkaðra vestra LAUGARDACUR uu. juru Stöð 2 kl 15.00 FÚLASTA ALVARA *'■ (Foolin' Around) Bandarísk bíómynd frá 1980 Leikstjóri: Richard T. Heffron Aðalhlutverk: Gary Busey og Annette O’Tool Saklaus sveitadrengur kynnist ógn- arfagurri stúlku sem stundar nám í sama skóla. Hann verður skotinn en hún er bæði lofuð og auðugri en svo að hann eigi séns. Dellumynd gerð eftir formúlu slöppustu gaman- mynda frá sjötta áratugnum. Stöð 2 kl. 20.50 HÚMAR AÐ **** (Whales of August) Bandarísk bíómynd frá 1988 Leikstjóri: Lindsay Anderson Aðalhlutverk: Bette Davis, Lillian Gish og Vincent Price Undurfalleg og smekklega gerð mynd um gamalt fólk. Fjallar hún um systur, sem hafa eytt sumrum síðastliðinna áratuga í sumarbústað sínum á eyju norður af strönd Ma- ine. Meðan þær voru ungar höfðu þær fylgst með hvölunum synda meðfram ströndinni en nú þegar ævikvöld þeirra er á enda sjást þeir ekki lengur. Þær fá þá óvænta heim- sókn frá landflótta Rússa og afskipti vinkonu þeirra og nágranna minnka ekki við það. Hér yfirskygg- ir leikur þeirra Bette Davis og Lillian Gish allt annað*í annars stórgóðri mynd. Tvímælalaust mynd helgar- innar að okkar mati og bestu með- mæli. Stöð 2 kl 22.15 RÉTTUR FÓLKSINS *** (The Right of the People) Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1986 Leikstjóri: Jeffrey Bloom Aðalhlutverk: Michael Ontkean, Jane Kaczmarek og Billy Dee Williams Stjórnarskráin er Bandaríkjamönn- um löngum hugleikin. Hér er fjallað um margþvælt þrætuepli vestra; rétt borgaranna til að bera skotvopn. Söguþráðurinn fjallar um baráttu saksóknara nokkurs til að ná fram lagabreytingu sem felur það í sér að borgarar öðlist rétt til að bera skammbyssu, eftir að eiginkona saksóknarans og dóttir hafa fallið í skotárás á veitingahúsi. Myndin veitir tæpast nein svör við siðferðis- legum spurningum um borgararétt- indi og borgaravernd en er þægileg- asta afþreying. Ríkissjónvarpið kl. 23.20 SVIKAVEFUR *** (The Wilby Conspiracy) Bandarísk bíómynd frá 1975 Leikstjóri: Ralph Nelson Aðalhlutverk: Sidney Poitier, Michael Caine, Nicol WilUamson, PruneUa Gee og Saeed Jaffrey Hörkuspennumynd með úrvalsleik- urum. Breskur námuverkfræðingur kynnist suður-afrískum andófs- manni, sem er nýsloppinn úr fang- elsi, og saman lenda þeir á æsileg- um flótta undan lögreglunni. Poitier og Caine standa sig eins og við mátti búast en Nicol Williamson stelur senunni. Myndin stendur vel undir nafni sem fyrirtaks afþreying en býður þó raunar ekki upp á neitt umfram það. Stöð 2 kl. 00.35 DÁÐADRENGUR **'•'■ (All the Right Moves) Bandarísk bíómynd frá 1983 Leikstjóri: Michael Chapman Aðalhlutverk: Tom Cruise, Lea Thompson og Christopher Penn Unglingamynd með unglingastjörn- unni Tom Cruise í aðalhlutverki. Hér fer hann með hlutverk náms- manns sem dreymir um að verða verkfræðingur. Hann er af fátæku fólki kominn og sér einu leiðina í há- skólanám liggja í gegnum frægð og frama í fótbolta. Bærileg skemmtun enda reyndur kvikmyndagerðar- maður við stjórnvölinn. s 1. júlí Stöð 2 kl. 13.00 BARNASPRENGJA *** (Baby Boom) Bandarísk bíómynd frá 1987 . Leikstjóri: Charles Shyer Aðalhlutverk: Diane Keaton, Sam Shephard, Harold Ramis og Sam Wanamaker Kvenréttindasjónarmið undirstaðan í þessari velheppnuðu mynd þar sem gert er létt grín að framsókn kvenna í atvinnulífi á nótum upp- anna. Kona nokkur á framabraut sit- ur allt í einu uppi með barn frænd- fólks síns. Hún kemst að raun um að ekki er eins auðvelt að samhæfa barnauppeldi og viðskipti og hún taldi. Diane Keaton leikur með stakri prýði en Sam Shephard er lit- laus í tilþrifalitlu hlutverki. Stöð 2 kl. 23.00 REYNDU AFTUR *** (Play it again, Sam) Bandartsk bíómynd frá 1972 Leikstjóri: Herbert Ross Aðalhlutverk: Woody Allen og Diane Keaton Woody Allen er hér í hlutverki manns sem hefur dálæti á kvik- myndum og konum. Til að verða eitthvað ágengt í kvennamálunum bregður hann sér í gervi • Humphreys Bogart en missir kjark- inn þegar á hólminn er komið. Stöð- in endursýnir þessa klassísku gam- anmynd. KinK'51 eftir Mike Atkinson E£ERRE>JNMNI>/ BLAuruR ! Ehl H-EIM5KULE6T P&TTA OFAU f fiskATJÖFLNIUA.' dagbókin hennar Ég er svo ástfangin að ég má varla vera að því að sofa. Það er alltof gaman að vera vakandi til að ég tími að liggja steinsofandi undir sæng í marga klukkutíma. Það er bara verst hvað pabbi og mamma eru fer- lega óhress með Magga. Þau eyði- leggja gleðina soldið fyrir mér, en hann sjarmerar )>au örugglega upp úr skónum smám saman. Gamla settinu finnst það eitthvað stórmál að Maggi skuli hafa verið í fangelsi í nokkra mánuði fyrir mörg- um árum. (Hann er sko tíu árum eldri en ég og þeim finnst það líka svakalegt mál. Það er ekkert auð- velt að þóknast þessu liði. . .) Það breytir engu þó Maggi greyið hafi bara tekið á sig dóminn til að hlífa vini sínum, sem var með innilokun- arkennd og hefðiörugglega dáið úr „fóbíu” á Litla-Hrauni. Þess vegna fórnaði Maggi sér fyrir hann og við- urkenndi að hafa selt nokkrum Verslunarskólakrökkum hass og þannig, þó hann hefði auðvitað alls ekki komið nálægt þvi. Hann er ekkert þannig gæi, hann Maggi. Pabbi og mamma segja að ég sé glær í gegn að trúa þessu. Maggi hafi að sjálfsögðu verið á kafi í dóp- sölu, því annars hefði hann aldrei verið dæmdur og settur á Hraunið. Þau trúa sko aldrei neinu góðu upp á neinn! En ég veit nokk betur. Maggi myndi aldrei gera flugu mein — hvað þá að seljadóp. Hann tók til dæmis tvær stelpur upp í bílinn á rúntinum um daginn og keyrði þær alla leið heim, af þvi þeim var svo ferlega kalt. (Hann var ekki einu sinni neitt að monta sig af þessu, heldur fann ég óvart ókunnugan varalit í hanskahólfinu og þá sagði hann mér frá stelpunum, sem hann reddaði. Sumir hefðu nú ekkert ver- ið að þegja yfir svona góöverki, en Maggi er alveg spes.) Millistéttarsnobbin, sem ég á fyrir foreldra, eru líka svo lágkúruleg að íinnast Maggi ekki nógu sætur. Eins og hann geti eitthvað gert að því þó hann hafi verið útsteyptur í ungl- ingabólum þegar hann var yngri?! Maður stjórnar nú ekkert svoleiðis hlutum og það er náttúrulega skýr- ingin á því hvað hann er öróttur í framan núna. Ég hef reyndar frétt að fólk geti látiö pússa þannig ör á spítulum og orðið miklu sléttara í framan, en hann Maggi er sko ekki að eltast við yfirborðslega hluti eins og útlit. Hann segir, að það sé hin innri manneskja, sem skipti öllu máli — og ég er alveg innilega sam- mála. Svo sé ég heldur ekkert at- hugavert við að hann gangi alltaf í svörtum gallabuxum. Mamma segir, að hann eigi bara eitt par og að þær hafi upphaflega verið bláar, en ég trúi nú frekar Magga. Hann segist einfaldlega vera hrifnastur af svört- um gallabuxum og hafa keypt sér margar alveg eins, sem hann notar til skiptis. Ég vona bara að pabbi og mamma gefi Magga séns áður en hann gefst upp á mér út af þeim. (Þau hafa tvisvar logið að honum að ég sé ekki heima, þegar hann hefur hringt til að bjóða mér út! Þetta er alveg óforskammað.) Hann er svo sjúklega góður strákur inn við bein- ið, en þau eru barasta búin að dæma hann fyrirfram af ferlegum fordóm- um.. . $/644, wQú&á. .

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.