Pressan - 28.06.1990, Síða 8

Pressan - 28.06.1990, Síða 8
8 Fimmtudagur 28. júní 1990 PRESSÖM VIKUBLAD Á FIMMTUDOGUM l Miícf.'iiuli: iT.imkvu'mdastjiMÍ: Hitstjiuar: Bladamrim: Ljiismvndari: Útlit: JVúfarkalcstin: \iii*lýsini»«ast j( >ri: Blad lif. I lcikon Hákonarson .lonina l.rósdóttii ()mar l'i ióriksson Anna Kristiiu* Mai»misdóttir Bjorií l'.va l'.rlrndsdiittir iTÍórik l*ór (iiiónumdsson ln^il)jori» Sólrtin (íísladóitir l'.inar ()lason Anna 'l'li. Kói»nval(lsdóttir Sit»ríóur H. (iunnarsdóttir Hinrik (itinnar Hilmarsson Ritstjorn og skrifstofur. Ármula 36. simi: 68 18 66. Auglýsingasimi. 68 18 66 Askrift og dreifing: Ármula 36, simi 68 18 66. Setning og umbrot: Leturval sf. Prentun: Oddi hf. Askriftargjald 500 kr. á nianuði. Askriftargjald: Pressan og Alþýðublaðið: 1000 kr. a manuði. Verö i lausasolu: 150 kr. eintakið. OFBELDI I FRIÐHELGI HEIMILISINS í l’RESSUNNI í dag er sögö dæmisaga af konu sem býr við gróft oí- beldi á heimili sinu og lifir i stöðugum lifsháska. Hún á erfiða félags- lega sögu að baki og býr i lélegu húsnæði. Konan fæst ekki með nokkru móti til að kæra þann sem beitir hana ofbeldi og kennir sjálfri sér að nokkru um hvernig komið er. Dæmisögur af þessu tagi eru al- kunnar meðal þeirra sem sinna félagslegri aðstoð. En hver hefur vald til að grípa inn í og rjúfa vítahringinn? PRESSAN fór á stúfana og lagði málið fyrir ýmsa aðila. Hvað gerir „kerfið" þegar það kemst á snoðir um ofbeldi gagnvart fólki inni á heimilum? Athugunin leiðir í ljós þá nöturlegu staðreynd að ofbeldi á heimilum er í mörgum tilvikum látið afskiptalaust og yfirvöld telja sig oft á tíðum skorta vald til að grípa inn i. Hjá Félagsmálastofnun Reykjavíkur fengust þau svör að stofnunin beitti sér helst ekki í málum af þessu tagi nema í samráði við aðstand- endur og fórnarlambið sjálft. f greininni kemur ennfremur fram að lögreglan telur sig ekki geta aðhafst neitt nema sá sem fyrir ofbeldinu verður óski eftir því, þar sem heimilið sé friðhelgur staður. Þessi eftir- grennslan PRESSUNNAR leiðir engu að síður í Ijós að þetta sjónarmið lögreglunnar virðist byggt á algengum misskilningi. Fyrir nokkrum árum var hegningarlögunum breytt þannig að sömu reglur eiga nú að gilda um heimilisofbeldi og ofbeldi á götum úti. Fram kemur í grein PRESSUNNAR að konan þurfti að leita oftar en einu sinni á slysadeild Borgarspítalans. Þar er hugað að meiðslum hennar en að öðru leyti hefur slysadeildin fá úrræði og blandar sér ekki í málið. Mörg tilfelli af þessu tagi hafa komið til kasta Kvennaat- hvarfsins. Aðeins þar virðist griðastaður margra fórnarlamba ofbeldis í heimahúsum. I greininni eru birtar tölur sem sýna óhugnanlegan fjölda líkamsárása í heimahúsum skv. upplýsingum slysadeildar Borg- arspítalans. í langflestum tilvikum eru konur fórnarlömb líkamsmeið- inga. A dögunum gripu yfirvöld inn í þegar upp komst að nokkur hross sættu mjög illri meðferð af hendi eiganda. í grein PRESSUNNAR er spurt hvort yfirvöld beiti meiri myndugleika þegar um hrottalega meðferð skynlausra dýra er að ræða en þegar fólk verður sjálft fyrir árásum og líkamsmeiðingum innan veggja heimila sinna. Athugun blaðsins leiðir í Ijós að „kerfið" litur á heimilið sem friðhelgan stað — en fyrir hvern? þankabrot Þankabrot skrifa: Bolli Héðinsson, efna- hagsrádí(jafi forsœtisrádherra, Einar Karl Haraldsson, ritstjóri Nordisk Kontakt, Jón Ormur Halldórsson stjúrnmátafrwdingur og Lára V. Júlíusdóttir, framkvœmdastjóri Alþýöusambands Islands. Um það sem betur má fara „Yfirdrepsskapurinn gagnvart ófengi er víða mikill og síst minni en hér á landi. Til skamms tíma var ekki hægt að kaupa ófengi um miðjan dag á Bretlandi, a.m.k. ekki á „pöbbum'V' Heimsókn bandaríska kvenréttindahópsins hingað til lands í síðustu viku var sér- staklega ánægjuleg. Gangi eftir, að hér á landi verði haldin alþjóðleg ráðstefna um kvennabaráttu þegar á næsta ári, gæti sú ráðstefna orðið einn þeirra merku heimsatburða sem land og þjóð hafa getið sér gott orð fyrir og hófust hér á landi með skákeinvíginu sællar minningar. Ég treysti mér ekki til að leggja mat á skoð- anir þeirra á stöðu íslenskra kvenna, sem þær töldu vera með því skásta sem gerðist í veröldinni. Hins vegar gerir slíkt þó ekki annað en færa okkur heim sanninn um hversu miklu lengra konur eiga í land með að ná jafnrétti á við karla annars staðar. Þannig hefur mér ekki virst að við stæðum neitt sérstak- lega framarlega í jafnréttis- baráttunni. Hins vegar bjóða aðstæður smáþjóðarinnar upp á að við finnum lausnir sem henta og eru framkvæm- anlegar til að ná jafnrétti í reynd. Á miklu fleiri sviðum þurfum við að færa okkur í nyt, að það sem færa má til betri vegar í hverju þjóðfélagi er auðveldara í framkvæmd í samfélagi sem okkar heldur en hinum stærri. -o-o-o- I viðtali við einhvern út- lendan ferðamálafrömuð í síðustu PRESSU máttum við íslendingar þola það að hann kallaði áfengislöggjöfina á ís- landi „gamaldags"! Látum nú vera ef hér hefði verið maður upprunninn frá þeim löndum Mið- og Suður-Evrópu þar sem menn umgangast áfengi án verulegrar hræsni, en viti menn; af öllum löndum álf- unnar þurfti sá, sem taldi sig þess umkominn að vanda um fyrir landanum, endilega að vera frá Noregi þar sem áfengislöggjöfin er svona álíka „gamaldags" og á ís- landi. Ekki svo að skilja að ég telji áfengislöggjöfina á ís- landi vera í „takt við tímann", þvert á móti, í mínum huga ætti alls ekki að leggja neinar hömlur á þann tíma sem sala áfengis fer fram á veitinga- stöðum. Mér er aðeins kunn- ugt um einn stað á jarðríki þar sem málum háttar svo, en það er í Berlín (vestari hlutan- um) þar sem bjórstofur eru hafðar opnar fram eftir nóttu svo lengi sem gestirnir kjósa og gestgjafinn nennir að sinna þeim. Hefur þetta gefist vel þar að því er ég best veit. Yfirdrepsskapurinn gagn- vart áfengi er nefnilega víða mikill og síst minni en hér á landi. Til skamms tíma var ekki hægt að kaupa áfengi um miðjan dag á Bretlandi, a.m.k. ekki á „pöbbum". Mat- sölustaðir þar þurftu einnig að uppfylla mun strangari kröfur til að fá að selja bjór heldur en allir skyndibita- staðirnir sem nú selja bjór hér á landi. Ég veit ekki betur en að í Noregi og Svíþjóð verði menn að fara í „ríkið" til að kaupa sitt vín og ekki má bjóða upp á áfengi á „míníbörunum" uppi á hótel- herbergjunum í þessum lönd- um, sennilegast til að hafa vit fyrir mönnum svo þeir séu ekki að hella í sig brennivíni um hábjartan daginn. Áfeng- islöggjöfin er þó víðast hvar í Evrópu hátíð hjá því sem ger- ist í einstökum fylkjum Bandaaríkjanna. Þar, eins og hjá okkur, er áfengi yfirleitt eingöngu selt í sérstökum verslunum, þó þær séu rekn- ar af einkaaðilum. I einu fylk- inu mátti alls ekki selja áfengi með mat. Það þýddi hins veg- ar bara það að við hlið mat- sölustaða risu vínbúðir það- an sem matargestir höfðu inn með sér sínar eigin flöskur. -o-o-o- Fyrir okkur sem ekki erum neinir sérstakir aðdáendur knattspyrnu eru þessir dagar hálfsnúnir. Einna verst er að geta alls ekki gengið að sín- um sjónvarpskvöldfréttum vísum á skjánum eins og maður er vanur. Þessum mál- um er hins vegar vel fyrir komið í útvarpinu þar sem af- þreyingarrásin gerir íþrótta- lýsingum fullnægjandi skil og truflar þannig ekki aðra dac- skrá. Ég vildi fá að sjá arð- semisútreikninga fyrir því að ríkisútvarpið opni aðra sjón- varpsrás sem byggði fyrst og fremst á aðkeyptu afþreying- arefni. Mér býður í grun að slíkt sé til muna ódýrara en menn kunna að hyggja að óathuguðu máli. Hjá ríkisút- varpinu næst ákveðin hag- kvæmni stærðarinnar. Eins og nú háttar, þegar þar eru reknar tvær útvarpsrásir og ein sjónvarpsrás, mætti segja mér, að með þeim fasta kostnaði sem ríkisútvarpið verður hvort eð er að standa skil á, þá myndi viðbótar- kostnaður vegna annarrar sjónvarpsrásar verða lægri að tiltölu en í fljótu bragði má ætla. hfn pressan „Ég hef séb hvernig karlmaö- ur sem er í vinnu med ágœtlega menntuðum kon- um œpir að þeim ,,stelpur; réttið mér þetta, stelpur“! Og þœr hlaupa í allar átt- ir fyrir hann.“ — Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir þingmaður í viðtali við Timann. „„Þetta er enskt," sagöi Filipp- us prins um merki sem Heim- dallur ber á einni myndanna." — Morgunblaðið segir frá tilraun Bretaprins til að blanda breska heimsveldinu inn i islensku goða- fræðina. „KFUM rekur Hressó." — Fyrirsögn í Timanum. „Ellert slapp frá hommum og lesbíum." — Fyrirsögn í Alþýðublaðinu. „Stefán Valgeirsson alþingis- maöur hefur veðsett hús sitt á höfuðborgarsvæðinu til að fá lán og ábyrgðir handa Kópa- skersbuum svo þetta lífs- bjargarfyrirtæki þeirra megn- aði að hefja starfsemi." — Ólafur M. Jóhannesson í Morg- unblaðinu. 0)j „Yfirfyllast blóðbankar af hreinu blóði úr kúm?## — Timinn finnur nýja markaði fyrir landbúnaðarvörur. „Vigdis forseti og Elísabet íklæddust andstæðum nátt- úrulitum." — Alþýðublaðið um komu Bret- landsdrottningar. kf Með stefnu sinni kemur núverandi ríkisstjórn ekki aðeins hjólum arðránsins til að snnúast, heldur viðheldur hún því lénska arðráns- kerfi sem ríkir í sjávarútvegsþorp- unum með björg- unaraðgerðum sínum.“ — ívar Jónsson félagsfræðingur i Nýju helgarblaði Þjóðviljans. O „Lítil hafa þeir völdin, minni hafa þeir átrúnaðinn. Það stendur raunar ekkert eftir nema hinn ytri búnaður, skrautið og skrumskælingin á þeirri tímaskekkju sem tigin- borið fólk er að rembast við að. tileinka sér." — Ellert B. Schram heilsar hennar hátign Elísabetu af Bretlandi í DV. Ég þekki engin dæmi um jafn - lítið samband ráðherra flokks- • ® ins við þingflokkinnn og í tíð ^þessarar ríkisstjórnar." GeirGunnarsson.formaðurþing- iflokks Alþýðubandalagsins, í Þjóð- Iviljanum, vegna BHMR-máls. „Guð velur stundum óverð- uga til stórra hluta.## j \ — Séra Jón E. Baldvinsson sendiráðsprestur i DV, eftir að hafa unnið bif- j' rtÚ0CreiÖ fyrir aÖ fara holU 1 h°99' á 9°lfmóti.

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.