Pressan - 28.06.1990, Side 9
Fimmtudagur 28. júní 1990
9
ÍSLENSKA KNATTSPYRNAN
LEYNISAMNINGAR OG
PENINGAGREIÐSLUR
Bestu knattspyrnumenn landsins eru sagöir fá allt aö 500 þúsund krónum á mánuöi
í peningum og hlunnindum. Embœtti ríkisskattstjóra
er „kunnugt um vandamáliö”. Milliþinganefnd KSI vinnur aö afnámi
áhugamannareglna sambandsins, rammasamningar enda
þegar í gangi.
Öruggar heimildir PRESSUNNAR greina frá því
að miklir fjármunir bjóðist iandsins bestu knatt-
spyrnumönnum ídag ogað atvinnuknattspyrna sé
staðreynd. Um nokkurt skeið hefur tíðkastað umb-
una góðum leikmönnum meðýmsum hlunnindum,
svo sem bílum, íbúðum og sveigjanlegri vinnu, en
heimildir PRESSUNNAR greina frá því að nú sé í
fyrsta skipti farið að greiða góðum leikmönnum í
beinhörðum peningum. Bestu leikmenn eru taldir
fá á milli 500þúsund og 2 milljónir króna fyrirleik-
tímabilið. Mörg félög eru þegar farin að gera sér-
staka trúnaðarsamninga um tryggingar, afreks-
styrki og félagaskiptareglur, þar sem meðal ann-
ars er kveðið á um bónusa og greiðslur til félag-
anna vegna „sölu“ leikmanna.
EFTIR: FRIÐRIK ÞÓR GUÐMUNDSSON ÁSAMT
INGIBJÖRGU SÓLRÚNU GÍSLADÓTTUR
MYND: EINAR ÓLASON
Fyrir utan hina almennu
trúnaðarsamninga tíðkast
síðan „persónulegir samn-
ingar“, e.k. innanhússsamn-
ingar, þar sem hin eiginlegu
laun eru tíunduð. Bestu laun-
in eru menn í landsliðsklassa
taldir fá og af ummælum fjöl-
margra viðmælenda blaðsins
að dæma fá hinir bestu allt
upp í 500 þúsund krónur á
mánuði með ýmsum hætti, í
peningum, hlunnindum og
öðru. Þessi háa tala er fengin
hjá þekktum innanbúðar-
manni hjá KR. Leikmenn í
klassa þar fyrir neðan eru
sagðir fá á milli 500 þúsund
og 1 milljón króna fyrir leik-
timabilið.
Það skal strax tekið fram að
þessi mál eru afar viðkvæm
fyrir allri umræðu og óskuðu
viðmælendur blaðsins nær
undantekningarlaust eftir
nafnleynd. Það segir sína
sögu.
Stóru félögin lokka
þá bestu til sín
Félagaskipti þekktustu
knattspyrnumanna íslands
síðustu örfáu árin hafa vakið
mikla athygli og telja heimild-
ir PRESSUNNAR ekki nokk-
urn vafa leika á því að þar
spili peningagreiðslur og
hlunnindi verulegt hlutverk.
,,Litlu“ félögin á landsbyggð-
inni og á höfuðborgarsvæð-
inu hafa miklar áhyggjur af
því hvernig „stóru" félögun-
um tekst að lokka til sín
þeirra bestu leikmenn og eru
sjálf ekki í vafa um að það sé
gert með fjármunum. Það
hafi að vísu tíðkast áður, en í
minna mæli.
Einn viðmælandi okkar úr
röðum iþróttabandalags
Akraness fuilyrti að peninga-
greiðslur tíðkuðust nú í fyrsta
skipti. „Upphæðirnar eru
ákaflega misjafnar eftir félög-
um og milli leikmanna. KR,
Fram og Valur eiga mest und-
ir sér og eru Valsmenn reynd-
ar talsvert skuldugir vegna
þessara viðskipta. Ég þekki
dæmi um leikmann frá okkur
sem fór á vel á aðra miiljón til
félags í Reykjavík — fyrir leik-
tímabilið. Sá leikmaður fær
þó örugglega ekki mestu
peningana í því félagi. Við
höfum vitaskuld af þessu
verulegar áhyggjur, því ef
stóru félögin geta haldið
áfram að svífast einskis í
krafti peninganna þá verða
þau einu félögin sem eftir
standa innan fárra ára.“
Einn af þekktustu leik-
mönnum landsins, sem fyrir
þetta leiktímabil skipti um fé-
lag, sagði í samtali við blaðið
að ekki léki vafi á því að bæði
væri um að ræða beinharða
peninga og ýmis hlunnindi,
svo sem „feikvinnu". „Upp-
hæðirnar fara upp úr öllu
valdi hjá ríkustu félögunum
og það er ábyggilega minnst
af þessu gefið upp til skatts.
Greiðslurnar koma enda
kannski ekki frá félögunum
sjálfum, heldur í gegnum fyr-
irtæki og einstaklinga og þá
gildir auðvitað að hafa sterka
bakhjarla. Þá sjá fyrirtækin
hreinlega um ákveðna ein-
staklinga."
Embætti ríkisskatt-
stjóra kunnugt um
vandamálið
Viðmælandi blaðsins úr
einu af smærri félögunum í
Reykjavík sagði að félagið
hefði reynt að fá til sín góða
leikmenn og boðið peninga,
að það hefði ekkert þýtt —
aðrir byðu betur. „Það virð-
ast vera ótrúlega miklir pen-
ingar í þessu, ýmist frá félög-
unum sjálfum eða bakhjörl-
um úr röðum fyrirtækja. Ég
fullyrði að félagaskipti allra
þessara bestu leikmanna eru
gegn peningaupphæðum,
sem spanna allan skalann.
Um leið liggja fyrir skriflegir
samningar um bónusgreiðsl-
ur fyrir unna leiki og hlut-
deild í inngangseyri."
PRESSUNNI er kunnugt
um að embætti ríkisskatt-
stjóra kannaði á sínum tíma
sérstaklega greiðslur til þjálf-
ara knattspyrnufélaga, en
ekki mun sérstök rannsókn
enn hafa farið fram á greiðsl-
um til leikmanna. Heimilda-
maður blaðsins innan emb-
ættisins sagði hins vegar að
embættinu „væri kunnugt
um ákveðin vandamál í þess-
um efnum. Þetta eru erfið
mál og viðkvæm, en uppi eru
ákveðnar grunsemdir um að
ekki komi allt fram sem ætti
að koma fram. Málið er kom-
ið á visst stig og það er talað
um þetta. Embættið fylgist
auðvitað með óskattskyldum
aðilum og það er ástæða til
að taka betur á þessu en hing-
að til hefur verið gert”.
Peningagreiðslur hafa að
sögn Hilmars Guðlaugs-
sonar, formanns íþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur,
og Sigurgeirs Guðmanns-
sonar hjá íþróttabandalagi
Reykjavíkur ekki komið til
tals hjá þessum stofnunum.
Þær hafa hins vegar gert það
á sinn hátt hjá Knattspyrnu-
sambandi Islands, KSI.
Nefnd vinnur að
afnámi áhuga-
mannareglna KSÍ
„Það er kunnara en frá
þurfi að segja að áhuga-
mannareglur KSÍ eru í dag
sniðgengnar á alla lund,“ seg-
ir meðal annars í greinargerð
með ályktunartillögu sem
Knattspyrnufélagið Þróttur
lagði fram fyrir ársþing
Knattspyrnusambands ís-
lands í desember síðastliðn-
um. Tillagan gerði ráð fyrir
að kosin yrði fimm manna
milliþinganefnd til að fjalla
um félagaskipti leikmanna,
samninga milli leikmanna og
félaga og afnám áhuga-
mannareglna KSI og var hún
samþykkt.
Nefndin hefur nú fundað
alls fimm sinnum. Fulltrúi
Þróttar í nefndinni, Haliur
Kristinsson, sagði að það
sem vakað hefði fyrir flutn-
ingsmönnum tillögunnar
væri að þessi mál yrðu opin-
beruð. „Þróttur er lítið félag
og það er mín persónulega
skoðun að það hafi hag af því
að þessir hlutir opinberist,
því það þarf að tryggja rétt-
indi og skyldur allra aðila.
Stóru félögin hafa verið að
lokka til sín góða leikmennn
frá smærri félögunum og
gera við þá samninga og ég
held því fram að til að tryggja
að allir standi jafnt að vígi
verði þessir hlutir að koma
upp á yfirborðið. Ég er á þess-
ari stundu ekki tilbúinn til að
tjá mig um einstök tilvik, sem
ég kann að vita um, því ég vil
ekki leggja stein í götu nefnd-
arinnar."
Formaður nefndarinnar,
Lúðvík Georgsson, sagði að
fullur vilji væri innan nefnd-
arinnar til að skila ákveðnum
tillögum fyrir ársþing KSÍ,
þar sem kveðið er á um regl-
ur um leikmannasamninga
og fleira. „Við vitum til þess
að félög séu farin að gera
slíka samninga, en lítum svo
á að það verði að vera innan
ramma knattspyrnusam-
bandsins. í vinnu okkar vilj-
um við leitast við að tryggja
hagsmuni bæði félaga og
leikmanna. Við komum ekki
til með að skila tillögum um
greiðsluupphæðir eða annað
slíkt, einungis um ákveðinn
ramma sem félög og leik-
menn geta haft og samið svo
um greiðslur sín á milli.“
Trúnaðar-
samningar um
afreksstyrki og
bónusa
PRESSAN hefur orðið sér
úti um samningseyðublöð frá
knattspyrnufélögunum
Stjörnunni og ÍK og samsvar-
andi samningar munu vera í
gangi hjá Fylki og fleiri félög-
um. í samningum þessum er
kveðið ítarlega á um gagn-
kvæmar skyldur og réttindi,
ástundun leikmanna, útveg-
un skóbúnaðar og búninga
og fleira.
í samningi ÍK segir: „Að
loknu samningstímabilinu
hefur ÍK einkarétt til 15.11.
1990 til að gera nýjan samn-
ing við leikmanninn. Náist
ekki samkomulag fyrir þann
tíma og leikmaður gengur i
annað félag áður en næsta ís-
landsmót hefst hefur ÍK rétt
til að krefja það félag um
ákveðna greiðslu." 11. grein
samningsins er svohljóðandi:
„Samningur þessi er trúnað-
armál."
í samningi Stjörnunnar
segir: „Stjarnan veitir leik-
manni afreksstyrki fyrir
árangur eins og fram kemur í
fylgiskjali 2 með samningi
þessum" og „Gangi leikmað-
ur til liðs við annað knatt-
spyrnufélag eftir að samningi
lýkur við Stjörnuna skal það
félag inna af hendi greiðslu til
Stjörnunnar og fullnægja
öðrum ákvæðum í samræmi
við félagskiptareglur . . “. Og
síðar segir: „Fylgiskjöl samn-
ings þessa eru trúnaðarmál,
sem aðeins má kynna stjórn-
armönnum Stjörnunnar.
Leikmönnum er óheimilt að
greina öðrum frá innihaldi
þeirra."
PRESSAN hefur umrædd
fylgiskjöl ekki undir hönd-
um, en á hinn bóginn sér-
staka greinargerð frá knatt-
spyrnudeild Stjörnunnar um
samningana. Þar segir að
leikmannasamningur félags-
ins sé í aðalatriðum staðfærð-
ur leikmannasamningur
danska knattspyrnusam-
bandsins, þ.e. Dansk Bold-
spil-Union (D.B.U.) „Spill-
erkontrakt" og „Regler
om klubskifte". Um afreks-
styrki segir: „Samnings-
bundnir leikmenn fá greidda
afreksstyrki í samræmi við
árangur í þeim leikjum, þar
sem þeir komast á leik-
skýrslu. í fyrsta lagi er greitt
fyrir unnin stig í íslandsmóti,
í annan stað er greidd uppbót
eftir því í hvaða sæti liðið
lendir í íslandsmóti og í þriðja
lagi eru greidd verðlaun fyrir
sigur í bikarleikjum."
Sérstakur
matsgrunnur
vegna „sölu“
leikmanna
Um fylgiskjalið um félaga-
skiptin segir: „Svipað og ger-
ist í félagskiptareglum D.B.U.
hafa leikmenn og Stjarnan
orðið sammála um, að eðli-
legt sé, að Stjarnan fái
greiðslu fyrir sérhvern samn-
ingsbundinn leikmann, sem
skiptir yfir í annað félag.
Matsgrunnur félagskipta-
gjalds er stigagjöf, þar sem
ýmsir getu- og reynsluþættir,
vera hjá félaginu og aldur eru
metin. Auk þess áskilur
Stjarnan sér rétt til samnings-
íhlutunar og hlutdeildar í
söluhagnaði fyrir leikmann,
sem skiptir yfir í erlent félag
eða gerist atvinnumaður inn-
an þriggja ára frá því hann fer
frá Stjörnunni."
Athyglisvert er að reglur
danska knattspyrnusam-
bandsins skuli vera fyrir-
myndin. Þær byggjast nefni-
lega á atvinnuknattspyrnu.
Ekki síst eru samningar
þessara tilteknu félaga til-
komnir sem vörn gegn ásókn
„stóru" liðanna, sem einnig
hafa útfærða samninga, en
þó öllu umfangsmeiri „per-
sónulegá1 samninga við ein-
staka leikmenn.
Þetta gildir ekki sérstak-
lega um eitt þeirra ,,stóru“
framar öðrum, en á hinn bóg-
inn greina heimildir PRESS-
UNNAR frá því að knatt-
spyrnudeild KR og nokkur
fyrirtæki og einstaklingar
hafi nú sameinast um stór-
átak til að gera KR að stór-
veldi að nýju og því sé þróun-
in örust og mest áberandi þar.
Þekktir knattspyrnumenn
hafa streymt þangað og þá
ekki síst fyrir tilstuðlan
sterkra bakhjarla. í samtali
við PRESSUNA neituðu þó
Pétur Pétursson, fyrirliði
KR, og Geir Þorsteinsson,
varaformaður knattspyrnu-
deildar liðsins, nokkuð að
kannast við peningagreiðslur
til leikmanna og vildu ekkert
láta hafa eftir sér um málið.
Þá hefur Atli Eðvaldsson,
hin nýja stórstjarna liðsins,
neitað að tjá sig um greiðslur
í fjölmiðlum.
„Stóru" félögin hafa löngum lokkað til sín bestu leikmenn „smærri" félaganna. KR hefur
þar ekki sérstöðu, en samkvæmt heimildum blaðsins hafa knattspyrnudeildin og sterk-
ir bakhjarlar sameinast um að gera liðið að stórveldi á ný; vilja fara að vinna bikara aftur.