Pressan - 28.06.1990, Síða 10
10
Fimmtudagur 28. júní 1990
Rádning framkvœmdastjóra Félagsstofnunar stúdenta
veldur deilum
Það er oft skipt um yfirmenn Félagsstofnunar stúdenta. Ráðning nýs framkvæmda-
stjóra er umdeild.
FYRIRGREIDSLU-
PÓLITÍK
eða faglegar forsendur?
Engir umsækjendur voru teknir í viðtal þegar
stjórn Félagsstofnunar stúdenta réð nýjan fram-
kvæmdastjóra á dögunum. Sá sem starfið hlaut er
viðskiptafræðingur með eins árs starfsreynslu.
Meðal annarra umsækjenda var fjármálastjóri FS,
sem einniger viðskiptafræðingur með fimm tilsex
ára starfsreynslu, þar af fjögur ár sem fjármála-
stjóri FS. Andstæðingar stjórnarinnar telja ráðn-
inguna vera af pólitísku bergi brotna og starfs-
menn FS eru óánægðir með vinnubrögð stjórnar-
innar.
EFTIR: BJÖRGU EVU ERIENDSDÓTTUR
Flestir eða allir starfsmenn
Félagsstofnunar stúdenta
skrifuðu undir stuðningsyfir-
lýsingu vegna umsóknar
Helga Lárussonar fjár-
máiastjóra, en sá sem starfið
hlaut heitir Arnar Þórisson.
Arnar útskrifaðist úr við-
skiptafræði fyrir einu ári og
hefur starfað hjá stjórnun-
arfélaginu. Hann sat til
skamms tíma í stjórn félags-
stofnunar og hefur verið virk-
ur í stúdentapólitíkinni fyrir
Vöku, félag lýðræðissinn-
aðra stúdenta.
Starfsmenn félagsstofnun-
ar telja að erfitt geti orðið að
starfa með nýjum og óreynd-
um framkvæmdastjóra,
vegna breytinga í fyrirtæk-
inu. „Persónulega höfum við
ekkert nema gott eitt að segja
um Arnar Þórisson, en okkur
finnst ekki vera eðlilega stað-
ið að ráðningunni og erum
óánægð með að ekki var tek-
ið neitt tillit til starfsmanna í
þessu máli," segir Ingibjörg
Einarsdóttir, einn starfs-
manna félagsstofnunar.
Heyrst hefur að Helgi muni
taka saman pjönkur sínar og
hætta störfum og ef til vill
einhverjir með honum.
„Réttara að ræða
við umsækjendur“
segir Helgi.
Sjálfur vill Helgi Lárusson
ekki staðfesta að hann sé á
förum og hann heldur ekki
að það sé rétt að fleiri hafi
hugsað sér til hreyfings. „Það
verður engin upplausn í fyrir-
tækinu út af þessu, enda gott
að vinna hérna og ekki til
neins að gera fjaðrafok úr
þessu. Framkvæmdastjóri
fær fyrstur að vita hvort ég
hætti. Ég býst við því að Arn-
ari verði vel tekið hérna.
Stjórnin hefur valið sinn
mann, til þess hefur hún vald
og við því er fátt hægt að
segja.
Ég tel að þessi ráðning sé
pólitísk, en auðvitað get ég
ekki dæmt í eigin máli um
hver hefði átt að hljóta stöð-
una. Ég hefði þó talið réttara
að umsækjendur hefðu verið
kallaðir til fundar við stjórn-
ina. Ég og fráfarandi fram-
kvæmdastjóri höfum varað
við ægivaldi stúdenta í fyrir-
tækinu. Þeir hafa alltaf meiri-
hluta í stjórn og það gustar
um þá og ákvarðanir þeirra.
Þetta getur verið vafasamt
fyrirtækisins vegna. Stjórn-
inni er algjörlega í sjálfsvald
sett hverja hún velur sér og
hingað til hafa mannaskipti
verið tíð meðal yfirmanna
fyrirtækisins. Mér sýnist að
eðlilegra væri að einn stjórn-
armanna væri fulltrúi starfs-
manna og aðeins tveir frá
stúdentum. Það þarf eitthvað
að gera til þess að bæta stöð-
ugleikann í fyrirtækinu," seg-
ir Helgi Lárusson, fjármála-
stjóri FS.
Pólitískir andstæðingar
Arnars Þórissonar og meiri-
hluta stjórnar FS, félags-
hyggjusinnar í Röskvu, eru
stórhneykslaðir á ráðning-
unni. Þeir telja hana lið í
valdapoti hægrisinnaðra
stúdenta, en segjast hvergi
geta rönd við reist í stúdenta-
pólítíkinni því alls staðar sé
Vaka í meirihluta. Steinunn
V. Óskarsdóttir, fulltrúi
Röskvu í stúdentaráði og
einn nefndarmanna hags-
munanefndar stúdenta,
segist hafa farið fram á að
hagsmunanefnd yrðu sýnd
gögn umsækjenda en því hafi
verið hafnað. Steinunn talar
ekki fyrir hönd allrar nefnd-
arinnar, því meirihluti Vöku í
nefndinni taldi ekki nauðsyn-
legt að kynna sér umsóknirn-
ar. Hún segir að Arnar Þóris-
son hafi áður sóst eftir því að
verða formaður stúdenta-
ráðs, en sest í stjórn FS þegar
annar Vökumaður varð for-
maður stúdentaráðs.
Faglegar forsendur
Benedikt Bogason, for-
maður stjórnar FS, segir að
ráðningin sé ekki pólitísk,
heldur byggist hún á fagleg-
um forsendum. „Það var
samhljóða niðurstaða stjórn-
arinnar að ganga til samn-
inga við Arnar Þórisson. Að
mati stjórnarinnar var ekki
nauðsynlegt að kalla þá um-
sækjendur sem helst komu til
greina til fundar, vegna þess
að við þekktum þá og störf
þeirra," segir Bogi.
Hefur Arnar ekki litla
reynslu miðað við Helga,
og heldur þú að starfs-
menn FS séu sáttir við
vinnubrögð stjórnarinn-
ar?
„Umsækjendur hafa reynslu
af ólíkum sviðum og að mati
stjórnarinnar var góður fag-
legur grundvöllur fyrir ráðn-
ingunni. Ég held ekki að það
sé almenn óánægja með
þessa ráðningu innan FS.“
Benedikt segir að stjórnin
hafi einróma hafnað beiðni
hagsmunanefndar um að
kynna sér umsóknirnar, á
þeim forsendum að þær séu
algjört trúnaðarmál.
(
Félagsstofnun er
stórt fyrirtæki
Félagsstofnun stúdenta hef-
ur styrkt stöðu sína og orðið
æ traustara fyrirtæki síðustu
árin. Brúttóársvelta er 330
milljónir króna og eignir fyr-
irtækisins nema um einum
milljarði króna. Bóksalastúd-
enta er þriðja stærsta bóka-
verslun landsins, Ferðaskrif-
stofa stúdenta er ein af stóru
ferðaskrifstofunum hérlend-
is, veitingarekstur fyrirtækis-
ins er umfangsmikill og fleira
mætti telja. Fastir starfsmenn
eru á bilinu 30—35. Fráfar-
andi framkvæmdastjóri er Ei-
ríkur Ingólfsson.
Leikir í 8. umferð: Möguleikar liðanna: Athyglisverðir leikmenn:
ÍBV
VÍKINGUR
VESTMANNAEYJUM
mánudaginn 2. júlí kl. 20
Vestmanneyingar eru ofar á
stigatöflunni en munurinn á
liðunum er kannski ekki svo
ýkja mikill, þau virðast geta
sigrað hvaða lið sem er og tap-
að fyrir hverjum sem er.
Heimavöllurinn eykur hins
vegar sigurlíkur Eyjamanna.
Sóknarmaðurinn Hlynur
Stefánsson hefur blómstrað í
liði Eyjamanna að undanförnu.
Hjá Víkingum hefur mest borið
á Júgóslavanum drjúga Goran
Micic.
ÞÓR
KA
AKUREYRI
mánudaginn 2. júlí kl. 20
Leikir Akureyrarliðanna hafa
alltaf verið tvísýnir og spenn-
andi og munu eflaust alltaf
verða það. Bæði liðin byrjuðu
illa í vor en KA hefur sótt meira
í sig veðrið undanfarið og liðið
er að öllum líkindum sterkara
en Þórsarar.
Vert er að gefa hinum korn-
unga sóknarmanni og nýliða
hjá KA Þórði Guðjónssyni góð-
ar gætur. Hjá Þór hefur Júgó-
slavinn Luka Kostic verið allt í
öllu.
KR
ÍA
KR-VELLI
mánudaginn 2. júlí kl. 20
KR-ingum hefur gengið
herfilega gegn Skagamönnum
undanfarin ár og nú er loks
tækifæri fyrir Vesturbæinga að
hefna ófaranna því greinilegur
getumunur virðist vera á þess-
um liðum í sumar, KR í hag. Þá
eru flestir þeir leikmenn sem
gert hafa KR-ingum lífið leitt í
gegnum árin farnir úr liði ÍA.
Spennandi er að sjá hvernig
Atli Eðvaldsson spjarar sig í
KR-búningnum. Rúnar Krist-
insson hefur komið mjög sterk-
ur inn í liðið eftir langt leikbann
og Þorsteinn Halldórsson hefur
staðið sig mjög vel á miðjunni.
Pétur Pétursson og Ragnar
Margeirsson eru vísir til að
ógna marki Skagamanna. Al-
exander Högnason ÍA hefur
verið iðinn við að skora að und-
anförnu. Þá er alltaf spennandi
að fylgjast með unglingunum
efnilegu, Bjarka Péturssyni og
Arnari Gunnlaugssyni.
FH
VALUR
KAPLAKRIKAVELLI
mánudaginn 2. júlí kl. 20
Valsmenn hafa verið sterkari
en FH það sem af er sumri en
allt getur gerst á heimavelli FH.
Þá hafa Valsmenn orðið fyrir
því áfalli að missa helsta
markaskorara sinn, Sigurjón
Kristjánsson, á sjúkrabekk.
Hörður Magnússon er skæð-
asti sóknarmaður FH-inga en
Halldór Halldórsson hefur átt
mjög góða leiki í markinu und-
anfarið. Valsmenn hljóta að
binda vonir við að Anthony
Karl Gregory fylli skarð Sigur-
jóns í framlínunni en Steinar
Adolfsson virðist einnig vera
mjög vænlegur leikmaður í liði
Vals.
FRAM
STJARNAN
LAUGARDALSVELLI
þriöjudaginn 3. júlí kl. 20
Sýni Frammarar sinn besta
leik á ekkert íslenskt lið mögu-
leika gegn þeim. Möguleikar
Stjörnunnar byggjast á baráttu
og heppni og því hvort Framm-
arar beita sér að fullu eða ekki.
Birkir Kristinsson FRAM er
sá markvörður sem mesta at-
hygli hefur vakið í sumar. Fái
hann eitthvað að gera í leikn-
um sýnir hann án efa góð til-
þrif. Jón Sveinsson hefur vakið
athygli fyrir góðan varnarleik,
en þeir Pétur Ormslev, Guð-
mundur Steinsson, Kristján
Jónsson og Baldur Bjarnason
hafa allir átt stórleiki í sumar.
Hjá Stjörnunni hafa Lárus Guð-
mundsson og Árni Sveinsson
verið atkvæðamiklir.
LEIKIRI' 16-LIÐA ÚRSUTUM BIKARKEPPNINNAR:
Selfoss—ÍR 5.7. kl. 20
ÍBK-ÍBV 5.7. kl. 20
ÍA-KA 5.7. kl. 20
FH—Stjarnan 5.7. kl. 20
Breiðablik—Þór 5.7. kl. 20
Sindri (Hornafirði)—KR 5.7. kl. 20
Víkingur—KS/Tindastóll 5.7. kl. 20
Valur—Fram 6.7. kl. 20
ISLANDSMOTIÐ I KNATTSPYRNU