Pressan - 28.06.1990, Side 14
14
Fimmtudagur 28. júní 1990
Kvennabragginn
varð hótel
Á síldarárunum var Djúpa-
vík stór s.taður. Þar var byggð
mikil verksmiðja og um þús-
und manns unnu á staðnum.
íbúðarhúsin grotna nú flest
niður og stóra verksmiðjan
stendur auð og tóm. Djúpavík
er lítill draugabær. Hlutafé-
lagið sem á Hótel Djúpuvík
keypti fleiri eignir á staðnum,
verksmiðjan og nokkur hús í
viðbót eru í eigu þess. Sjálft
hótelið var kvennabragginn
á staðnum. Það kostaði á sín-
um tíma átta og hálfa milljón
að gera braggann að því hót-
eli sem hann er í dag.
„Það var gerð fjárhags-
áætlun upp á fjórar milljónir.
Við sáum það strax að sú
áætlun gæti aldrei staðist.
Það virðist hafa gleymst að
taka það með í reikninginn
hvað allir aðdrættir eru
margfalt dýrari hér en annars
staðar," segir Ásbjörn. „Það
má ekkert út af bera, lítil mis-
tök verða fjótt dýr á svona
stað, þar sem flutningaskip
kemur aðeins tvisvar í mán-
uði og vegir eru ófærir nema
á sumrin."
Byggðastofnun á
þakkir skildar
„Byggðastofnun hefur
stutt okkur gegnum þykkt og
þunnt. Hún kom inn í dæmið
þar sem ferðamálasjóður
brást. Annars hefði þetta
aldrei gengið upp. Byggða-
stofnun er búin að hjálpa
okkur miklu meira en hægt
var að ætlast til," segir Eva.
Þegar PRESSAN barði að
dyrum í síðustu viku var nóg
að gera á Hótel Djúpuvík. Þar
var vinnuflokkur í fullu fæði
og gistingu, auk þess sem von
var á fyrstu sumargestunum.
Fyrr í vor hafa verið haldnar
þarna afmælisveislur, auk
þess sem starfsmannafélög
og minni vinnustaðir hafa
komið saman til funda og
skemmtana á þessum sér-
stæða stað.
„Það er góð aðsókn yfir
sumarmánuðina," segir Eva,
en á vetrum liggur starfsemin
að mestu leyti niðri. Þó hefur
komið fyrir að langtímagestir
hafi búið hér að vetrarlagi og
að hér sé aðsókn um pásk-
ana. Meirihluti hótelgestanna
er íslendingar og við höfum
heyrt að þeir séu mjög
ánægðir. En skemmtilegustu
viðbrögðin koma oft frá út-
lendingum sem finnst ævin-
týralegt að koma hingað,"
segir Eva og dregur fram ar-
abískt blað þar sem fjallað er
um Hótel Djúpuvík í mynd-
um og máli á þremur blaðsíð-
um.
Þau Eva og Ásbjörn eiga
þrjú börn sem búa hjá þeim á
Djúpuvík, elsti sonurinn,
Arnar, er 17 ára og orðinn
liðtækur til flestra starfa. Fjöl-
skyldan býr í þremur af níu
herbergjum hótelsins, en á
sumrin þegar þrengir að
flytja þau öll inn í eitt her-
bergi til þess að fullnýta hús-
rýmið. „Þá er dótinu krakk-
anna bara troðið ofan í kassa
eða undir rúm. Þau sætta sig
alveg við það. Krakkarnir eru
svo ánægðir á Djúpuvík að
þeir vilja ekki einu sinni
halda jólin annars staðar,"
segir Eva.
Pekkja ekki upp-
haf málsins
Magnús Oddsson, settur
ferðamálastjóri, segir
stefnu ferðamálaráðs vera að
nýta allt landið og byggja upp
ferðaþjónustu á sem flestum
stöðum. Hótel á Djúpuvík sé
að þessu leyti gott og nauð-
synlegt framtak. Hinsvegar
segist ferðamálastjóri ekki
þekkja þetta fyrirtæki sér-
staklega. Hann segir að
ferðamálaráð geri ekkert sér-
staklega til þess að kynna
þennan stað. „Hlutverk okk-
ar er landkynning en ekki að
koma einstökum fyrirtækj-
um á framfæri," segir hann.
Snorri Tómasson, ritari
stjórnar ferðamálasjóðs,
staðfestir að reglur ferða-
málasjóðs heimili að lánað sé
allt að 60% af heildarkostn-
aði við hótel eins og Djúpu-
vík, en þetta fari fyrst og
fremst eftir mati stjórnar í
hverju tilviki. „Ég vil ekki tjá
mig um einstök mál en ég get
sagt þér að forráðamenn
ferðamálasjóðs vilja fara með
fé almennings á traustan
hátt. Það gildir til dæmis um
veðsetningar að við viljum
vera öruggir um að tapa ekki
peningum. Þess vegna mið-
um við ekki við brunabóta-
mat. Það er ekki hægt að
reikna með því að hús brenni.
Skattgreiðendur hafa örugg-
lega skilning á afstöðu okkar
í þessum efnum. Það er nær
að Byggðastofnun komi inn í
svona tilfelli, það er hlutverk
hennar að stuðla að því að
viðhalda byggð í landinu,"
segir Snorri Tómasson.
En er það ekki hlutverk
ferðamálasjóðs að stuðla
að bættri ferðaþjónustu
um landið?
„Jú, en við erum að fara
með fé almennings. Hótel á
þessum stað er hæpin fjár-
festing. Þetta er fallega hugs-
að, en við getum ekki lánað
langt umfram hættumörk.
Það gildir í öllum tilfellum, og
einstök mál ræði ég ekki,“
segir Snorri Tómasson.
GLÆSILEGAR GJAFAÖSKJUR
TIL VINA OG VIÐSKIPTAVINA
INNANLANDS OG UTAN.
EÐALFISKUR HF.
SÓLBAKKA b BORGARNESl SÍMI 93-71680
og 93-71157 FAX 93-71080
PRESSU
MOLAR
ca
^^■ð undanförnu hefur heyrst til
einstakra fréttamanna sjónvarps
sem tala um Beijing í staðinn fyrir
Peking í Kína. Það skal hér með
upplýst fyrir þá sem kunna að vera
í vafa að þetta er einn og sami stað-
ur. Islensk málstöð, sem er mið-
stöð málræktar í landinu, mælir
ekki með þessum framburði þó
hann sé eflaust góður og gildur í
Kína. Samræmisins vegna er heppi-
legra að fréttamenn noti sama fram-
burð, en ekki eftir vali hvers og eins.
Þannig tala útvarpsmenn um Pek-
ing, en Árni Snævarr, fréttamaður
sjónvarps, talar um Beijing, vegna
þess að Kínverjar skiptu sjálfir um
nafn á borginni fyrir allmörgum ár-
um. Sú nafnbreyting virðist ekki
hafa skilað sér til íslenskra málrækt-
armanna, enda hefur engin stefna
verið mótuð í þessu vandasama
máli. Árni Snævarr er einnig ís-
lenskur brautryðjandi í framburði á
heiti borgarinnar Quebec í Kanada.
Árni ber þetta nafn fram á kórréttri
frönsku og segir eitthvað í áttina við
Kebek meðan hinir segja Kví-
bek . ..
I næstu viku verður haldið á
Laugarvatni norrænt þing handa-
vinnukennara. Ráðstefnuhald hefur
verið með miklum blóma á íslandi í
vor, en i júlí liggur það að mestu
niðri vegna sumarleyfa í Evrópu og
viðar. Júní og ágúst eru bestu ráð-
stefnumánuðirnir og algengastar
eru norrænar ráðstefnur ...
I tilefni af 70 ára afmæli hins
þekkta íslenska stærðfræðings
Bjarna Jónssonar verður haldið
alþjóðlegt stærðfræðiþing á Laugar-
vatni í næstu viku. Ráðstefnan er
kennd við Bjarna og heitir þar af
leiðandi Jonsson Symposium.
Bjarni Jónsson er búsettur í Banda-
ríkjunum. Um 70 manns
hvaðanæva úr heiminum sækja
þingið. Til dæmis eru þátttakendur
frá Rússlandi, Kóreu, Ástralíu og
Kanada svo eitthvað sé nefnt, svo
það er augljóst að Bjarni hefur getið
sér gott orð meðal stærðfræðinga
um allan heim . .*.