Pressan - 28.06.1990, Qupperneq 23
23
Fimmtudagur 28. júní 1990
Tnns, Stebbi I Stefánsblómum,
*jmla miðbænum með verslun slna
'»rgaryfirvöld stefna
því að beina viðskiptum
komin
verið viðstaddur kampavínsboð þar sem nánast allt er lagt í
rúst.“
Rómantíkin er aftur komin í myndina
Þegar ég spyr Stefán hverju hann þakki velgengni verslunar-
innar svarar hann að bragði: ,,Ég hef alltaf haft gott starfsfólk
og það á sinn þátt í velgengninni ekkert síður en-ég. Svo hef
ég reynt að vera almennilegur við viðskiptavini mína og það
hefur skilað sér. Það hefur aldrei neitt annað komist að í huga
mér en blóm síðustu þrjátíu árin og þar af leiðandi á ég enga
sérstaka drauma um að skipta um starf. Þetta er göfugt og gott
starf — og umfram allt persónulegt. Ég tengist viðskiptavinum
mínum vel og upplifi með þeim gleði og sorgir."
Honum finnst rómantíkin hafa komið geyst inn í lífið aftur á
síðustu árum: „Fólk er hætt að láta sér nægja að vera í sambúð
og brúðkaupum hefur farið mjög fjölgandi. Fólk er mikið til
hætt að eltast við veraldlega hluti og nú eru lagðar áherslur á
öryggi og rómantík."
Hann ætti að vita það, maðurinn sem sendir blóm, oft án
korta: ,,Já, það gerist oft að pöntuð séu blóm hjá mér án þess
að viðkomandi vilji láta segja frá hverjum þau eru. Og ég er
auðvitað bundinn þagnareiði gagnvart viðskiptavinum mínum
og segi ekki eitt einasta orð.“ Hann segir að stundum séu nafn-
laus kort látin fylgja, þá með texta sem Stefán skrifar sam-
kvæmt fyrirmælum sendandans. — Það rómantískasta sem
hann man eftir í augnablikinu er þegar maður einn hér í borg
fór af landi brott í mánuð: ,,Hann bað mig að fara með eina
rauða rós á dag til vinkonu sinnar," segir Stefán og brosir. ,,Það
var rómantískt."
Stefán Herma
er flúinn úr g<
Hann segir bc
markvisst að
úr miðbænuio