Pressan - 28.06.1990, Blaðsíða 24
24
i framhjáhlaupi
Inger Anna Aikman
dagskrárgerðarkona
Hrasddust við dómhart fólk
— Hvaöa persóna hefur haft
mest áhrif á þig og hvers
vegna?
„Þaö er fyrst og fremst afi
minn, Haraldur Á. Sigurðsson,
aöallega vegna þess aö hann er
sennilega mesti mannvinur sem
ég hef á ævi minni kynnst. For-
eldrar mínir hafa auðvitaö líka
haft mikil áhrif á mig sem og vin-
kona mín Margrét Blöndal. Þor-
geir Ástvaldsson hefur haft mikil
áhrif á mig sem og tvær aðrar
vinkonur mínar sem heita Hulda
Ellertsdóttir og Ólína Kristins-
dóttir."
— Án hvers gætirðu síst ver-
iö?
„Fjölskyldu minnar og vina
minna. Ég gæti bara ekki án
þeirra verið."
— Hvaö finnst þér leiðinleg-
ast að gera?
„Vakna á morgnana. Ég á
hræðilega erfitt með það og ég
er hreinræktuð B-manneskja. Ég
held að hver morgunn sé minn
síðasti."
— En skemmtilegast?
„Mér finnst skemmtilegast að
vera uppi í sveit, í sumarbústað
fjölskyldunnar í Skorradal. Ynd-
islegustu stundir sem ég á eru
þar. Annaðhvort þegar ég er þar
ein eða með fjölskyldunni eða
góðum vinum."
— Hvaöa eiginleiki finnst þér
eftirsóknarveröastur í fari
fólks?
„Umburðarlyndi."
— Viö hvaða aðstæður líður
þér best?
„Þegar ég sit við varðeld uppi
við sumarbústað á bjartri sum-
arnóttu, umkringd fjölskyldu
eða góðum vinum."
— Geturðu nefnt einn kost
þinn og einn galla?
„Ég get nefnt fullt af göllum!
En ég held að í heildina sé ég
þokkaleg manneskja. Minn
stærsti galli er skortur á sjálf-
saga."
— Hvað fer mest í taugarnar
á þér í fari þeirra sem þú átt
samskipti við?
„Þegar fólk hefur ekki kjark til
að segja hlutina beint við rwig en
getur sagt þá annars staðþr."
— Við hvað ertu hrædd?
„Dómhart fólk."
— Hvaða starf myndirðu
velja þér ef þú yrðir að skipta
um starf?
„Þá vildi ég starfa sem sál-
fræðingur eða við einhvers kon-
ar sálgæslu. Það er draumastarf-
ið og ég vona að sá draumur
rætist. Slíkt starf myndi gefa
mér mikið."
— Hvernig vildirðu helst
verja sumarleyfinu í ár?
„Eins og ég hef þegar ráðgert:
í sveitinni minni."
— Hver er eftirlætisbílteg-
undin þín?
„Daihatsu hefur reynst mér
nokkuð vel. Ég er lítil bílakelling
og er alsæl ef bíll kemur mér milli
staða."
— Hefurðu farið á miðils-
fund?
„Ég hefekkifariðá miðilsfund,
en ég hef farið á skyggnilýsing-
arfund. Þar fékk ég skilaboð sem
voru það nákvæm að ég fór að
velta vöngum."
— Hvaða hugmyndir gerirðu
þér um lífið eftir dauðann?
. „Það er engin spurning í mín-
um huga að það er líf eftir dauð-
ann. Ég held að líf og dauði séu
meiri samfella en við almennt
hugsum um. Við megum ekki
gleyma okkur og verðum að
muna að það er líka líf fyrir dauð-
ann óg það er það líf sem við eig-
um að lifa."
kynlífsdálkurinn
Bréf til kynlífsdálksins má skrifa undlr dulnefni.
Utanáskriftin er: PRESSAN — kynlífsdálkurinn, Ár-
múla 36, 108 Reykjavík.
Að fyrirbyggja fóstureyðingar
Það að banna fóstureyðingar með
lögum hefur aldrei virkað. Sagan er
full af hryllingssögum um hvernig
konur hafi látið lífið vegna ólög-
legra fóstureyðinga eða hlotið var-
anleg örkuml. Á síðasta ári bárust til
dæmis fréttir frá Rúmeníu um það
hvernig konur hefðu notað eiturefni
til að losa sig við fóstur. Ef kona sér
fóstureyðingu sem sitt eina úrræði
lætur hún framkvæma fóstureyð-
inguna hvað sem tautar og raular.
Þetta er staðreynd.
Önnur staðreynd er sú að flestir
vilja að fóstureyðingum fari fækk-
andi en ekki fjölgandi. Árið 1975
var veitt heimild í íslenskum lögum
til fóstureyðinga vegna félagslegra
aðstæðna. Fyrir þann tíma mátti
dæma konu í alit að átta ára fangelsi
ef hún lét eyða fóstri. Á fyrstu sjö
árunum eftir þessar breytingar í lög-
unum fjölgaði fóstureyðingum nær
þrefalt en síðan hefur hægt allveru-
lega á þeirri þróun. Langflestar kon-
ur líta á fóstureyðingu sem neyðar-
úrræði. Það má telja þær konur á
fingrum annarrar handar sem líta á
fóstureyðingu sem einhvers konar
getnaðarvörn.
Reynslan er ekki alltaf
besti kennarinn
Það eru til margar miklu betri
leiðir til að fyrirbyggja fóstureyðing-
ar en að láta banna þær. Það má í
fyrsta lagi auðvelda fólki aðgang
að getnaðarvörnum. I Rúmeníu
mátti ekki einu sinni selja gúmmí-
blöðrur ef einhverjum skyldi hug-
kvæmast að nota þær sem smokka!
Sem betur fer er enginn Rúmeníu-
stæll hér á landi hvað þetta varðar.
Við getum farið niður á Heilsu-
verndarstöð á kynfræðsludeildina,
farið til lækna okkar og keypt
smokka í búðum og á bensínstöðv-
um. Nú þegar margir verða á far-
aldsfæti í sumar væri ekki úr vegi að
stinga smokkunum með í sjúkra-
kassann og hanskahólfið. Ávallt við-
búinn! Sömuleiðis ættu smokkar að
fylgja aðgöngumiðum á útihátíðir
eins og til dæmis hina margrómuðu
þjóðhátíð í Eyjum.
í alvöru talað. Reynslan er ekki
alltaf besti kennarinn. Ekki þegar
reynslan snýst um ótímabærar
þunganir og þar af leiðandi líklegar
fóstureyðingar. Einhver, einhvers
staðar, einhvern tímann verður að
ræða við unga krakka um getnaðar-
varnir. Kannski ætti að gera sérstakt
„Býflugur og blóm'-fræðsluátak á
vorin. Þá flykkjast krakkar eftir próf
og útskrift í útilegur og ferðalög.
Það virðist nefnilega ekki óalgengt
að íslendingar upplifi sitt „fyrsta
skipti" á útihátíð og þá oftast í frekar
slöppu ásigkomulagi með hann
Bakkus viðstaddan.
Hafið þið einhvern tímann heyrt
karlmann segja: „Ég á engin börn —
ekki sem ég veit um a,m.k.“? Það
verður engin kona ófrísk bara af
sjálfu sér. Það þarf tvo til. Karlmenn
mega alveg verða virkari í að taka
ábyrgð á getnaðarvörnum. I Banda-
ríkjunum eru konur um sextíu pró-
sent smokkakaupenda. Það finnst
mér einkar athyglisvert. Ég veit
ekki hvernig staðan er hér á landi
þó vissulega finnist hér ábyrgir
karlmenn sem ekki bara hugsa um
það að deila ánægjunni heldur líka
ábyrgðinni.
Betri getnaðarvarnir gætu
einnig minnkað líkur á fóstureyð-
ingum. Fólk vill getnaðarvarnir sem
hægt er að nota tímabundið, getn-
aðarvarnir sem eru öruggar, auð-
velt að nota og eru án aukaverkana.
Fyrir ungt fólk sem er að stíga sín
fyrstu spor í kynlífinu er smokkur-
inn ákjósanlegastur af þeim getnað-
arvörnum sem til eru á markaðnum
í dag. Ástæðan er sú að hann veitir
vörn bæði gegn þungun og kynsjúk-
dómum.
Gerum þjódfélagid vin-
samlegt börnum
í kjölfar mikilla þjóðfélagsbreyt-
inga sem hafa átt sér stað síðustu
áratugina virðist samfélagið sem
við lifum í nærri því vera fjandsam-
legt börnum. Allir eru útivinnandi
og allt lífið meira eða minna hólfað
niður og ekkert pláss fyrir börn. Hér
áður fyrr voru fjölskyldueiningarn-
ar stærri og var þá alltaf einhver við
höndina til að sinna börnunum.
Börnin voru tekin með inn í mynd-
ina þrátt fyrir mikið basl oft á tíðum.
Þegar núlifandi ömmur tala um
mæður sínar kemur í Ijós að barna-
fjöldinn var oft mikill því getnaðar-
varnir voru engar og fæði, klæði og
húsaskjól bágborin. í dag búum við
við margfalt betri kjör þó svo við
segjumst ekki hafa nóg. Þrátt fyrir
betri kjör finna börn eflaust fyrir því
að þjóðfélagið er ekki allt of vin-
samlegt börnum. Því þarf líka að
breyta, eigi fóstureyðingum að
fækka.
FimMrudagur28.'júhM990'
spáin
28. júní — 4. júlí
(21. mais—20. upríl)
Þú ert umhyggjusamur og nærgætinn og átt
gott með að laða að þér fólk. Þú mátt þó
undir engum kringumstæðum verða of ör-
látur því einhverjir hafa hug á að nota þig
sem féþúfu. Notaðu næstu viku til að styrkja
persónuleg sambönd við ættingja þína.
(21. upril—20. mui)
Hugsaðu um ytra og innra útlit heimilisins.
Leystu úr verkefnum sem hafa hlaðist upp
hjá þér. Á kvöldin skaltu halda þig heima við
í faðmi fjölskyldunnar.
(21. mui—21. júni)
Heimskuleg deila á hug þinn allan. Þú ættir
að líta i eigin barm og hugsa dæmið upp á
nýtt. Það kostar þig ekkert að friðmælast við
andstæðingana. Þú hefðir svo gott af því að
skella þér i sund um helgina og hressa þig
upp.
(22. júní—22. júli)
Fundur með yfirmanni þínum ætti að leiða
gott af sér. Sterkar líkur eru á kauphækkun
og betri vinnuaðstöðu. Fjármálin eru i fínu
standi en barnafólk mætti gera betur i upp-
eldismálunum. Börnin hafa stundum
gleymst að undanförnu í amstri vinnunnar.
Happatölur þessa helgina eru 5 og 9.
(23. júlí—22. úfiúsl)
Ekki þykjast vera neitt annað en þú ert. Nýj-
ar aðstæður kunna að koma upp og þá þarft
þú að sýna aðlögunarhæfni. Vertu óhrædd-
ur við að takast á við þessar nýju aðstæður.
Aðhalds í fjármálum er þörf. Skipuleggðu
þau.
(23. ágúsl — 23. M‘pt.)
Vinnuvikan hefur verið frekar leiðinleg hjá
þér en innan skamms kemst þú i óvænta
valdaaðstöðu. Nýttu þér það til fulls. Það er
ekkert gefið í þessum efnum. Helgin fram-
undan er vel fallin til að blanda saman einka-
lífi og viðskiptum.
(23. sepl.—24. okl.)
Þú hefur verið undir mikilli pressu að undan-
förnu og það er farið að bitna á skapinu. Ein-
beittu þér að einhverju allt öðru og svo er
löngu orðið tímabært fyrir þig að skipu-
leggja sumarfríið. Það er hollt fyrir líkama og
sál að losna úr viðjum hversdagslífsins.
(24. okt.—22. nóv.)
Samspil stjarnanna lofar góðu bæði fyrir
samband þitt við vini og á rómantiska svið-
inu. Þú getur horft fram á margar ánægju-
stundir með nýjum vinum. Persóna þín er
meira aðlaðandi en oft áður og mun skapa
grundvöll fyrir náin og hlý kynni. Rósrauð
rómantíkin vakir yfir vötnunum.
(23. nóv.—21 des.)
Þú hefur ríka þörf fyrir lúxus en fjármálin
standa í veginum. Ef þú gerir ekki of miklar
kröfur má vera að óvæntur glaðningur komi
upp i hendurnar á þér sem mun veita þér
mikla ánægju. Þrátt fyrir það verður þú að
skipuleggja heimilishaldið og stunda vinn-
una samviskusamlega.
(22. des —20. jun.)
Það bjátar eitthvað á i sambúðarmálunum.
Þú hefur ekki verið nógu laginn við að leysa
úr vandamálum sem komið hafa upp.
Óheppileg ummæli hafa valdið misskilningi
og þú þarft virkilega að taka þér tak ef þú
ætlaraðjafnamálin.Þvímiðurerekkilíklegt
að þú getir tekið þér frí á næstunni. Vertu þó
vongóður, öll él styttir upp síðir.
(21. junúur—10. febrúur)
Samkvæmi sem þér hefur verið boðið i um
helgina freistar þín lítið. Þú ert með hugann
bundinn við ferðalög og ert ákveðinn i að
láta gamlan draum um ferðalag til fjarlægs
heimshluta verða að veruleika i sumar. Áður
skaltu þó ganga frá fjármálunum og fá
ákveðin atriði á vinnustaðnum á hreint sem
hafa lengi beðið úrlausnar.
(20. febrúur—20. mars)
Sýndu hófsemi i öllu. Farðu varlega i um-
ferðinni. Stundaðu líkamsrækt og útivist.
Vertu umfram allt góður og nærgætinn við
þina nánustu. Beittu ekki hörku i samskipt-
um við vinnufélagana. Happatölur helgar-
innar eru 5, 17 og 73.