Pressan - 27.03.1991, Blaðsíða 4
4
MIDVIKUDAGUR PRESSAN 21. MARS 1991
Aðdáendur nýaldar geta
nú glaðst því einn helsti
áhugamaður um dul-
rænu öldina VALGERÐUR
MATTHÍASDÓTTIR hefur
gefið út myndband —
byggt á þáttum sem hún
gerði á Stöð 2. Nú er
hægt að kaupa speki
Valgerðar á tveim spól-
um fyrir 4000 krónur.
■sfiroinG^
og ævintýri hans
í Reykjavík
Alltaf var hægt að mana
Reimar. hað var hans mesti
veikleiki. — Þú ættir að sjá
stelpurnar í A-bekknum
maður, sagði hann. Vá! Vá!
Vá! Sætustu stelpur skólans
eru allar í A. — Röfl, sagði
ég. Hver einasta skvísa sem
einhver töggur er í situr í D.
Ég hafði eina ákveðna í
huga.
Reimar A-bekkingur
hímdi við hornið á Lindar-
götuskólanum og tvísté.
Hann var með sígarettu í túl-
anum og gerði sig píreygan.
Sannleikurinn var sá að úti
var ansi kalt.
í mínum bekk, í D-hekkn-
um, var stelpa, túberuð og
tryllt, sóttheit í augum og sí-
gaunaleg. Perlutennur. Varir
sem rósin rjóð. Ég var rugl-
aður af ást. Ef ég leit til
hennar mændi hún á móti
og fyrirleit mann. Nú gekk
hún út úrskólanum með vin-
sunri
Jóga
spáir grófu
romantíshu
Þá hillir loksins undir
það að við íslendingar
eignumst sviðsspaugara
(stand up comedianr).
Nú er nefnilega hafin leit
að einum slíkum og það
eru jassgeggjararnir í
hljómsveitinni Sálar-
háska sem hafa frum-
kvæðið að því. Þar er
SIGURÐUR FLOSASON
saxófónleikari í broddi
fylkingar og segir hann
að leitin sé þegar hafin.
Slíkir sviðsspaugarar
eru frægir í Ameríku
með Lenny Bruce
fremstan í flokki. Ætlun-
in er að spaugararnir
komi fram í Púlsinum á
þriðjudagskvöldum 10
til 15 mínútur í senn.
Heyrst hefur að PÁLMI
GESTSSON leikari verði
fenginn til að ríða á vað-
ið.
,,Þetta veröur rómantískt
sumar" sagdi Jóga í Skapar-
anum þegar hún var bedin
ad kortleggja tískustraum-
ana ísumar. Reyndar tók hún
fram aö tœpast yröi um
nokkra ákveöna tíksu-
strauma að rœða —- frelsið
yrði allsráöandi.
En hvernig klæðist maður
á rómantísku sumri? „Það
eru bolir með rómantískum
myndum, mjúkir og fallegir
litir, svolítið sexí og kannski
grófur gallakjóll yfir. — Og
svolítið gegnsætt líka — alla-
vega verður það mín lína.“
Hún segir að það verði svolít-
ið grófir hlutir í bland við
rómantíkina; gallaefni og
grófir rennilásar. Hún segir
að þetta sumar verði engir
öskrandi litir — aðeins mjúkir
og fallegir. En hvað er hægt
að segja um strákana?
„Já, þeir mega bara vera
með í rómantísku línunni, í
mjúkum litum og munstruð-
um,“ segir Jóga og bætir við
að „sixties" útlit sé liðin tíð
hjá sér. Hárgreiðslan og
skórnir verði þó í þeim stíl en
ekki fötin en það er kannski
táknrænt fyrir Jógu sem hef-
ur alltaf boðið upp á blandað-
an kokkteil. — En verður
enginn glamor? „Það er
kannski svolítill glamor í
eyrnalokkum og hönskum og
þvílíkum hlutum en það verð-
ur ekki ráðandi."
Gróft róman-
tískt sumar í
mildum litum
segir Jóga í
Skaparanum
sem hér sést
ásamt Ágústu
Óladóttur búð-
armær.
Laura Roundell er
frægt módel sem nú
notar Obsession For
Men frá Calvin Klein.
KONURNARSÆKJA
f RAKSPÍRANN
ekki að eiga rakspírann sinn
í friði lengur því nýjustu
straumar í tískuheiminum
segja að það sé allt í lagi fyr-
ir konur að nota rakspíra —
ef þeim á annað borð líkar
lyktin.
Það er skrítið en samt satt
að nýjungagjarnar og sjálfs-
öruggar konur hafa verið að
prófa sig áfram með notkun
rakspíra. Þetta er hluti af ei-
lífri leitþeirra að sérkennum
og lykt sem þær geti kallað
sína eigin! — Og merkilegt
nokk þetta hefur vaxið
smám saman frá því að
ast ein af delluhugmyndum
Madonnu í það að vera
tískubylgja.
Nú er þessi árátta komin
á það stig að margir ilm-
vatns- og rakspíraframleið-
endur eru farnir að hugsa
upp mótleik við þessu.
Reyndar ætti þetta ekki að
koma þeim svo á óvart því
margir frægir rakspírar hafa
einmitt verið þróaðir út frá
ilmvötnum kvenna. — Og
hver veit, kannski verður
bara allt í lagi einn daginn að
nota ilmvatnið frá konunni!
*
Atthagafrædi og ast
konur báðum megin. Reim-
ar varð eins og úlfur í teikni-
mynd. Augun ruku tvo
metra út úr hausnum á hon-
um. Þegar það gerðist
heyrðist hamagangur eins
og blásið væri tvívegis í
trompett. — Sérðu þessa?
Vá! Vá! Vá! Hasa boddý.
— Þú lætur hana eiga sig,
sagði ég. — Hún er í D-bekk.
— O, hver ætli sé að skipta
sér af gáfnafari þegar svona
skæslegar skutlur eru ann-
ars vegar, sagði frændi
minn.
Einn kennarinn kom út í
port og tilkynnti að þar sem
slíkt ágætis haustveður væri
í dag hefði orðið að sam-
komulagi á kennarastofunni
að allar bekkjardeildir röltu
niður á höfn og aftur til baka
í næsta tíma að fræðast um
borgina, land vort og þjóð
og nánasta umhverfi. Allur
skólinn trítlaöi niður á
Skúlagötu. Mávar flugu í
sveigjum í haustsólinni. I Esj-
una hafði snjóað. Þaö var
sem einhver hefði skvett
rausnarlega úr sykurkari á
fjalliö og sykurinn streymt
niður skorninga og sumstað-
ar sest á stalla. Við Reimar
héldum okkur þétt aftan við
drottninguna í D-bekknum.
Ég var með lífið í lúkunum.
Frændi minn keðjureykti
þótt kennari væri með í för.
Hann þrílagaði á sér lakkrís-
bindið. Greiddi sér sjö sinn-
um og sagði við stelpurnar:
— A að fara í Dalakofann um
næstu helgi? Hún virti hann
ekki viðlits, vinkonurnar
báðum megin eins og iíf-
verðir, önnur rétt leit um
öxl.
— Blessaður, láttu stelp-
urnar í mínum bekk vera,
sagði ég.
— Dinglaðu þér vinur,
sagði töffarinn.
Nú voru góð ráð dýr.
— Geturðu ekki sýnt henni
hvað þú ert kaldur, sagði ég
og gerði tilraun til að mana
hann. — Skutlaðu þér í sjó-
inn og veinaðu: Katla ég
elska þig!
— Blessaöur, haltu kjafti,
urraði Reimar.
Viö gengum Faxagaröinn,
höfnin á vinstri hönd. — Ég
heiti Einsi kaldi úr Eyjunum,
sönglaði Reimar. Þegar það
hafði engin áhrif urraði
hann: Sveitaball. Já, allur
skríllinn elskar s'veitaball.
— Vonlaust vinur, sagði
ég. — Þýðir ekkert fyrir þig.
Ekkert skip lá við festar við
Faxagarð. Kennarinn sagði:
Aöur fyrr kynnu Islendingar
aö hafa þraukaö af margt
harðærið, hefðu þeir bara
fengist til að éta það sælgæti
sem fjaran hefur upp á að
bjóða. Nokkrar stelpur
sögðu: ojbarasta, en sú sem
við Reimar vorum skotnir í
þurfti endilega að vera öðru-
vísi, þannig eru sætar stelp-
ur svo oft, hún sagði, nei, en
athyglisvert, svo sannarlega
væri gaman að forvitnast
um þennan sjávargróður
. . . nánar.
Við stóðum á bryggjunni,
ég var að horfa á bjórdollu
sem barðist við að fljóta í ol-
íubrák, allt í einu hljóp Reim-
ar fram af og stakk sér á
bólakaf í sjóinn. Við hlupum
til að sjá, kennarinn æddi
um bryggjuna, loks kom föl-
hvítt, freknótt andlit úr djúp-
inu. Reimar synti að landi,
klöngraðist upp smábáta-
stiga, vætan lak úr honum,
hann hafði meðferðis drullu-
skítuga þangtjásu og nú
gekk hann í átt að elskunni
minni og bauð hana fram.
— Ætlarðu ekki að taka
við þessu Katla, sögðu vin-
konurnar uppnumdar.
Hún virti hann fyrir sér frá
toppi til táar með fyrirlitn-
ingu í möndlusvörtum aug-
unum og tók ekki við þang-
inu. Ekki var sjón að sjá
Reimar. Hann nötraði af
kulda. Sjórinn hafði skipt
rauðu hárinu fyrir miðju. En
ó, hvað var þetta? Var þarna
ást í auga hennar? Ég sá ekki
betur. Ég sagði; blessaður
fleygðu þér út í aftur, maður.
— Vertu ekki að mana
hann, sagði einhver.
Eins og hendi væri veifað
stakk stærsti sonur ísafjarð-
ar sér aftur fram af bryggj-
unni. Við biðum öll spennt.
En nú bólaði ekki á honum
úr kafi.
Meira í næstu PRESSU.
Olafur Gunnarsson
Jóhann Jóhannsson er afgreiðslumaður
í versluninni Gæjum við Laugaveg en
auk þess er hann að læra framreiðslu í
Grillinu á Hótel Sögu.
★ ★ ★
Hvaða rakspíra notar þú? „Eternety for
Men."
Ertu morgun- eða kvöldmanneskja?
„Bæði."
Hver heldurðu að sé virkasti tími æv-
innar? „Frá tvítugu upp í fertugt."
Ferðu einn í bíó? „Það hefur aldrei skeð."
Ertu góður dansari? „Ekki myndi ég
segja það."
Á hvaða skemmtistaði ferðu? „Lídó og
Casablanca."
Ertu daðrari? „Mikill."
Hvað viltu verða miklu ríkari en þú ert
í dag? „Miklu ríkari."
Hvenær byrjaðir þú að sofa hjá? „16
ára."
Hvers konar píur eru mest kynæsandi?
„Grannar með fallega fótleggi og klæða
sig smart."
Hvað borðar þú í morgunmat? „Banana
og Seltzer."
Hvenær hættir þú að sofa
með bangsa? „Bangsann
hafði ég aldrei, ég hafði tvo
kodda til að kúra mig við."
Finnst þér gott að láta
klóra þér á bakinu? „Ég
elska það."
Horfir þú mikið á sjónvarp?
„Mjög lítið."
Ferðast þú í strætó? „Aldr-
ei."
Hvað langaði þig að verða
þegar þú yrðir stór? „Góður
þjónn."
Við hvað ertu hræddastur?
„Að lenda í bílslysi."
Hvaða hæfileika vildirðu
helst hafa? „Geta spilað á
bassa eins og Skúli Sverris-
son."
Hverju sérðu mest eftir i
lífinu? „Að hafa ekki lært á
bassa."
Hvort finnst þér betri ham-
borgari eða pitsa? „Pitsa."
Hugsar þú mikið um í
hverju þú ert? „Já, ég reyni
að velja eitthvað sem þægi-
legt er að vera í."
Hvað má vera mikill ald-
ursmunurá pörum?„Fimm
ár."
Gæturðu hugsað þér að
búa úti á landi? „Ég er nú
frá Keflavík og gæti alls ekki
hugsað mér að búa úti á
landi eftir að hafa búið þar."
Ertu hræddur við einhver
dýr? „Ég vildi ekki hitta hlé-
barða."
Segir þú oft brandara? „Já
og ég á til að segja góða
brandara."
Kanntu að elda? „Það er
ekki mín sterka hlið."
Hefur þú eitthvað mottó í
lífinu? „Að komast vel frá
því."