Pressan - 27.03.1991, Blaðsíða 16
16
MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 21. MARS 1991
Afi sagði
fyrsta
sætið
eða ekkert
segir Linda Pétursdóttir um
tilboð framsóknarmanna, t
spjalli um pólitík, miðilsfundi og
árulestur
Hún er eitt þekktasta
andlit landsins utan land-
steinanna en var síðast í
fréttum á íslandi er spurd-
ist að framsóknarmenn
gengju með grasið í skón-
um á eftir henni að taka
sæti á lista flokksins í
Reykjavík. Hún hefur samt
aldrei verið flokksbundin
þar á bæ og raunar aldrei
pælt í pólitík fyrr en
frændi hennar Guðmund-
ur Bjarnason heilbrigðis-
ráðherra nefndi þessa
hugmynd við hana.
„Þeir voru verulega ýtnir,
hringdu hingað trekk í trekk,
héldu fundi með mér og
hvaðeina," segir Linda Péturs-
dóttir fyrrum Ungfrú heimur
og nú í dómnefnd fyrir þær
fegurðarsamkeppnir sem
haldnar eru víða um land.
„Ég hef aldrei komið nálægt
pólitík og hafnaði því alfarið
að taka sjötta sæti listans. Ég
ræddi þetta við afa sem er
mikill framsóknarmaður, eig-
inlega grænn í gegn, og hann
sagði mér að taka fyrsta sæt-
ið á listanum eða ekkert. Afi
er indæll."
Samtal PRESSUNNAR við
Lindu fer fram á heimili
hennar við Hæðargarð á
mándagskvöldið. Áður en
langt um líður er á hreinu að
henni finnst Bart Simpson
æðislegur, ekki sé hellt upp á
kaffi á heimilinu, því síður
reykt, en hún reynist samt
eiga öskubakka í fórum sín-
um. Þó það.
Ferill Lindu er flestum
kunnur, en hún varð Ungrú
heimur 1989. Vann fyrir for-
ráðamenn þeirrar keppni og
íslenska aðila í eitt ár á eftir
en hefur síðan starfað sem
fyrirsæta að undanskildu
sumrinu í fyrra er hún vann
sem fararstjóri úti á Spáni.
Það sem liggur fyrir í dag er
líklega vinnuferð til Japan
þar sem hún hefur starfað áð-
ur sem fyrirsæta og við land-
kynningu.
SAUMAKLÚBBUR
FEGURÐARDÍSA
Stúlkurnar sem kepptu við
Lindu um titilinn Ungfrú ís-
land 1988 halda enn hópinn
að miklu leyti. „Við erum
8—9 sem hittumst reglulega
einu sinni í mánuði heima hjá
hver annarri og spjöllum
saman. Þetta er eins og hver
• annar saumaklúbbur og það
er ótrúlegt hve vel okkur
kemur saman þó við séum að
gera ólíka hluti, ein í Háskól-
anum, ein í Myndlistarskól-
anum, ein orðin 2ja barna
móðir og svo framvegis. Einu
sinni á ári mega svo kærast-
arnir slást í hópinn og þá för-
um við í sumarbústaðaferð
og höldum teiti,“ segir Linda
með skemmtilega tvíræðri
áherslu á orðinu teiti.
Aðspurð hvort ekki sé
óeðlilegt að þær stúlkurnar
haldi svona hópinn miðað
við hina miklu samkeppni
sem ríkti millum þeirra í
keppninni segir Linda svo
ekki vera. „Margir hafa þær
ranghugmyndir að þær stúlk-
ur sem taka þátt í þessum
keppnum séu hrokafullar
glanspíur en svo er ekki,“ seg-
ir hún. „Hópurinn 1988 var
einstaklega skemmtilegur og
samheldinn og margar af
mínum bestu vinkonum í dag
eru úr honum."
KAUPFÉLAGSSTJÓRA-
FRÚIN ÁNÆGÐ
Sem fyrr segir hefur Linda
starfað í dómnefnd þeirri sem
valið hefur stúlkur víða um
land til að taka þátt í keppn-
inni um Ungfrú ísland sem
haldin verður í næsta mán-
uði. Fyrir rúmri viku fór hún
austur til Fáskrúðsfjarðar þar
sem Ungfrú Austurland var
valin.
„Það voru allir mjög
spenntir í plássinu að þessi
S.ÞOR
„Eftir keppnina lenti ég í miklum vandrædum
með bandarískan þingmann í Boston, sem var
ansi ágengur svo ekki sé meira sagt
keppni skyldi haldin þar,“
segir Linda. „Og kaupfélags-
stjórafrúin var greinilega
ánægð, hún sagðist aldrei
hafa séð neitt þessu líkt í
bænum. Það veitir ekki af að
lífga aðeins upp á sjávarpláss-
in fyrir austan og ef þessi
keppni hefur gert það á Fá-
skrúðsfirði er það af hinu
góða.“
En í huerju eru störf dóm-
nefndar eiginlega fólgin í
keppni sem þessari?
„Við ræðum við stúlkurnar
og heyrum hvernig þær
koma fyrir sig orði, spyrjum
þær meðal annars hvers
•vegna þær taki þátt í keppn-
inni og hvað þær telji sig fá út
úr henni.“
Og hver eru helstu svörin?
„Aðallega að þetta sé
spennandi, þær telji sig öðl-
ast aukna sjálfsvirðingu með
þessu og þær vilji stunda fyr-
irsætustörf í framtíðinni, telji
þetta góðan stökkpall í þess
lags störf.“
Er þetta ekki oft meira og
minna samskonar svör hjá
öllum?
„Jú vissulega, en það eru til
skondin svör í svona keppn-
um. Til dæmis gerðist það í
Ungfrú heimur keppninni
fyrir mörgum árum að ein
stúlkan var spurð um hvað
hún byggist við að fá út úr
keppninni og allt varð vit-
laust yfir svarinu. Hún sagð-
ist nefnilega ætla að sofa hjá
sem flestum karlmönnum."
í máli Lindu kemur fram að
það sem dómnefndin sé fyrst
og fremst að leita að í fari
stúlknanna sé að þær séu
ákveðnar og geti bjargað sér.
•Það er sem sagt ekki nóg að
vera bara falleg, á bakvið út-
litið verði að vera bein í nef-
inu.
ÁGENGUR ÞINGMAÐUR
í BOSTON
Og talandi um karlmenn-
ina liggur nœst vid ad spyrja
hvort Linda hafi lent í vand-
rœdum med þá í starfi sínu
sem Ungfrú heimur.
„í keppninni sjálfri er
gæslufólk stöðugt til staðar til
að sjá um að slíkt sé ekki
vandamál en ég man að eftir
keppnina lenti ég í miklum
vandræðum með bandarísk-
an þingmann í Boston sem
var ansi ágengur svo ekki sé
meira sagt,“ segir Linda.
„Hann hringdi stöðugt í mig
á hótelið sem ég var á og ég
var mjög hrædd við þessa
ágengni enda eru þetta
valdamiklir menn þar í landi.
Það endaði með því að ég
kallaði á Dúdda sem var með
mér þarna, læsti herberginu
og tók símann úr sambandi."
Hér heima hafa karlmenn
ekki verið vandamál og seg-
ist Linda hafa sloppið vel í
þeim málum þótt menn hafi
átt til að vera uppáþrengjandi
á skemmtistöðum. Linda er í
sambúð núna en vildi ekki tjá
sig um þann mann að öðru
leyti en hann væri kallaður
Ingó.
MIÐILSFUNDIR OG
ÁRULESTUR
I samtalinu við Lindu kem-
ur fram að hún er ekki með
öllu ónæm fyrir straumum og
stefnum í hversdagsleika
þjóðfélagsins. Andleg mál-
efni eru ofarlega á baugi hjá'
henni ogsegist hún hafa farið
á miðilsfundi og látið lesa í
áru sína. Á miðilsfundunum
hafa látnir ættingjar hennar
komið fram og hún segir að
hún muni örugglega fara á
fleiri slíka fundi í framtíðinni.
„Ég lét einnig lesa í áru
mína en með slíkum lestri á
að vera hægt að sjá framtíð
viðkomandi," segir Linda.
„Mér finnst ótrúlega mikið af
því sem sagt var um mig hafa
komið fram eins og til dæmis
að ég ætti eftir að starfa mik-
ið í Asíu og vera mikið á
ferðalögum."
Annað áhugamál Lindu
þessa dagana er merkilegt
nokk pólitík. Hún segir að eft-
ir þessar mjög svo ákveðnu
þreifingar framsóknarmanna
um að fá hana í framboð í
Reykjavík hafi hún farið að
fylgjast með pólitík en hins-
vegar sé hún ekki fylgjandi
Framsóknarflokknum frekar
en öðrum flokkum.
En er afi þinn ekki fram-
sóknarmaöur?
„Jú hann er mikill fylgis-
maður þess flokks," svarar
hún með mildu brosi.
Tja þá ertu genetískur
framsóknarmadur.
„Ha,“ hváir hún.
Skilgreiningin á þeim er að
þeir hata flokkinn en kjósa
hann samt. Það finnst henni
fyndið.
„Ég get gjarnan sagt það að
ég hef mikið álit á Halldóri
Ásgrímssyni. Mér finnst hann
algjör draumur því það er
ekkert sem haggar honum.
Þegar hann hefur einu sinni
tekið ákvörðun stendur hann
við hana í gegnum þykkt og
þunnt," segir hún.