Pressan - 27.03.1991, Blaðsíða 7

Pressan - 27.03.1991, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 21. MARS 1991 7 MUGGSMYND SKILAB VEGNA BDSBHDA UM Úlfar í Gallerí Borg leyföi eig- andanum að skila myndinni, þegar hann kvartaöi. UPPRUNA Kaupandi Muggsmyndar skilaði henni aftur til Gallerís Borgar eftir að undirskriftin leystist upp þegar hreinsa átti myndina. Ágúst Sigurðsson, forstjóri í Stykkishólmi, hefur skilað inn til Gallerís Borgar málverki eftir Mugg (Guðmund Thorsteinsson) sem hann lét kaupa fyrir sig á sölusýn- ingu fyrir skömmu, þar sem einungis voru boðnar til kaups myndir eftir Mugg. Ágúst sendi myndina til Mork- inskinnu til hreinsunar og innrömmunar en eftir rann- sóknir sem þar voru gerðar og eftir að hafa fengið skýrslu um þær ákvað Ágúst að skila myndinni. Efa- semdir um uppruna hennar vógu þar þungt. Ágúst fékk að skila myndinni enda hafði hún ekki verið greidd. „LEIST EKKERT Á MYNDINA" „Þetta er leiðindamál sem ég vil sem minnst um tala,“ sagði Ágúst. Hann sagði að dóttir hans hefði séð myndina á sýningunni í Gallerí Borg og látið hann vita þar sem hann var staddur erlendis. Þar sem hann hefði lengi langað í mynd eftir Mugg af Stykkishólmi þá hefði hann látið kaupa myndina. Gallerí Borg var með myndina í umboðssölu og sagt að eigandi væri aðili í Danmörku sem ekki vildi láta nafns síns getið. „En þegar ég kom heim og sá hve meðferðin á henni var slæm þá vildi ég ekki eiga hana. Okkur leist bara ekkert á hana,“ sagði Ágúst en það kom fram í samtalinu við hann að engin vandkvæði hefðu verið á því að skila myndinni. Myndin ber ekk- ert ákveðið nafn en á sýningunni var hún titluð „Landslagsmálverk frá Stykkishólmi". GALLERÍ BORG KREFST ÞESS AÐ FÁ RANNSÓKNINA En málið hefur tekið á sig nýja mynd því Pétur Þór Gunnarsson hjá Gallerí Borg hefur skrifað Morkin- skinnu bréf þar sem hann krefst skýringa á því hvernig rannsóknin á málverkinu fór fram. Um leið krefst hann þess að fá að sjá rannsóknina. Björn Th. Björnsson bað starfsmenn Gallerís Borgar að komast aö eig- endaferli myndarinnar, en hann sá myndina eftir aö búiö var að taka hana úr rammanum. „Gallerí Borg leitaði eftir því að fá skýrslu Morkinskinnu um myndina en í bréfi mínu neitaði ég því enda skýrslan unnin fyrir þáverandi eig- anda myndarinnar. Eg sagðist hins vegar vera tilbúinn til að láta réttan og staðfestan eiganda í Danmörku hafa skýrsluna," sagði Ríkarður Hördal hjá Morkinskinnu en hann vann með málverkið á meðan það var þar. Hann sendi afrit af svarbréfi því er Gallerí Borg fékk til stjórnar- formanns Gallerís Borgar, Ragnars Árnasonar, og einnig til viðskipta- ráðuneytisins. Þegar myndin kom til rannsóknar kom í ljós að skorið hafði verið með- fram köntum hennar sem er al- mennt talið mjög gróf aðferð sem ávallt vekur upp spurningar um það hvað var skorið af. Einnig hafði myndin verið límd upp á plötu og lakkað yfir hana á köflum. Þetta var gert í innrömmunarfyrirtæki sem Muggur (Guðmundur Thorsteins- son). Undirskriftin hvarf þegar terp- entína var borin að henni. heitir Listinn og var áður að hluta til í eigu Gallerís Borgar. UNDIRSKRIFTIN LEYSTIST UPP Þegar myndin var hreinsuð fóru óvæntir hlutir að gerast því undir- skrift höfundar undir myndinni leystist upp þegíir terpentína var borin að henni. Þá var hætt frekari vinnu með myndina og eiganda hennar, Ágústi Sigurðssyni, gefin munnleg skýrsla þar um. í kjölfar þess ákvað hann að láta kaupin ganga til baka. Ríkarður sagðist ekki treysta sér til að draga neinar ályktanir af þessu — honum hefði einfaldlega þótt rétt að gefa eiganda myndar- innar skýrslu á þessu stigi málsins. Það er kannski eðlilegt því að ef allt væri með felldu með undirskrift- ina ætti hún ekki að leysast upp við terpentínuhreinsun enda er hér um að ræða mynd frá 1914. — En hve langur tími þarf að líða þar til olíu- málning hættir að leysast upp við terpentínumeðferð? Ríkarður sagði að það væri misjafnt en taldi að eftir eitt ár væri málningin orðin nokkuð föst. Annar sérfræðingur á þessu sviði tók í svipaðan streng. Til að taka af öll tvímæli um aldur málverka eru þau mynduð með út- fjólubláu ljósi og staðfesti Ríkarður að slík mæling hefði verið gerð en hann vildi ekkert láta uppi um nið- urstöðu hennar fyrr en réttur eig- andi málverksins gæfi sig fram. Þarna virðist því ákaflega margt benda til þess að undirskrift mynd- arinnar sé ekki gerð þegar Muggur málaði hana 1914. — Og þar eð hann dó árið 1924 þá er einnig margt sem bendir til þess að hann hafi ekki sjálfur undirritað hana. BJÖRN TH. BAÐ UM EIGENDAFERIL Einn þeirra sem sáu myndina eftir að búið var að taka hana úr ramm- anum hjá Morkinskinnu var Björn Th. Björnsson listfræðingur. Björn er gjörkunnugur myndum Muggs og var spurður að því hvort efa- semdir hefðu vaknað hjá honum um réttmæti myndarinnar? „Ég bað þá bara hjá Gallerí Borg um að komast að eigendaferli henn- ar. Það var það eina sem ég sagði og það er reyndar það eina sem maður byrjar á,“ sagði Björn Th. en þegar myndin fór á sýninguna lágu engar upplýsingar fyrir um eigendaferil hennar. Björn sagði að jsað hefði óneitan- lega vakið athygli að myndin hefði verið skert í köntunum án þess að hann treysti sér til að draga ályktan- ir af því þar til eigendaferillinn lægi fyrir. Björn sagðist heldur ekki treysta sér til að ræða um áreiðanleika und- irskriftarinnar í þessu tilviki, en bætti við: „Það er auðvitað svolítil tilhneiging til þess, ef menn eru sannfærðir um það sjálfir að mynd sé eftir ákveðinn mann — án þess að um fölsun sé að ræða — að merkja hana sjálfir. Ég hef orðið var við þessa tilhneigingu," sagði Björn. MÁLSHÖFÐUN „Vegna fyrri samskipta við PRESSUNA þá svara ég engu um þetta,“ var það eina sem Úlfar Þor- móðsson, forstöðumaður Galleríis Borgar, vildi láta hafa eftir sér þegar til hans var leitað, en síðar barst blaðinu skrifleg greinargerð frá Pétri Þór Gunnarssyni, þar sem seg- ir m.a. að forsvarsmenn Gallerís Borgar hafi haft samband við eig- anda myndarinnar í Danmörku, sem ætli að láta rannsaka myndina ytra. Að sögn Péturs mun sá aðili sem tekur það verk að sér fara fram að fá skriflegt svar frá íslenska við- gerðarmanninum um hvaða efni hafi verið notuð. Ennfremur segir Pétur að eigandi myndarinnar íhugi málshöfðun á hendur Morkin- skinnu. Sigurður Már Jónsson

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.