Pressan - 27.03.1991, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 21. MARS 1991
15
C
^^elfyssingar urðu mjög svo kát-
ir um daginn þegar forseti íslands
Vigdís Finnbogadóttir falaðist eft-
ir landi í nágrenni
bæjarins, nánar til
tekið á vesturbakka
Ölfusár, nálægt Sog-
inu. Hún fær landið
til leigu í sínu eigin
nafni og er leigutími
óskilgreindur og þá
hefur leigugjaldið ekki verið ákveð-
ið ennþá. Líklega hefðu ekki allir
fengið úthlutað landi á þessum stað
sem er í jaðri skógræktarsvæðisins
og því mjög fýsilegt...
i
(
ákveðið fyrir nokkrum dögum, eftir
að Halldór Asgrímsson tók af
skarið, og gert með vilja Hjörleifs
Guttormssonar og Egils Jóns-
sonar. Fyrsti maður á lista Alþýðu-
flokksins, séra Gunnlaugur Stef-
ánsson, er hins vegar ekki sagður
ánægður með þetta. Lítilsvirðingin
er þó líklega mest gagnvart fram-
bjóðendum smáflokkanna, Þjóðar-
flokks og Kvennalista, sem eiga allt
sitt undir því að fá að fylgja með á
fundum þeirra stóru ...
lú mun ákveðið að aðeins
verði haldnir þrír sameiginlegir
fundir fyrir kosningar með fram-
bjóðendum stjórn-
málaflokkanna á
Austurlandi. En
hingað til hafa fund-
irnir verið þrettán í
þessu víðfeðma
kjördæmi. Þetta
mun hafa verið
RESTAURANT
TORFAN
Staður við allra hæfi.
Borðapantanir í sfma
13303
Guöbjörn Jónsson
Stjórn G-samtakanna
hnuplaði ríkis-
framlagi. . .
,,Ég ætla að vona að bullandi
ágreiningur sé í G-samtökunum, en
sá ágreiningur er varla vegna
vinnubragða minna, nema því að-
eins að G-samtökin séu horfin frá
því markmiði sínu að gefa fólki kost
á ráðgjöf til endurskipulags skulda-
mála, án tillits tii greiðslugetu fyrir
þjónustu," segir Guðbjörn Jónsson,
fyrrum framkvæmdastjóri G-sam-
takanna, í athugasemdum sem
hann sendi PRESSUNNI vegna um-
mæla á baksíðu blaðsins í síðustu
viku.
„Sagt er að ég hafi þegar lent í
ágreiningi við stjórn félagsins, en
það er ekki rétt. Eftir að ég hafði
rekið ráðgjöf og endurskipulagning-
arþjónustu á fjórða mánuð klofnaði
stjórn samtakanna í afstöðu til þess
hvort hætta ætti þessu starfi. For-
maður vildi hætta, en lenti í minni-
hluta og kaus þá leið til hefndar að
ata mig auri í DV“
Guðbjörn heldur áfram: „Engar
deilur eru uppi við núverandi stjórn
frá minni hendi. Þessi stjórn var kos-
in 20. jan. sl„ og var smalað sérstak-
lega á fundinn til þess að tryggja
kosningu stjórnar sem héldi starfi
mínu áfram. Fljótlega eftir aðalfund
varð ljóst að Raðgjafarþjónustan
hafði fengið tvær milljónir á fjárlög-
um. í framhaldi af því hefst undir-
róður gegn áframhaldandi starfi
mínu fyrir samtökin. Þegar endan-
lega varð ljóst þann 12. mars sl. að
stjórnin vildi ekki halda starfi mínu
áfram undir nafni samtakanna,
nema fá yfirstjórn hugbúnaðarkerfa
minna, fór ég frá samtökunum með
gögn fólksins sem hafði trúað mér
fyrir málefnum sínum. Fjármál Ráð-
gjafarþjónustunnar annars vegar og
félagslega þáttar samtakanna hins
vegar hafa verið aðskilin frá upp-
hafi. Reikningi Ráðgjafarþjónust-
unnar hefur nú verið lokað og full-
komlega eðlileg skil staðfest af end-
urskoðanda samtakanna. Sannleik-
urinn er hins vegar sá að stjórn sam-
takanna hnuplaði frá Ráðgjafar-
þjónustunni ríkisframlagi sem greitt
var út nú fyrir skömmu, en þá átti ég
ógreidd laun hjá Ráðgjafarþjónust-
unni að upphæð u.þ.b. 1,5 milljónir.
Ef samtökunum er svo mjög a
móti skapi að vera kennd við vinnu-
brögð mín síðastliðið ár er það
þeirra mál. Ég hef kappkostað að
veita öllum sem til mín leituðu að-
stoð, eins og ég hef getað, óháð
efnahag, sé það andstætt markmið-
um samtakanna er það miður.“
LAUSN A SIÐUSTU KROSSGÁTU
D Uj1
*JL
rgentínskt
eldhús
-á íslenska vísu