Pressan - 27.03.1991, Side 23

Pressan - 27.03.1991, Side 23
MIÐVIKUDAGUR PRESSAN 27. MARS 1991 23 ... fær Jóhannes í Bón- usi fyrir að hafa lækkað vöruverð eins og Pálmi í Hagkaup gerði á árum áður. Elvis og ég FJvis and Me er sjón- varpsmynd í tveimur hlutum sem verða sýndir eftir 19:19 á skírdag og föstudaginn langa. Þessi mynd byggir á bók eftir Priscillu Presley og fjallar um líf hennar fyrir Dallas. SJÓNVARPIÐ__________________ Litbrigði jaröarinnar er páska- leikrit Sjónvarpsins. Það er Ág- úst Guðmundsson sem hefur bú- ið þessa sögu Olafs Jóhanns Sig- urðssonar í búning fyrir sjón- varp. Fytrl hluti myndarinnar verður að kvöldi föstudagsins langa en siðari hlutinn á páska- dagskvöld. BÍÓIN Hart á móti hördu Marked for Death (Bíóhöllinni) Eini kostur- inn við þessa mynd er sá að við gerð næstu myndar sinnar fékk Steven Seagal þá flugu í höfuðið að hann gæti leikið. Hún er því full af fimm-mínútna mónólóg- um. Hart á móti hörðu er því síð- asti möguleikinn til að sjá Seagal eins og hann er bestur, þegjandi og með hnykklaðar augabrúnir. Lögreglurannsóknin Q&A (Bióborginni) Nick Nolte og Arm- and Assante eru flottir en sögu- þráðurinn er i raun afskaplega gamaldags. Lögreglurannsóknin leiðir í Ijós að ýmsir hátt settir hafa óhreint í pokahorninu. Það eru ekki ný tíðindi og allra sist i bíó. Bíttu mig, elskaðu mig Tie Me Up, Tie Me Down (Háskólabíói) Kynlíf og húmor. Mikið af hvoru- tveggja. Fær tvær stjörnur. Tvær stórar störnur. Havana (Laugarásbíói) Ósköp falleg mynd sem gæti hafa orðið góð ef söguefnið hefði verið áhugaverðara. Fær stjörnu fyrir andlitin á aðalleikurunum og hálfa fyrir skrokkinn á aðalleik- konunni. Uppvakningar Awekenings (Stjörnubíói) Besta páskamynd- in. Voðalega finn leikur og þokkalegasta handrit. LEIKHÚSIN______________________ Pétur Gautur er í Þjóðleikhús- inu í uppfærslu fyrir þá sem hafa séð leikritið oft áður. Það er hvorki verra né betra en það venjulega sem hefur verið sýnt það sem af er öldinni. En það er öruggt að það bætir verkið að sleppa ræðum Svavars, Árna Johnsen og þjóðleikhússtjórans, hvað hann nú heitir aftur, þessi sem aldrei rak neinn. »• Fló á skinni er að renna sitt skeið i Borgarleikhúsinu og sömuleiðis Sigrún Ástrós, Bréf frá Sylvíu á Litla sviði Þjóðleik- hússins og Rigoletto í Óperunni. VISKAN Eyvindur Erlendsson les Pass- íusálmana alla á föstudaginn langa í Hallgrimskirkju eins og nokkur undanfarin ár. Hann hef- ur lesturinn kl. 13.30 og býst við að verða búinn um kl. 19.30. Hann verður því að í sex tima eins og Hjörleifur um daginn. ÞUN6A 6ÁTAN LÁRÉTT: 1 vistir 6 skrýtin 11 kindin 12 kjökra 13 hrun 15 markverð 17 ró 18 fugl 20 tré 21 hugarburði 23 ásynja 24 baun 25 höfuðborg 27 kátinu 28 fyrirboðarnir 29 þráð 32 glöggs 36 tröllkonur 37 for- stofa 39 tóbak 40 grip 41 miklir 43 álpast 44 lauk 46 náttar 48 svelg- urinn 49 án 50 skyldara 51 bætti. LÓÐRÉTT: 1 amlóði 2 fluttur 3 gjöfuli 4 tungls 5 brothljóðs 6 hjálmur 7 hár 8 spíra 9 hysknara 10 oflátungum 14 vind 16 espuðu 19 vitnis- burður 22 biskupshúfa 24 vex 26 útihús 27 kjaftur 29 liðfá 30 áhyggja 31 stígarnir 33 minnka 34 náungi 35 drabbi 37 piluna 38 bræðslupott 41 leiðslur 42 sjófugl 45 skel 47 duft. HVERJIR ERU HVAR?________ Á Óðinsvéum mæta reglulega saman nokkrir kallaklúbbar og borða saman í hádeginu. Einn þeirra mætir á hverjum degi og í honum eru: Sveinbjörn Bjarna- son, Björn Blöndal málari, Sævar Baldursson í Plaza, Magnús Jónsson umboðs- madur Budweiser, Bolli í Sautján, Jón Baldursson og Magnús Ketilsson. Aðrir mæta sjaldnar einsog Eggert bílasali, Sigurjón Pétursson í Sjóvá-Al- mennum, Friðjón Einarsson hjá Grænlandsflugi og Guffi bílasali. Yngri menn eru farnir að feta í fótspor þeirra eldri og ■hótel OÐINSVE einn slíkur hópur samanstendur af: Hilmari Finni Bender fram- kvæmdastjóra, Andrési Pétri Rúnarssyni, Sigurði Rúnari þjóni, Sveini Eyland þjóni og fleirum. Við eigum samleið er á Breið- vangi með lögum sem Vilhjálm- ur Vilhjálmsson gerði fræg á sín- um tíma. Kostar 3.900 krónur með mat. MYNDLISTIN Sverrir Ólafsson sýnir afrakst- ur Mexíkó-feröar sinnar i Gallerí Nýhöfn. Litauðugir skúlptúrar af konuskrokkum og valdastólum. Sara Jóhanna Vilbergsdóttir er með olíumálverk í FÍM-saln- um í Garðastræti. KLASSÍKIN________________ Jóhannesarpassía eftir J.S. Bach verður flutt af kór Lang- holtskirkju, hljómsveit og ein- söngvurum í Langholtskirkju á skírdag og föstudaginn langa kl. 17.00 báða dagana. Orgelhátíð verður í Hallgríms- kirkju á laugardaginn fyrir páska. Þar mæta kórar, ein- söngvarar og hljóðfæraleikarar og safna í orgelsjóð kirkjunnar. POPPIÐ_______________________ Nú eru páskarnir framundan og því fátt um fína drætti hjá popp- j urum. Og þó: Sniglabandið verður með hörkustuð á Tveimur vinum i kvöld. Rokk og leður. Bjartmar Guðlaugsson hinn vestmanneyski verður með tón- leika á Tveimur vinum á laugar- dagskvöldið. SJÓIN_______________________ Rokkað á himnum á Hótel Is- landi. Kostar 4.400 krónur með mat. Halli, Laddi og Bessi eru á Sögu. Kostar 4.400 krónur með mat. Þurrt hvítvín og sæmi- lega ferskt. Það er frá Máconnais í Búrgund og búið til úr chardonnais vínberjum. Verðið er ágætt, 1090 krónur, en menn skulu þó ekki taka Le Piat de Mðcon Villa- ges sem einhverju eðal- víni úr chardonnais berj- um. Það er einungis ágætt miðað við verð, sæmilega bragðmikið og hentar með fiski og Ijósu kjöti. Erla Þórarinsdóttir er með sýningu í Norræna húsinu. Ljósmyndasýningarnar á Kjarvalsstöðum og Listasafni al- þýðu verða báðar fram yíir páska. NÆTURLÍFIÐ_________________ öeir sem ætla út verða að gera það í kvöld því næstu dagar eru fráteknir af þjóðkirkjunni. Þeir sem sætta sig ekki við messur geta valið um það að fara á tón- leika, horfa á sjónvarp, fara á AA-fundinn ! Háskólabíói á föstudaginn eða halda partí heima. En allir sem einn verða að muna eftir því að byrgja sig upp af sígarettum því þjóðkirkj- an hefur lokað sjoppunum líka, alveg eins og þegar Jesús henti víxlurunum út úr musterinu. VEITINGAHÚSIN______________ Sjanghæ við Laugaveginn er kínverskur veitingastaður á reykvíska vísu og hefur alla galla þess. Maturinn er einskonar sambland af kínverskri matar- gerð og hinni ungu íslensku pott- réttahefð sem á upptök sín í upp- reisn æskunnar gegn þeirri dansk-íslensku hefð sem byggði á góðbókinni Matur og drykkur. Þjónustan er öll af vilja gerð en er fákunnandi, þannig að enginn hefur hjarta í sér til að standa í kvörtunum. Umhverfið er hægt að kaupa í gegnum vörulista og sjálfsagt hefur einhver húsmóðir í Mosfellsbæ hannað það. En þetta má allt þola með jafnaðar- geði. Það er hins vegar erfiðara að þola alla hópana utan af landi sem koma á Sjanghæ og eru farnir að syngja yfir súpunni klukkan 7.30. Mikil lifandis ósköp hlýtur að vera gaman að borða kvöldmat úti á landi. ÁÐUR ÚTI NÚNA INNI Þótt ótrúlegt sé er það orðið í góðu lagi að eiga hippalega for- eldra. Það er orðið svalt að eiga mömmu sem segir sifellt: Ég vil bara að allir séu hamingjusamir, eða jafnvel: Elskan min, taktu því rólega, þetta kemur. Það má jafnvel þola alla lúserana, vinina hennar mömmu; þessa sem eru enn að hugsa um hvort þeir eigi að klára ritgerðina fyrir fer- tugs-afmælið, þá sem eru með kvíðakast fyrir fyrstu sýninguna sína i átta ár og jafnvel líka þá sem koma með hassmola, setjast ÁÐUR INNI NÚNA ÚTI Það er sjálfsagt ekkert jafn hall- ærislegt og að vera i breskri krá í alklæðnaði frá Marks & Spenc- er, eins og allir hinir, nema ef vera skyldi að vera í íslensku fer- tugs afmæli i Boss-fötum, eins og allir hinir. Ef Boss-fötin væru bækur hefði hvorki Laxness né Alister MacLean nokkuð í þau að gera. Þau myndu jarða þá félaga fyrir hver jól. Eins og allir Jónar vita þá kemst það næst því aö heita ekki neitt að bera það nafn. Það sama má segja um Boss-föt- in. Að vera í þeim kemst næst því að vera nakinn. Og að lokum: Af- hverju flytur Sævar Karl ekki inn Boss-gardínuefni til að íull- komna íslensku fertugsafmælin? VIÐ MÆLUM MEÐ__________ Ást við fyrstu sýn Það er svo miklu einfaldara þannig. Uppsögnum á leikurum Þjóð- leikhússins Er ekki líka hægt að reka ntann- inn sem setti handriðið á skyggn- ið fyrir ofan anddyrið? Utlitsbyltingu stjórnmála- mannanna fyrir kosningar Svo framarlega að Steingrimur J. fái sér ekki koliu. Laugavegsapóteki Þar er Elizabet Arden ódýrari en annarsstaðar. Heilmikil kjaraból fyrir konur. Vinsælustu ensku/bandarisku tímaritin VIKUBLÖÐ 1. Hello 2. Shoot 3. Match 4. Time 5. Newsweek 6. European 7. Woman 8. Womans Own 9. Economist 10. Melody Maker MÁNADARBLÖD 1. Vouge 2. Byte 3. Cosmopolitan 4. Heavy Metal 5. Hustler 6. Computer and Videogames 7. Vanity Fair 8. Playboy 9. Personal Computer World 10. Football Today

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.