Pressan - 04.07.1991, Side 19
FIMMTUDAGUR PRCSSAN 4. JÚLl' 1991
19
ESinn harðasti talsmaður að-
halds í launamálum er að sjálfsögðu
Einar Oddur Kristjánsson, for-
maður Vinnuveit-
endasambandsins.
Einn er sá hópur
manna sem á erfitt
með að sitja undir
því þegar Einar
Oddur birtist á
skjánum og boðar
litlar launahækkanir en það eru
fylgjendur kvótasölu. Þeir hafa
nefnilega reiknað út að Einar Oddur
og Hamar á Flateyri hafi fengið um
400 milljónir gefins frá þjóðinni í
formi kvóta. Sá sem fær slíka gjöf á
ekki að hafa skoðun á því hvað aðrir
fá í launaumslagið, að mati kvóta-
sölumanna . . .
A
^^Að tillögu Jóns Baldvins
Hannibalssonar, formanns Al-
| þýðuflokksins, hefur framkvæmda-
stjórn flokksins sett
á laggirnar fjögurra
manna nefnd sem
ætlað er að móta til-
lögur um uppbygg-
ingu flokksstarfsins
og taka saman
greinargerð um
hvaða lærdóm megi draga af kosn-
ingabaráttunni. Athygli vekur að
nefndarmenn tilheyra allir ungu
kynslóðinni í flokknum, þar af þrír
sem ekki voru í flokknum fyrir ári.
Nefndina skipa þau Össur Skarp-
héðinsson, Margrét S. Björns-
dóttir, Arnór Benónýsson og
Ragnheiður Davíðsdóttir . . .
ó
venjuleg auglýsing birtist í
Morgunblaðinu í síðustu viku. Þar
auglýsti Bergur Guðnason lög-
fræðingur að „gífur-
lega fjársterkur
einkaaðili" óskaði
eftir því að fjárfesta
á Islandi. Nú velta
menn því fyrir sér
um hvern geti verið
að ræða og hafa
hugmyndir vaknað um að þarna séu
jafnvel aðilar frá Hong Kong á ferð.
Nema þetta sé sonur Bergs, Guðni
Bergsson, að koma knattspyrnu-
peningunum í lóg ...
ótt Steingrímur J. Sigfús-
son treysti enn stöðu sína í Alþýðu-
bandalaginu telja menn of snemmt
að afskrifa Svavar
Gestsson i næsta
formannsslag. Svav-
ar er sagður mun
diplómatískari en
áður var, eins og
sýndi sig á síðasta
miðstjórnarfundi
þar sem hann hallaði sér að Birting-
armönnum þegar Ólafur Ragnar
og Steingrímur vildu samþykkja
harða ályktun gegn Alþýðuflokkn-
um. Svavar þykir því til alls líklegur
á næstu misserum. Formannskand-
ídat Ólafs Ragnars mun hins vegar
vera Margrét Frímannsdóttir, nú-
verandi formaður þingflokksins ...
RJ
■ ú fer loksins að rofa til í setu-
stofumálum alþingismanna, sem
hafa nánast hvergi getað haft það
huggulegt ' fyrir
ágangi fréttamanna
og kjördæmapotara.
Sem kunnugt er er
búið að sameina al-
þingi í eina málstofu
og því verður engin
þörf fyrir sal efri
deilar. Á forsetafundum undanfarið
hefur sú hugmynd fengið mikið
fylgi að breyta sal efri deilar í setu-
stofu þar sem þingmenn geti sest
niður, kíkt í blöðin og spjallað. Ef svo
fer er ætlunin að loka af áhorfenda-
bekkina uppi, þannig að fólk geti
ekki fylgst með þingmönnum í setu-
stofunni. Mun forseti þingsins, Sal-
ome Þorkelsdóttir, vera fylgjandi
þessari hugmynd þannig að líklegt
er að hún verði að veruleika . . .
s
■■em kunnugt er eru miklar lík-
ur á því að Geir Sveinsson gangi
aftur til liðs við Val. í framhaldi af
því hafa margir rennt hýru auga til
Finns Jóhannssonar unglinga-
liðsmanns, sem undanfarin tvö ár
hefur leikið á línunni hjá Val. Meðal
þeirra sem leitað hafa til Finns eru
Frammarar, sem virðast leita að
línumanni þessa dagana . . .
. - ,5
M * JL
Upplýsingabæklingur liggur frammi í lyfjabúðum,
læknastofum, heilsugæslustöðvum og víðar.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
Hvað
ég að borga
ffyrir lyffin?
FLJÚGÐU Á VIT ÆVINTÝRANNA
FUÓTT, FLJÓTT
TIL AMSTERDAM EÐA LUXEMBURGAR
verðdæmi: Amsterdam 1 víka pr. mann
18.550*
VtRl^GDlJ
FERÐASKRIFSTOFA
Sími 652266
Luxemburg 19.250*
*miðað við 2 fullorðna og 2 börn 2-11 ára í bíl í D-flokki.
STBíX"
SttJtt 652266