Pressan - 10.10.1991, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. OKTÓBER 1991
7
STirnuni
iEusn.1
SEMHR
LÉTUSKJÚL
VERSLAVIB
Stjórnarformadur umönnunar- og
hjúkrunarheimilisins Skjóls í Reykja-
vík átti og rak ásamt framkvœmda-
stjóra Skjóls heildverslun sem stofn-
ud var í þeim tilgangi aö selja Skjóli
nauösynleg aöföng. Þeir eru séra •
Siguröur Helgi Guömundsson, sem
er stjórnarformaöur Skjóls, og Rún-
ar Brynjólfsson, sem er fram-
kvæmdastjóri.
Almar Grímsson apótekari. Hann er eini stofnandi ARS sem enn á hlirt
í fyrirtækinu.
Sera Siguröur Helgi Gudmundsson, sóknarprestur í
Víðistaðasókn í Hafnarfirði, er stjórnarformaður sjálfs-
eignarfélagsins sem á og rekur umönnunar- og hjúkrun-
arheimilið Skjól í Reykjavík. Sigurður Helgi er einnig
einn af stofnendum og fyrrverandi stjórnarformaður
ARS hf., sem er heildverslun sem stofnuð var gagngert
til að flytja vörur inn fyrir Skjól. Stofnendur ARS voru,
ásamt Sigurði Helga, Rúnar Brynjólfsson, forstöðumað-
ur Skjóls, Almar Grímsson, apótekari í Hafnarfjarðarapó-
teki, Brynhildur Ósk Sigurdardóttir, eiginkona séra Sig-
urðar Helga, Dóra Pétursdóttir, eiginkona Rúnars for-
stöðumanns, og Anna Björk Gudbjörnsdóttir, eiginkona
Almars apótekara.
Skjól, sem er sjálfseignarstofnun,
er í eigu fimm aðila; Reykjavíkur-
borgar, Þjóðkirkjunnar, Alþýðusam-
bands íslands, Sambands lífeyris-
sjóðsdeildar BSRB og Stéttarsam-
bands bænda. Stjórnin er skipuð átj-
án fulltrúum, sem síðan velja sér
fimm manna framkvæmdastjórn.
Séra Sigurður Helgi Guðmundsson
er formaður framkvæmdastjórnar.
Hann er fulltrúi Þjóðkirkjunnar í
stjórninni. Aðrir í framkvæmda-
stjórn eru Gudmundur Hallvards-
son, Púll Gíslason, Bödvar Pálsson
og Gudrídur Eliasdóltir.
STOFNAÐ Á SAMA TÍMA OG
SKJÓL TÓK TIL STARFA
Hlutafélagið ARS var stofnað í
þeim tilgangi að flytja inn og selja
rekstrarvörur, lyf, tæki og fleira til
Skjóls. Skjól var tekið í notkun í
áföngum árið 1988. ARS var stofnað
í september sama ár. Samkvæmt til-
kynningu til hlutafélagaskrár er til-
gangur fyrirtækisins heildsala og
innflutningur á hjúkrunargögnum,
hreinlætisvörum, lyfjum og lækn-
ingavörum.
Eigendaskipti hafa orðið á ARS að
hluta. Flestir stofnendanna hafa selt
hluta sinn til Skjóls, Hrafnistu i
Reykjavík og Hrafnistu í Hafnar-
firði. Fyrirtæki Almars Grímssonar,
Hafnarfjarðarapótek, á enn hlut í
ARS.
VILDU EKKI FYRRI EIGENDUR
Ásgeir Ingvarsson, fjármálastjóri
Hrafnistu, er nú stjórnarformaður í
ARS. Reyndar hefur láðst að til-
kynna þessar breytingar til hlutafé-
lagaskrár.
Stjórnendur Skjóls, þeir Sigurður
Helgi og Rúnar, og stjórnendur
Hrafnistu sömdu um kaup á fyrir-
tæki Sigurðar Helga, Rúnars og Al-
mars.
Ásgeir Ingvarsson sagði í samtali
við PRESSUNA að Hrafnista hefði
ekki viljað vera með nema fyrri eig-
endur færu út úr fyrirtækinu. „Ef
einstaklingar eiga hlut í svona fyrir-
tæki geta hagsmunir skarast," sagði
Ásgeir Ingvarsson.
„Þegar við komum inn gerðum
við það að skilyrði að Skjól kæmi
inn líka sem stofnun. Við erum að
reyna að ná samvinnu við Eir í Graf-
arvogi líka. Með þessu getum við
hugsanlega veitt heildsölum að-
hald,“ sagði Ásgeir.
STÓÐ TIL AÐ STOFNA
NÝTT FYRIRTÆKI
Þar sem til stóð að stofna fyrir-
tæki, sem rekstraraðilar dvalar-
heimila stæðu sjálfir að, náðist sam-
komulag um kaupin á ARS. Ásgeir
Ingvarsson sagði að viðskipti Hrafn-
istu við ARS hefðu aukist mikið eftir
að Hrafnista eignaðist hlut í heild-
sölunni. Hann vonaðist til að hægt
yrði að gera ARS að nokkurs konar
innkaupasambandi, þar sem fyrir-
tækið er nú rekið á stofnanagrunni,
eins og Ásgeir nefndi það.
Ásgeir sagði það hafa verið tíma-
spursmál hvenær breytingar á þess-
um viðskiptum yrðu. Staðið hefði til
að Hrafnista gerðist aðili að ARS,
sem hefði ekki komið til greina ef
einstaklingar ættu hlut að fyrirtæk-
inu.
PRESSAN hefur heimildir fyrir því
að fulltrúar í framkvæmdastjórn
Skjóls hafa ekki fengið vitneskju um
hversu umfangsmikil viðskipti Skjól
átti við ARS meðan fyrirtækið var í
eigu stjórnarformanns og fram-
kvæmdastjóra stofnunarinnar.
Eins og áður sagði var séra Sig-
urður Helgi Guðmundsson stjórnar-
formaður ARS. Með honum í stjórn
félagsins voru Rúnar Brynjólfsson,
sem er framkvæmdastjóri Skjóls, og
Anna Björk Guðbjörnsdóttir, eigin-
kona Almars Grímssonar apótek-
ara. Hlutafé í ARS var 600 þúsund
krónur en er 1.355 þúsund krónur
eftir breytingarnar.
ÆTLA AÐ SPARA
ARS selur Skjóli mikið af rekstrar-
vörum og eins hefur ARS selt Skjóli
dýr tæki, svo sem þvottavélar og
annan dýran búnað.
Ásgeir Ingvarsson segir mikil-
vægt fyrir þau samtök, sem nú eiga
ARS, að standa saman að innkaup-
um. Með því megi spara verulegar
fjárhæðir þar sem með því sleppa
þeir við að greiða milliliðum hér
heima.
„Við erum að leita okkur að end-
urhæfingartækjum og fleira. Sem
dæmi get ég nefnt að munurinn á
einu hjúkrunarrúmi getur verið 30
til 70 þúsund krónur eftir því hvort
rúm er keypt hér heima eða erlend-
is. Við ætlum að halda kostnaði í
lágmarki. Draumurinn er innkaupa-
samband. Við viljum kaupa tæki
sjálfir. Með þessu næst vonandi sam-
staða og betra samband," sagði Ás-
geir Ingvarsson.
SAMNÝTING MEÐ HRAFNISTU
Reikningar Skjóls eru endurskoð-
aðir af endurskoðunarfyrirtækinu
N. Mancher. Ríkisendurskoðun til-
nefnir N. Mancher sem eftirlitsaðila
með Skjóli.
Alls búa um eitt hundrað eldri
borgarar í Skjóli. Heimilið samnýtir
eldhús og þvottahús með Hrafnistu.
Rúnar Brynjólfsson framkvæmda-
stjóri sagði í samtali við PRESSUNA
að þetta fyrirkomulag gerði að
verkum að rekstarkostnaðurinn
væri minni. Rúnar segir að rekstur
Skjóls hafi alltaf verið réttu megin
við núllið.
Til þessa hefur Skjól fengið dag-
gjöld en fer á föst fjárlög um næstu
áramót. Rúnar Brynjólfsson segist
telja að það muni koma svipað út
fyrir rekstur heimilisins.
Sigurjón Magnús Egilsson
Skjól, umönnunar- og hjúkrunarhalmlll. Stjómarformaðurinn, framkvæmda-
stjórinn og apótekarinn í Hafnarfjarftarapótefci stofnuðu, ásamt eiginkonum
sinum, fyrirtnki sem flutti inn rekstrarvörur og búnaft sem Skjól var látiö
kaupa.