Pressan - 10.10.1991, Page 8

Pressan - 10.10.1991, Page 8
8 FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. OKTÓBER 1991 KftRBIR FYRIRINNI SKEMMDARVERK 0 SKIPUUGT SAMSft GEGN BJDRHÖIUNI Eigendur Bjórhallarinnar ætla á næstu dögum ad kæra til ríkissaksóknara Hreidar Suauarsson, Smára Hreiöars- son og Grétar Haraldsson lögfræðing fyrir innbrot, skemmdarverk og skipulagt samsæri um ad komast yfir eignir Bjórhallarinnar. Húseignin Gerðuberg 1 hefur staðið ónotuð í rúma 5 mánuði vegna hatrammra deilna um leigu Bjórhallarinnar og gildi leigusamnings eftir að Fjárfestingarfélag íslands eignaðist húsið á uppboði af Guöjóni Pálssyni, framkvæmdastjóra Bjórhallarinnar. Eigendur Bjórhallarinnar saka Fjárfestingarfélagið um að hafa sniðgengið forkaupsrétt sinn þegar félagið seldi húseignina Borgarfossi hf., sem er í eigu Hreiðars og fjöl- skyldu. Fjárfestingarfélagið keypti um leið rekstur Pizza- ofnsins, þar sem Bjórhöllin var með eldhúsaðstöðu sem hún missti þar með. Bjórhöllin hefur ritað stjórnarfor- manni Fjárfestingarfélagsins, Tryggua Pálssyni banka- stjóra, bréf þar sem áskilinn er réttur til skaðabóta vegna vinnubragða félagsins. Hreidar Suauarsson í Borgarfossi GUÐJÓN HEFUR HAFNAÐ ÖLLUM SAMNINGUM ..Þettu er ruyl hjú Gudjúni frú upphufi til etula. Eftir ud uiö eitfn- uöumst liúsiö huöum uiö Guöjúni uö leitiju húsnæöi Bjúrhullurinnur of! kuupu rekstur Pizzuofnsins ú eöliletpt ueröi. sem hunn hufnuöi, þútt liann fentfi meö þessu full- komnu uöstoöu. Hunn uur meö uufusumun samnintf um leitfti sem uur helmingur uf murkaösueröi, hundiö til 1995. Honum funnst uiö ætlu aö okru ú sér. Viö reyndum uö nú í hluthufa tíjúrhallarinnar, en núöum bara i einn og sú sagöist ekki eigu neitt i þessu, uæri buru múlamynduhluthafi," sagöi Hreiö- ar Svuuarsson í tíorgarfossi í sam- tali viö PRESSUNÁ. ,,Við vorum að bjóða honum leigu sem hann hafði sjálfur gert leigjendum sínum að greiða. Hann hefur hins vegar enga leigu greitt, utan einn mánuð til að tefja málið. Útburðarkröfum okkar hef- ur ekki verið sinnt og formgalla borið við, en okkur sýnist helst að það sé vegna persónulegra tengsla Guðjóhs við fógetaembættið." Hreiðar sagði að Borgarfoss hefði á engan hátt staðið fyrir skemmdarverkum hjá Bjórhöll- inni. „Kenningar hans um þetta eru bull. Hann er í húsinu í óþökk eigenda og greiðir ekki neitt, en íær í kaupbæti óeðlilega meðferð hjá fógeta. Hann hefur hafnað öll- um samningum. Síðasta útspil hans var að fá út það mat úttektar- manna að hann ætti ekki að greiða leigu frá því reksturinn stöðvaðist. Ekki vorum við boðað- ir til að vera viðstaddir. eins og vera ber, heldur bullið í Guðjóni einhliða sett á blað. Réttur húseig- enda var þar, eins og hjá fógeta, fótum troðinn," sagði Hreiðar. Rorgarfoss og Fjárfestingarfélag- ið hafa áður ítrekað reynt að koma Bjórhöllinni út úr húsnæðinu. Peir telja sig óbundna af leigusamningi Guðjóns Pálssonar rétt fyrir uppboð á eigninni. Peir telja að Guðjón hafi þar samið við sjálfan sig, stjórnar- formaður Bjórhallarinnar sé sam- hýliskona (iuðjóns og hann sjálfur (ramkvæmdastjóri og prókúruhafi. TÖLDU SIG ÓBUNDNA AF LEIGU GUÐJÓNS „TIL SJÁLFS SÍN“ Húsið Gerðuberg 1 hefur staðið ónotað frá því í maí og því verið eig- endunum arðlaust. Þrálátar tilraun- ir Hreiðars Svavarssonar og félaga í Borgarfossi og þar áður Fjárfesting- arfélagsins til að láta bera Bjórhöll- ina út úr húsnæðinu í Gerðubergi 1 hafa engan árangur borið. Þrjú út- burðarmál þessara aðila hafa úr- skurðast Bjórhöllinni í vil, en eitt út- burðarmál er í Hæstarétti. Guðjón var eigandi hússins, en missti það á uppboði 19. febrúar 1990. Skömmu áður, eða 3. janúar, var hlutafélagið Bjórhöllin stofnað af sambýliskonu Guðjóns og fleiri aðilum, en Guðjón varð fram- kvæmdastjóri og prókúruhafi. 15. janúar, rúmum mánuði fyrir upp- boð, gerði Guðjón leigusamning við Bjórhöllina hf. um leigu á plássi veit- ingastaðarins. Húseignin var á uppboðinu slegin Fjárfestingarfélaginu á 55,2 milljón- ir að núvirði. Við þetta tækifæri var leigusamningnum mótmælt. ÚTBURÐARMÁL FJÁRFESTINGA RFÉLAGSINS FYRIR HÆSTARÉTTI Fjárfestingarfélagið fór í útburð- armál 28. júní 1990, en beindi mál- inu gegn Guðjóni persónulega og var málinu því vísað frá. Félagið höfðaði nýtt útburðarmál 11. októ- ber, en 23. nóvember hafnaði borg- arfógetaembættið því. Fjárfesting- arfélagið áfrýjaði úrskurðinum til Hæstaréttar, þar sem málið hefur legið síðan. Um miðjan mars 1991 keypti Fjár- festingarfélagið rekstur og búnað Pizzaofnsins í sama húsnæði. Fyrir var í gangi samkomulag milli Bjór- hallarinnar og Pizzaofnsins um samnýtingu á eldhúsi Pizzaofnsins. Aðgangur að eldhúsaðstöðu þessari var forsenda fyrir veitingaleyfi Bjór- hallarinnar. 19. mars seldi síðan Fjárfestingar- félagið alla eignina til Borgarfoss hf. á 104 milljónir að núvirði. Borgar- foss hf. var hins vegar ekki stofnað formlega fyrr en 15. apríl. Skömmu eftir kaupin gerði Borgarfoss Bjór- höllinni það tilboð að kaupa plássið sem Bjórhöllin var í á 62 milljónir króna eða hins vegar að kaupa hluta Pizzaofnsins fyrir 5 milljónir en leigja húsnæðið sem Bjórhöllin var í á 750 þúsund krónur á mánuði. RAFMAGN TEKIÐ AF, SKIPT UM SKRÁR OG FLEYGAR REKNIR I SÍLINDRA Þessu var hafnað. Bjórhöllin var með 32,4 prósent fasteignarinnar á leigu samkvæmt hinum umdeilda samningi og telur Guðjón að með þessu hafi Borgarfoss talið heildar- verðmæti hússins vera um 190 millj- ónir eða nær tvöfalt meira en þeir keyptu eignina á af Fjárfestingarfé- laginu. Leigutilboðið þótti einnig of hátt, leigan mundi hækka um 120 prósent eða úr 340 þúsundum á mánuði í 750 þúsund. 22. apríl ritaði Hreiðar Bjórhöll- inni bréf þar sem hann telur Borgar- foss óbundinn af leigusamningnum og skipar Bjórhöllinni að yfirgefa húsið. Því sinnti Bjórhöllin ekki og hóf framkvæmdir vegna smíði nýrr- ar eldhúsaðstöðu í hinu leigða hús- næði. 2. maí var Bjórhöllin svipt veitingaleyfi vegna eldhúsleysis og reksturinn stöðvaðist. Hófu þá Borgarfossmenn ýmsar aðgerðir. Skipt var um skrá á raf- magnsklefa en með innsetningar- máli fékk Guðjón lykilinn afhentan. 10. maí fór Borgarfoss í lögbanns- mál og krafðist þess að uppsetning eldhúsinnréttingar yrði stöðvuð. Daginn eftir kvaddi Guðjón lögregl- una á staðinn og kærði Borgarfoss- menn fyrir að hafa „rekið tvo fleyga í sílindra hurða" inn í Bjórhöllina og tekið rafmagnið af húsnæðinu. Lög- reglan hleypti rafmagninu á. Dag- inn eftir var aftur kallað á lögregl- una og Borgarfossmenn sakaðir um Fjarfestingarfólagiö eignaðist Gerðuberg 1 á uppboði vorið 1990. Ári siðar saldi félagið óstofnuðu hlutafólagi eignina fyrir 100 milljónir króna. Guðjón. Pálsson segir fólagið komið i 22 milljóna króna vanskil af lanum sem það yfir- tók við uppboðið

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.