Pressan - 10.10.1991, Blaðsíða 21

Pressan - 10.10.1991, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. OKTÓBER 1991 21 Ellen Björns- dóttir er 36 ára gömul hús- móðir. Hún er menntaður hjúkrunar- fræðingur, gift og fjögurra barna móðir. Uppáhaldslitir: Blár, sægrænn, svartur og hvít- ur. Stundar þú lík- amsrækt? Já, ég er í skvassi þrisvar í viku og skokka. Ilmvatnið þitt: Picasso. Uppáhaldsmerki í fötum og skóm: Calvin Klein. Hvernig kaupir þú föt? Ég er ekki fatafrík, en ég kaupi frekar dýr og vönduð föt og þá sjaldnar. Er nauðsynlegt að fara í andlitsbað? Já, og það er of- boðslega gott. Hvaða snyrtivörur notar þú? Chanel. Tekur þú vítamín eða lýsi? Já, lýsi. Fastar þú? Já, en ekki reglu- lega. Hefurðu farið í litgrein- ingu? Nei, aldrei. Litarðu á þér hárið? Ég set skol í hárið. Áttu bíl? Já, BMW 52«. Hjóiarðu? Nei. Notarðu designers-veski? Nei. Áttu sokkabandabelti? Nei, en það er á döfinni að eignast eitt. Ferðu í nudd? Já, tvisvar í mánuði. Skemmtilegasta aldurs- skeiðið: Ég held að ég sé á því núna. Uppáhaldsskemmtistað- ur: Heimilið mitt og Amma Lú. Uppáhaldsmatsölustaður: Ítalía. Uppáhaldsmatur: Innbök- uð lúða með Hollandaise- sósu. Heidurðu matarboð heima eða ertu meira fyrir að fara út með góðum vinum? Ég held frekar matarboð heima. Uppáhaldsborgin þín: Róm. Ferðu í sumarfrí til sólar- landa? Já. Með hverjum ferðu ■ sum- arfrí? Manninum mínum og stundum vinkonum mínum. Reykirðu? Nei. Drekkurðu? Nei. Hvað borðar þú margar máltíðir á dag? Eina máltíð heima. Ertu í málaskóla? Nei. Hárgreiðslumeistarinn þinn: Guðrún Páls á Rún í Garðabæ. Uppáhaldshönnuður: Cal- vin Klein. Finnst þér vanta nætur- kiúbb á íslandi? Já. Ertu í símaskránni? Já. við erum bæði í skránni. onur & tís Berglind Johansen er 25 ára söludama í snyrtivöru- fyrirtæki. Hún er gift og barnlaus. Uppáhaldslitir: Svart og jarðarlitir. Stundar þú líkamsrækt? Af og til, þá göngur, leikfimi og badminton. Ilmvatnið þitt: Paloma Pic- asso. Uppáhaldsmerki í fötum og skóm: Nei. Hvernig kaupir þú föt? Ég kaupi sjaldan föt en þá frekar dýr og vönduð. Er nauðsynlegt að fara í andlitsbað? Það er mjög æskilegt. Hvaða snyrti- vörur notar þú? Lanc- ome. Tekur þú vítamín eða lýsi? Já, vítam- ín. Fastar þú? Nei. Hefurðu farið í iitgrein- ingu? Nei. Litarðu á þér hár- ið? Ég set skol í hárið. Áttu bíl? Nei. Hjólarðu? Sjaldan, — alltof sjaldan. Notarðu designers-veski? Nei, ekki sérstaklega. Áttu sokkabandabelti? Ekki ennþá. Ferðu í nudd? Nei. Skemmtilegasta aldurs- skeiðið: Núna. Uppáhaldsveitingahús: Ítalía. Uppáhaldsmatur: ítalskur, kínverskur, mexíkanskur. Mér finnst allt gott. Heldurðu matarboð heima eða ertu meira fyrir að fara út með góðum vinum? Út að borða með vinum mínum. Uppáhalds- borgin: París. Hvert ferðu að borða þar: Á Tong Yen. Ferðu í sum- arfrí til sól- arlanda? Ég hef ekki farið til sólarlanda síðan ég var barn. Með hverjum ferðu í sum- arfrí? Mannin- um mínum og vinum mínum. Ég er nýkomin úr fríi með vinum mínum. Stundarðu vetrarsport? Já. Reykirðu? Nei, ég hef aldrei gert það. Drekkurðu? Það kemur fyr- ir og þá helst gott rósavín. Hvað borðar þú margar máltíðir á dag? Eina, — stóra. Hárgreiðslumeistarinn þinn: Herdís hjá Sólveigu Leifs. Ferðu út að borða með öðr- um en manninum þínum? Já. Vantar næturklúbb á ís- iandi? Já. Ertu í símaskránni? Nei, við erum hvorugt í skránni. Iimvatnið þitt: Demijour. Uppáhaldsmerki í fötum og skóm: Nei. Ég er ekki merkjafrík. Hvernig kaupir þú föt? Ég er fatafrík. Ég fíla allt og kaupi alls konar föt, bæði dýr og ódýr. Er nauðsyniegt að fara í andlitsbað? Já. Hvaða snyrtivörur notar þú? La Prierre og Yves Saint Laurent. Tekur þú vítamín eða lýsi? Já, vítamín. Fastar þú? Nei, ég hef aldrei gert það. Hefurðu farið í litgrein- ingu? Nei. Litarðu á þér hárið? Já. Áttu bíl? Já, Subaru. Hjólarðu? Já. Notarðu designers-veski? Nei, ekkert endilega Áttu sokkabandabelti? Nei, en ég væri til í að eignast eitt. Ferðu í nudd? Já. Skemmtiiegasta aldurs- skeiðið: 30 til 35 ára og svo núna. Uppáhaldsskemmtistað- ur: Ég á engan í uppáhaldi. Uppáhaidsveitingahús: Grillið og Jónatan Living- stone mávur. Góður matur og ekki síður góð þjónusta. Uppáhaldsmatur: Indversk- , ur og annar austurlenskur. Heldurðu matarboð heima eða ertu meira fyrir að fara út með góðum vinum? Ég fer rrieira út að borða nú- orðið. Uppáhaldsborgin: París. Hvert ferðu að borða þar: Á Elise-Denise. Ferðu í sumarfrí til sólar- landa? Nei, ekki lengur. Ég ferðast meira um ísland. Með hverjum ferðu í sum- arfrí? Maka og stundum með kollegum til útlanda. Stundarðu vetrarsport? Ég syndi. Reykirðu? Nei. Drekkurðu? ^ Ég fæ mér í glas og kampavín finnst mér óskaplega gott. Hvað borðar þú margar máltíðir á dag? Ég borða á tveggja tíma fresti. Ertu í málaskóla? Nei, því miður Uppáhaldshárgreiðslu- meistarinn þinn: Alex- andre du Paris. Uppáhaldshönnuður: Karl Lagerfeld. Uppáhaldstímarit: Gest- gjafinn og Vogue. Ferðu út að borða með öðr- um en manninum þínum? Jájá. Vantar næturklúbb á ís- landi? Já, það væri mjög gott mál fyrir þá sem þurfa á því að halda. Ertu í símaskránni? Nei, við erum hvorugt í skránni. Margrét Borg- þórsdóttir er 37 ára gömul flugfreyja. Hún er gift og þriggja barna móð- ir. Uppáhaldslitir: Pa- stellitir og bláir tónar. Stundar þú líkams- rækt? Já, ég hleyp tvisvar i viku og er í leikfimi. Umvatnið þitt: Charl- es Jordan. Uppáhaldsmerki í fötum og skóm: Jil Sander, Armando Pallini, Stephan Kelian. Hvernig kaupir þú föt? Sjaldan, en dýr og vönduð, til dæmis góða dragt, en ég kaupi ódýr föt í bland. Og ég hika ekki við að mæta í sömu klassagóðu dragtinni aftur og aftur. Er nauðsynlegt að fara í andlitsbað? Nei, Ég hreinsa húðina sjálf og set á mig maska. Hvaða snyrtivörur notar þú? Þessa stundina nota ég Chanel. Tekur þú vítamín eða lýsi? Á hverjum morgni allan árs- ins hring. Fastar þú? Nei, aldrei. Hefurðu farið i litgrein- ingu? Nei. Litarðu á þér hárið? Ég er með strípur og skol. Áttu bíl? Já, BMW. Hjólarðu? Nei. Notarðu designers-veski? Já, bæði og. Áttu sokkabandabelti? Nei, þvi miður. En ég eignas það kannski seinna, — þegar ég er orðin stór. Ferðu í nudd? Já, einu sinni í viku. Skemmtilegasta aldurs- skeiðið: Þegar ég var 23. Og í dag. Og lika þegar ég eign- aðist hvert barn. Uppáhaldsskemmtistað- ur: Ég fer sjaldan á skemmti- staði. Helst um áramót. Uppáhaldsmatsölustaður: Jónatan Livingstone Mávur. Uppáhaldsmatur: Pasta. Heldurðu matarboð heima eða ertu meira fyrir að i fara út með góðum vinum? Hvort tveggja. Ég held oft matarboð heima. Uppáhaldsborgin þín: París. Hvert ferðu að borða þar? Á ,,lókal“ stöðum. Ferðu í sumarfrí til sólarlanda? Já, til Flórída. Með hverjum ferðu í sum- arfrí? Maka og börnum. Stundarðu vetrarsport? Já, skíði, en alltof sjaldan vegna anna. Reykirðu? Nei. Drekkurðu? Já, léttvín. Hvað borðar þú margar máltíðir á dag? Eina. Ertu í málaskóla? Nei, ekki núna. En ég var síðasta vetur og ég fer oft á námskeið. Hárgreiðslumeistarinn þinn: Thelma á Salon VEH. Uppáhaldshönnuður: Dóra Einars. Uppáhaldstímarit: Gest- gjafinn, ameríska Vogue og franska Officiel. Ferðu út að borða með öðr- um en manninum þínum? Já, með kunningjum og svo auðvitað með börnunum á Hard Rock eða pizzeríur. Vantar næturklúbb á Is- landi? Nei. Ertu í símaskránni? Við er- um bæði skráð fyrir símanum en nafninu mínu var kippt út úr skránni af Pósti og síma án nokkurra skýringa. Bára Kemp er 41 árs. Hún er hárgreiðslumeist- ari og eins barns móðir. Hún er gift. Uppáhaldslitir: Gult, svart og hvítt. Stundar þú líkamsrækt? Nei, ekki í dag. Ég þarf að fara að gera það.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.