Pressan


Pressan - 10.10.1991, Qupperneq 27

Pressan - 10.10.1991, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. OKTÓBER 1991 27 Því verdur víst seint svar- ad hvadan úr þjódardjúpinu kjaftasögurnar koma. Þœr spretta hins vegar fram med reglulegum hœtti, þyrlast fram i þjódlífid og lifa oftast stuttu en hraðskreidu lífi. Aö lokum deyja þœr frá okkur og eftir lifir bara minningin um hjómiö eitt. Þaö er reyndar eins og þœr lúti engum lögmálum — séu bara til sjálfra sín vegna — og snúist oft gegn skapara sínum. En þvi í ósköpunum segj- um viö allar þessar kjafta- sögur? Ekki vildum viö aö þœr vœru um okkur. Ekki viljum við kannast við að hafa sagt þœr — hvaö þá samið þœr. Við þvertökum meira að segja fyrir að um- gangast þá sem segja þœr. Hversu oft byrja ekki við- töl á því að viðmælandinn byrjar á að ræða um nýjustu kjaftasögurnar sem ganga um hann sjálfan? Þeim er svo að sjálfsögðu hafnað í næstu setningu. Sannleikur- inn er líka oft afgreiddur sem kjaftasaga; veruleikinn fer að taka á sig ógreinilega mynd, þar til við hættum að gera almennilega greinar- mun á réttu og röngu. Til að skilja kjaftasöguna höf- um við gripið til þess ráðs að persónugera hana, þökk sé Jóni Thoroddsen sem bjó til Gróu á Leiti. Fyrir stuttu vakti útvarps- maðurinn kunni, Sigurður Pétur Harðarson, athygli þegar hann kom fram í spjalli um þátt sinn, „Landið og miðin", og sagðist vera fórnarlamb kjaftasöguher- ferðar. Sigurður Pétur sagð- ist ekki geta haft þessar sögur eftir — þær væru ein- faldlega ekki birtingarhæfar. „Ætli þetta fylgi ekki því að vera alltaf heima hjá fólki,1' sagði Sigurður Pétur og hitt- ir sjálfsagt naglann á höfuð- Sigurður Pétur: Fórnar- iamb kjaftosöguher- ferðar. ið. Það að fá kjaftasögu um sig sýnir ákveðna frægð — frægð sem sumir sætta sig við. SÖGURNAR UM HEIÐAR SNYRTI „Ég er hræddur um að til- veran væri þunnur þrettándi ef ekki væri slúðrað aðeins — sögurnar krydda óneitan- lega lífið og eru alls ekki al- vondar," sagði Heiðar Jóns- son snyrtir, sem longum hef- ur hefur verið skotspónn kjaftasagna. Hann segir að svo rammt hafi kveðið að þessu að fósturmóðir hans hafi í gegnum árin hringt á svona 10 daga fresti ofan af Akranesi til að athuga hvort þau hjónakornin byggju ekki enn saman, en þá væru tíðindi um hið gagn- stæða farin að berast upp á Skaga. Heiðar var beðinn að nefna dæmigerða kjaftasögu um sjálfan sig: „Ég man kannski best eftir því þegar ég hafði einu sinni verið á Akureyri og ekki komið heim í 20 daga. Þá hringdi strákurinn minn í mig, en hann var þá nýkominn með bílpróf. Hann sagðist ætla að ná í mig út á flugvöll, því það væri alvarlegt mál sem hann þyrfti að ræða við mig. Þegar ég sest upp í bíl- inn snýr hann sér að mér og segir: Pabbi, það væri ágætt ef þú segðir okkur af því ef þú ert að skjótast í bæinn um helgar. Ég var nefnilega að frétta að þú hefðir verið fyrir utan Þórs- kaffi á laugardagskvöldið að veiða gæja! — Mér fannst dálítið skondið hvernig hann fór að því að Valdimar Örn Flygenring: Ganga flestar út á það að ég sé hœttur að drekka. toppárið i söguburð- inum. Pálmi Gunnarsson tónlistar- maður, Magnús Þór Jónsson (Megas) og Trausti Jónsson veðurfræðingur voru afskrif- aðir af Gróu á Leiti. „Ef þjóðin veit ekki hvað hún á að gera við menn þá drepur hún þá bara. Þetta er líklega aðferð hennar við að ná jafnvægi," sagði Meg- as. „Ég sást á slopp á spít- ala," sagði Trausti Jónsson, sem sagðist enn þann dag í dag undrast hraða frásagn- arinnar. En eins og hænurnar fimm sem spruttu af einni fjöður þá er eitthvað sem veldur. Sumir segja að í hverri sögu megi finna ákveðið sannleikskorn. Skáldmæltari menn segja hins vegar: Hálfsannleikur oftast er óhrekjandi lygi. En það eru einmitt skáld- in sem gæða sögurnar þeirri andagift sem þarf. Saga um dauða einhvers nær ekki flugi fyrr en fólk hittir einhvern sem „var á staðnum" eða þekkir „lækn- inn sem gaf út dánarvott- orðið" eða hefur spjallað við „lögreglumanninn sem skar hann úr snörunni". En svo eru það þeir sem segjast ekki gera sér rellu út af kjaftasögum. „Blessaður vertu þetta er allt satt sem um mig er sagt — það er ekki hægt að Ijúga upp á mig," sagði Ásgeir Hannes. „Ég veit nú ekki hvort það eru sagðar svo margar kjaftasögur um mig. Ég heyri að minnsta kosti ekki margar. Það eru þá helst sögur um að ég sé hættur að drekka en mér hefur þótt ákaflega vænt um það, enda sannleikurinn sagna bestur," sagði Valdimar Örn Flygenring leikari, „Blessaður vertu, sögurn- ar um mig skipta milljónum, enda hef ég boðið upp á Pálmi, Megas og Trausti hafa allir kemist i dauðadeild kfaftasögunnar. var gjarnan bylt með því að segja að þeir væru auðir. Þegar sannleikurinn kom í ljós var allt um seinan — búið var að bylta og spádómskraftur kjaftasögunnar fékk byr undir báða vængi í blóðbaðinu sem á eftir fylgdi. I seinni tíð hafa orðið frægar sögur af dauða Marks Twain, sem hann gat borið til baka með snjöllu tilsvari sem færði hann inn í spak mælabækurnar: „Fregnir um dauða minn !eru stórlega orðum auknar." Á íslandi eru þrjú nafntoguð dæmi um þetta; þeir það með þessu brölti mínu í íþróttum og fjölmiðlum," sagði Hermann Gunnarsson sjónvarpsmaður. Árið 1984 hefði líklega verið toppár hans á þessu sviði. Mátti þá litlu muna að hann lifði sög- una ekki af. „Svo var nefni- lega málum háttað að ég lagðist inn á sjúkrahús og var greindur með einhvern vírus. Fljótlega eftir að ég útskrifaðist fór ég að taka eftir því að allir í kringurn mig voru voðalega sorg- mæddir. Komst ég þá að því að ég átti að vera þungt haldinif af krabbameini. Það mátti ekki miklu muna að ég tryði þessu og gerði mér sérstaka ferð á fund læknis- ins," sagði Hermann, sem sagðist vera sannfærður um að íslenska kjaftasagan væri einstök í heiminum. Sigurður Már Jónsson frétta kjaftasögurnar. Ég get hins vegar þakkað fyrir að aldrei hafa verið fluttar fregnir um dauða minn," sagði Heiðar, en hvað það varðar hafa ekki allir verið jafnheppnir. DAUÐADEILD KJAFTASÖGUNNAR Veruleikaflótti kjaftasög- unnar tekur kannski á sig hvað nöturlegasta mynd þegar kjaftasagan kálar við- fangsefnum sínum. Flugu- sögur um ótímabært andlát höfðu stundum ákveðnu hlutverki að gegna í valda- baráttu fyrri tíma. Keisurum Ásgeir Hannes: Ég held að fleslar kjaftasögurnar um mig séu sann- ar, enda engin leið að Ijúga upp á mig. smaa letrið Mikið rosatega klikkaði Svavar Gestsson illilega þegar hann hélt sig geta hreinsað sig af ósómanum við átta millj- óna króna veislu íþróttamála- ráðherra Evrópu. Það var ekki bara að Svavar veitti vel i mat og drykk heldur keypti hann tónverk af Atla Heimi Sveins- syni fyrir 150 þúsund kall Og þegarhann var gripinn ibólinu ætlaði hann að verja sig með þvi að segja að fólki væri nær að kvarta yfir öllu brennivininu i opinberum veislum en að fetta fingur út í að rikið keypti tónverk. Ja, hérna hér. ÆtH þjóðin sé ekki sama sinnis og iþrótta- málaráðherrarnir, sem þurftu að hlusta á tónverkið. Hún væri miklu frekar til i að drekka Svarta dauða fyrir 150 þúsund kall en að hlusta á tónverk eftir Atla Heimi fyrir sama pening. Þó ekki væri annar munur, þá kemur hausverkurinn al Svarta dauðanum ekki fyrr en daginn eftir. Það erþvihægt að segja ,rfen tid, den sorg," eins og Daninn. „Manjana," eins og Mexíkaninn. Ef einhver heldur að hér séu á ferðinni fordómar gagnvart tónsmiðum Atla Heimis er hægt að spyrja: Hvers vegna hefur enginn Islendingur staðið upp og heimtað að fá að heyra þetta tónverk sem þjóðin keypti? Ef þjóðin vissi einhvers staðar af Svarta dauða fyrir 150 þúsund kall mundi ábyggilega einhver risa upp og krefjast þess að fá að vita hvar hann væri. Og það strax. Annars sannar þetta mál enn og aftur hversu afvegaleidd opinber umræða á Islandi er orðin. Fjölmiðlar virðast alltaf missa af aðaiatriðinu. I þessu tilfelli snýst málið ekki um hvort Svavar fór yfirstrikið eða hvort skattborgarar voru latnir blœða. Málið er: Hvað ætlaði Svavar að fá út úr evrópsku iþróttamálaráðherrunum með þvi að láta þá sitja undir tón- verkinu? Fjölmiðlar ættu að kanna það mál. Miðað við að- ferðirnar hlýtur það að hafa verið eitthvað stórt. Við biðum eftir að rikisend- urskoðun leiði það i Ijós, ef fjöl- miðlarnir klikka. TVÍFARAKEPPNI PRESSUNNAR - 14. HLUTI Þeir eru báðir úr fjölmiðla- heiminum. Sagan um Hvutta birtist daglega i DV og Óskar Guðmundsson ritstýrir Þjóðlifi. Báðir eru þeir með myndarlegt yfirvaraskegg og báöir með stór og opin augu. Innrætið er heldur ekki ósvipað, þvi bæði Hvutti og Óskar eru þekktir Ijúflingar. Eini munurinn á þeim er sá að Óskar hefur að- eins meira hár og þvi erfitt að segja til um hvernig eyrun á honum eru.

x

Pressan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.