Pressan - 10.10.1991, Page 38

Pressan - 10.10.1991, Page 38
38 FIMMTUDAGUR PRESSAN 10. OKTÓBER 1991 í>íí|)Ot* tðícnéhnr jóöoöppir Sumardvalarheimili fyrir börn hafa lengi veriö til á ís- landi. Þangaö eru borgar- börn send til aö foreldrar þeirra fái hvild frá þeim. Eins og allir vita er allt ann- armaturhaföurá borðumá þessum sumardvalarheim- ilum en á nútimaborgar- heimilum. Sagan hér á eftir er af dreng úr borginni sem var sendur á sumardvalar- heimili. Sá stutti var ekki vanur öörum morgunmat en kornflögum, ýmist meö súkkulaðibragöi eöa án þess. Fyrsta morguninn á sumardvalarheimilinu bæöi brá honum og hann kipptist viö þegar hann sá grautinn, ósvikinn islensk- an hafragraut. Drengnum leist hreint ekki á aö setja þessa klessu í sig. Þegar honum skildist aö refsingin fyrir aö leifa grautnum væri stofufang- elsi framyfir hádegi afréö hann aö reyna hvaö hann gæti til aö koma grautnum niöur. Honum þótti grauturinn hreint ógeö og meö öllu vonlaust aö boröa hann. Þegar hann hugsaöi til refs- ingarinnar sá hann aö hann varö aö losna meö ein- hverjum hætti, öörum en éta grautinn. Eftir því sem hann sat lengur og staröi á grautardiskinn þótti hon- um grauturinn ógeöslegri og eins hryllti hann viö refs- ingunni. Aö lokum datt drengn- um snjallræöi í hug. Svo lit- iö bar á tók hann aö moka grautnum ofan i buxnavas- ana. Þetta tókst honum að gera nokkra morgna, eöa allt þar til starfsfólkið tók saman óhreina þvottinn og fann margra daga gamlan hafragraut i öllum buxna- vösum eins drengjanna. Þegar upp um svikin komst var drengnum gerö grein fyrir aö hann yröi aö breyta þessum háttum sín- um. Þaö var sama hvaö hann reyndi aö veröa já- kvæöur i garö grautsins, hann gat ekki hugsað sér aö innbyrða hann. Þar sem hann vissi aö fylgst yröi með sér, og ekki var lengur hægt að moka grautnum i buxnavasana, fann hann aðeins eitt ráö. Hann strauk heim, þar sem hann vissi aö morgunmaturinn henn- ar mömmu var allt annar og betri. (Úr strakasogum) Lifandi götuviti sem gefur kandís ..Þellu er í rauninni nijöi> kreíjandi sturf. Umferdin er mikil hérna oi> hröd af þuí ad Langholtsvegurinn er svo heinn og langur og þad eru engar hradahindranir. Börn- in eigu leit) yfir göluna allan duginn þö ad þau komi flesl á morgnunu og í hádeginu. og svo aflur síddegis," segir ViiJgó Guömundsson, sem er <>4 ára gamull. Hann hefur þad starf med liöndum aö. fylgja skölahörnum, sem eru ad slíga sín fyrslu spor í skólagöngunni, yfir Lang- holtsveg, vid Holtsapólek. á leifí sinni í Langhollsskóla. Hunn er klæddur hláum þykkum jakku með hvíta endurskinsrönd skáliullt nið- ur eflir jakkanum og með ..kaskeili"á höfðinu. Hunn er eini „Hfandi götuvilinn" í Reykjuvík. ,,Ég er stundum alveg gátt- aöur á því hvaö bílarnir aka hratt hérna framhjá, sérstak- lega þegar þeir vita af skólan- um í grenndinni. Þaö þyrfti finnst að ég verði að hafa eitt- hvað að gera, að minnsta kosti til sjötugs, ég hef það góða heilsu. Og án atvinnu mundi mér leiðast." Hvernig líður dagurinn hjá þér? ,,Ég er mættur hérna rétt fyrir hálfátta á morgnana og er til rúmlega fimm á daginn. Ég er mest úti við til svona níu og á þessum tíma er mesti erillinn, því þau eru svo mörg börnin sem ég þarf að fylgja yfir götuna. Það er rólegt þar til klukkan er að verða tólf, þegar börnin fara í mat, þá er mikið að gera, og eins aftur upp úr klukkan þrjú. Mér finnst það nú eiginlega of snemmt að vera að koma með þessi grey svona snemma á morgnana, hálf- sofandi." Fylgir þú öðrum en börn- unum yfir götuna? ,,Já, já það geri ég. Öllum sem vilja fylgd, rosknum kon- um og körlum.'En ekki ungl- ingum, þeir vilja það ekki." Viggó segist kunna vel við starfið, að minnsta kosti enn sem komið er. Það kunni þó að breytast þegar fer að frysta, hann segist kvíða hálkunni. Viggó hefur áhyggjur af hversu hratt bíl- unum er ekið eftir Langholts- vegi. „Þetta er indælisskúr sem ég hef hérna og hann fýkur nú ábyggilega ekkert. Náttúr- lega er maður einn hérna, það kemur sjaldnast nokkur hingað til að tala við mann og það er auðvitað leiðigjarnt. Maður þarf að venjast því. Mér hefði fundist að einhver ætti að koma hingað til að leysa mann af í smátíma. Maður hefði gott af því að hverfa í burtu, ég finn það. Ég hef stundum gengið smáspöl þegar rólegt er, en ég hef allt- af áhyggjur af því að börnin komi svo ég fer aldrei svo langt að ég sjái ekki skúrinn. Þannig að þetta er mjög ábyrgðarmikið starf gagnvart litlu börnunum." Viggó segir að auðvitað ættu að vera gönguljós á þessum gatnamótum. A þeim tíma sem Viggó hefur haft þetta starf hafa orðið þrír árekstrar á gatnamótunum. „Þau eru yndisleg börnin og best þykir mér hvað þau eru þakklát fyrir fylgdina. Bæði foreldrarnir og kennar- arnir eru búnir að kenna þeim vel hvernig þau eiga að bera sig að og þau bíða alltaf eftir mér, að ég komi og fylgi þeim yfir götuna. Þeim yngstu þykir gott að láta mig leiða sig. En það breytist nú eftir því sem þau eldast og strákarnir sem eru orðnir átta ára vilja ekki fylgd. Þeir vilja vera sjálfstæðir. Já, já ég þekki þau orðið ágætlega, sum hver að minnsta kosti, og ég gef þeim öllum kandís á fimmtudögum eins og fyrir- rennari minn gerði. Það er nú bara nokkuð dýrt, kannski fyrir huridrað börn á viku. Þetta er eiginlega kjararýrn- un," sagði Viggó og hló. Bolli Valgarðsson aö setja hraðahindranir hérna. En það vilja þeir hjá borginni ekki gera." Viggó hefur aðsetur í litlum upphituöum skúr, sem komiö hefur .verið fyrir á horninu á Holtavegi og Langholtsvegi. Þar hitar hann sér kaffi á sjálf- virka kaffikönnu, en vatnið í könnuna verður hann aö fá hjá nágrönnum í hverfinu. Dagblöðin kaupir hann úti í sjoppu. Út um gluggana fylg- ist hann meö umferðinni og er óðar rokinn út þegar hann sér skólatöskurnar koma hoppandi eftir Langholtsveg- inum eða Holtavegi. Viggó byrjaði í þessu starfi fyrir um þremur vikum. Áður var hann starfsmaður í bíla- geymslunni í ráöhúsinu. Þar áöur starfaöi hann á sendibíl- um, bæði á eigin vegum og eins hjá Sláturfélaginu. „Þegar maður er orðinn þetta gamall vill maður fá sér léttara og rólegra starf og borgin varö ofan á. Ég er bú- inn að missa konuna og mér SJÚKDÓMAR OG FÓLK Fljótvirk afgreiðsla Flestir heimilislæknar svara í síma einhvern tíma dagsins. Þá er hægt að af- greiða fjölda manns án mik- illar fyrirhafnar. Símatíminn er yfirleitt snöggsoðin af- greiösla á vandamálum sem líkja má við matseld á skyndibitastað. Góður og hress símalæknir getur af- kastað miklu af lyfseðlum og heilræðum á skömmum tíma. Stundum er þá úr vöndu aö ráða. Erfitt símtal getur hljómað á þessa leið: „Góðan daginn, þetta er Guðrún Lokadóttir í Goð- heimum, ætlaröu að vera svo vænn aö skrifa upp á hjartalyfin mín fyrir mig." „Alveg sjálfsagt, Guðrún mín," svarar læknirinn, „hvað heita þau?" „Það man ég ekki, þetta eru svona litl- ar bleikar pillur með skoru, svo er ég með grænar pillur. dálítið stærri, og aðrar ával- ar hvítar með og svo brúnar töflur undir svefninn. Ætl- arðu að senda þetta í apó- tekið fyrir mig, væni minn." — I þessari stöðu er erfitt fyrir lækninn að meta hvaða pillur gamla konan er að biðja um. Betra er þegar sjúklingur veit upp á hár hvað hann vantar og hægt er að afgreiða hann bæði hratt og örugglega. Slíkur sjúklingur heilsar kumpán- lega, býður góðan dag og segir sig vanta hjartalyfin Lasix og Digoxin og veit upp á hár hvað hann tekur mörg milligrömm af þeim. Slíka sjúklinga finnst lækn- um gaman að hitta að máli gegnum símalínuna. BÖLVAÐ KVEF Stundum hringir fólk til að fá lyf og ráðleggingar sem getur tekið mislangan tíma að veita. „Góðan daginn, þetta er hún Sigrún Breka- dóttir, áttu ekki eitthvað krassandi viö kvefi? Ég get bara ekki andað, svo þú verður að gefa mér ein- hverja góða belgi við þessu. Vinkona mín hringdi í lækni og fékk svona svarta og rauða belgi, gæti ég ekki fengið eitthvað svoleiðis líka?" „Ertu með hita?" spyr læknirinn vandræðalega. „Það veit ég ekki, en ég þarf bara að fá belgi því ég má alls ekki vera að því að vera veik. Ég þarf að ferma stelp- una mína, koma yngsta stráknum í skíðaferð og ann- ast vorfagnað kvenfélagsins. — í þessari stöðu á læknir- inn um tvo kosti að ræða; skrifa upp á Penbritin fyrir Sigrúnu, þótt hann viti að slíkt er gagnslaust við venju- legu kvefi. Hinn kosturinn er sá að ræða ítarlega við Sig- rúnu um kvef og skýra það út fyrir henni að kvef stafi af veirum sem engin fúkkalyf bíti á. Slíkur læknir setur sig í þægilegar stellingar og heidur yfir Sigrúnu smá- ræðu: „Onæmiskerfi líkam- ans læknar kvefið og engin lyf geta bætt þar um betur. Hvíld er besta ráðið við kvefi, forðast alla áreynslu og einbeita sér að því að láta sér batna sem fyrst. Við hit- anum er fátt hægt að gera annað en að vera léttklædd- ur inni við og mögulega taka inn magnyl eða panodil. Við hóstakjöltri er best að drekka heitan vökva en forðast þessar hóstamixtúr- ur, sem eru gagnslausar með öllu. Einhvern tíma var gerð í Bandaríkjunum rannsókn á því hvað best væri að borða. þegar maður væri með kvef og flensu. Niðurstaðan varð sú, að kjúklingasúpa hefði yfirburði. Það er skemmti- leg tilviljun að Moses Maimonides, sem var gyð- inglegur prestur og læknir á 12tu öld, ráðlagði fyrstur kjúklingasúpu við kvefi. Það hefur verið sýnt fram á að stressuðum einstaklingum er mun hættara við kvefi en öðrum. Reykingafólk fær frekar kvef en þeir sem ekki reykja. í stuttu máli, Sigrún mín; fúkkalyí eru gagnslaus við kvefi, þú verður að taka því að þú ert veik og hvíla þig, drekka heitan vökva, elda kjúklingasúpu og reykja ekki." — Það er mögu- leiki að Sigrún láti sér segj- ast við þessa ræðu. Líklegra er þó að hún hafi laumast úr símanum fyrir löngu, æva- reið yfir því að fá ekki það sem hún vildi. SÍMARESEPT UPP Á RÓANDI LYF Dæmigert samtal um slíka lyfseðla hljómar svona: „Góðan daginn, þetta er Karl Katrínarson, ég ætla að fá hjá þér svefnlyf sem heita Mogadon." — Sumir læknar skrifa upp á Moga- donið og láta þar við sitja. Aðrir reyna að ræða það við Karl K. af hverju honum gengur svona illa að sofna. Það má ráðleggja Karli ótal einfalda hluti sem geta kom- ið í stað svefnlyfja; heitt bað skömmu áður en hann legg- ur sig, líkamlega áreynslu, að drekka flóaða mjólk, láta alla kaffidrykkju eiga sig eft- ir klukkan 6 á kvöldin og sleppa sígarettunum síðustu klukkutímana fyrir háttinn. Stundum tekst að kenna Karli K. nýja siði og sann- færa hann um, að hann geti sofnað án lyfja og sé ekki fæddur með Mogadonskort. Það gengur oft erfiðlega, því Islendingar eru vanir því að fá það sem þeir biðja um í síma, enda hafa þeir trötla- trú á símaafgreiðslum. Menn hringja og reyna að fá úr- lausn flókinna kynlífsvanda- mála, sambúðarörðugleika og tilvistarvanda á nokkrum mínútum. Að mínu viti eiga slíkar símaafgreiðslur lítinn rétt á sér og líkjast að því leyti máltíðum á skyndibita- stað; þær seðja sárasta hungrið en fljótlega sverfur sultur að á nýjan leik, enda um draslfæði að ræða.

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.