Pressan - 17.10.1991, Blaðsíða 18
18
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. OKTÓBER 1991
JJNDIR
Þorsteinn Már
Baldvinsson
útgerdarmaður i
Samherja
— Nú er fullyrt að
miklu af fiski sé hent
i sjóinn. Er hægt að
neita þessu, Þor-
steinn?
„Ég undrast sið-
ferðið í þessari um--
ræðu. Þetta er eins
og á aðalfundi Kaup-
mannasamtakanna
væri rætt um hver
væri sniðugastur að
svikja undan virðis-
aukaskatti."
— Má skilja þig á
þá leið að þú teljir
að þeir sem halda
þessu fram hafi ekk-
ert til síns máls?
„Ég tel að menn
ýki þetta verulega.
Þetta eru menn sem
eru á móti núverandi
stjórn á fiskveiðum."
— Þú vilt meina að
þeir reki áróður sinn
með þessum hætti.
„Já, og ásaka
marga menn rang-
lega. I þeim mæli
sem rætt er um tel
ég það fjarstæðu-
kennt."
— En má ekki
samt segja að spjót-
unum sé fyrst og
fremst beint gegn
frystiskipunum ?
„Reyndar ekki. Það
var þannig, en nú
sýnist mér þetta snúa
frekar gegn ferskfisk-
skipunum. Oft er það
þannig að engin rök
eru fyrir þessum full-
yrðingum. Ég tel að
siðferði manna sé
meira en þeir telja
sem halda þessu
fram. Á frystitogurun-
um getum við gert
ágæta peninga úr
smáfiskinum, sjó-
mennirnir hafa góðar
tekjur af honum. Það
eru engin rök, hvorki
fyrir útgerð né sjó-
menn, að henda fiski
sem búið er að fiska."
— Ef á að sanna í
eitt skipti fyrír öll i
hvaða mæli þetta er,
hvað er til ráða?
„Ef ekki er hægt að
treysta mönnum
verður að setja lög-
reglu i öll fiskiskip. Ég
endurtek það að
þetta er áróður þeirra
sem vilja fá kerfinu
breytt. Við sem
stöndum í útgerð get-
um ekki sætt okkur
við að okkur sé ætlað
að hafa allt annað
siðferði en gengur í
öðrum atvinnugrein-
um.
A adalfundi nordlenskra utvegs-
manna urdu snarpar umrædur
um hvort sjómenn hentu fiski
fyrir bord i stórum stil. Þor-
steinn Már Baldvinsson mót-
mælti umrædunni og hafdi uppi
stór ord um þá sem hófu hana
Perlan
RaninisoKN a kbsthimi
VIB VEITINGAHÚSÍB
Sigrún Magnúsdóttir, borg-
arfulltrúi Framsóknarflokks-
ins, hefur óskad eftir að fó í
hendur Ijósrit af öllum reikn-
ingum vegna innkaupa fyrir
veitingareksturinn í Perlunni.
Þaö var ó borgarróðsfundi
sem Sigrún fór þess ú leit uð
fó í hendur alla reikninga og
eins uppgjör milli Hitaveitu
Reykjavíkur og Bjarna I.
Arnasonar veitingamanns.
Samkvæmt samningi
Bjarna og Hitaveitunnar átti
Bjarni að leggja fram fjörutíu
milljónir króna til veitinga-
rekstrarins. Það er uppgjör á
þessum hluta sem Sigrún vill
fá.
„Ég vil fá það á hreint
hvernig var staðið að málum.
Það þýðir ekkert að vera að
hneykslast lengur. Það er
best að fá upp á borðið hvað
var keypt og hvar. Það má
spyrja sig að því hvað var
keypt fyrir eitt hundrað millj-
ónir króna. Hver getur sett af
stað veitingastað ef innvolsið
kostar eitt hundrað milljónir
króna?“ sagði Sigrún Magn-
úsdóttir í samtali við PRESS-
UNA.
Ekki er vitað hvenær Sig-
rún fær umbeðnar upplýsing-
ar.
Til veitingarekstrarins átti,
Bjarni I. Árnason. Óskað hefur
verið eftir öllum gögnum
vegna kaupa hans á búnaði í
veitingastaðinn i Perlunni.
Alls átti að verja 40 milljónum
í veitingastaðinn en milljón-
irnar urðu nærri eitt hundrað.
samkvæmt áætlun, að verja
40 milljónum króna. Hins
vegar var keypt inn til staðar-
ins fyrir 97,1 milljón.
Það hefur áður komið fram
í PRESSUNNI að Hjörleifur B.
Kvaran, framkvæmdastjóri
lögfræði- og stjórnsýsludeild-
ar borgarinnar, Jóhannes
Zoéga byggingarstjóri og
Ingimundur Sveinsson, arki-
tekt hússins, sáu um fram-
kvæmd samningsins við
Bjarna I. Árnason og félaga.
Samkvæmt því sem PRESS-
AN kemst næst fóru þessir
peningar til kaupa á eldhús-
tækjum og -áhöldum. Hús-
gögn fyrir veitingareksturinn
voru ekki greidd með þessum
peningum.
Forsvarsmenn Hitaveitunn-
ar hafa viðurkennt að kostn-
aður við veitingaaðstöðuna
hafi farið úr böndum og end-
urskoðun á kostnaðinum,
sem var mikill fyrir, hafi fallið
niður.
Eftir að samningar voru
gerðir við Bjarna I. Árnason
veitingamann voru gerðar
miklar breytingar, þar sem
hann hafði allt aðrar hug-
myndir en Skúli Þorvaldsson,
sem fyrst var samið við um
veitingastaðinn. Eins og
PRESSAN hefur áður sagt frá
varð meðal annars að gera
tvö jarðhýsi ásamt öðrum
kostnaðarsömum breyting-
um. Tekið skal fram að kostn-
aður vegna þeirra breytinga
er ekki innifalinn í þeim 97
milljónum króna sem varið
var til framkvæmda við veit-
ingastaðinn á þessu ári.
Handvömm sem viö lærum af
segir Ingi Ú. Magnússon gatnamálastjóri vegna umferðareyja sem
voru teknar upp tveimur dögum eftir að þœr voru fullgerðar
..Þetta er handvömm. Eg
viðurkenni það. Við lœrum af
þessu," sagði Ingi Ú. Magnús-
son, gatnamúlastjóri í
Reykjavík, þegar hann var
spurður um furðulegt verk-
lag við gerð umferðareyja ó
Nesvegi í Reykjavík.
Athygli vakti að umferðar-
eyjarnar voru settar á Nesveg
í byrjun síðustu viku. Tveimur
dögum eftir að búið var að
fullgera eyjarnar komu sömu
verktakar og höfðu steypt
þær og gengið frá þeim og
brutu þær upp.
„Það er Guttormur Þormar,
fyrrum yfirmaður umferðar-
deildar borgarinnar, sem
hannaði þetta. Honum hefur
orðið á," sagði Ingi Ú. Magn-
ússon.
Ingi sagði að þessar fram-
kvæmdir hefðu kostað um
eitt hundrað þúsund krónur.
Ráðist var í verkið að beiðni
íbúasamtaka. Ingi sagði að
þegar hann hefði farið aö
skoða framkvæmdirnar hefði
hann séð að þær gerðu eng-
um gagn. Aðallega var tvennt
sem gerði þær ónothæfar.
Annars vegar að strætó
komst ekki um Nesveg með
góðu móti. Hins vegar hefðu
eyjarnar gert erfitt fyrir með
snjómokstur í vetur.
„Þessu hefur verið breytt.
Hér eftir sér einn maður um
allt svona. Hann mun hafa
samband við strætó áður en
nokkuð er gert. Áður en ráð-
ist verður í framkvæmdir
munu verða settar keilur til
prufu þannig að sjá megi
hvernig þær koma út,“ sagði
Ingi Ú. Magnússon.
Hann sagði mistökin á Nes-
veginum ekki þau einu, en
þau dýrustu.
r itjr i
. Kli ^ij
Starfsmenn að brjóta niður umferðareyjarnar tveimur
dögum eftir að þeir steyptu þær.
„Ég er búinn að þekkja hann frá því hann var
ungur maður og kom sem háseti um borð í Gull-
foss þar sem ég var stýrimaður. Mér varð strax
Ijóst að þarna var mætur maður á ferðinni. Það
var ekki bara að hann væri verkmaður góður og
samviskusamur, heldur hafði hann og þannig
skoðanir og hugsanir, um menn og málefni, að
mér leist strax vel á," sagði Pétur Sigurðsson,
forstjóri Hrafnistu. „Guðmundur er öðlings-
maður í alla staði og skemmtilegur karakter.
Hann hefur skemmtilega frásagnarhæfileika og
segir afar vel frá. Það kemur mér ekki á óvart
hvað hann hefur náð langt," sagði Gunnar
Gunnarsson, umboðsmaður Olís í Ólafsvík
og æskuvinur. „Með tilliti til tuttugu ára sam-
starfs við Guðmund er Ijóst að ég met hann mik-
ils. Hann hefur margt gott unnið fyrir sjómanna-
stéttina og þá sérstaklega í sambandi við örygg-
ismál sjómanna. Guðmundur er afskaplega dag-
farsprúður maður og ekkert nema gott um hann
að segja sem persónu," sagði Óskar Vigfús-
son, formaður Sjómannasambands íslands.
„Hann er Ijúfmenni. Sérstaklega bóngóður og
vill allt fyrir alla gera," sagði Jónas Garðars-
son, framkvæmdastjóri Sjómannafélags
Reykjavíkur. „Hann er vel gefinn strákurinn
og þægilegur í viðmóti. Ef hann lofar einhverju
getur maður treyst því að hann efni það," sagði
Hilmar Guðlaugsson múrari.
Guðmundur Hallvarðsson
alþingismaður og formaður
Sjómannafélags Reykjavíkur
„Mér finnst galli við Guðmund að hann
skyldi ekki ná hærra í prófkjörinu hjá
íhaldinu en hann náði. En menn úr hinum
vinnandi stéttum hafa ekki átt greiðan að-
gang þar," sagði Pétur Sigurðsson. „Ég sé nú
enga galla við hann í svipinn. Guðmundur
er einn af fáum sem erfitt er að benda á
galla hjá," sagði Gunnar Gunnarsson. „Það
hefur hver og einn sína galla. Það sem ég
get helst talið til galla í fari Guðmundar er
að hann hlustar kannski helst til of mikið á
aðra þegar á að taka afstöðu. Þetta þarf þó
ekki alltaf að vera löstur en hann mætti
vera meira afgerandi á tíðum," sagði Óskar
Vigfússon. „Hann hefur ekki gott tímaskyn,"
sagði Jónas Garðarsson. „Hann er alltof
gleyminn og getur það komið sér illa, til
dæmis þegar hann svarar ekki skilaboðum
fyrr en eftir dúk og disk. Ef hann hefur þá
ekki gleymt þeim," sagði Hilmar Guðlaugsson.
„Guömundur Hallvarðsson er alþingismaóur fyrir Sjálfstaeöisflokkinn og jafnframt formaöur Sjómannafélags Reykjavikur, en félagar þess hafa veriö i yfirvinnubanni. Nú eru boðaðar hertar aógerðir.