Pressan - 17.10.1991, Blaðsíða 39

Pressan - 17.10.1991, Blaðsíða 39
-BMMTUDAGUR PRESSAN 17. OKTÓBER 1991 Á sólóplötu KARLS ÓRVARS- sonar leikur óvæntur gestaleikari. Þaö er eng- inn annar en nick serrate úr þungarokkssveitinni Whitesnake, sem leikur á píanó í laginu „Eldfugl- inn", en platan dregur nafn sitt af því lagi. Eld- fuglinn er einnig nafn á hljómsveit sem þeir bræöur grétar og Karl Örvarssynir hafa stofnað ásamt fleiri tónlistar- mönnum og gera þeir nú víðreist um landiö að kynna efni plötunnar. Þeir bræöur eru, sem alkunna er, synirörvars kristjáns- sonar harmonikkuleikara og hafa, likt og pabbinn, getið sér gott orð í tón- listinni, hvor með sínu lagi. P rafn jónsson trommari er nú að leggja síðustu hönd á plötu sem hann kostar að mestu leyti úr eigin vasa. Platan er gefin út til styrktar lömuðum og fötluðum og meðal flytjenda eru: bubbi morthens, stefAn hilm- arsson. andrea gylfa- 'Dóttir og fleiri. Rafn hef- ur sjálfur átt við sjaldgæf- an sjúkdóm að stríða, sem leggst á taugafrum- ur líkamans. PÉTUR GUNNARSSON gefur út bók fyrir jólin sem nefnist „Hátíðin að baki daganna". Bókin inniheld- ur hugleiðingar skáldsins. 39 \‘j PERES ER ÚTFRYMI ,,Peres er einskonar útfrymi frá hljómsueitinni íslandsvin- um, plús Sigurður Sigurðs- son munnhörpuleikari. Meö- limir Peres geta veriö tveir til fimm eftir aöstœöum hverju sinni. Hljómsveitin er búin aö vera til alveg frá stofnun ís- landsvina fyrir einu og hálfu ári, viö sœkjum efni okkar í djass- og blúsgeirann og kom- um þar víöa viö," segir Pálmi Sigurhjartarson, einn með- lima í Peres/íslandsvinum og fyrrum meðlimur í Centaur. Auk Pálma eru í sveitinni þeir Siguröur Jónsson, Kári PÍflNÓ í HUNDRflÐ flR Waage, Jón Borgar Loftsson, Björn Vilhjálmsson, Eövarö Lárusson og fyrrnefndur Sig- urður. Pálmi segir að Peres spili ekki samskonar tónlist og Centaur gerði: „Við förum um víðán völl í lagavali og það er eiginlega ekki komin reynsla á hvað verður úr Per- es. En þetta er allt annað en Centaur var að gera.“ En af hverju Peres? „Sigurður Jónsson hefur dvalið mikið i Mexíkó, þar er Peres jafnalgengt nafn og Jón er hér. Þetta nafn festist við Sigga og þannig er það tilkomið," sagði Pálmi. / lok þessa mánaöar kemur út á vegum Islenskrar tón- verkamiðstöðvar geisla- diskurinn ,,Sprotar“ þar sem Orn Magnússon píanóleik- ari leikur verk eftir fjölmörg íslensk tónskáld og spannar tónlistin síöustu hundraö ár- in. Upptökurnar fóru fram í Listasafni Sigurjóns Olafs- sonar í tilefni af því aö í lok mánaöarins heldur Örn til Japans á norrœna hátíö pí- anóleikara. „Eg mun leika á fimm tón- leikum víðs vegar í Japan, á einkatónleikum og með öðr- um norrænum píanóleikur- um. Efnisskráin verður alfar- ið íslensk með verkum eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, Jón Leifs, Pál ísólfsson, Þor- kel Sigurbjörnsson, Misti Þor- kelsdóttur, Hróömar Sigur- björnsson, Hilmar Þóröarson og Hjálmar Ragnarsson og þessi verk verða á diskinum sem er að koma út,“ sagði Örn Magnússon. En,hvaö meö tónleika áöur en þú heldur utan? „Já, ég held tónleika á sunnudaginn kemur í Gerðu- bergi. Þar mun ég leika alla efnisskrána sem ég held utan með á hátíðina í Japan." Svo viröist sem Japanir séu mjög opnir fyrir íslenskri tón- list? „Ég held að skýringin sé sú að markaðirnir í Evrópu eru mettir, þar eru hefðirnar rót- grónar. Ég held að Evrópubú- ar séu ekki eins opnir fyrir nýjungum og Japanir, sem aftur á móti drekka þær í sig og notfæra sér þær um leið. Nú, svo búa þessar tvær þjóð- ir ekki við svo ólíkar aðstæð- ur. Báðar eyþjóðir, harðhent náttúra, mikii eldvirkni og svo framvegis," sagði Örn. Odýr og góður ,,V7ð höfum lítiö auglýst nema hér í Hafnarfiröi, en ■þetta viröist hafa spurst út og viö eigum oröiö stóran hóp fastra viöskiptavina. Þetta hefur kostaö þolinmœöi, en staöurinn er farinn aö ganga vel núna,“ sagöi Anna Alex- andersdóttir, framkvœmda- stjóri veitingastaöarins Singapore, Reykjavíkurvegi 68 í Hafnarfiröi. Singapore er ekki flottasti veitingastaður sem maður hefur komið inn á, ekki er mikið lagt í innréttingar eða pjátur og prjál. Staðurinn er þó allur hinn snyrtilegasti og maturinn hreinasta veisla fyr- ir bragðlaukana. Um eldamennskuna sjá tveir kokkar frá Singapore (þ.e. landinu) og kunna svo sannarlega sitt fag. Það er þeim að þakka að staðurinn|er einn besti kínastaður höf- uðborgarsvæðisins. Og ekkiler veislan dýr; fjórir litlir réttir (sem eru alls ekkert litlir)jkosta 1.300 krónur á mann- Jnn og einn rétt og súpu máfá|fýrir um 1500 krónur. Semsagt frábær veisla fyrir lítinn|pening. Sjálfsævisaga Katherine Hep- burn er að koma út þessa dag- ana. í henni verða birtar marg- ar myndir af leikkonunni sem ekki hafa sést áður. Katherine sagði einhverju sinni um sokkabuxur að þær væru „uppfinning djöfulsins". Það er því kannski ekki furða að hún kysi frekar að ganga í síðbux- um en stuttum pilsum. Það hafði á sínum tíma gífurleg áhrif á kventískuna. Nú er öld- in önnur. Sa mkvæmt karltísku dagsins dag eiga buxur beirra að vera akkúrat eins og buxurnar í klæðaskáp Katherine um 1960. Ævisagan jnennar og óbirtu myndirnar munu því 'sjálfsagt hafa meiri áhrif á karl- en kventískuna. HVERJIR ERU HVAR? Sértu heppin(n) muntu hitta á Glaumbar; valsarana Sævar Jónsson og Einar Pál, Harald í Leonard, Lilju í Cosmo, Atla Eðvaldsson og Þorgils Óttar, Bjössa í Ný dönsk, Gumma í Sálinni, Steina trommara í Stjórninni, Sebastian Nanna í Kristu, Kidda Big foot og fé- laga, Valdimar Jónsson í Val- höll, Róbert Árna lögfræðing, Sigurð Baldursson fram- kvæmdastjóra, Mumma í Ástund og Gúrkuvinafélagið eins og það leggur sig. POPPIÐ_____________________ Eldfuglinn (Karl og Grétar Orv- arssynir með félögum, þó ekki föður sínum) leikur og syngur á Gauknum í kvöld og KK- band á Púlsinum ásamt töfra- manninum Leo Gillespie og trúbadornum Mick M. Þessir tveir eru alveg frábærir skemmtikraftar, það fór ekki á milli mála hjá Hemma Gunn í gær. Sigurður Björnsson verð- ur á Blúsbarnum í kvöld. Eitt 'frumlegasta bandið á mark- aðnum í dag, Inferno, verður á Tveimur vinum í kvöld. Þeir hafa þann háttinn á að varpa kvikmyndum og slides-mynd- um á veggina i kring meðan þeir spila og þannig mynda hljómsveitin og sviðið sem hún stendur á eins konar sýn- ingartjald fyrir myndirnar. Björg Gudmundsdóttir vagnstjóri hjá SVR Hvað ætlar þú að gera um helgina? „Ég þarf aö vinna alla laugardaga til klukkan 17 svo aö yfirleitt geri ég nú ekki mikiö annaö en þaö. Þó getur veriö aö ég bregöi út af venjunni um nœstu helgi og fari meö fjölskyldunni vestur á Snœfellsnes til skyldfólks mannsins míns.“ Frumlegt. Inferno skipa Ómar Stef., Indriði Einars, Örn Ing- óifs, Jóhann Richards, Óskar Thorarensen og Guðjón Rúd- olf. í Borgarvirkinu verður Borgarsveitin ásamt Önnu Vil- hjálms. í sveitinni eru Torfi Ól- afsson, Einar Jón og Pétur Pét- urs. Við tvö erum á Mímisbar föstudags- og laugardags- kvöld. Sniglabandið spilar á Tveimur vinum á föstudagskvöldið. Eins og allir vita er Snigla- bandið sprenghlægileg hljómsveit og platan sem þeir sendu frá sér í fyrra er einhver besta partíplata sem ég veit Við mæLum MEÖ Að fólk elski þann sem það er með ef það getur ekki verið með þeim sem það elskar Heimi án landamæra og heimi þar sem Flugleiðir hafa ekki sjálfdæmi um fargjöld til íslands og frá Húfum, treflum, vettlingum og að fólk fái sér þetta í tíma. Búhúhú, veturinn er kominn Vllllköttum þeir eru ekki eins kröfuharðir og heimiliskettir INNI Brids. Þótt ótrúlegt sé tókst þessum líka álappalegu gæjum að verða hetjur. Hver hefði trú- að þvi? Verða það endurskoð- endur næst? Og þetta líka sér- vitringslega spil. Það er ekkert að venjulegum kaffitíma-brids, en hafið þið heyrt keppnis- menn tala um spil sem er ný- lokið? Eða spil sem þeir tóku fyrir mánuði eða hálfum öðr- um áratug? Guð, það er eins og að hlusta á dos-stýrikerfið lesið upphátt. En samt er brids inni. Ekki vegna þess að það sé eitt- hvað varið í þetta spil eða mennina sem spila það. Heldur vegna þess að það er gott fyrir okkur að gleðjast. Það er gott að vera ánægður með sig, — í hófi. Jafnvel þótt maður hafi ekkert til þess unnið. ÖTI Einar Oddur Kristjánsson. Eins og hann var fljótur að taia sig inn í hjarta þjóðarinnar virðist hann ætla að verða fljótur að tala sig inn í taugarnar á henni. „Nauðhemla", neyðsluæði", „sótsvarta", „upp á líf og dauða", „neyðarástand". Guð, hvað þetta er leiðinlegt. Þetta er eins og dökka hliðin á upp- hafinni væmninní í Heimi Steinssyni.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.