Pressan - 17.10.1991, Blaðsíða 38

Pressan - 17.10.1991, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. OKTÓBER 1991 9íí)jm* tðícitðluu* |ijóöðögttt* „Ertu ekki búinn aó éta i dag, frændi?" spuröi sá eldri. „Nei, þaó hef ég ekki gert," svaraði ungi lögmaö- urinn. „Þetta máttu aldrei gera vinur. Maðuráaldrei aöfara svangur i feröalög," sagöi sá etdri. Ferö þeirra gekk sam- kvæmt áætlun, en samt virtist sem allt þaö fólk sem þeir hittu og áttu samskipti viö yröi undarlegt á svip þegar þaö talaöi við eldri lögmanninn. Nýútskrifaöur lögmaóur i Reykjavik, sem var nýbyrj- aður aö starfa á lögmanns- stofu, fékk sérstakt verk- efni hjá yfirboðara sínum. Hann átti aö fara meö ein- um af reyndari lögmönn- um landsins út á land og sitja þar réttarhald og fylgj- ast vel meö þeim gamla. Taka vel eftir hvernig hann bæri sig aö viö yfirheyrslur og málflutning. Ungi lögmaöurinn var vel sáttur viö þetta verk- efni. Sérstaklega þar sem hann og reyndi lögmaöur- inn voru skyldir, aö vísu ekki náiö, en skyldir samt. Brottfarardagurinn rann upp. Ungi lögmaðurinn var búinn aö pakka niður fötum og öórum nauðsynjum fyr- ir tveggja daga ferö og var tilbúinn fyrir utan heimili sitt þegar sá eldri renndi upp aö húsinu. „Sestu upp i, frændi," sagöi sá eldri. Þegar ungi lögmaöurinn hafði sest upp i bílinn og leit á frænda sinn sá hann að sá gamli var kominn meö elliblett á nefið og annan minni undir annað augaö. Ungi lögmaöurinn var hikandi viö aö horfa beint framan i frænda sinn, reynda lögmanninn, þar sem hann óttaöist aö sér yröi starsýnt á blettina i andliti hans. Meöan ekið var út á flug- völl gætti ungi lögmaður- inn þess aö horfa alltaf út um hliðarglugga bilsins. Reyndar haföi sá eldri 'áhyggjur af þvi aö ungi lög- maðurinn haföi ekki boröaö og hann fékk flugfreyjuna til aö færa honum brauð og te. Næst segir af ferö þeirra þegar þeir komu á hótel þaö sem þeir ætluðu aö gista á. Allt ferðalagió hafói ungi lögmaöurinn foröast aö horfa framan i frænda sinn vegna óttans um aö veröa starsýnt á elliblett- ina. Þegar þeir voru komnir hvor i sitt herbergi og ungi lögmaðurinn var aö byrja aó taka upp úr tösku sinni opnaðist huröin og eldri lögmaðurinn stóö i gætt- inni og sagði: „Þú ert meira fifliö frændi. Þú ert búinn aö láta mig vera meö sósuna á nef- inu i allan dag." (Ur logmannasogum) segir Hilmar Lúthersson, rúmlega fimmtugur snigill númer Hilmar á BSA '71 Hilmar Lúthersson er rúm- legu fimmlugur pípari, sem er hœttur störfum af heilsu- farsástœdum og ekur um á gamalli Mözdu dags daglega. Fyrir tíu árum kviknaöi á ný gamla mótorhjóladellan sem legið hafði í láginni í tuttugu ár, allt frá því hann varð venjulegur borgari með fjöl- skyldu og bil. Nú á Hilmar fullan skúr af gömlum klass- ískum mótorfákum sem hann er að bisa viö aö gera upp. Hann er snigill númer 1; nokkurs konar heiðursfélagi í Bifhjólasamtökum íslenska lýðveldisins. „Ég hjóla mest einn en stundum líka með gömlum félögum í samtökunum, — en ekki yngri kynslóðinni," segir Hilmar. „Það er bara dæmi sem gengur ekki upp. Ef maður ætlar að halda prófinu og lenda ekki í neinu veseni þýð- ir ekkert að vera með þeim. Ég er fyrir löngu búinn að fá útrás fyrir hraðann." Inn í skúrinn heima hjá sér er Hilmar búinn að troða tíu gömlum mótorhjólum, flest- um gangfærum, sem hann hefur keypt úr ýmsum áttum. Aldursforsetinn í hópnum er rúmlega sextugur Harley Davidson frá 1931, gangfær en ekki meir. Hinir fákarnir eru allir breskir, Triumph, BSA og Norton. „Þetta byrjaði þannig að ég hitti gamlan kunningja sem var á ósköp venjulegu mótor- hjóli og ég, af einhverjum ástæðum, fékk að taka í. Þá varð ekki aftur snúið. Ég rakst á auglýsingu í DV stuttu síðar þar sem var auglýst til sölu gamalt Triumph-hjól og ég skellti mér á það." Hvernig varð frúnni og börnunum við þegar gamli maðurinn ákvaö aö demba sér út í áhugamál sem ein- kenna töffara yngri kynslóð- arinnar? „Þau voru nú ekkert allt of hress með þetta en vöndust því fljótt, enda vita þau að ég er ekki að þessu til að eltast við krakkana. Ég er í þessu vegna þess að ég hef áhuga á gömlum mótorhjólum. Mér finnst þau falleg og það er EKKERT SKYLT GRÁUM frískandi og hressandi að hjóla. Og af hinu leiðir að ég klæði mig í leður þegar ég hjóla að það veitir betri vörn en annar klæðnaður við óhöpp. Svo einfalt er það." Tekur þú frúna stundum meö þér út að hjóla? „Nei aldrei. Hún hefur ekki minnsta áhuga á því." Finnst þér það betra eða verra? „Miklu betra, maður er þá frjálsari á meðan." Blundar þá í þér einhver grár fiðringur sem brýst svona fram? „Nei, alls ekki. Ég hef að minnsta kosti ekki fundið fyr- ir því. Það hefur ekkert með það að gera. Þetta er bara, eins og ég sagði áðan, gamall áhugi sem hefur enst í gegn- um árin og iifað margan kunningjann. Annars hitti ég um daginn mann sem ég þekki aðeins, hann er tæp- lega sextugur og vinnur á skrifstofu eða einhverju slíku og hefur aldrei átt mótorhjól um ævina en alltaf langað til þess. Hann sagðist hafa áhuga á að kaupa sér mótor- hjól núna og fara í Evrópu- ferð. Ég sagði að hann skyldi endiiega gera það. Þannig að þetta er mikið að breytast. Menn á mínum aldri eru farn- ir að þora að láta sjá sig á mótorhjóli. Áður var glápt á mann þegar maður tók ofan hjálminn og í Ijós kom að ökuþórinn var gamall kall, en núna tekur fólk varla eftir því.“ Hvað ertu að fara aö gera núna? „Ég er að fara út í skúr að dytta að hjóli, annars er ekki fyrir andskotann sjálfan að fá varahiuti í þau lengur, þetta er svo gamalt..." Bolli Valgarðsson SJÚKDÓMAR OG FÓLK Kynþroski unglinga Kynþroskaskeið unglings- áranna er tími uppgötvana og breytinga. Náttúran gerir ráð fyrir kynþroska, áður en fullum andlegum og líkam- legum þroska er náð. Þetta hefur í för með sér að hálf- gert barn getur eignast barn eins og mörg dæmi eru um. Á fósturskeiðinu þróast kyn- kirtlar sveinfósturs og verða að eistum en kynkirtlar kvenfósturs verða að eggja- stokkum. Þessir kirtlar framleiða hormón sem köll- uð eru kyn hormón og stýra kynþroska og kynþróun ein- staklings og hafa víðtæk áhrif á alla líkamsstarfsemi. LÍKAMLEGUR KYNÞROSKI Kynþroski hefst og lýkur fyrr hjá stúlkum en piltum. Þegar þær eru á aldrinum 11— 13 ára hefst vöxtur skapahára og brjóst taka að myndast. Þau stækka mis- hratt, fyrst myndast smá- nabbar sem smám saman verða stærri og margar stúlkur hafa fullvaxin brjóst 12— 13 ára gamlar, en aðrar mun seinna. Vöxtur kyn- hára eða skapahára hefst litlu síðar. Leggöngin lengj- ast og þar myndast aukið magn af hvítleitum súrum vökva. Liðlega tveimur ár- um eftir fyrstu merki um þroska brjóstanna hefjast blæðingar. Á seinni tímum hafa blæðingar hafist fyrr en áður og stór hluti stúlkna hefur byrjað 12—13 ára gamall. Stúlka sem byrjar á tíðum án þess að hafa hug- mynd um hvað er að gerast getur fengið þungbært sál- rænt áfall og ímyndað sér allt hið versta. í kjölfar blæð- inganna kemur egglosið og stúlkan verður frjósöm. Hjá strákum eru fyrstu einkenni vöxtur eistna og pungs og virðist koma nokkru síðar en kynþroski stelpnanna. Kynfæri stráka fara að þroskast og breytast um 12 ára aldurinn og hafa náð fullri stærð og þroska þegar 15da árinu er náö. Sæðis- framleiðslan fer í gang við kynþroskann og þá verða strákarnir frjóir og fyrsta sáðlátið verður oftast þegar þeir eru 12—14 ára. Éf for- eldrar segja ekki syninum frá því getur farið svo, að hann vakni blautur í klofinu, fyllist skelfingu og skilji ekk- ert hvað gerðist. Drengnum fer aö rísa hold oftar og reglulegar og á aldrinum 12—14 ára fara flestir að fróa sér. Önnur kyneinkenni stráka eru kynháravöxtur og skeggvöxtur. ANDLEGUR KYNÞROSKI Kynþroskaskeiðið er mik- ill breytingatími sem kemur bæði unglingum og foreldr- um á óvart. Foreldrar fá þá fyrst að vita hvernig börn þau eiga, þegar kynkirtlar fara að starfa. Á þessum tíma tekur unglingurinn út bæði líkamlegan og andleg- an þroska, og hugur beggja kynja snýst mikið um kynlíf. Þetta tímabil er fullt af þver- sögnum. Unglingurinn reyn- ir að brjótast undan áhrifum foreldra sinna og talar um öll mistökin sem þau hafa gert um dagana og rey nir að vera sjálfstæður. A sama tíma er hann mjög háður foreldrun- um og þarf á fullum stuðn- ingi þeirra að halda. Hann virðist mikill á lofti og fullur sjálfstrausts, en undir niðri er óörugg sál sem efast stöð- ugt um eigin verðleika og ber sig saman við aðra. Mik- ið er hugsað um útlitið, legið yfir fötum og alls konar ytri táknum eins og hálsmenum og eyrnalokkum, og staðið fyrir framan spegil langtím- um saman. Sjálfsvirðing byggist á margs konar hé- góma og unglingurinn er bæði hörundssár og við- kvæmur fyrir sjálfum sér. Bóla á enni veldur meiri áhyggjum en nokkuð annað. Stöðug gagnrýni foreldra grefur undan brothættri sjálfsmynd unglingsins og getur haft mun meiri áhrif en nokkurn órar fyrir. Marg- ir aðrir áhrifamiklir þættir koma til sögunnar. Flestir unglingar fara að smakka áfengi og uppgötva þannig heim vímunnar. Ölvunin léttir hömlum af bæði strák- um og stelpum, og getur leitt til ótímabærrar kynlífs- reynslu. Sumir koma mjög óöruggir og fullir vanmeta- kenndar inn í unglingsárin. Slíkum einstaklingum er mun hættara við að hrífast mjög af almætti og spennu- losun vímunnar, og verða háðir henni. Afstaða foreldr- anna og skoðanir skipta miklu máli, hvernig þeir sjálfir neyta áfengis, hvaða samband er milli foreldra og unglings, hvernig gengur að leita til þeirra vegna vanda- mála sem upp koma. Allir foreldrar verða að líta í eigin barm og átta sig á hvernig fyrirmyndir þeir eru vax- andi unglingi. Unglingurinn lifir í eigin draumaheimi sem oft er í litlum tengslum við raunveruleikann, sem ungl- inga óar við. Það er mjög mikilvægt að foreldrar styðji börn sín vel og dyggilega í gegnum þessi erfiðu ár.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.