Pressan - 17.10.1991, Page 19
FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. OKTÓBER 1991
19
fP,
emttgar
Kipptu
fjármálunum
Sjálfsagt mundi meginþorri fólks
þiggja að hafa meira fé handa á
milli. Sumum gengur erfiðlega að
láta launin duga fyrir lífsnauðsynj-
um, hvað þá meiru, en aðrir kom-
ast þokkalega af.
En allir vildu geta veitt sér eitt-
hvað örlitlu meira en þeir geta í
dag, og til að það sé hægt þarf að
hækka launin. Eða hvað? Má
kannski hagræða fjármálunum
betur, spara lítillega hér og draga
aðeins úr þar? Skapa sér dálítið
svigrúm til að geta framkvæmt
eitthvað af því sem mann hefur
alltaf dreymt um?
PRESSAN fór á stúfana og bað
nokkra valinkunna íslendinga að
gefa lesendum þrjú góð ráð í sam-
bandi við fjármál og hvað mætti
betur fara.
„Fóllc ó að rayna að nýta sér staðgraiðslu-
afslátt."
STEFÁN HALLDÓRSSON.
Gerðu
GREIÐSLUÁÆTLUN
„Fólk þarf að athuga það
vel að ríkið borgar vexti af
viðbótarlánum, í vissum til-
fellum, fyrst eftir húsnæðis-
kaup. Þetta er hlutur sem
mörgum er ókunnugt um,"
Sagði STEFÁN HALLDÓRSSON,
framkvæmdastjóri Ráðgjafar
Kaupþings hf.
Stefán brást vel við mála-
leitan okkar og ráðlagði eft-
irfarandi:
1. Gera greidsluáœtlun aö
minnsta kosti sex mánudi
fram í tímann og helst í eitt
ár eda lengur, þar sem fram
koma tekjur og gjöld í
hverjum mánudi. Þannig
uerdur auðveldara að
gera ráðstafanir
með
góðum
fyr-
irvara
til að
brúa það
bil, sem
kann að veröa
milli gjalda og
tekna, og minni
hœtta er á að
grípa þurfi til
neyöarráðstafana á
síðustu stundu, sem
vilja gjarnan verða miklu
. óhagkvœmari.
Auk þess eykur það vellíðan
að hafa góða yfirsýn yfir
fjármálin.
2. Nýta eftir megni stað-
greiðsluafslátt í viðskiptum.
Það virðist mjög algengt, að
mikið bil sé á milli stað-
greiðsluverðs og heildarfjár-
hœðarinnar, sem kaup með
afborgunarskilmálum leiða
til á endanum.
Stundum er ekki hœgt að
benda á neina fjárfestingu á
markaðnum sem sé líkleg til
að skila eins góðri ávöxtun
og felst í því að njóta stað-
greiðsluafsláttar í stað láns-
viðskipta. Oft borgar sig að
taka bankalán til að tryggja
afslátt, í stað þess að þiggja
þau greiðslukjör sem selj-
andinn býöur.
3. Nýta eftir megni heimildir
skattalaga til lœkkunar á
tekjuog eignaskatti vegna
fjárfestingar. Efst á blaði
eru hlutabréfakaup, en einn-
ig eru húsnœðissparnaðar-
reikningar banka og spari-
sjóöa mjög áhugaverður
kostur.
í þessu sambandi má
einnig minna þá, sem njóta
vaxtabóta vegna húsnæðis-
kaupa, á að fyrstu árin eftir
kaupin eru í vissum tilvik-
um greiddar vaxtabætur
vegna annarra lána en
þeirra sem tengjast húsnæð-
iskaupunum.
VH)
FLVTJUM
FISKINN
SÉRSTAKIR
ÍSFISKGÁMAR
Pegar þú þarft að senda fisk á
fiskmarkað innanlands skaltu tala við
okkur. Við bjóðum sérstaklega^
ísfiskgáma sem uppfylla ströngustu
kröfúr um fiskflutning.
RIKISSKIP
Hafðu samband við næsta
9 o umboðsmann og fáðu allar
upplýsingar um hvernig þú kemur
aflanum fljótt og örugglega Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu.
RIKISSKIP
ÞJÓÐBRAUT Á SJÓ
á næsta fiskmarkað. Pósthólf 908,121 Reykjavík. Sími 28822. Fax 28830