Pressan - 17.10.1991, Síða 28

Pressan - 17.10.1991, Síða 28
28 FIMMTUDAGUR PRESSAN 17. OKTÓBER 1991 • er með ólíkindum — Halldóra Raínar er nýr formaður útvarpsráðs í stað Ingu Jónu Þóröar- dótlur. Inga Jóna er gift Geir Haarde, þingmanni Sjálfstæðisflokksins. og Halldóra er ekki síður tengd frammámönnum í flokknum. Hún er fyrrum eiginkona Jóns Magnús- sonar lögfræðings og Þor- steinn Pálsson er mágur hennar. Svo er hún dóttir Jónasar Rafnar, banka- stjóra og fyrrum þing- manns flokksins . . . — Björn Bjarnason er loksins búinn að fá sætið sitt á Alþingi, sem honum hefur verið ætlað um ára- bil. Ekki er gott að segja hvers vegna Björn gaf sig ekki fyrr að alvörupólitík, en minnast má harðvít- ugrar kosningabaráttu um formennskuna í SUS árið 1973. Þá börðust Björn og Friörik Sophus- son, núverandi fjármála- ráðherra. Friðrik vann 128:112 og var talinn „Gunnarsmaður" en Björn „Geirsmaður". . . — Það eru auðvitað all- ir sammála um að heims- meistaratitill íslendinga i brids sé mikil „landkynn- ing", eins og það er kall- að. ()g það var kominn tími til að þjóðin fengi alvörukredit og akkúrat á þeim tíma þegar 5 ár eru liðin frá þvi Reugun og Gorhachev funduðu innan um draugana í Höfða. . . SÁ Á FLEYG SEM STRÝKUR / úrsskýrslu Fantfelsismálu- stofnunar kemur frum ad ú siöasta úri hufi l.'i föngum uerid gefinn kostur ú þuí ud Ijúka sídustu (> vikum afplún- unar ú medferdarstofnun SÁÁ. Niðurstaðan varð eftirfar- andi: ,,Af þeim luku 11 tneð- ferð, 1 varsendursarndægurs aftur í fangelsi og 1 lauk að- eins fyrri hluta meðferðar <>g fór að eigin ósk aftur í fang- elsi og lauk afplánun þar." Þessum síðasttalda hefur augljóslega þótt hann fá harðari refsingu hjá SAA en í fangelsinu. Kn vandamálið er greini- lega stórt: .upplýsingar frá fangelsislæknum sýna að rúm 20% þeirra einstaklinga sem hefja afplánun haf;i sprautað sig með fíkniefn- um." 10 mannsstruku úr fangelsi á síðasta ári. HASSHAUS MEÐ 208.000 KR. Á MÁNUÐI Hjú emhwtti ríkistollstjóra er ad finna hund nokkurn sem emhættif) fékk sér í fyrra ún þess ad spyrju kóng. prest eda fjúrmúlurúdlierra. þótt hundurinn vadi í fíkniefnum og fúi 20H þúsund krónur ú múnuöi fyrir! Samkvæmt frumvarpi til fjáraukalaga fyrir yfirstand- andi ár verða útgjöld ríkisins 5 milljörðum króna hærri en fjárlög gerðu ráð fyrir. Orsak- ir umframkeyrslunnar eru af ýmsum toga og mestu munar um aukin útgjöld til mennta-, heilbrigðis- og landbúnaðar- mála. En margt smátt gerir eitt stórt og er athyglisvert að embætti Björns Hermanns- sonar ríkistollstjóra fékk sér leitarhund til eflingar fíkni- efnaeftirliti, án þess að ráð væri fyrir því gert í fjárlög- um. Bakreikningurinn í fjár- aukafrumvarpinu hljóðar upp á 2,5 milljónir. Það eru árslaun manns sem hefur 208 þúsund krónur á mánuði. Lögreglustjóraembættið á Keflavíkurflugvelli jók einnig fíkniefnaeftirlitsitt. en7milljóna króna umframkeyrsla embættisins var þó aðallega vegna aukinnar vopna- og sprengjuleitar og öryggis- gæslu vegna Persaflóastríðs- ins. DAVÍÐ KAUPIR DROSSÍU AF INGIMUNDI Davíð Oddsson er húinn aö kaupa nýjan híl fyrir forsætis- rúdherraemhættid, keypti sér nýjun Audi, eins og reyndar Friðrik fjúrmúlu og Olafur menntamúlu. Þeir félugarnir skokkudu til hans Ingimund- ar Sigfússonar í Heklu ad þessu sinni. Davíð hefur áður vakið at- hygli fyrir bílakaup. Þegar hann var borgarstjóri „sveik hann lit" með því að kaupa ameríska drossíu af bílasölu SÍS, Cadillac Fleetwood 00 speeial, og var skammaður fyrir af mönnum sem brosa ekki þegar þeir segja „sís". Þegar Davíð var spurður um bílamál sín fyrir liðlega fjórum árum viðurkenndi hann að hann hefði verið spenntur íyrir Mercedes Benz (Ræsir hf.) og menn hefðu sagt við sig: „Það er sama hvað þú kaupir dýran bíl, bölvaður, en ekki versla við Sambandið." Davíð hlustaði ekki á þetta. Hann benti á gengisþróun- ina, dollarinn hefði lækkað en þýska markið hækkað gríðarlega og því hefði verið hagstæðast að kaupa einn amerískan þótt hann kæmi frá SÍS. En hvað með gengið þegar bíllinn var keyptur í vor? Jú, á hálfu ári hafði doll- arinn hækkað um 10 prósent en markið lækkað um 4 pró- sent. Sem sagt samræmi í gjörðum Davíðs. Hitt er á huldu, hvers vegna Davíð er ekki lengur spenntur fyrir Benzum. KYNLÍF Kjúklingafætur og kynlífsrannsóknir Á því leikur enginn vafi að rannsóknir á hegðun og sálarlífi fólks geta veitt dýr- mæta þekkingu. Kynlífs- rannsóknir eru þar ekki undanskildar. Hins vegar er saga fyrstu kynlífsrann- sókna þyrnum stráð þar sem slíkar rannsóknir þóttu ekki við hæfi „sannra" vís- indamanna allt fram á byrj- un þessarar aldar. Á síðustu öld var viðhorf vestrænna þjóða til kynlífs yfirhöfuð afar neikvætt; til dæmis var sjálfsfróun kennt um alla hugsanlega sjúkdóma, þungaðar konur máttu ekki láta sjá sig utandyra og meira að segja kjúklinga- fætur á veisluborðum voru klæddir í hvítar pokabuxur því berar lappir, jafnt á kvenfólki sem fiðurfé, þóttu hin versta siðspilling. í slíkum tíðaranda, árið 1850, var ekki erfitt fyrir lækninn James Platt White að hneyksla samtíðarmenn sína svo um munaði. Hann taldi unga, ógifta konu, Mary Watson að nafni, á að fæða annað barn sitt í há- skólanum í Buffalo í New JONA INGIBJORG JÓNSDÓTTIR York-fylki svo læknastúd- entar gætp fylgst með fæö- ingunni. í þá daga fæddu flestar konur heima hjá sér og í læknadeildinni var engin aðstaða fyrir fæðing- ar. James kom því þá til leiðar að heimili húsvarð- arins var dubbað upp svo Mary gæti flutt inn, sem og hún gerði níu dögum fyrir áætlaða fæðingu. Lækna- nemarnir hlustuðu eftir fósturhljóðum og þegar hríðir hófust fékk hver og einn þeirra, alls tuttugu nemar, að þreifa legháls- inn. Þegar þetta fréttist fengu margir áfall, þar á meðal sautján læknar sem tóku sig saman og gáfu út tilkynningu um að það væri ekki tilhlýðilegt af lækni að skoða kynfæri kvenkyns skjólstæðinga sinna við barnsfæðingar. Viðbrögðin urðu svo sterk að bandaríska læknasam- bandið lagði blátt bann við slíkri sýnikennslu fæðinga. Það er óhætt að segja að mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan James hrelldi heilbrigðisyfirvöld og lækna með uppátæki sínu. Þeir sem áttu upp á pall- borðið á þessum tíma voru þeir sem rökkuðu kynlífið niður og héldu uppi nei- kvæðri ímynd kynhvatar- innar. Vísindamenn sem reyndu að skrifa af alvöru um kynlífið þorðu ekki annað en að leggja einnig áherslu á Ijóta stimpilinn á kynlífinu. Annars gátu þeir átt á hættu að missa fræði- mannsímynd sína eða jafn- vel missa vinnuna. Af sömu ástæðu loddi sjúkdómshug- takið við kynlífið — allt í lagi að líta á kynlífsmálin svo lengi sem eitthvað var sjúklegt við þau. Gott dæmi er bókin Psychopatia Sex- ualis sem Krafft-Ebing skrifaði 1984. Við lestur hennar er auðvelt að halda að maður sé að lesa al- fræðiorðabók um kynlífs- hrylling. Bækur sem höfðu aðeins jákvæðara viðhorf til kynlífsins fóru leynt — voru hluti neðanjarðarbók- menntanna. í einni þeirra var karlmönnum bent á að örvun snípsins væri góð til að „kynda undir kolum ást- arjnnar". Ameríkanar hafa löngum þótt duglegir við að græða á öllu og auðvitað tókst þeim það líka með neikvæðu kynlífsviðhorfin. Til dæmis setti Kellogs karl- inn kornflögur á markað- inn og Graham nokkur hóf að framleiða kexkökur, en hvort tveggja átti að vera fæði sem hjálpaði til við að halda hinni hræðilegu kyn- hvöt í skefjum, sérstaklega meðal unglingspilta. Áðurnefnd kynlífsvið- horf gerðu það að verkum að þrátt fyrir möguleika á fjárhagsstyrkjum voru bandarískir vísindamenn ekkert ólmir í að kanna kynlífsmálin á árunum 1920—1945. Þeir sem eitt- hvað gerðu hömruðu stöð- ugt á því að kynlífsrann- sóknir væru nauðsynlegar, þótt þær væru vissulega ógeðfelldar, því mikilvægt væri að rannsaka sjúkleg fyrirbrigði í kynlífi eins og vændi, kynsjúkdóma og „kynvillu" (sannarlega orð síns tíma). Rannsóknir á getnaðarvörnum fóru fram erlendis svo kynlífsrann- sóknir mundu ekki skemma orðstír vísinda- manna. Á fimmta áratugn- um átti jafnvel hjúkrunar- fólk í Chicago það á hættu að missa starfið fyrir að minnast á getnaðarvarnir við skjólstæðinga sína. Með rannsóknum Alfreds Kinesey, Pomeroys, Martins og annarra upp úr 1948 tóku hjólin fyrst að snúast í alvöru í kynlífsrannsókn- um og sér nú ekki fyrir end- ann á áhuga vísindamanna á kynlífi, ef marka má fjölda kynlífsrannsókna' sem kynntar eru í fagtíma- ritum. Það er eins og eigi að bæta upp öll árin sem töpuðust vegna bannhelg- innar sem hvíldi á kynlíf- inu. Fróðlegt væri að kanna hvað eimir mikið eftir af sjúkdómsforsendum kyn- .. meira ad segja kjúklinga- fætur á veislu- borðum voru klæddir í hvítar pokabrækur. lífsrannsókna nú á tímum. Ætli megi rannsaka kynlíf- ið af því það er heilbrigt — til dæmis hvort náin sam- skipti stuðla að bættri geð- heilsu eða hvort kynmök eru helsta leiðin fyrir full- orðna til að uppfylla eðli- lega snertiþörf? Eða eru kjúklingafæturnir ennþá í pokabuxum? Spyrjió Jónu um kynlífið. Utanáskrift: Kynlíf c/o PRESSAN, Hverfisgötu 8-10, 101 Reykjavík

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.