Pressan - 17.10.1991, Page 44
HLUSTUM ALLAN SÓLARHRINGINN SÍMI 621373
‘ridslandsliðið kom til landsins
á sunnudagskvöld. í liðinu eru fjórir
launþegar sem mættu til vinnu á
mánudag, daginn
eftir heimkomuna.
Einn þeirra, Jón
Baldursson, lét eft-
irsérað sofa framað
hádegi og mætti því
aðeins of seint til
vinnu. Ekki er vitað
á hvaða tíma hinir heimsmeistar-
arnir mættu til vinnu. Þessar nýju
þjóðhetjur fengu því fljótlega að
taka aftur þátt í hversdagslífinu, eins
og ekkert hefði í skorist . . .
atkvæði á móti, en tveir með, þau
Guðrún Zoéga og Haraldur
Andri Haraldsson. Þau vitnuðu í
lögregluvarðstofuna við Drafnarfell
um að engar kvartanir hefðu borist
vegna Bjórhallarinnar. Borgarráð
samþykkti hins vegar sl. þriðjudag
að mæla ekki gegn umsókninni og
Guðjón getur því væntanlega opnað
að nýju. A fundi ráðsins bókaði Elín
G. Olafsdóttir að með afgreiðslu
þessari gengi ráðið gegn vilja meiri-
hluta félagsmálaráðs og „eindregn-
um mótmælum" íbúa í nágrenni
staðarins . . .
Æ. élag íslenskra stórkaupmanna
hefur sent frá sér ályktun vegna
írétta PRESSUNNAR um heildversl-
unina ARS. í ályktuninni segir að
rekstur fyrirtækisins sé með ein-
kennilegum hætti og aðstandend-
um Skjóls, Hrafnistu og Hafnarfjarð-
arapóteks lítt til sóma. í ályktuninni
segir og að afar óeðlilegt sé að ofan-
greindar stofnanir standi í heildsölu-
verslun þegar tilgangur þeirra er
allt annars konar rekstur. Þá segja
stórkaupmenn það hafa komið fram
að ARS sé gjarnan með hæsta verð
á markaðinum . ..
insælir menn eru oft umdeild-
ir. Það á við um Hermann Gunn-
arsson sjónvarpsmann. Hann hefur
stundum þótt nota
þætti sína til að aug-
lýsa hitt og þetta. í
þættinum í gær var
góðvinur Her-
manns, Baldvin
Jónsson, aðalgest-
ur. Baldvin þarf á
allri auglýsingu að halda þessa dag-
ana enda nýbúinn að kaupa Aðal-
stöðina ...
Ve
eldi Pharmaco, fyrirtækis
Werners Rasmussonar og félaga,
hefur sem kunnugt er vaxið mynd-
arlega að undan-
förnu og fyrirtækið
teygt anga sína langt
út fyrir lyfjabrans-
ann. Árið 1988 var
Pharmaco í 1(19.
sæti yfir stærstu fyr-
irtæki landsins með
435 milljóna króna veltu. Árið 1989
stökk fyrirtækið upp í 129. sæti með
655 milljóna króna veltu. Á síðasta
ári var það komið í 94. sæti með 978
milljóna veltu. Með sama áfram-
haldi ætti fyrirtækið að lenda í ár í
sæti 55 til 60. Hins vegar er Ijóst að
það hefur dreift sér og fjárfest mikið,
þannig að það gengur varla eftir . . .
I
slendingar eru oft fljótir að búa til
brandara. Einn sá vinsælasti í dag er
um Davíð Oddsson forsætisráð-
herra. Brandarinn
er gerður í tilefni af
uppákomunni í
Leifsstöð um síðustu
helgi. Brandarinn er
á þessa leið: Hvern-
ig þekkir þú Davíð
Oddsson í mannhaf-
inu á Leifsstöð? Svörin eru tvö. Ann-
að er þannig að hann þekkist á eyr-
unum, og hitt að hann þekkist á
herðablöðunum .. .
IVL
Lálefni Bjórhallarinnar eru
enn í brennidepli, en frá þeim deil-
um sögöum við í síöustu viku. Þar
kom fram aö Guð-
jón Pálsson, frani-
kvæmdastjóri Bjór-
hallarinnar, vonað-
ist til að fá leyfi borg-
aryfirvalda til að
opna að nýju á næst-
unni. Talsvert skipt-
ar skoðanir hafa verið innan félags-
málaráðs borgarinnar um umsókn
veitingastaðarins um vínveitinga-
leyfi. I ráðinu greiddu þrír fulltrúar
Verðlauna-
peningar
bikarar
FANNAR
LÆKJARTORGI - n 16488
K
H
U
A L L I A F
0S A**
VIÐSKIPTAVINIR
„Prime ribs"
öll fimmtudagskvöld
Lifandi tónlist
öll sunnudagskvöld.
»1 r
S T E I K H Ú S
Barónsstíg 11a • Sími 19555