Pressan - 14.01.1993, Side 4
4
- FIMMTUDAGUR PRESSAN 14. JANÚAR 1993
F Y R S T
BÆTIFLÁKAR
ALBERT GUÐMUNDSSON
ÁLFARNIR
Á BÁLIÐ
„Fyrir nokkrutn árum kom
upp sú umrœða á Akureyri
hversu ósmekklegt það vœri að
auglýsa „álfabrennur“ á þrett-
ándanum. Álfar vœru ekki
brenndir á báli þann dag held-
ur dönsuðu þeir við þrettánda-
brennurnar og tœkju þátt í því
að dansa jólin út. Afleiðing
þessarar umrœðu varð sú að
þetta orðskrípi hefur ekki sést
þar á prenti síðan svo vitað sé.
Því varþað að norðanmönnum
brá talsvert við að sjá auglýstan
jjölda „álfabrenna" á höfuð-
borgarsvœðinu í siðustu viku.
Gott ef það átti ekki að brenna
á báli í leiðinni tröll og aðrar
kynjaskepnur.“
Gylfi Kristjánsson í DV.
Baldur Jónsson, forstöðu-
maður íslenskrar málstöðv-
ar: „Ég sé ekkert rangt við það
að nota orðið „álfabrenna".
Merking orðsins er að sjálfsögðu
ekki sú að álfar séu brenndir á
þrettándanum, heldur er brenn-
an kennd við álfa. Orðið „þrett-
ándabrenna" merkir ekki heldur
að þá sé þrettándinn brenndur á
báli, heldur að brennan sé hald-
in 13. dag jóla. Svipað er að segja
um orðið „árámótabrenna".
Merkingarvenslin á milli
liða í samsettum orð
um eru mjög frjáls-
leg í íslensku og
því er. ekkert, at-
húgavert við orðið
„álfabrenna“.“
kynlíf þar sem fram komu við-
horf fulltrúa landlæknisembætt-
is, helstu innflytjenda smokka
og Jónu Ingibjargar Jónsdóttur
kynlífsfræðings, sem er lesend-
um PRESSUNNAR að góðu
kunn. Flestum góðum fram-
kvæmdum fylgja einhver mis-
tök.“
VÉLSLEÐA-
RÉTTIR
„Fólk sem á vélsleða og notar
þá aðeins örfáa daga á ári œtti
að hugsa sig utn áður en það
tekur þá frarn til notkunar. Sá
árstími sem þeir nýtast er hvað
verstur viðureignar veðurfars-
lega séð. Það er litil von til að
þessi tæki verði til ánægju, ef
veðurofsi ogfannfergi er slíkt,
að björgunarmenn og þyrlur
verða nánast að vera við öllu
búnar til að heimta menn úr
helju, sem leggja upp í vélsleða-
ferðir. — Ut yftr tekur þegar
menn líta á vélsleðaferðir eins
og aðfara í réttir, oggera út á
Bakkus í leiðinni. — Reyndar
ber landsmönnum ekki nein
skylda til að kosta rándýrar
björgunaraðgerðir áfólki sem er
að skemmta sér á þessum farar-
tœkjurn. Björgunartœki eru ekki
leiktœki eins og vélsleðarnir. “
Hannes í DV
KLÚRIR ÚT-
VARPSMENN
Víkverji hefur stundum verið
aðfurða sig á efnisvali útvarps-
stöðvanna, en honum þótti
keyra um þverbak fyrir
skömmu, þegar hannhlustaði.á
Sólina... þá var kornitm hlust-
attdi á línima; unglingsstúlká,
sem vildi senda systur sinni af-
mæliskveðju. Piltarnir sögðu
stúlkunni, að þátturinn falíaði
um kynlíf og kynórá, og spurðu
hana: „1 hvaða stellirigúfinnst
þér best að gera það?“ Að von-
utn kom nokkuð á stúlkuna,
sem svaraði flautnósa að hún
vissi það ekki og hefði aldrei gert
„það“. „Meguttt við afmeyja þig
í beinni?" spurðupiltarnir þá og
voru afar fyndnir, að eigin
mati. Þegar stúlkan varfarin úr
símanum hóf ánnar piltanna
að lesa það setn hatm sagði lýs-
ingu á kynórum uttgs manns.
Þá kastaði fyrst tólfunum. Það
var sama hvernig Víkverji velti
þeirri sögu fyrir sér, tiiðurstað-
an varð sú, að pilturinn lýsti, í
beinni útsendingu útvarps-
stöðvar, nauðgun. “
Víkverji Morgunblaðsins.
Ólafur Sigurgeirsson, for-
seti Hundrað hestafla-gengis-
ins: „Vélsleðamenn eiga eitt
sameiginlegt, cn það er þörfin
fyrir að ferðast, qg hafa þeir valið
sér þennan hraða. Qg frjálsa
ferðamáta til'að skoða landið sitt
í vetrarbúningi. Menn ferðast
ekki einir heldur í misstórum
hópum og er algengt að fjöl-
skyldur fari saman. Yfir 90 pró-
sent afþessu fólki ferðast af ör-
yggi með fjarskiptabúnað og
leiðsögutæki og verður engum
til vandræða. Óhöppin gera ekki
boð á undan sér og sjaldgæft að
þurfi að leita að einhverjum.
Leitarmennirnir sjálfir telja það
ekki eftir sér og meðan leitir eru
fáar geta þær komið í stað æf-
inga og kostnaður flokkast þá
sem æfingakostnaður. Nöldrar-
arnir sjá hins vegar ofsjónum yf-
ir því. Bakkus kemur að sjálf-
sögðu stundum við sögu en
vandræðin sem skapast af hon-
um eru þó stórurn minni en í
byggð, þar sem tugir manna aka
ölvaðir, stórhættulegir öðrum
vegfarendum. Á fjöllum eru
menn helst hættulegir sjálfum
sér, en ölvun undir stýri vélsleða
er undantekning frekar en
regla.“
er sendiherra íslands í Frakklandi, stofnandi og fyrrum formaður Borgaraflokksins og fjármálaráðherra í
ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar. Stefna hans í stjórnmálum hefur gjarnan verið kennd við fyrirgreiðslu. Af
þeim ástæðum og mörgum öðrum er hann umdeildur pólitíkus. Albert verður sjötugur í október og því fer
að líða að starfslokum hans í sendiherraembættinu. En svo virðist sem menn séu ekki á einu máli um hvort
Albert lætur af embættinu í apríl eða í október. Hvenær verða starfslok þín Albert?
„Menn eru ekki reknir þúlt þeir
taki sér sumarfrí"
„Starfslok mín í sendiherra-
embættinu eru ákveðin í október.
Um annað hefúr ekki verið rætt.
Ég á hins vegar inni uppsafnað
sumarfrí sem ég hyggst taka út áð-
ur en ég lýk störfum í París. f
sumarffíinu verð ég ennþá sendi-
herra. Ég veit ekki til þess að
menn séu reknir þótt þeir taki sér
sumarffí.“
Megum við þd eiga von á þér
til íslands með vorinu?
„Nei ég ætla ekki að koma til fs-
lands fyrr en í haust. Ég hef ekki
tekið mér frí í mörg ár, en fyrst og
fremst er það vegna þess að ég
þarf að vera í eftirmeðferð í París
fram í september vegna upp-
skurðar sem ég gekkst undir í ág-
úst í fyrra vegna blæðandi maga-
sárs. Eiginkona mín hefur verið
mikið veik að undanfömu og það
er einnig kominn tími til að ég
sinni henni. Upphaflega ætluðum
við hjónin að verja ævikvöldinu í
Frakídandi. Eftir að hafa hugsað
málið viljum við þó heldur vera
nærri Börnum okkar og barna-
böroum.“
Nú héfur legið í loftinu að þú
œtlir aðfiélla þér út í íslenska pól-
itík á tiý?
„Ég hef enn mjög mikla starfs-
orku óg bíð þess að takast á við ný
verkefni þegar heim kemur, en
hvört það verður pólitík, afskipti
af íþróttamálum eða kaupsýsla
hefég ekki ákveðið enn. Hver veit
nema ég fari að þjálfa drengi í
knattspyrnu! En eitt er þó víst, að
ég ætla að gefa konu minni meiri
tíma en ég hef hingað til gert. Hún
á það inni hjá mér.“
Ætlarðu katmski íprófkjörfyr-
ir nœstu þingkostiingar?
„Fyrir hvaða flokk? Ég er ekki í
neinum flokki."
Sjálfstœðisflokkinn?
„Það er allsendis óvíst. Þótt
sættir hafi tekist með okkur Þor-
steini er ekki þar með sagt að ég
hafi sæst við Sjáifstæðisflokkinn.
Ég gæti eins hugsað mér að fara
aðra leið en þá inn í pólitík, en
eins og ég segi þá ætla ég að sjá
hvernig vindarnir blása þegar
heimerkomið.“
Ertu ánægður með hvernig
Sjálstæðisflokkurinn heldur uttt
stjómartaumana?
„Þar sem ég hefi ekki skoðað
allar hugsanlegar leiðir sem hægt
er að fara við þessar erfiðu að-
stæður í þjóðfélaginu vil ég ekkert
dæma um það. Að auki er ég ekki
í aðstöðu til þess, embættis míns
vegna.“
Hvaða skoðun hefur þú á af-
greiðslu EES-málsins?
„Þar sem við íslendingar erum
í svo viðkvæmri aðstöðu hef ég -
og hef alltaf haft — þá skoðun að
við eigum að ganga mjög varlega
að öllu er varðar alþjóðamál og
hugsa okkur vel um áður en við
gerum alþjóðasamninga. Það
verður hins vegar að teljast mikill
sigur fyrir Jón Baldvin að hafa
fengið samninginn staðfestan. Ég
ligg þó ekki á þeirri skoðun minni
að ég hefði frekar viljað að samn-
ingurinn væri lagður undir þjóð-
aratkvæði, líkt og gert var hér í
Frakklandi, þar sem samningur-
inn um EES var samþykktur með
naumum meirihluta.“
Finnst þér að forseti Islands
eigi aðgrípa í taumana?
„Hún hefur rétt til þess sam-
kvæmt sjórnarskránni og verður
að vega það og meta sjálf. En úr
því að ríkisstjórnin tók þetta mál í
sínar hendur held ég að það sé
best að láta þar við sitja.“
Nú hefur syni þínutn, Itiga
Birni, verið uppsigað við meiri-
hluta sjálfstœðismanna, hvað
finnst þér uni það?
„Ég treysti Inga Birni fullkom-
lega, en eins ég sagði er ég ekki í
aðstöðu til að tjá mig frekar um
það.“
Ertu ánægður tneð samskipti
þtn við utanríkisráðherrann, Jón
Baldvin Hannibalsson?
„Ég hef ekkert nema gott um
samsldpti mín við Jón Baldvin að
segja. Hann hefur staðið sig af-
skaplega vel þegar hann hefur
komið hingað til Parísar og það
sama vil ég segja um flokksbróður
hans, Jón Sigurðsson."
Ett hvað um Davíð Oddsson?
„Ég hef lítil sem engin sam-
skipti haft við Davíð Oddsson sem
forsætisráðherra. En okkur var vel
til vina þegar ég var á íslandi og ég
veit ekld betur en hann hafi verið
ánægður með mig sem fjármála-
ráðherra."
Agnar Jón Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Sólarinnar:
„Sólin FM-100,6 hefur lagt sig
fram við að fjalla sem mest og
best um áhugaefni ungu kyn-
slóðarinnar. Hvers vegna ekki
að tala um hlægilegt kynlíf,
skemmtilegt kynlíf, tilrauna-
starfsemi f kynlífi o.s.frv.? Þann
29. desember sl. var á dagskrá
þáttur úm kynlíf og kynóra, sem
fór því miður úr böndum og var
því kippt út. Fyrir hönd .SóIar-
innar vil ég biðja þá hlustendur
sem var misboðið afsökunar og
jafnframt taka það fram að alltaf
er hægt að slökkva á viðtækjun-
um. Eg vil einnig minna á að
daginn eftir umræddan þátt var
klukkustundarlöng umræða um
UMMÆLI VIKUNNAR
„Á hverjum degi hefur einhver sam-
band út af óvelkominni eða óvenju-
legri pöddu, íslendingar erufremur
viðkvœmir gagnvartþessum dýrum.
Og hámarki nœr œsingurinn í hrein-
gerningunum fyrir jólin, þá kemur
ýmislegtfram úr hornum, jolatré og
jólastjörnur eru oft lífleg og í val-
hnetukjörnum þrífast stundum lirfur
sem margirfúlsa við. “
!■!■■■■■■■■ ERLING ÓLAFSSÓN PÖDDUERÆÐINGUR
Almennileg
mafía hefði látið
hann hverfa!
„Hvað hefði áunnist
með því að „stöðva“ Kára?
Varla nokkur skapaður
hlutur, enda var
maðurinn ekki að gera
neitt sem varbannað."
Helga Guðrún Jónasdóttir
upplýsingafulltrúi
bændamafíunnar.
Sem betur
fer eru
rolluriiar
ekki slórar
„íslendingar eiga alltof h'tið
af góðum smalahundum.
Smalahundamenningin er vægast
sagt á mjög lágu plani hér á landi.“
Gunnar Einarsson
’ (ormaður smalahuridafélagsins.
Hairn hefði nú átt að gruna
eitthvað þegar hann
heyrði hláturinn í Erlendi!
„Þegar ég tók við stöðu forstjóra Sam-
bandsins vissi ég ekki að öllu leyti hve
slæm staða fýrirtækisins var.“
Guðjón B. Ólafsson
forstjóri Sambandsins.
Það hefði ekki
TEKIÐ NEMA 47 ÁR
„Ég harma að þjóðin skuli ekki fá að segja álit sitt í jafn
stóru og afdrifaríku máli.“
Ingi Björn Albertsson
andsþýrnuþingmaður.
Já, útrætt
„EES-málið er
miklu meira en
fullrætt.“
Davíð Oddsson
forsætisráðherra.