Pressan - 14.01.1993, Qupperneq 8
8
FIMMTUDAGUR PRESSAN 14. JANÚAR 1993
SH-verktakar í gjaldþrot vegna lokunar Sparisjóðs Hafnaríjarðar
Pétur Blöndal vísar starfsmönnum
á Matthías Á. Mathiesen
PRESSAN/JIM SMART
Allir kröfujhiifar tóku jákvætt í tilbóð Péturs H
Blöndal en fpÍrísjóðurinn lokaði dyrum sín-
um og frysti greiðslur. SH- verktakar töpuðu
130 milljónum á síðasta ári og tapa nú milljón
krónum hvern einasta dag
keypti eignir SH á hálfan milljarð
og tók að sér fjáimögnun verkefri-
sms
Pétur Blöndal ræðir við starfsmenn SH í gær: „Afstaða sparisjóðsins er óskiljanleg," sagði hann og vísaði
spurningum þar að lútandi til formanns sparisjóðsstjórnar, Matthíasar Á. Mathiesen.
SPARISJÓÐURINN VILDI
EKKIKAUPA HLUTABRÉF í
VEÐIHF.
Gjaldþrot blasir nú við SH-
verktökum eftir að Sparisjóður
Hafnarfjarðar hafnaði tilboði Pét-
urs H. Blöndal um að SH borgaði
sparisjóðnum 45 prósent af 20
milljóna króna skuld fyrirtækisins
við sparisjóðinn. Áður höfðu und-
irverktakar og verkkaupendur
gefið jákvætt svar, en með neitun
sparisjóðsins í gær, miðvikudag,
brustu forsendurnar fyrir tilboði
Péturs um yfirtöku á SH, sem dag-
inn áður hafði fengið samþykkta
greiðslustöðvun hjá Héraðsdómi
Reykjaness. Sparisjóðurinn frysti
greiðslur frá verkkaupendum en
bauðst til að láta SH fá 12 milljón-
ir, en Pétur sagði það ekki duga til
að halda verkefnum áfram og féll
frá tilboði sínu. í morgun,
fimmtudag, ætluðu starfsmenn
SH, yfir 100 manns, að fjölmenna
í Sparisjóðinn og hugðust einkum
beina spjótum sínum að Matthí-
asi Á. Mathiesen, formanni spari-
sjóðsstjórnar.
MEÐ MILLJARÐ í VELTU EN
STÖÐVAST ÚT AF NOKKR-
UM MILLJÓNUM
Pétur sagði í samtali við
PRESSUNA að eiginfjárstaða SH
hefði verið orðin neikvæð um ná-
lægt 45 milljónum króna effir um
130 milljóna króna rekstrartap á
síðasta ári. Um þessar mundir
tapaði SH milljón á dag. Með því
að SH færi í gjaldþrot mætti búast
við því að eiginfjárstaðan versnaði
til muna og yrði neikvæð um allt
að 200 milljónum króna og þá
yrði lítið til skiptanna fyrir kröfii-
hafa. Hann var ómyrkur í máli
gagnvart sparisjóðnum.
„SH er fyrirtæki með nær millj-
arð í veltu og með 140 til 150
manns beint og óbeint í vinnu.
Skuld fyrirtækisins við sparisjóð-
inn var aðeins um 20 milljónir
króna og þar af voru 10 milljóna
króna kröfur nokkuð tryggðar
með veði og ábyrgðum. Eftir há-
degi á föstudag síðastliðinn ræddi
ég við þá um stöðu fyrirtækisins
og tilboð okkar. Síðar kom í ljós
að eftir samtalið hafði sparisjóð-
urinn lækkað 6 milljóna króna
yfirdráttarheimild niður í 5,4
milljónir, eins og staðan var þá.
Við þetta reyndust ávísanir, sem
gefnar voru út í góðri trú, inn-
stæðulausar. Sparisjóðurinn
ákvað ennfremur að halda eftir 5
milljóna króna greiðslu frá verk-
kaupandanum Hampiðjunni,
þrátt fyrír munnlegt samkomulag
um að 1,5 milljónir afþessu rynnu
í bankann en 3,5 milljónir til SH,“
segir Pétur.
130 MILLJÓNA TAP í FYRRA
OG MILLJÓN Á DAG í ÁR
Forráðamenn SH kölluðu þetta
barnaskap af hálfu sparisjóðsins,
óskiljanlega afstöðu og í raun væri
sjóðurinn að mismuna kröfuhöf-
um með því að halda eftir greiðsl-
um og láta þær renna til sín. Þór
Gunnarsson sparisjóðsstjóri neit-
aði að tjá sig um málið og vísaði til
ákvæða um bankaleynd.
Burtséð frá neitun sparisjóðsins
er ljóst að staða SH var orðin afar
slæm og voru það einkum fram-
kvæmdir við Setbergshlíð í Hafh-
arfirði sem leiddu til hinnar
slæmu stöðu. Síðasta ár var veru-
lega erfitt og fyrirtækið rekið með
um 130 milljóna króna tapi, sem
varð til þess að eiginfjárstaðan
versnaði úr því að vera jákvæð um
83 milljónir í að vera neikvæð um
nálægt 45 milljónum. Gerðist
þetta þrátt fyrir að gripið væri til
sérstakra aðgerða vegna fram-
kvæmdanna við Setbergshlíð í
Hafnarfirði, þar sem Veð hf.
Árið 1987 var velta SH 250
milljónir að núvirði en 1990-1991
var hún komin upp í nær 950
milljónir að núvirði. Veltan hafði
því aukist um 275 prósent á fjór-
um árum og starfsmönnum fjölg-
að um nær 70 prósent á þremur
árum.
Þegar rekstrartölur SH fyrir ár-
ið 1991 eru skoðaðar vekur athygli
hversu umskiptin til hins verra
eru mikil. Það árið og árið á und-
an var fyrirtækið rekið með hagn-
Matthías sparisjóðsformaður:
Verður krafinn svara um hvers
vegna hann sendir 100 til 150
manns í atvinnuleysi út af
„nokkrum milljónum".
aði, að vísu ekki miklum. Fram-
reiknaðar tölur sýna að frá árslok-
um 1990 til 1991 hafi veltufjár-
munir aukist úr 260 í 380 milljónir
og heildareignir úr 402 í 527 millj-
ónir. Um leið jukust skammtíma-
skuldir úr 246 í 369 milljónir og
heildarskuldir úr 329 í 444 millj-
ónir.
Ekki er blöðum um það að
fletta að staðan versnaði 1992, en
á móti kemur að Veð hf. keypti
eignir SH í Setbergshlíðinni á hálf-
an milljarð og tók að sér fjár-
mögnun frekari ffamkvæmda þar.
Samkvæmt fréttum á þeim tíma
nam staðgreiðslan í þessum kaup-
um 125 til 135 milljónum króna.
SH átti reyndar í upphafi 80 pró-
senta hlut af 130 milljóna króna
hlutafé í Veði, en sá hlutur var
kominn niður um 45 milljónir.
Pétur Blöndal reyndi ítrekað að fá
Sparisjóð Hafnarfjarðar til að
kaupa hlutinn, en án árangurs.
SEX VERÐBRÉFASJÓÐIR
MEÐ ALDEILIS ÓARÐBÆRA
FJÁRFESTINGU
Allt hlutafé í SH telst nú afskrif-
að sem ónýtt og skiptir í raun
engu hvort bréfin eru seld á 1 eða
10 prósent, enda „salan á bréfún-
um einungis málamyndagerning-
ur“, að sögn Jóns Inga. Skráð
hlutafé var um 81 milljón króna,
en þar af voru 18 milljónir skráðar
á nafn fyrirtækisins sjálfs og hafði
ekki tekist að selja. Raunverulegt
hlutafé var því 63 milljónir króna.
Stærstu hluthafar voru Sandur hf„
með 16 milljónir (25,4 prósent),
Jón Ingi Gíslason, fráfarandi
ffamkvæmdastjóri, með 11 millj-
ónir (17,5), Hlutabréfasjóðurinn
með 6,7 milljónir (10,6), Draupn-
issjóðurinn með 4,7 milljónir (7,5
prósent) og íslenski hlutabréfa
sjóðurinn með 3 milljónir (4,8).
Alls áttu og töpuðu því 6 sjóðir
hlut í SH upp á samtals 18,7 millj-
ónir, tæplega 30 prósent af heild-
inni.
Sjóðirnir ofangreindu komu
inn í SH í góðærinu 1991. Fram-
kvæmdastjórar og formenn þess-
ara sjóða eru engir aukvisar í mati
á fjárfestingum; Fyrir utan Pétur
Blöndal má nefna menn á borð
við Baldur Guðlaugsson, Friðrik
Halldórsson, Ragnar Önundar-
son, Gunnar Helga Hálfdánar-
son og Sigurð B. Stefánsson.
Friðrik Þór Guðmundsson
VIKAN FRAMUNDAN
14. janúar 1970 kom Díana Ross
í síðasta skipti fram með söng-
flokknum The Suprimes. Eftir
það hóf hún sólóferil sem enn
stendur yfir. Þennan sama dag
var bók Marios Puzo, The God-
father, í efsta sæti á vinsældalist-
um í Bandaríkjunum.
14. janúar 1980 hófst málflutn-
ingur í Hæstarétti íslands í Guð-
mundar- og Geirfinnsmálinu.
15. janúar 1976 hlaut Ólafur Jó-
hann Sigurðsson rithöfundur
bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs fyrir ljóðabækur sínar
Að laufferjum og Að brunnum.
16. janúar 1847 var stofnað
fyrsta bindindisfélagið á íslandi.
Stofnfundurinn var haldinn í
Reykjavík og skráðu 24 sig í fé-
lagið. Fyrsti formaður félagsins
varð Stefán Gunnlaugsson, land-
og bæjarfógeti.
16. janúar 1904 hlaut Niels R.
Finsen Nóbelsverðlaunin í lækn-
isfræði, en hann var hálfur Is-
lendingur. Hlaut hann verðlaun-
in fyrir uppgötvanir í ljóslækn-
ingum. Um þetta leyti var Niels
þungt haldinn af vatnssýki og
varð að stinga á honum rétt fyrir
verðlaunaafhendinguna svo
hann gæti tekið á móti þeim.
17. janúar er þjóðhátíðardagur
Mónakó.
17. janúar 1817 var gefinn út
konungsúrskurður þess efnis að
þrír efnilegir íslenskir bænda-
synir mættu dveljast á Sjálandi á
kostnað konungs í tvö til þrjú ár.
Þar ættu þeir að nema garðyrkju,
jarðeplarækt, trjáplöntun og
önnur nytsöm búmannafræði.
17. janúar 1914 var Eimskipa-
fjelag íslands stofiiað.
17. janúar 1975 varð eitt mann-
skæðasta flugslys fslandssög-
unnar. Þá hrapaði þyrla í eigu
Þyrluflugs hf. skammt ffá Hjarð-
amesi í Hvalfirði og fórust þar
sjö menn.
18. janúar 1850 sauð upp úr
milli stórs hluta nemenda Lærða
skólans og rektors hans. Gengu
skólapiltar í samfylkingu um
götur bæjarins og hrópuðu
„Rektor Sveinbjörn Egilsson
pereat“ eða „burt með Svein-
björn Egilsson rektor“. Þetta
uppþot skólapilta er sögulegt að
því leyti að hér var um fyrstu
skipulögðu uppreisnina gegn
yfirvöldum að ræða.
19. janúar 1472 var fæðingar-
dagur Nikulásar Kópernikusar.
Hann var pólskur stjörnuffæð-
ingur og vann sér það meðal
annars til frægðar að vera höf-
undur sólmiðjukenningarinnar.
19. janúar er bóndadagurinn og
þorrinn byrjar.
19. janúar 1736 fæddist James
Watt, sá er fann upp gufuvélina.
19. janúar 1892 var fæðingar-
dagur Ólafs Thors forsætisráð-
herra.
20. janúar 1930 eru liðin 65 ár
síðan Hótel Borg tók til starfa.
Það þótti á sínum tíma sérlega
glæsilegt og marka tímamót í
hótelrekstri á íslandi.
AFMÆLI
15.janúar
Arnmundur Backman lög-
ffæðingur á stórafmæli, verður
50 ára.
Berglind Ásgeirsdóttir ráðu-
neytisstjóri í félagsmálaráðu-
neytinu verður 38 ára.
Ásgeir Bolli Kristinsson í
tískuvöruversluninni 17 verður
42ára.
16. janúar
Árni Hlíð-
dal Björns-
son þjóð-
háttafræð-
ingur verður
61 árs.
Ólafur
Gránz, framkvæmdastjóri og
templari í Vestmannaeyjum,
verður 52 ára.
17. janúar
Davíð
Oddsson
forsætisráð-
herra á 45 ára
afmæli.
Sigurður R.
Helgason,
rekstrarhag-
ffæðingur og ffamkvæmdastjóri,
verður fimmtugur.
20.janúar
Þórhallur
Sigurðs-
son/Laddi
stórgrínisti
verður 46 ára.