Pressan - 14.01.1993, Qupperneq 23
FIMMTUDAGUR PRESSAN 14. JANÚAR 1993
23
hæð USD 7.000.000, eftir að hafa
áður framselt veðbréf þetta til
GAC Trans-Air Carrier Lease,
Flugzeugleasing.
— Með að hafa sem stjórnar-
formaður vanrækt að veita upp-
lýsingar í sambandi við rekstur fé-
lagsins og bókhald.
— Með því að hann mun vera
eftirlýstur af þýskum yfirvöldum
vegna fjársvika o.fl. og einnig mun
hann vera eftirlýstur af Interpol
vegna ýmissa lögbrota.
Skuídabréfið með veði í Þjóðar-
þotunni mun vera eitt þeirra sem
Grzimek lagði fyrir sparisjóðs-
stjórann og útlánastjórann í Halle.
Allt er á huldu um hvernig
Tjentveit tókst að aflýsa skulda-
bréfi sem hann hafði framselt til
Grzimeks, nokkuð sem ekki ætti
að vera hægt án samþykkis þess
síðarnefnda. Eitt af því sem sak-
sóknarinn í Halle er að reyna að
komast að er hvort og hvaða flug-
vélar Tjontveit átti á þessum tíma
og þar með hvað stóð á bak við
tryggingarnar sem Grzimek reiddi
fram.
Á svipuðum tíma og Tjontveit
var settur af sem stjórnarformað-
ur Flugvéla hf. ákvað lögmaður
hans í Þýskalandi, Gerald I.
Brandt, að eiga ekki frekari við-
skipti við hann. í samtali við
norska Dagbladet í september
1991 sagðist hann ekki geta sinnt
málefnum Tjontveits lengur með
góðri samvisku. Hann bætti \ið að
varla væri nema tímaspursmál
hvenær Tjontveit yrði handtekinn
og færður fyrir þýska dómstóla.
Samkvæmt upplýsingum sak-
sóknarans í Halle virðist það ekki
enn hafa gerst.
Fyrirtæki Grzimeks, GAC
Trans-Air Carrier Lease, er enn
skráð eigandi Þjóðarþotunnar og
Atlanta hefur vélina á leigu sam-
kvæmt upphaflega leigusamn-
ingnum við Tjöntveit. Veðbókar-
vottorð þotunnar er tandurhreint
og virðist því sem veðskuldabréf-
ið, sem Tjontveit gaf út og Grzim-
ek ffamvísaði við sparisjóðsstjór-
ann í Halle, hafi farið veg allrar
veraldar. Norskir viðmælendur
PRESSUNNAR sögðu að ekki
hefði bólað á Tjontveit í norsku
fluglífi að undanförnu, en miðað
við fyrri sögu mætti búast við
hverju sem væri. Fyrir rúmu ári
birtist í tímaritinu Flight Interna-
tional auglýsing frá fyrirtæki
Tjontveits þar sem hann auglýsir
til sölu tvær nýyfirfarnar þotur í
góðu ástandi. Báðar af gerðinni
Boeing 737.
Karl Th. Birgisson
Hver er Thor Tjontveit?
Brotlendin
brotlendim
Thor Tjontveit fékk einkaflug-
mannspróf árið 1955 þegar hann
var átján ára stráklingur í Grimst-
ad í Noregi. Tveimur árum síðar
flutti hann til Alaska, bjó þar í tíu
ár og hlaut bandarískan ríkisborg-
ararétt. Þar varð hann fyrst fyrir
áfalli árið 1967 þegar hann brot-
lenti tveggja hreyfla Piper Apache-
vél sem hann flaug á vegum flug-
félagsins Wien Air Alaska, sem
var þá í eigu annars norsks
Bandaríkjamanns, Sigurd Wien.
Þremur árum seinna varð hann
frægur í flugheiminum fyrir að
verða fýrstur til að fljúga á lítilli vél
bæði á suður- og norðurpólinn í
sömu ferðinni. A svipuðum tíma
ákvað hann að flytja aftur til Nor-
egs, þar sem hann stofnaði flugfé-
lagið Trans Polar. Hann keypti
þijár Boeing 720B og hugðist nota
þær í flutninga- og leiguflug.
Hann náði meðal annars samn-
ingum við ferðakónginn Simon
Spies, en honum var rift skömmu
síðar. Eftir eins árs rekstur var
Trans Polar komið í gjaldþrota-
meðferð og brotlenti með nriklum
hvelli.
Bústjórunum þótti sem
Tjontveit hefði farið frjálslega með
fé félagsins og lögreglan var sam-
mála. Tjontveit var stefnt fyrir
tæplega U'eggja milljóna norskra
króna fjárdrátt, en var sýknaður af
öllum kærum árið 1978. Hann
tárfelldi af gleði og vann skaða-
bótamál á hendur ríkinu í kjölfar-
ið.
ÍFLUGFYRIRCIAOG
RAUÐA KROSSINN
Það hafði ekki fennt yfir Trans
Polar þegar Tjontveit stofnaði
Norwegian Overseas Airways.
Hann fékk hins vegar ekki flug-
rekstrarleyfi í Noregi og fór þá til
Víetnam og Kambódíu, þar sem
stríðið stóð sem hæst. Þar segist
hann hafa flogið fyrir CIA-fyrir-
tækið Air America, en í apríl 1975
gerði hann samning við Rauða
krossinn um flutning á hjálpar-
gögnum til Suður-Víetnam. Hann
fær þriðjung greiðslunnar fyrir-
fram, en sá galli er á fyrirætlaninni
að gamla DC4-fragtvélin hans
þarfnast mikils viðhalds áður en
lagt er upp.
Hann fær leyfi norskra stjórn-
valda til að fljúga á þremur hreyfl-
um til Englands, þar sem gera átti
við vélina. Þangað komst hún
aldrei, heldur fór til Danmerkur
og svo Þýskalands þar sem birgðir
Rauða krossins eru settar um
borð. Eftir það spurðist ekki lengi
til Tjontveits og var uppi orðróm-
ur um að hann hefði flogið til
furstaríkisins Bahrein. Loks kom
þó í ljós að Tjontveit hafði lent í
Kambódíu, þar sem Rauðu
khmerarnir hirtu bæði vél og farm
afhonum.
Eftir þetta fékk Norwegian Ov-
erseas Airways ekki mörg verkefni
og andaðist.
Árið 1980 keypti Tjontveit
Bergen Air Transport og umskírði
það Transit Air. Það var á lofti í
tvö ár áður en það varð gjald-
þrota. Við tóku nokkur smáflug-
félög, sem öll gengu illa. Með um-
deildum viðskiptum og frjálsleg-
um túlkunum á loftferðalögum
tókst Tjontveit svo aftur að kom-
ast í kast við lögin. Hann var
handtekinn á götu í Berlín í febrú-
ar 1985, ákærður affur fyrir fjár-
drátt og auk þess alvarleg brot á
loftferðalögum. Hann sat inni í
ljóra mánuði í Þýskalandi og þijá
til viðbótaríNoregi.
ÞJÓÐARÞOTAN OG AFTUR
TILNOREGS
Upp úr þessu kemur Tjontveit
sér aftur fyrir í Bandaríkjunum,
þar sem hann kaupir áðurnefnt
Wien Alaska Air, að eigin sögn án
þess að þurfa að leggja út krónu
fyrir kaupverðinu. Hann kaupir,
selur og leigir út flugvélar, en
hyggur svo á endurkomu í Noregi
sumarið 1990, sama ár og hann
kaupir ísiensku Þjóðarþotuna.
í gegnum fyrirtækið Nord
Construction Scandinavia keypti
Tjontveit smáflugfélagið Norving,
sem þá riðaði á barmi gjaldþrots,
og tókst að ná meirihluta í leigu-
og sjúkraflugfélaginu Air Express.
Úr þessum tveimur ætlaði hann
að stofna öflugt félag sem hefði
náð nánast einokun í sjúkraflugi í
Norður-Noregi.
Aðrir hluthafar í Air Express
brugðust hart við og virðast hafa
fengið norska embættismenn í Iið
með sér. Hann var sem sagt ekki
velkominn í gamla landinu og
kom það honum ekki á óvart, að
eigin sögn.
Tjontveit neyddist til að gefa
eftir hlutinn í Air Express og á
endanum átti Nord Construction
Scandinavia ekki annað en 20
prósent hlutafjár í Norving, sem
stefndi í gjaldþrotameðferð síðast
þegar fréttist. ________
Byggt á Dagbladet í Noregi.
Ævintýramanninum
og braskaranum
ThorK. Tjontveit tókst
að gera Þjóðarþotuna
að einni aðalpersónunni
í umfangsmiklu
fjársvikamáli í
Þýskalandi.