Pressan - 14.01.1993, Síða 29

Pressan - 14.01.1993, Síða 29
FIMMTUDAGUR PRESSAN 14. JANÚAR 1993 29 Carl J. Eiríksson svararfyrir sig vegna ummœlaformanns Skotsambandsins X yfirliti yfir íslenskar myndir á fram- leiðslustigi og undirbúningsstigi í katal- ógnum European Filmfile er meðal ann- ars tilgreint að kvik- myndaíyrirtækið Umbi hyggist framleiða myndina Jörund hundadagakonung. Umbi er sem kunnugt er fyrirtæki þeirra Guðnýjar Halldórs- dóttur og Halldórs Þorgeirssonar, en kvikmynd þeirra Karlakórinn Hekla er nú sýnd í Háskólabíói. Tvennt vekur athygli í upptalningu European Filmfile. Annars vegar að Lárus Ýmir Óskarsson á að leikstýra myndinni en ekki Guðný. Hins vegar að Ragnar Arnalds, handritshöf- undur myndarinnar, er titlaður sem for- maður Kvikmyndasjóðs og þess jafnframt getið að verkefnið hafi verið styrkt af sama sjóði. Þetta tvennt lítur ekki sérlega vel út á pappírunum, þar sem þeir sem lesa vita ef til vill ekki að úthlutunamefnd er sjálfstæð og vinnur án afskipta stjórnar sjóðsins... „í PRESSUNNl þann sjöunda þessa mánaðar er haft eftir ósannindamannin- um Þorsteini Ásgeirssyni, formanni Skot- sambands íslands (STÍ), að ég hafi hafið deilur mínar „við íslenska skotmenn árið 1972“ og þeim sé enn ekki lokið. Hér eru aðeins á ferðinni enn ein ósannindin frá þessum manni. Ég hef ekki átt í neinum deilum við ís- lenska skotmenn (með einni undantekn- ingu 1981) fyrr en í ársbyrjun 1986, þegar Þorsteinn Ásgeirsson synjaði mér um skriflega staðfestingu á árangri mínum í skotfimi árið 1985 og þegar Hannes Har- aldsson, núverandi gjaldkeri STf, reif og eyðilagði skjal sem ég lánaði honum en hann hafði lofað „upp á æru og trú“ að skila til mín daginn eftir. Sú æra og trú fór fyrir lítið. Eina undantekningin var árið 1981 þegar fslandsmót í riffilskotfimi var ekki auglýst og var flýtt um einn mánuð frá því sem venja hafði verið síðan 1970. Þetta olli deilum árið 1981, en síðan ríkti friður og engar deilur allt frá 1981 til 1986. Stjórn STÍ átti upptök að báðum deilu- málum. Mér er ekki kunnugt um neinar deilur í skotíþróttinni árið 1972. Hins vegar voru deilur og kærur í skotíþróttinni á árunum 1973-1979 sem ég frétti af síðar en átti engan þátt í (ólögleg umboð á aðalfundi o.fl.). Það er kominn tími til að fjölmiðlar geri sér grein fyrir því að ekki er hægt að treysta á upplýsingar frá Þorsteini Ás- geirssyni. f grein í PRESSUNNI þann 30. des- ember síðastliðinn er veist að mér með fukyrðum og ósannindum. Þarna virðast vera á ferðinni dyggir stuðningsmenn ósannindamannsins Þorsteins Ásgeirs- sonar. f PRESSH-greininni segir að kærusaftiið sé farið að nálgast hundraðið. Þetta kalla Pressumenn „skreytni“. Hvernig stendur á því að fslandsmet í loftskammbyssu sem sett var á íslands- móti STÍ árið 1989 fékkst ekki viðurkennt af þverhausnum Þorsteini Ágeirssyni fyrr en effir að þetta met hafði verið kært til íþróttadómstóla árið 1991? Skotíþrótta- menn verða sem sagt að kæra til að fá met sín staðfest og hljóta þar með nafngiftina „þrætupúki aldarinnar“ hjá ófyrirleitnum blaðamönnum PRESSUNNAR. f PRESSU-greininni segir að ég kæri framkvæmd allra skotmóta innanlands. Ein lygin enn. Ég hef aldrei kært fram- kvæmd nokkurs móts í haglabyssu og heldur ekki í loftskammbyssu, svo dæmi séu tekin. PRESSAN hælir mér fyrir miklar rjúpnaveiðar. En það er því miður feilskot líka, því að ég hef samtals skotið tvær ijúpur á ævinni! f PRESSU-greininni segir að niður- stöður skotmála séu falsaðar. Það hef ég ekki vitað fyrr og hef aldrei sagt. Sannist það þá kemur örugglega ein kæra í við- bót. Vonandi mun ritstjóri PRESSUNN- AR ekki lengur reka einhliða áróður fyrir ósannindamanninn Þorstein Ásgeirsson. Carl J. Eiríksson." Athugasemd ritstj. Deila Carls við þá í Skotsambandinu er orðin löng eins og fram kemur í svari Carls og sjálfsagt flestum nema málsaðilum orðin óskiljanleg. PRESSAN hefur stundum hleypt henni inn á síður sínar en nú verður aftur gert hlé á því. Ummælum Carls um PRESSUNA og starfsmenn blaðsins verður ekki svarað. Ritstj. J_ykki hefur gustað mikið um menn- ingarfulltrúa fslands í London, Jakob Frímann Magnússon, undanfarna mánuði, en hann er þó síður en svo dauður úr öllum æðum, Á síðasta aðalfundi filendingafé- lagsins í London, sem haldinn- var fyrir skömrnu, fór Jakob 1 þess.á léitvið konurnar sem búsettur eru í borginni að þær stofn- uðu með sér kvenfélag, sem tæki að sér að baka flatbrauð fyrir landa sína. Máli sínu til stuðnings benti Jakob á að í Grimsby hefðu íslenskar konur tekið að sér flat- brauðsbakstur við miklar vinsældir karl- peningsins. Þær í London reyndust ekki jafnhrifnar af hugmyndinni og kynsystur þeirra í Grimsby og töldu hana tíma- skekkju, ekki síst þar sem menningarfull- trúinn beindi orðum sínum eingöngu til kvenna... T) iJónorð hafa ekki verið gerð að um- talsefni á síðum íslenskra blaða hingað til, en það er ekki á hverjum degi sem menn falla á kné á opinberum stöðum innan um fjölda manns og biðja sinnar heittelskuðu. Þetta átti sér þó stað á Ömmu Lú um ára- mótin, er Höddi nokkur bað Sollu kær- ustu sína að gangast við sér. Hún játaðist kauða og mun brúðkaupið eiga að standa þann mikla merkisdag 19. júní. Höddi og Solla eru eitt þekktasta djammparið í bænum og þykir hún í hópi best klæddu kvenna íslenskra... i Bæjarins besta, málgagni Vestfirð- inga, er sagt frá því að Islenska útvarpsfé- lagið, sem sér um rekstur Stöðvar 2 og Bylgjunnar, hafi verið ötult við að auglýsa nýja útsendingartíðni Bylgjunnar þar vestra, FM 93,7. ísfirðingar eru jafnffamt boðnir velkomnir í raðir hlustenda. Raun- in hefur hins vegar orðið sú að þeir sem fylgja fyrirmælum auglýsingarinnar heyra hvorki tóna né tal, aðeins suðið eitt, en ef stillt er á FM 97,9 heyrist hins vegar hátt Og snjallt í dagskrárgerðarmönnum Bylgj- unnar. Segir í klausunni að yfirmenn tæknideildar fslenska útvarpsfélagsins telji að hér sé um hrein og klár mistök að ræða, aldrei hafi staðið til að senda út á FM 97,9 þar sem enn væri í gildi samn- ingur milli stöðvarinnar og eigenda FM 97,9... OpiðföstucCafjs- op íaufjardapskvöCd frá kí. 18:00 ‘Bordapantanir í síma 68 96 86 FRlAR HEIMSENDIHGAR ALLAN SÓLARHRINGINN 7 DAGA VIKUNNAR PÖNTUNARSfMI: 679333 PIZZAHÚSIÐ Grensásvogl 10 - þjónar þér allan sólarhringlnn HAFNARSTRÆTI15 REYKJAVÍKSÍMI13340 □ L Há.dzyisv-et'-ðaf't/fíoð alla virka daga Súpa og brauð fylgir. Hamborgari, franskar og kokteilsósa kr. 485,- Samloka, franskar og kokteilsósa kr. 485,- Tex-Mex réttur kr. 485,- Salatdiskur kr. 485,- Réttur dagsins kr. 585,- Kaffi kr. 50,- A^ÖHCL gt&i/laHtffíoð Alla daga vikunnar Nauta-, lamba, og grísasfeikur 180 g. með grænu káli og 1000-eyjasósu, kryddsmjöri, bökuðum og frönskum kartöflum. Verð kr. 790,- Tryggvagötu 20 s: 623456 J

x

Pressan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.