Pressan - 21.04.1993, Side 17
Miðvikudagurinn 21. apríi 1993
Athugasemd
Viltu gera góð kaup?
Hefur þú skoðað WÆfUTM\
afsláttarstandinn ‘rl/ /U
í Pelsinum? afsíáttur
mf'fcin stór gþkjþrot hjá n«#*ðúr$töftwtm í fötimGfeieflír ghðarieol tapá á
)ká erfeírdá öíengísjíMiga
í PRESSUNNI
þann 15. apríl sl.
þykir mér heldur
vegið að minni per-
sónu. Blaðið birtir
þá heilsíðufrétt um
endurtekin gjaldþrot
IANKINN ÆTLAR All
BNNSAKA VlflSKiPTl
hjá
meðferðastofnunum og að
rannsókn standi fyrir dyr-
um. í þessu sambandi var
birt stór mynd af mér. Minni
mynd er svo höfð á öðrum
stað í blaðinu við mynda-
textann: „Fjármálafyllerí
kringum áfengismeðferð.“
Það má vel vera stefna
PRESSUNNAR að dylgja
með æru fólks og mannorð á
jafn ósmekklegan hátt og hér
er gert, en ég vil þó ffábiðja
mér slíkan (ó)sóma.
Það er rétt að ég hef unnið
við meðferð áfengis- og eit-
urlyfjasjúklinga síðan árið
1984 og tekið þátt í að byggja
upp slíka starfsemi á Islandi
og í Svíþjóð. Ég var m.a.
framkvæmdastjóri Sjúkra-
stöðvarinnar Vonar árið
1984 til 1986 f.h. þáverandi
eigenda Vonar. Þetta var
þremur til íjórum árum áður
en Von, í höndum nýrra eig-
enda á íslandi, og meðferð-
arstöðvar tengdar þeirri Von
í Danmörku hættu rekstri.
Af þessum málum hafði ég
augljóslega engin afskipti.
Mér er ókunnugt um að ég
eigi sök á endurteknum
gjaldþrotum og glæpsam-
legri starfsemi eða að ég
þurfí að dveljast landflótta
erlendis af þeim sökum eins
og gefið er í skyn í „frétt-
inni“.
Þá er einnig gefið í skyn að
ég hafi af óheilindum tekið
það verðmætasta úr gjald-
þrotabúi Meðferðar á íslandi
og flutt það út, þ.e. þekkingu
og viðskiptasambönd.
Það er rétt að ég veiti í dag
forstöðu afeitrunarsjúkra-
húsi og meðferðarstöð hér í
Svíþjóð. Það starf mitt bygg-
ist að sjálfsögðu á eigin
þekkingu, áratuga reynslu og
persónulegum samböndum
en ekki óskilgreindu þýfi úr
íslensku þrotabúi eins og
kemur fram íblaðinu.
Að lokum þetta. Ég sé ekki
ástæðu til að tíunda einka-
hagi mína og fjármál í
PRESSUNNI, en ég sé mig
þó knúinn til að leiðrétta
þann fréttaflutning blaðsins
að ég hafi farið gjaldþrota af
landi brott. Mér er ekki
kunnugt um að bú mitt hafi
verið tekið til skipta, en það
finnst kannski áreiðanlegri
heimild en ég um það.
20. apríl 1993.
Skúli Thoroddsen i Sviþjóð.
Athugasemd við
athugasemd
Eins og lesa má af grein
PRESSUNNAR og fyrirsögn
fjallaði greinin að megni tii
um endurtekin gjaldþrot
meðferðarstöðva og fyrir-
hugaða rannsókn á þeim.
Skúli hafði augljóslega mikil
afskipti af þeim málum og
beinist rannsóknin að sjálf-
sögðu að athöfnum hans
eins og annarra sem þar áttu
hlut að máli. Upplýsingar
um afskipti hans af þessu máli eru með-
al annars komnar frá fyrrverandi við-
skiptafélögum hans auk firmaskrán-
inga.
Fullyrðingar um gjaldþrot Skúla eru
hins vegar rangar og er hann beðinn vel-
virðingar á þeim.
Það sjá allir sem lesa greinina að hún
fjallar fyrst og ffemst um fjármálaóreiðu
í kringum þessar tilteknu meðferðar-
stofnanir, sem lyktaði með stórum
gjaldþrotum og fjárhagstjóni fjölda
manna og fyrirtækja. Á því virðist Skúli
ekki hafa neinar skýringar.
Ritstj.
DÆMI UM ÞESSA VIKU:
Minkapelskápur og jakkar,
pelsfóðurkápur og jakkar,
kasmírkápur, ullarkápur,
leðurkápur og jakkar.
Greiðslu-
kjör við
allra hæfi
Fallegur fatnaður frá
PELSINNrkl
Kirkjuhvoli ■ sími 20160
SMAKKAÐU „ZJAKK" SUKKULAÐI
Vantar þig rafmagn í
sumarbús taðinn ?
Tímabundinn afsláttur
tengigjalda 1993
Rafmagnsveitur ríkisins hafa ákvcóih ah veita tímahundinn afslátt frá Cijaldskrá um
tengigjöld í sumarhúsahverfum áriö 1993. Afsláttur þessi er byggöur á því aö hægt sé í
samvinnu viö umsækjendur aö ná fram meiri liagkvæmni en ella viö heimtaugalagnir.
F.ftirfarandi meginskilyröi eru fvrir atslættinum:
1. Afsláttur er aöeins veittur ef um er aö ræöa sumarhúsahverfi sem þegar hefur veriö
rafvætt aö einhverju leyti. Afsláttur er þó einnig veittur í nýjum hverfum aö upp-
fylltum skilmálum gjaldskrár, m.a. um lágmarksfjölda viö upphaf rafvæöingar viö-
komandi hverfis.
2. Umsókn heimtaugar þarf aö berast fyrir 1. maí 199B.
3. Gengiö skal frá greiöslu fyrir 25. maí 1993.
4. Verktími (dagsetning) veröi ákveöinn í samráöi viö umsækjenda og Rafmagnsveitn-
anna. Umsækjendur tilnefni einn tengiliö í hverju tilviki.
5. Umsækjendur munu sjá tii þess aö nauösynlegum frágangi innan lóöarmarka, sam-
kvæmt skilmálum í gildandi gjaldskrá, sé lokiö á réttum tíma, sbr. liö 4.
6. Afsláttur þessi gildir til haustsins 1993, meöan aöstæöur vegna veöurfars o.fl. leyfa
aö mati Rafmagnsveitnanna. Rafmagnsveiturnar munu yfirfara umsóknir og gefa
svörum afslátt fyrir 20. maí 1993.
Þessi afsláttur nemur 19,8%, þannig aö grunngjald lækkar úr 162.000 kr. (án vsk) í
130.000 kr. (án vsk).
Þeim aöilum sem eiga óafgreiddar umsóknir frá fyrra ári, er bent á aö hafa samband
viö Rafmagnsveiturnar hiö fyrsta.
31. mars 1993
RAFMAGNSVEITUR
RÍKJSINS
lifandiafl
ZANGKSTER
SURACTIF
EFTIR 40 ER ÞAÐ BESTA
EKKI LENGUR MUNAÐUR
AAeð aldrinum lekur húðin nóltúrulegum breyfingum.
Henni hætlir til að þorna, verða þreytuleg og fínar
hrukkur fara að myndast. Húðin þarfnast því
sérstakrar umhirðu sem tekur ó van'damálum
þroskaðrar húðar, hverju fyrir sig, og meðhöndlar
þau af vísindalegri nókvæmni;
1ANCASTER SURACTIF
Mjög virk efni smjúga inn í öll lög húðarinnar.
ÁRANGURINN: HÚÐIN VERÐUR UNGLEG OG AÐLAÐANDI - ÞANNIG LÍÐUR ÞÉR BEST
HVERS VEGNA AÐ SÆTTAST Á MINNA?
5 einfaldar leiðir
til að afla aukatekna
(eðastunda fulla vinnu
i Kolaportinu)
Hreinsa út úr fataskápnum og kompunni og selja
íKolaportinu.
Á síðastliðnu ári voru gerðar nokkrar kannanir sem
sýndu ótvírætt að sölufólk þénaðí að meðaltali 30.000.-
krónur á dag með sölu á fatnaðí og alls-
konar kompudóti. Helgin öll getur pví reynst
fjölskyldum, vinnufélögum, félagasamtökum,
saumakiúbbum og öðrum höpum mjög drjúg tekjulind.
Bjóða innflytjendum, verslunum og framleið-
endum að selja gamla lagera I umboðssölu í
Kolaportinu.
Flest bessara fyrirtækja, sem skipta búsundum, eiga
gamla lagara at allskyns varningi sem þau vílja mjög
gjarnan koma í sölu. Fyrir duglega seljendur er þetta
yfirleitt áhættuiaus atvinna og tekjur oft mjög góðar.
Ath! Að meðaltali koma um 20 þúsund gestir í Kolaportið
um hverja helgi.
Kaupa gamla lagera af fyrirtækjum og selja I
Kolaportinu.
Slíkt er oft auglýst í blöðum, t.d. i smáauglýsingum DV.
Þetta getur haft nokkra áhættu í för með sér, en á móti
kemur að þá er reiknað með mun meiri álagningu, og því
jafnframt meiri gróðavon.
Búa til eða framleiða vöru til að selja I
Kolaportinu.
Þeir sem hafa hitt á réttu hlutina hafa gert hað mjög
gott í Kolaportinu og stunda verslun með vörur sinar
jafnvel árið um kring.
Flytja inn vörur til að selja beint til neytenda í
Kolaportinu
Kolaportið aðstoðar gjarnan fólk við að koma sér af stað
með slíka starfsemi, en einnig er auðvelt að fara á
vörusýningar erlendis og finna sniðugar vörur. Vanda
þarf vöruvalið en margir hafa reynt þetta með
geysigóðum árangri og hafa góðar mánaðartekjur af
tveggja daga vinnuviku sinni í Kolaportinu.
- Til athugunar fyrir seljendur í Kolaportinu!
Þeir sem selja notaða muni eru ekki skattskyidír. Þeir sem selja
ónotaðan varning eru ekki virðisaukaskattskyidir nema þeir selji fyrir
meira en 185.000 krónur á ári.
í Kolaportinu getur hver sem er selt hvað sem er innan ramma laga
og velsæmis
Ef hú hefur vilja og kraft til að bjarga þér skaltu
endilega hafa samband við skrifstofu
Kolaportsins sem allra fyrst í síma 625030 - og
Kolaportið gefur hér góð ráð!
imaðia!