Pressan - 21.04.1993, Blaðsíða 21
SVART/HVÍTUR HEIMUR
Miðvikudagurinn 21. apríl 1993
PJRESSAN 21
\
<
I
\
<
<
<
<
r~
Klaus Eichner
„Höfuð hneigja í djúpið"
— leiknum er lokið.
Bonn. Klaus Eichner, aðstoðarmaður
Schiitts í Deild 9, segir Austur-Þjóðverja
hafa vitað raunverulegt nafn mannsins,
vitað hverjir útsendarar hans voru og
hafa notað þá gegn honum. Til að
ávinna sér traust Thielemanns urðu
Þjóðverjarnir að láta hann hafa alvöru-
upplýsingar og það var erfítt að plata
CIA-mennina, segir Eichner. Galdurinn
fólst í því að fá meiri og betri leyndarmál
til baka. Það segir Eichner hafa tekist, en
Thielemann er sestur í helgan stein. CIA
vill ekkert segja um hvort maður með
þessu nafni hafi yfirleitt verið til.
Útlendir njósnarar á borð við Thiele-
mann urðu Schútt og öðrum njósnafor-
stjórum tilefni deilna við pólitíska yfir-
menn sína, sérstaklega yfirmann Stasi,
Erich Mieike. Hann vildi endilega
handtaka sem flesta erlenda njósnara til
að sýna fram á hversu vel öryggislög-
reglan stóð sig. Þetta gátu Schútt og koll-
egar hans ekki sætt sig við. Þeir vildu
frekar fylgjast með njósnurum en hand-
taka þá.
„Um leið og við vissum að þeir voru
njósnarar, þá voru þeir ekki lengur
hættulegir,“ segir Schútt. „Þegar við
fundum til dæmis gagnnjósnara höfð-
um við engan áhuga á að draga þá fyrir
Kommúnistaflokldnn. Við iylgdumst
bara með þeim.“ Þessari stefnu reiddist
Mielke mjög, en Schútt segir Wolf hafa
verið sér sammála.
Litlu andarungarnir
Markus Wolf sagði af sér árið 1987 „af
stjórnmálaástæðum". Þá voru þegar
farnar að myndast gjár á milli njósnar-
anna og pólitískra leiðtoga Austur-
Þýskalands, en fljódega hrundi kerfið og
þar með lífsstarf þessara manna.
„Kvöldið sem þeir handtóku Klaus Kur-
on drakk ég mig undir borðið,“ segir
Klaus Eichner. Wolf og Schútt voru
handteknir og nokkrir liðsmenn HVA
frömdu sjálfsmorð. Eichner tók hins
vegar að sér ásamt öðrum að eyðileggja
gögn HVA og láta starfsmenn þess vita
að stofnunin væri hætt störfum. Það
gerðu þeir að kvöldi 23. mars 1990 með
því að senda út yfir heimsbyggðina
þýsku útgáfuna af „Litlu andarungun-
um“.
Yngri HVA-mennirnir eru smám
saman að aðlagast nýju lífi við nýjar að-
stæður, en Eichner hefúr stofnað sam-
tök til að aðstoða fyrrum HVA-menn
sem eiga í fjárhagserfiðleikum og til að
halda uppi merki stofnunarinnar.
Bandarískir embættismenn segja Eic-
hner og félaga líka staðráðna í að fletta
ofan af erlendum njósnurum í Þýska-
landi og ofsækja þá sem yfirheyra fýrr-
um starfsmenn HVA.
Schútt hefúr ekki gerst félagi í þessum
samtökum. Hann var sakfelldur fyrir
landráð árið 1991 (án þess að hljóta
fangelsisdóm) og verður hugsanlega
dreginn aftur fýrir dóm, en hann lætur
heldur engan bilbug á sér finna.
„Bitur reynsla mín af lýðræðinu hefúr
ekki sannfært mig um að andstæðingar
mínir hafi á réttu að standa. Ég geri eng-
ar málamiðlanir. Ég gef ekkert eftir. Eg
læt ekkert undan,“ segir hann. „Við
gerðum skyldu okkar við föðurland
okkar, ekkert meira og ekkert minna —
fyrir fullvalda land okkar, Austur-
Þýskaland. Og ég hef á tilfinningunni að
sumt fólk og rfkisstjórnir vilji nú láta
eins og við höfúm aldrei haft þetta fúll-
veldi. Einu sinni viðurkenndi heims-
byggðin öll okkur, en þeir eru að út-
breiða þá goðsögn að við höfúm aldrei
verið til.“
(Byggt á U.S. News & World Report)
Hvítingjar fótum troðnir af svörtum félöqum sínum
Olnbogabörn Afríku
Meðal svartra íAfríku gætir mikilla fordóma í garð
hvítingja úrþeirra röðum og erþeim mjög mis-
munað, enda litið á þá sem úrhrök þjóðfélagsins.
Albínóar hafa nú stofnað með sér samtök, er hafa
það hlutverk að berjast fyrir bættum hag þeirra.
Víða er pottur brotinn í mann-
réttindamálum í Aff íku og margir
þegnar landsins eru órétti beittir.
Fáum blandast þó hugur um að
hvítingjar eru hornrekur þjóðfé-
lagsins. Hvítingjar eru þeir nefnd-
ir, sem vantar að nokkru eða öllu
leyti litarefni í hörund, hár og
augu. Meðal Afríkubúa er að
finna tugi þúsunda hvítingja, en
svartir eiga langtum frekar á
hættu að fæðast albínóar en hvítir
og eru líkurnar fimm sinnum
meiri. Hvítingjar hafa aldrei setið
við sama borð og svartir í Afríku,
sem hafa ofsótt þá og mismunað
þeim í öllu ffá ómunatíð. Miklar
vonir eru nú bundnar við að hag-
ur þeirra taki brátt að vænkast,
með tilkomu samtaka hvítingja í
Affíku, sem nýverið voru stofnuð
og er ætlað að tala máli olnboga-
barnanna.
Fórnað við trúarlegar
athafnir
Frá ómunatíð hafa Afffkubúar
álitið hvítingja búa yfir yfirnátt-
úrulegum kröftum og fyrr á öld-
um áttu þeir sér ekki viðreisnar
von í afrísku samfélagi. Innan
margra ættbálka voru albínóar
teknir af lífi við fæðingu, eða þá
að þeim var fómað við trúarlegar
athafnir eins og víða tíðkaðist. Þá
voru hvítingjar vrnsæl fómarlömb
í stríði: ýmist voru þeir sendir
fyrstir fram gegn óvinaflokkum
eða þá að lík þeirra
voru notuð til að
hlaða varnarveggi.
Gamalt orðatiltæki,
sem enn er haft í
heiðri í Mah, ber því
vitni að enn þann
dag í dag er ekki bor-
in mikil virðing fyrir
hvítingjum: „Skyrptu
á jörðina, þegar þú
mætir boðberum
ólukkunnar“. Skólabörn í Mali
Andúð og fordóm- Albínóar verða mjög oft fyrir aðkasti
ar Afríkubúa í garð bekkjarfélaganna.
hvítingja birtast í
ýmsum myndum. Til dæmis er
algengt að skólar neiti að taka við
nemendum úr röðum hvítingja
og þeir sem eru svo lánsamir að
komast að verða mjög oft fyrir að-
kasti skólafélaganna. Þá reynist
mörgum erfitt að útvega sér
vinnu, enda ganga nánast allir
aðrir fyrir. Því bíður margra hvít-
ingja ekkert annað en gatan þar
sem þen reyna að draga ffam lífið
með betli. Þeir sem þó verða hvað
verst úti í Afríku, og er hvað hætt-
ast við að „glata ærunni", eru
konurnar. í mörgum tilfellum
liggja mæður albínóabarna, sem
sjálfar er svartar á hörund, ævi-
langt undir grun um að hafa svik-
ið eiginmanninn og lagst með
hvítum karlmanni.
Svartir hæðast að hvítingjum
hvar sem þeir koma og kalía þá
„hvíta manninn". En það er ekki
alltaf sem menn láta sér nægja
fúkyrðin ein. Þannig þurfa hvít-
ingjar oft að þola ofbeldi af hendi
svartra samborgara sinna og eru
fórnarlömbin ekkert síður börn
en fullorðnir. Oft verða þeir sem
minnst mega sín fyrir barðinu á
misindismönnum og ekki er langt
síðan svartur maður réðst á fjög-
urra ára stúlkubarn í Soweto, mis-
þyrmdi því og kallaði það ónöfn-
um eins og „hvíti djöfúlT.
SalifKeita aðstoðar
Einn þekktasti hvítingi Afríku
er söngvarinn og hljómlistarmað-
urinn Salif Keita, sem er meðal
annars okkur íslendingum að
góðu kunnur. Keita hefur látið
baráttumál hvítingja mjög til sín
taka og gripið hvert opinbert
tækifæri til að vekja athygli á því
misrétti sem þeir eru beittir í Aff-
íku. Keita veit betur en margur
annar hvernig það er að eiga að
vera svartur en fæðast hvítur í
Afríku. Faðir hans flæmdi eigin-
konu sína á brott frá Mali með
soninn nýfæddan, enda blygðað-
ist hann sín fyrir hvítt barnið og
fúllyrti að það væri ekki sitt.
Undir öllum venjulegum kring-
umstæðum hefðu það orðið örlög
Salifs Keita, eins og svo margra
annarra albínóa í Afríku, að vesl-
ast upp sem betlari. Fyrir hreina
tilviljun komst hann þó í kynni
við hljómlistarmenn sem upp-
götvuðu tónlistarhæfileika og
óvenjulega rödd drengsins. Tón-
listarmennirnir réðu Keita til sín
og gerðist hann söngvari og höfúð
hljómsveitar þeirra. Enda þótt
Keita sé nú orðinn heimsfrægur
hefur hann ekki gleymt hornrek-
um Aff íku og notar hvert tækifæri
til að vekja athygli stjórnvalda á
bágri stöðu hvítingja í heimalandi
sínu.
Keita er fyrirmynd fjölmargra
kúgaðra og niðurbældra landa
SÖNGVARINN SALIF KEITA
Berst fyrir bættum hag hvítingja.
sinna og, það sem mest er um
vert, hefúr gefið þeim vön. Hann
hefúr hvatt landa sína til að gefast
ekki upp og þó umfram allt láta
sigrast á sjálfsvorkunninni, sem
haldi mörgum í heljargreipum að
ástæðulausu. Söngvarinn hefur
fengið miklu áorkað og víst er að
það er ekki aðeins innan Afríku
sem honum hefur tekist að opna
augu almennings og stjórnvalda.
Víða í Evrópu eru menn núna
fyrst að vakna til vitundar um hið
dulda vandamál Affíkubúa, enda
er það raunin að fjölmargir höfðu
ekki minnstu hugmynd um að til
væru „hvítir negrar", fyrr en þeir
sáu Salif Keita.
Benetton fordæmt
Kennslukonan Nomasonto
Mazibuko, ein fjölmargra hvít-
ingja í Jóhannesarborg, var búin
að fá sig fullsadda á þeirri kúgun
og niðurlægingu sem albínóar í
Afríku hafa mátt þola í gegnum
aldirnar. Því tók hún sig til nýver-
ið og stofnaði Samtök albínóa í
Afríku, „Soweto Albinism Soci-
ety“, sem ætlað er það hlutverk að
berjast fyrir bættum hag hvítingja,
svo þeir fái setið við sama borð og
svartir þegnar landsins. Mazibuko
þekkir vandann mætavel. Hún á
fjögur börn sem öll eru svört á
hörund, en átti sjálf níu systkini,
fjögur hvít og fimm svört.
Verkefnin sem bíða Samfaka
hvítingja eru ærin. Þeirra á meðal
er auglýsing ffá ítalska fatafram-
leiðandanum Benetton, sem vakið
hefur mikla úlfúð meðal albínóa.
Auglýsingin þykir fordómafúll, en
hún sýnir hálfnakta hvítingja-
stúlku frá Afríku, umkringda
svörtum gónandi börnum. Mazu-
buko tókst að hafa uppi á stúlk-
unni og hefur krafist þess að
Benetton- fýrirtækið bæti henni
upp álitshnekkinn með því að sjá
henni fyrir menntun. Umrædd
auglýsing hefúr ekki síst farið fýrir
brjóstið á söngvaranum Salif
Keita, sem tók sig til á hljómleik-
um sem hann hélt nýverið í
Ólympíuhöllinni í París og reif
veggspjaldið í tætlur fýrir fullu
húsi.
En það er ekki aðeins álits-
hnekkirinn sem er vandamál hvít-
ingja. Auk fýrirlitningar samfé-
lagsins eiga albínóar við fötlun að
stríða sem hindrar þá í daglegu
lífi. Flestir hvítingjar sjá illa af
völdum litningaskortsins og mjög
margir látast fýrir aldur fram af
völdum krabbameins. Vegna
sjóndeprunnar, en þó fýrst og
fremst þess hve húð þeirra þolir
illa sólarljósið, geta hvítingjar ekki
unnið úti á bersvæði svo sem á
ökrum landsins og hafa því minni
atvinnumöguleika en aðrir. Eitt
aðalbaráttumál samtaka hvítingja
Afríku mun því verða að hlú að
heilsu þeirra, en það er unnt með
nægum hlífðarfatnaði, sólvarnar-
smyrslum og síðast en ekki síst
með því að útvega þeim atvinnu
innandyra.
Mitterrand frjálslegur
Lesendur franska karlatímaritsins Lui
rak í rogastans á dögunum, þegar
Francois Mitterrand forsætisráðherra
birtist þeim á forsíðu klæddur stuttbux-
um og uppháum reimuðum skóm sam-
kvæmt„nýjustu tisku". Frakkar hafa átt
allt öðru að venjast afforsætisráðherr-
anum, sem aldrei lætur góma sig öðru-
vísi en uppábúinn, í hefðbundnum
jakkafötum og með bindi. I Frakklandi
héldu menn í fyrstu að Mitterrand hefði
skyndilega ákveðið að gerast frjálslegur
í klæðaburði og hygðist með því freista
þess að bæta ímyndina. Við nánari eftir-
grennslan kom þó í Ijós, að blaðamenn
höfðu aðeins gefið ímyndunaraflinu
lausan tauminn. Myndin var vandlega
samansett á ritstjórn tímaritsins og að-
eins andlitið var í raun og veru forsætis-
ráðherrans.
Þau valdamestu
í Hollywood
Bandaríska tímaritið Premiere birti ný-
lega árlegan lista sinn yfir 100 valda-
mestu menn og konur í Hollywood, þ.e.
þá sem mestu ráða í bandarískri kvik-
myndagerð.
Með því er átt
við þá fram-
leiðendur,
leikstjóra og
leikara sem
stjórna því
með einum
eða öðrum
hætti hvaða
myndir eru
framleiddar,
hverjir leik-
stjóranna fá
að spreyta sig
og hvaða
leikarar JODIE FOSTER
hreppa hlut- Úr 52. í 34. sæti.
verkin. Það
eru vitanlega fjölmiðlakóngarnir sem
verma efstu sæti valdalistans; Bob Daly
og Terry Semel, stjórnarmenn Warner
Bros., i 1. sæti; Michael Eisner, stjórnar-
maður Walt Disney, í2. og Rupert
Murdoch /' 5. sæti.
Margir Hollywoodmanna eiga árang-
ursríkt ár að baki og hafa færst uppávið
á listanum frá því í fyrra, sumir með
stóru stökki. Þeirra á meðal er Kevin
Costner sem flyst úr 17. sæti í 7.; Arnold
Schwarzenegger úr 10.18.; Steven Spiel-
berg úr 16. í 73; Tom Cruise úr 23. í 18;
Mel Gibson úr 37. í23; Jodie Foster skýst
úr 52. í34. og Robert Redford sömuleið-
is úr 75. i 43.; Francis Coppola hoppar úr
62. sæti í55. og Sylvester Stallone úr 77.
sætiíöl.Þá má nefna Clint Eastwood í
42. sæti, en hann hefur ekki verið talinn
með áður, og i54. sæti nýstirnið Sharon
Stone, sem er nú í fyrsta sinn á listanum.
En það hefur ekki öllum í Hollywood
vegnað jafnvel og margir hafa hrapað
niður valdalistann. Meðal þeirra er Julia “
Roberts sem dettur úr 32. sæti í 39;
Harrison Ford úr34. í 42.; Michael Dou-
glas úr31.í 49.; Eddie Murphy snarfellur
úr24. niður í 58. og Warren Beatty
sömuleiðis úr 40. sæti í 65.; Sidney Poll-
ack fellur úr 73. í 77. og, ótrúlegt en satt,
Spike Lee ferúr71.í81. sæti. A botni
listans sitja tvö stórstirni sem þó aldrei
áður hafa verið talin með; sjálfur Steph-
en King /'því 97. og Whitney Houston /'
100. sætinu.