Pressan - 21.04.1993, Síða 27
SKALD, LISTAMENN & AÐRIR TRUÐAR
Miðvikudagurinn 21. apríl 1993
PRESSAN 2T~
NIGEL
KENNEDY
MÆLIR EITUR-
LYFJUM BÓT
Sem kunnugt er leikur
fiðlusnillingurinn Nigel
Kennedy á tónleikum á
Listahátíð Hafnarfjarð-
ar i sumar, en hann hef-
ur að undanförnu verið
harðlega gagnrýndur í
bresku pressunni fyrir
að lýsa því yfir að eitur-
lyfjanotkun auki hæfi-
leika manna til að
semja tónlist. Hefur
hann haldið þvi fram
að fjölmörgum tónlist-
armönnum hefði ekki
tekist að semja lög ef
þeir hefðu ekki verið
undir áhrifum sterkra
lyfja, en með því móti
hefðu þeir öðlast dýpri
tónlistarlega skynjun.
Að vonum líta foreldra-
félög og aðrirsem láta
sig málið varða yfirlýs-
ingarKennedys mjög
alvarlegum augum og
telja hættu á að ung-
lingar landsins láti
glepjast afhugmynd-
um hans. Svo þung-
vægtþykir málið að
breska blaðið Sunday
Mail gerði því skil í leið-
ara fyrir skömmu. Þar
var bent á að margir
þeirra sem Kennedy
hefði nefnt hefðu látist
fyrir aldur fram afvöld-
um ofstórs skammts af
eiturlyfjum, til dæmis
Jimi Hendrix, og einnig
var vitnað í virtan pró-
fessor í lyfjafræði sem
sagði að Kennedy hefði
einfaldlega rangt fyrir
sér.
Enn breytirTunglið um svip
SKÁLD S MÁLARI
TAKA TUNGUÐ
Eitt af því fallvaltasta í ís-
lenskum raunveruleika eru
skemmtistaðirnir. Þeir virðast
sumir skipta um svip á viku-
ffesti og er Tunglið við Lækjar-
götu gott dæmi. Síðast veittu
nokkrir gleðipinnar staðnum
forsjá og buðu upp á leður,
diskó og léttklædd ungmenni í
búrum, en nú hafa tekið við
tveir kunnir athafnamenn, Ari
Gísli Bragason rithöfundur og
Guðjón Bjarnason myndlist-
armaður (sem báðust undan að
nafna þeirra yrði getið — sögðu
að það skipti engu máli). Þeir
hyggjast þenja staðinn eins
mikið út og þeir geta; bjóða upp
á dagskrá frá fimmtudegi til
sunnudagskvölds og taka púls-
inn á tíðarandanum hverju
sinni.
Á fimmtudögum verða ung-
lingaböll með hipphoppi, pizz-
um og rappi en á föstudags-
kvöldum halda hljómsveitir
tónleika. Þegar hafa allar helstu
hljómsveitir landsins bókað sig,
svo sumarið verður líflegt. Með
fullri virðingu fyrir öðrum
skemmtistöðum er Tunglið al-
besti tónleikasalur borgarinnar.
Ýmsar breytingar og endurbæt-
ur hafa verið gerðar til að sviðið
fái að njóta sín og hljómburður
verði sem bestur.
Tunglið heldur áffam á laug-
ardagskvöldum með diskóteki
og óvæntum uppákomum en á
sunnudögum er stefht að því að
ná pöbbastemmningu með lif-
andi djass- eða blústónlist, jafh-
vel halda ljóðakvöld eða sýna
nýjar stuttmyndir.
UÐJON BJARNASON &
ARI gísli Bragason
Nýir skemmtana-
stjórar í Tunglinu,
SNIGLABANDIÐ Erað gefa útplötu og segjast meðlimir geta tekist á við tónlistarstaf-
rófið eins og það leggur sig.
Meira en iónlisiðrtrúðar
Sniglabandið síkáta er að
senda frá s'ér nýja plötu í dag
sem ber nafnið .. .þetta stóra
svarta. Platan sýnir að sögn
hljómsveitarmeðlima tónlist-
arstafrófið eins og það leggur
sig, enda eru þeir eru ákveðnir
í að sanna að þeir geti tekist á
við hvað sem er.
„Platan endurspeglar fjöl-
breytnina sem hljómsveitar-
meðlimir ráða yfir og henni er
ætlað að sýna að við erum
meira en tónlistartrúðar,“ segja
þeir Pálmi Sigurhjartarson pí-
anóleikari og Friðþjófur Sig-
urðsson, bassaplokkari Snigla-
bandsins. „Við getum tekist á
við hvað sem er.“
Að venju er stutt í grínið hjá
bandinu, enda væri annað í
hæsta máta óeðlilegt. Til marks
um það að drengirnir eru sam-
ir við sig má skoða tida nokk-
urra laga; Hægðatregðublús,
Geðræn sveifla, Á nálum og
Brennivín er bull. Það síðast-
talda er reyndar opnunarlag
plötunnar sungið af Lögreglu-
kór Reykjavíkur. Fleiri gestir
lögðu hönd á plóginn við gerð
plötunnar og skal þar ffægast-
an nefha hinn kunna básúnu-
leikara Frank Lacey.
Til að fylgja útgáfunni eftir
hyggst hljómsveitin fara í
hljómleikaför um landið og
hefja leik sinn á Akureyri. „Það
er eitthvað alveg óútskýranlega
sérstakt við þann bæ,“ segja
þeir félagar aðspurðir um
hvers vegna í ósöpunum þeir
byrja ekki í höfuðborginni eins
og venja er. „Landsbyggðin er
alltof oft skilin út undan og því
ákváðum við að hefja tónleika-
haldið á óhefðbundnum stað.“
Tónleikaferðina nú segja þeir
vera forsmekkinn að því sem
koma skal, en (að eigin sögn)
eru þeir bókaðir langt fram á
sumarið.
Enn hefur verið blásið í glæðurnar í goðsögninni um Marilyn
Monroe. Bók Donalds Spoto, sem heitir því frumlega nafni Mari-
lyn Monroe, hefur vakið nokkra athygli. Donald þessi heldur þvi
meðal annars fram að stólpípa hafi átt stóra sök á dauða gyðj-
unnar.
Fyrir þá sem ekki nenna að lesa bókina eða eiga ekki fyrir henni
birtist hér útdráttur.
★ Aldur Marilyn þegar hún giftist fyrst: 16
★ Aldur móður Marilyn þegar hún giftist fyrst: 14
★ Fjöldi giftinga Marilyn (og jafnframt fjöldi giftinga móður
hennar): 3
★ Fjöldi manna sem geta hafa verið feður Marilyn: 5
★ Fjöldi tímarita sem birtu myndir afMarilyn fyrsta árið hennar
í módelbransanum: 33
★ Upphæðin sem Marilyn fékk i vikulaun samkvæmt fyrsta
samningi sínum við Fox-verið: 4.S00 krónur.
★ Upphæðin sem hún fékk greidda fyrir leik sinn í myndinni
Herramenn kjósa fremur Ijóskur (Gentle-
men Prefer Blondes): 900.000 krónur.
★ Fjöldi mynda sem hún
lék í fyrstu átta árin í
Hoiiywood: 24
★ Fjöldi
mynda sem
hún lék i sið-
ustu átta árin i
Hollywood: S
★ Fjöldi skipta
sem höfundur
bókarinnar telur
að hún hafi sam-
rekkt með John F.
Kennedy forseta: 1
★ Fjöldi skipta
sem höfundur bók-
arinnar telur að
hún hafi samrekkt
með Robert Kenne-
dy dómsmálaráð-
herra: 0
Popp
M IÐVI KU DAGU R 1 N N1 FÖSTUDAGURINN |
2 1 . APRÍL 23. APRÍL
• Jötunuxarnir ásamt
gestahljómsveitinni Bone
China negla Plúsinn. Blautt
leður ákaflega vinsælt og
þyrstir menn hjartanlega vel-
komnir.
• Silfurtónar kynna
splunkunýtt dansprógramm
á Tveimur vinum. Bandið hef-
urfengið Birgi Bragason til
liðs við sig, sem er sprelllif-
andi enda þótt Sálin hafi lagt
upp laupana.
• Guðmundur Rúnar,
trúbador með meiru, horfir á
eftir síðasta vetrardegi með
gestum Fógetans.
• Kandís sykursætur og í
hörkuformi á Gauki á Stöng.
• Nýdönsk í fullu fjöri á
Hressó. Hvað er hægt að
biðja um meira?
• Paula, sú þrælhressa kona,
skemmtir gestum Café Ro-
mance með bröndurum,
söng og píanóieik.
• SSSól á Hótel fslandi síð-
asta dag vetrar.
SUMARDAGURINN
FYRSTI
• Borgardætur, splunkunýtt
söngtríó skipað þeim Andreu
Gylfadóttur, Ellen Kristjáns-
dótturog Berglindi Björk
Jónasdóttur, frumsýna sig á
Hótel Borg.Tónlistin öll í
anda þeirra Andrewssystra,
en undirleikurinn er Setuliðs-
ins með Eyþór Gunnarsson
fremstan íflokki.
• Elvis-karaokekeppni,
þessi sem fyrirhuguð var í
síðustu viku, loks haldin á
Tveimur vinum. Hver verður
Elvis (slands? Til að fá úr því
skorið duga ekki færri en
tveir stjórnendur, en það
ábyrgðarhlutverk verður í
höndum þeirra Radíus- og
Limbó-manna, Steins Ár-
manns og Davíðs Þórs.
• Guðmundur Rúnar trúba-
dor nú í sumarskapi á Fóget-
anum.
• Svartur pipar hristir upp í
liðinuáGaukiáStöng.
• Paula segir brandara á Ca-
fé Romance og syngur þess á
milli.
• Bogomil Font & Milljóna-
mæringarnir hefja sumar-
dagskrá Tveggja vina með
sólartónlist, sveiflu og sjóð-
heitri baðstrandasömbu. Allir
í Hawaii-skyrtuna, vel strauj-
aða.
• Hermann Ingi trúbador,
kominn alla leið frá Vest-
mannaeyjum til að skemmta
á Fógetanum.
• Svartur pipar aftur og ný-
búinn á Gauki á Stöng.
LAUGAR DAG U R I N N
24. APRIL
• SSSól, með Helga Björns-
son gjörsamlega á útopnu,
skín glatt á Tveimur vinum.
Pælið í fatasmekk söngvar-
ans, ekki seinna vænna.
• Hermann Ingi, fyrrum
Eyjapeyi þenur raddböndin
á Fógetanum.
• Paula á Café Romance,
óbreytt frá því sem áður var.
• Geirmundur Valtýsson í
Syngjandi sveiflu á Hótel ís-
landi.
Sveitaböll
MIÐVIKUDAGURINNI
21 . APRIL
• Hótel Selfoss kveður vet-
urinn með stæl og fær
Todmobile til liðs við sig. All-
ir austur fyrir fjall að hitta
Regínu.
• Hótel Akranes fær Svart-
an pipar til að hrista slenið af
mönnum þennan síðasta dag
vetrar. Ekki veitir víst af.
• Sjallinn á Akureyri
skemmtir mönnum norðan
heiða með Evítu og hinni
ókrýndu stuðtúttu Geir-
mundi Valtýssyni.
FOSTUDAGURINN
23. APRÍL
• Þotan í Keflavík fær heið-
ursfólkið í Todmobile til að
troða upp. Sannkölluð sum-
arstemmning. Þó ekki stutt-
buxnafæri.
• Sjallinn á Akureyri fær
Skriðjöklana til að rífa upp
fjörið í höfuðstaðnum.
LAUGAR DAG U R I N N I
17. APRlL
• Hótel Akranes fær Herra-
menn til að skemmta Skaga-
mönnum. Eða öfugt.
• Sjallinn á Akureyri sýnir
Evítu (síðasta sinn. Band
kvöldsins er Nýdönsk, en í
kjallaranum troða upp þeir
Magnús Eiríksson og Pálmi
Gunnarsson.