Pressan - 01.07.1993, Page 27
Fimmtudagurinn 1. júlí 1993
UMHVERflS
umhverfisráðuneytið
Fá port í Reykjavík eru jafnskrautleg og þar sem bílastæði ráðherra og starfsmanna umhverfisráðuneytisins eru í Vonarstræti gegnt Iðnó.
Einhvern veginn hefði maður ímyndað sér að fyrír utan ráðuneyti umhverfismála væru hin snyrtilegustu bílastæði, en svo er alls ekki.
Þau eru á hinn bóginn frumlegri en gengur og gerist. Líklegt má telja að gamli hippinn Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra staldri stundum við
í bílnum sínum og virði fyrir sér veggjakrotið, en í veggjakroti er oft ýmislegt djúphugsað að finna.
z
S
tc
S
Hinarýi
má lesa
Eltíhvai
IVanlT?" ^ Össurar.
,, fa,n aS' James Brow»- Slaughter og t
farló að kvarnast út úr veggiunum
IHASTÆÐI
TÁDHEftRA
Góði bjórinn með
skrytna nafnið
Bjór helgarinnar að þessu sinni heitir
hvorki meira né minna en Oranjeboom og á
nafn hans og samsetning ættir að rekja til
baráttu konungssinna og borgarastéttarinnar
í Hollandi, sem of langt mál yrði að rekja hér.
Þar sem bjórinn heitir eins skrýtnu nafhi og
Oranjeboom var við hæfi að tappa honum á
ekki síður skrýtnar flöskur. Mörgum finnst
ennffemur nafn bjórsins óþjált. Hefur hann
því fengið á sig viðurnefnið stubbur; ýmist
„litli stubbur“ eða „stóri stubbur“. Hann
fæst í hinum hefðbundnu 330 ml og í 500
ml. Oranjeboom er með afbrigðum ljúfur
bjór með ógleymanlegu eftirbragði. Rúm-
mál alkóhóls er fimm prósent og því óhætt
að bera hann upp að vitum sér snemma
morguns. Vegna mildi „stubbsins“ er hann
hið besta meðal við timburmönnum, kom-
ist maður ekki yfír nein önnur höfuð-
verkjarlyf. Innflytjendur bjórsins eru veit-
ingastaðirnir Hressó og Berlín en tíu aðrir staðir
ku hafa sóst eftir að selja hann. Drykkjukvendi PRESSUNNAR spáir því að hann
komist í ríkið áður en langt um líður, ef landinn kann á annað borð gott að meta.
LEIKSTJÓRI AF6UÐS NÁÐ
Súsanna Svavarsdóttir, leiklistargagnrýnandi Morgun-
blaðsins, kemst svo að orði í nýlegum leikdómi um sýninguna
„Við höfum öll sömu sögu að segja“ á Óháðri Listahátíð: „Það
fellur hvergi skuggi á vinnu Maríu... og staðfestir þá skoðun
mína að hún sé verulega athyglisverður leikstjóri." Um ung-
lingasýningu, sem sami leikstjóri setti upp í Tónabæ í fyrra,
skrifar Súsanna: „Þá var hún nýútskrifuð úr Menntaskólanum
við Hamrahlíð og óskóluð í leikstjóm, en vinna hennar með
unglingunum bar vott um mikla hæfileika og óvenjulega
næma sýn á þann starfsvettvang sem leiksviðið er.“
Sú sem hér er lokið lofsorði á heitir María Reyndal og er
22 ára leikstjóri, að því er virðist af guðs náð. „Ég hef lengi
haft áhuga á leikhúsinu," segir María sem lék í uppfærslum
leiklistarfélags Menntaskólans við Hamrahlíð, „Nashymingun-
um“ og „Umhverfis jörðina á 80 dögum“. „Fyrir tveimur árum
sótti ég leiklistamámskeið í London og í fyrra var ég í þrjá
mánuði á Ítalíu á námskeiði í gamanleik, sem haldið var á
vegum Antonios Fava. Frá því ég kláraði stúdentinn 1990
hef ég séð um félagsstarf unglinga í Tónabæ og meðal ann-
ars boðið upp á kennslu í leiklist. Ég hafði þó aldrei áður kom-
ið nálægt leikstjóm þegar ég setti þar upp í fyrra unglingaleik-
ritið „Slúðrið" eftir Flosa Ólafsson. Þegar Jóhanna Jónas
leikkona bað mig svo að leikstýra verki Darios Fo á Óháðri
listahátið fannst mér það mjög spennandi og áhugavert verk-
efni.“
í haust fer María til London þar sem hún ráðgerir að sækja
námskeið í látbragðsleik og ef allt fer að óskum mun hún
ílengjast úti. „Ég ætla að taka inntökupróf í nokkra leiklistar-
skóla í London og vonandi verður heppnin með mér. Námið
tekur þrjú ár og eftir það er allt óráðið, en ég vona að ég fái
tækifæri til að leikstýra meira í framtíðinni.“
María Reyndal hefur hlotið mjöggóöa dóma sem lelkstjóri og er
nú á leiöinni til London í leiklistarnám.
■%