Pressan - 08.07.1993, Page 4
VESTU RLAND
4 PRBSSAN
Snæfellsjökull töfrar og tælir
Fimmtudagurinn 8. júlí 1993
Óljóst hvort krafturinn
dregur til himins eða heljar
Snœfellsjökull dregur til sín mann-
fólkið eins og segull. Þarf kannski
engan að undra því jökullinn er ægi-
fagur þar sem hann ber við himin
yst á samefndu nesi. Dularfullur er
hann í það minnsta því ýmist er
honum líkt við sjálfa paradís eða lýst
iem inngangi til helvítis.
Þeir sem reynt hafa segja reyndar
margt valda því að undir jökli sé
stórfenglegt að dvelja. Það samþykk-
ir Tryggvi Konráðsson „staðarhald-
ari“ á Amarstapa, sem m.a. fer með
ferðalanga á vélsleðum upp á jökul.
Segir reyndar hvergi betra að vera og
þekkir hann þó víða til, enda fýrrum
rútubílstjóri. f nágrenni jökulsins
hefur risið upp blómleg ferðaþjón-
usta undanfarin ár enda kominn
skotvegur alla leið. Hótelið á Búðum
er smekkfullt flestar helgar og ögn
vestar á Arnarstapa er komin fjöl-
þætt þjónusta ætluð ferðalöngum.
Þar má velja um tjaldstæði, uppábú-
in rúm og svefnpokapláss. Straum-
urinn þama vestur hefur svo skilað
sér í talsverðri umferð ferðamanna
norður fyrir nesið yfir á Rif (talið
stærsta kríuvarp heims)!Hellissand
og Ólafsvík þar sem landið fær enn
nýtt andlit.
Gönguleiðir eru óteljandi allt í
kringum jökulinn og strandlengjan
þarna vestast á nesinu hreint ævin-
týraleg, fallegar klettamyndanir til
dæmis í Lóndröngum og Þúfubjargi,
líflegt fúglalíf og svo magnaðar sög-
ur af fólki fyrr og síðar. Enn er tals-
verð útgerð frá Arnarstapa og þar
hefúr lifriað yfir byggð með endur-
gerð gamalla húsa á svæðinu eins og
frést hefúr af. Yfirgefnar verstöðvar í
Hellnum og Dritvík bera hins vegar
vitni blómlegu athafnalífi fýrr á öld-
um.
Þá má ekki gleyma veiðimögu-
leikunum í nágrenni við jökulinn,
frægu Vatnasvœði Lýsu (leyfi seld á
Görðum, sími 93-56719) og Vatns-
holtsvötnum (veiðileyfi í Vatnsholti,
sími 93-56726).
Hellaskoðun í Hallmundarhrauni:
Fetað í fótspor Hólapeyja
Húsfreyjan í Kalmanstungu,
Ásta Sigurðardóttir, hefur
um nokkurt skeið boðið
vikulega leiðsögn í Surtshelli
í Hallmundarhrauni. Lagt er
af stað frá þjónustumiðstöð-
inni Húsafelli kl. 13 á mið-
vikudögum, hver á sínum
bíl, 16 km leið að hellinum
sem talinn er rúmlega 1300
metra langur.
Fyrst er farið í nyrsta opið,
niður í svonefndan Beina-
helli þar sem segir í Land-
námu að útlægir námspiltar
úr Hólaskóla hafi sest að og
mannvistarleifar er enn að
finna. Ásta segir skemmti-
lega frá þessari frægu sögu
en fjölmörg örnefni í ná-
grenninu eru sótt í hana, þar
á meðal Eiríksjökull. Frá
Beinahelli er farið í íshellinn
sem er afar sérstæður með
sínar ótrúlegu klakamynd-
anir. Ferðin tekur í allt 2-3
klukkustundir og er að sögn
Ástu öllum fær svo fremi
sem þeir eru sæmilega skó-
aðir, enda ferðirnar í upp-
hafi hugsaðar fyrir sumar-
húsafólkið á svæðinu. Þær
hafa hins vegar spurst út og
eru nú orðnar býsna vinsæl-
ar. Ferðin kostar 300 kr. fyrir
manninn.
Gerum ekki margt í einu
við stýrið..
Akstur krefst fullkominnar
einbeitingar!
yUMFERÐAR
RÁÐ