Pressan - 08.07.1993, Qupperneq 11
Fimmtudagurinn 8. júlí 1993
NORÐURLAND
PRESSAN I I
Síðasti möguleiki til að skoða Dettifoss?
Y firlandvörðurinn
óttast um svæðið
Undanfarið hafa ýmsir orðið til
að láta í ljósi áhyggjur af þjóðgarð-
inum í Jökulsársgljúfrum í ljósi
áformaðra virkunarframkvæmda í
jökulsá á Fjöllum. Þetta mikilfeng-
lega fljót er önnur lengsta á landsins
og rennur úr Vatnajökli að sunnan
norður í Öxarfjörð. Jökulsárgljúífin
sem áin hefúr mótað í aldanna rás
eru stærstu og hrikalegustu árgljúf-
ur landsins. I þeim og umhverfis
eru margar frægustu náttúruperlur
landsins eins og hamrakvosin í Ás-
byrgi, Hljóðaklettar, gróðursælar
Hólmatungurnar og svo sjálfur
Dettifoss sem talinn er einn mikil-
fenglegasti foss í Evrópu.
Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir
yfirlandvörður í þjóðgarðinum seg-
ist svo sem ekki óttast frekar um
Dettifoss en aðra fallega fossa sem í
/ökulsánni eru, en er á því að virkj-
unarframkvæmdir af þeim toga
sem nú er rætt um, muni leiða af
sér eitt allsherjar umhverfisslys á
svæðinu, því áin sé enn meginafl í
mótun landsins sem taki stöðugum
breytingum. En Dettifoss er enn við
lýði og því enn tækifæri til að skoða
hann í öllu sínu veldi.
Tvö tjaldsvæði eru í þjóðgarðin-
um, annað í Vesturdal og hitt í
Ásbyrgi.'Á báðum stöðum eru
landverðir og skipulagðar göngu-
ferðir daglega, misjafnlega langar. í
þeim er megináhersla lögð á fræðslu
um umhverfið og um helgar eru
barnastundir fyrir 5-12 ára í sama
tilgangi. Þar er farið í leiki og sagðar
sögur með það að markmiði að
opna augu unga fólksins íyrir um-
hverfinu og mikilvægi þess að um-
gangast náttúruna af virðingu. Þetta
nýtur töluverðra vinsælda og á
kannski drjúgan þátt í að Sigþrúður
segir úmgengni fara batnandi ár frá
ári, minna sé skilið eftir af rusli og
er það vel.
Siglfirðingar komnir í bomsurnar
Þrsðfa síldarævintýrið
í uppsiglingu
„Hér verður saltað á plönum og
dansað á bryggjum sem aldrei íyrr“,
segir Theódór Júlíusson, en um
verslunarmannahelgina verður ræst
í síldarsöltun á Siglufirði þriðja
sumarið í röð. „Þessar uppákomur
hafa notið mikilla vinsælda, þús-
undir manna streymt í bæinn og
tjald við tjald risið suður um allan
íjörð. Margir koma til að endur-
upplifa stemningu sem þeir kynnt-
ust af eigin raun þegar síldin var og
hét, aðrir einfaldlega til að taka þátt
í iðandi mannlífi og gegndarlausri
fjölskylduskemmtun frá morgni til
kvölds.“
Siglfirðingar standa nú upp að
hnjám við undirbúning og búið er
að leggja drög að fjögurra daga
stanslausri dagskrá. Hún hefst
fimmtudaginn 29. júlí og stendur
fram undir morgun á mánudegin-
um. Að sjálfsögðu er ræst í síldar-
söltun upp á gamla mátann og
tækifæri til að dusta rykið af gömlu
töktunum og stíga svo vals við
dúndrandi nikkuleik. Það verður
íjölbreytttónlist og tívoí, leiklist og
myndlist, dansleikir og dorgveiði,
svo eitthvað sé nefht. Oll þjónusta
verður í fullum gangi, verslanir
opnar, sundlaugin og hestaleiga,
skemmtisiglingar og stangveiði og
auðvitað verður Síldarminjasafnið
opið. Semsagt gargandi gleði alla
helgina og þeir sem ekki búa hjá
frændum og frænkum geta valið
um hótelherbergi, svefnpokapláss
og tjaldstæði innan bæjar og utan
við.
Hofsós fær andlitslyftingu:
Gömlu húsin og kleinurnar
í Sólvík draga að
Hofsós við austanverðan Skaga-
jjörð var í eina tíð einn helsti versl-
unarstaður á svæðinu. Þangað voru
ferðamenn ekki vanir að venja
komur sínar en nú þykir eftirsókn-
arvert að koma við og margt að sjá.
í elsta hluta bæjarins, niðri í plássi
sem kallað var, standa nokkur gull-
falleg, gömul hús sem búið er að
gera upp svo glæsilega að athygli
vekur og mynda þau nú orðið
nokkuð samstæða þorspmynd.
Potturinn og pannan í þessari
endurreisn er Valgeir Þorvaldsson
smiður og bóndi á Vatni sem fékk
ýmsa aðila til liðs við sig og hófst
handa við að gera upp elsta húsið,
Pakkhúsið. Það var flutt tilhöggvið
hingað til lands og byggt árið 1777
af hinni konunglegu Grænlands-
verslun. „Þegar maður sá hvað þetta
var glæsilegt var ekki um annað að
ræða en að halda áfram og byggja
upp fleiri og nú eru þetta orðin um
10 hús. Sum eru nýtt undir at-
vinnustarfsemi og önnur sem íbúð-
arhús. Þarna á meðal er líka gamla
hótelið, þar sem nú er rekin Veit-
ingastofan Sólvík. Þangað sækir fólk
mikið í kaffi og heimabakað,
rammíslenskt bakkelsi. Nú erum
við að endurgera gamla kaupfélags-
húsið sem byggt var 1910 og
draumurinn er að reka þar verslun
með aldamótasniði", segir Valgeir.
Endurreisn gömlu húsanna hefur
haft örvandi áhrif á mannlíf á Hof-
sósi en þar búa um 230 manns. Sagt
er að andlitslyftingin ein hafi valdið
talsverðri eftirspurn eftir húsnæði
og um leið hækkun á fasteignaverði
á svæðinu. í íyrrasumar komu í Sól-
vík um 3.000 ferðamenn og í sumar
er gert ráð fyrir allt að 5.000 manns
eða um 70% aukningu. Geri aðrir
betur!
Annaðhvort að hrökkva eða stökkva
sögðu Kolbrún og Jóhannes á Rauðuskriðu og byggðu gistiálmu ofan á íbúðarhúsið
Bændagisting blómstrar nú orðið víða um land og enn
bætast við skemmtilegir gististaðir. í júlí í fyrra opnuðu
Kolbrún Úlfsdóttir og Jóhannes Haraldsson glænýja
gistiálmu í húsi sínu á Ftauðuskriðu í Aðaida\. „Það var
annaðhvort að hrökkva eða stökkva fyrir okkur, annað-
hvort að finna sér eitthvað til viðurværis eða flytja á möl-
ina. Við tókum þennan kost“, segir Kolbrún.
Þau eru býsna vel staðsett við þjóðveginn milli Húsa-
víkur og Akureyrar og bjóða uppbúin rúm og fæði fyrir þá
sem vilja. Auk ferðaþjónustunnar eru þau með tæplega
50 hross. Af þvf leiðir að hestaleiga er drjúgur þáttur í
starfseminni því flestir nýta þann möguleika að bregða sér
á bak. Aðrir leigja reiðhjól og svo fást einnig veiðileyfi í
nærliggjandi vötn.
„Hér er svo ótalmargt við að vera að sumir dvelja allt
upp í 3 vikur hjá okkur. Helst eru það útlendingar sem það
gera en þeirra ferðavenjur eru talsvert ólíkar því sem ís-
lendingar temja sér. Sumir fara til dæmis margoft á sömu
staði eins og Mývatn því þar er svo margt að skoða. Og
hið sama er að segja um Jökuisárgijúfrin. Einn dagur dug-
ar hvergi til að kynnast þeim. Og það eru ekki bara þessir
þekktu staðir hérna nálægt sem fólk vill heimsækja, heldur
einnig minna þekkt svæði sem ekki eru síður skemmtileg.
Til dæmis má nefna leiðina hérna út að Björgum og svo
Fiateyjardaiinn en þangað er aðeins fært góðum jeppum.
Gestir eru ýmist á
eigin bíl eða nýta sér
áætlunarbílana sem
aka hérna framhjá .
Síðan er gengið og
riðið út þegar það
hentar betur. Síð-
sumars er svo yndis-
legt berjaland hérna
allt um kring á heið-
unum og urmull af
gæs og rjúpu þegar
hausta tekur. Þetta
er einfaldlega yndis-
legt svæði“, segir
Kolbrún.
IÓPFERÐ1RVEGNA
ÆTTARíWÓTA
__JMGÆÐA HÖPBtFREtt,-
FRA 12 71L 65 FAKPEGA
SITIÐ UPPIXSINGA
ÍPFERÐAMIÐSTC
Bildshöfða 2a,
ni 685055, Fax 674969