Pressan - 08.07.1993, Síða 13
NORÐURLAND
Fimmtudagurinn 8. júlí 1993
PRESSAN 13
Mikið líf áFjöllum
Hjólafólki fjölgar en
puttalingum fækkar
Austasti bær í Þingeyjarsýslum
er Grímsstaðir á Fjöllum. í sama
túninu er Grímstunga þar sem
blómlegur búskapur var um ára-
bil en hefúr nú lagst af. Á þess-
um fyrrum afskekkta stað sem
stendur um 380 metra yfir sjáv-
armáli er talverð þjónusta við
ferðamenn, tjaldstæði og verslun
á Grímsstöðum og bændagisting
í Grímstungu.
Fyrrum húsfreyjan í Grím-
stungu um 40 ára skeið, Kristín
Axelsdóttir, mætir heim í Fjöllin
á vorin ásamt vinum og vanda-
mönnum og tekur á móti ferða-
mönnum í uppbúin rúm og
svefnpokapláss allt sumarið,
enda umferð mikil eftir hring-
veginum sem liggur fram hjá
bæjunum. „Ég get hvergi annars
staðar verið á sumrin. Kannski
er það kyrrðin sem heillar en
andrúmsloftið á Fjöllum er allt
mjög sérstakt, eða eins og einn
kunningi minn sagði: Hér er
maður nær sólinni. Héðan ligg-
ur leið margra inn á hálendið, í
Herðubreið og Öskju, svo dæmi
séu tekin og svo er auðvitað J ök-
ulsárgljújrið hér norðan við okk-
ur.“
Kristín segir umferð stöðugt
fara vaxandi og að sjá megi tal-
verðar breyingar á ferðamáta
fólks undanfarin ár. Til dæmis
hafi svonefndum puttalingum
fækkað mjög , en hjólafólki hafi
fjölgað að sama skapi, bæði á
reiðhjólum og vélhjólum.
TÖLT í TAKT VIÐ
BEETHOVEN OG
BRAHMS
Skagfirskir gæöingar eru til
sýningar og leigu víös vegar
um Skafíaflnrftinn.
Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar
Skagajjörður er nefhdur? Væntanlega hestar því Skag-
firðingar eru jú öðrum frægari fyrir afbragðs gæðinga
og árangur í hestarækt. Það er því ekki að undra þó
hestasport sé eftirsótt afþreying þeirra sem heimsækja
þetta grösuga og söguffæga hérað
I Skagafirði mikill fjöldi af hestaleigum og hesta-
ferðir bjóðast stuttar sem langar. Jafnvel á kvöldin
þegar kyrrðin færist yfir er hægt að bregða sér í stutt-
an reiðtúr á vegum Hótels Áningar á Sauðárkróki og
víðar ef að líkum lætur. Einna mesta athygli undan-
farið hafa þó vakið hestasýningar sem haldnar eru
flesta daga á Vindheimamelum. Þær hófust í fyrra-
sumar og áður en varði voru gestir orðnir vel á annað
þúsundið. Á sýningunum er hesturinn kynntur, sagt
ffá eðli hans, notkun og fjölbreyttum gangtegundum.
Þá eru teymdir ffam valdir gæðingar sem sýna hinar
ýmsu gangtegundir við tilþrifamikil tónverk Beetho-
ven og Brahms. Þar má víst oftar en ekki sjá ýmsa
frægustu gæðinga landsins með sjálfan Hrímni í
broddi fylkingar. í lokin fá svo allir kaffi og meðlæti
að hætti skagfirskra húsmæðra. Þetta er ósvikin
skemmtun og um leið ffæðandi fyrir alla Ijölskylduna
Þröstur Leó Gunnarsson, leik-
ííri.“Það er auðvelt að svara þessari
spurningu. Heima á Bíldudal í
logni.
Margrét Helga Jóhannsdóttir,
/ei7cflri.“Borgarfjörður eystri. Ég
hef nú reyndar aðeins dvalið þar í
leikferðum em það er alveg magnað
umhverfi þama“.
FERÐAFÓLK OG NÁGRANNAR
SÖLUSKÁLI BILLANS
LÆKJARGÖTU 8, SIGLUFIRÐI - SÍMI 96- 71562
OPIÐ
frá kl.
11.30-24
alla daga
vikunnar
Höfum upp á að bjóða grillrétti -
kaffi og kökur — ís og sæigæti
Veríð velkomin
_________________________
✓
GR EKKILIFID DASAMLECT?
Þegar lconan skammast í framsætinu, kallinn gleymdi heymarhlífunum,
uppáhalds liðið a5 spila í beinni útsendingu, krakkamir snarvitlausir aflur
í, kærulausar rollur við pjóðveginn 09 gamall kall með hatt búinn að vera
á undan þér á sínum Moscovits síðustu 100 kilórpetranna.
Hvað er pá betra en að stoppa í Veitingaskálanum BRU, teygja úr sér,
nærast og hlaða rafhlöðurnar. Munau svo bara að vera á undan
Moskavitseigandanum út.
VERIB VELKOMIN 4
AKIÐ VARLEGA MEÐ BELTIN SPENNT OG
SYNIÐ TILITSEMII UMFERÐINNI.