Pressan - 08.07.1993, Síða 16
AUSTURLAND
16 PRESSAN
Fimmtudagurinn 8. júlí 1993
Hreindýraveiðin hefst í ágúst
Tugir karla stunda veiðarnar af kappi
EN AÐALSTEINN SAKNAR KVENNANNA
1 fyrrasumar var í fyrsta sinn far-
ið að selja hreindýraveiðileyfi til al-
mennings. Talverð ásókn var í veið-
ina og búist við að hún aukist enn í
sumar þegar sami háttur verður
hafður á. Veiðitímabilið stendur frá
t. ágúst til 15. september og má
gera ráð fyrir að leyft verði að skjóta
5-700 dýr. f fyrra náðust tæplega
500.
„Það er nú reyndar ekki svo að
við hleypum hverjum sem er af stað
með byssu. Menn verða að hafa
byssuleyfi og þar með leyfi til notk-
unar á minnst 243 kalibera rifflum“,
segir Aðalsteinn Aðalsteinsson
veiðieftirlitsmaður á Vaðbrekku sem
selur leyfin. „Fyrirkomulagið er
þannig að menn greiða ákveðið
grunnleyfisgjald, 5000 krónur, en
síðan er gert upp í lokin, eftir þvi
hvað veiðist. Ef ekkert er að hafa,
þarf ekki að borga meira. Verðið er
nokkuð misjafnt eftir svæðum en
þau eru 9 talsins. Dýrast er hér á
svæði 1 og 2 á Fljótsdabhéraði vest-
an Lagarfljóts og Grítnsár. Hér er
GISTING
Gistihúsið Hrollaugsstöðum
Þægileg gisting nálægt Jökulsárlóni
(45 mínútna akstur ffá Höfn)
Gisting með morgunverði
Sveffipokapláss
Eldunaraðstaða »
Gistihúsið Hrollaugsstöðum
Suðursveit, 781 Höfn, sími 97-81057.
Hótel Skaftafell
Freysnesi við Skaftafell, 785 Fagurhólsmýri.
Gisting í rúmgóðum tveggja og þriggja manna her-
bergjum með baði og sjónvarpi.
Veitingar.
Stutt ganga að jökli. Aðeins 4 km að þjóðgarðinum í
Skaftafelli.
Hestaleiga í nágrenninu.
Sími 97-81845, fax 97-81846
gjaldið 25.000 krónur fyrir kúna og
10.000 fyrir kálf. Tarfar kosta hins
vegar 35.000 upp á 60 kg en um-
ffam það er greitt pr. kíló. Á öðrum
svæðum er gjaldið talsvert lægra.
Auk þessa þarf svo að borga eftir-
litsmanni sem tekur um 8.000
krónur fýrir daginn. Án hans fær
enginn að hreyfa sig en hins vegar
getur hann farið með 3-4 í hóp svo
þar með lækkar kostnaðurinn.“
Að sögn Aðalsteins er það tals-
verður hópur manna sem sækir í
hreindýraveiðar, einhverjir tugir og
fer fjölgandi. Karlar hafa einokað
þessa iðju alfarið „en þó veit ég til
þess að kona hafi skotið hreindýr.
Mér þætti ekki verra að sjá fleiri
konur í þessu“, segir hann. Skyldu
einhverjar hafa áhuga þá látum við
símanúmerið hans fljóta með: 97-
12354.
Stefán Benediktsson í Skaftafelli:
SPÁI GÓÐU VEÐRI í SUMAR
780 Höfn Hornafirði, sími 97-81240, fax 97-81996.
Hótel Höfn er nýlegt hótel með fjörutíu herbergjum og sjötíu rúmum
öll herbergi eru með sjónvarpi, útvarpi og síma og sum
hafa sérbaðherbergi.
Til viðbótar eru fimmtán herbergi með baði í sérhúsi stutt frá.
Á Hótel Höfn eru þægindin í fýrirrúmi.
Um 30 þúsund gestir gistu Þjóðgarðinn í
Skaftafelli á síðasta ári enda staðurinn með
vinsælustu áningarstöðum ferðamanna hér á
landi. Kemur þar margt til - rómuð náttúru-
fegurð og fjölbreytt landslag með tignarleg
fjöll og jökulbreiður í bakgrunni, en ekki síð-
ur mikil gróska og veðursæld í garðinum sjálf-
um, þ.e. þeim hluta sem er á láglendi. Þjóð-
garðurinn nær hins vegar langt upp á jökul-
svæðin og er í heild um 1600 ferkílómetrar að
stærð.
Stefán Benediktsson þjóðgarðsvörður segir
að íslendingum hafi fækkað nokkuð í hópi
gesta undanfarin ár og sé skýringin fýrst og
ffemst sú að betur hafi viðrað á öðrum lands-
svæðum yfir helstu ferðahelgarnar. „Annars
nýtur Skaftafell vaxandi vinsælda meðal
göngufólks og kannski ekki síst þeirra sem
hafa áhuga á jöklagöngum. Svo eigum við
stóran hóp af fastagestum sem kemur reglu-
lega til að dvelja hér í rólegheitum og rölta um
garðinn.“
I Skaftafelli er skipulögð dagskrá dag hvern í
sumar, stuttar og langar gönguferðir til skiptis
virka daga. Stuttar ferðir þýða um 2-3ja tíma
göngu þar sem svipast er um í næsta nágrenni
og ffætt um helstu þætti í jarðffæði, gróður-
fari og sögu svæðisins. Lengri ferðir þýða hins
vegar allt upp í 8-10 tíma göngu, t.d. þegar
farinn er Kristínartindahringurinn ofan
Skaffafells, sem er 13 km löng fjallganga. Um
helgar eru svo bæði stutta og langar ferðir og
sérstök barnastund bæði laugardaga og
sunnudaga.
„Ég er nokkuð bjartsýnn á sumarið“, segir
Stefán aðspurður um veðurhorfur að hans
mati. „Hér er kominn upp þokkalegasti hiti
og ég geri ráð fyrir að fá nokkrar góðar helg-