Pressan - 08.07.1993, Page 22

Pressan - 08.07.1993, Page 22
SUÐURNES PRESSAN Fimmtudagurinn 8. júlí 1993 Suðurnesin sækja á Ævintýraland fyrir gönguglaða og hjólfima og hina sem vilja vera það... I Grindavík er lífið saltfiskur, sögðu menn í frægum sjónvarps- þætti hér á árunum við misjafnar undirtektir. Heimamenn og aðrir kunnugir töldu staðinn hafa ým- islegt fleira til að bera en tilvist þess gula. Grindavík hefur hins vegar kannski liðið íyrir þessa ímynd og jafnvel Suðurnesin öll. Þó er svæðið nátengt ferðalögum jafnt innlendra sem erlendra, þar er jú Keflavíkurflugvöllur og svo Bláa lónið. En Suðurnesin hafa upp á fleira að bjóða. Fyrir göngufíkla er þetta ævintýraland og ekki að ástæðu- lausu að langvinsælustu göngu- ferðir ferðafélaganna á suðvestur- horninu liggja jafnan um þetta svæði. Mikil vinna hefur verið lögð í að merkja upp fornar gönguleiðir og er það gert með vörðum að fornum hætti. Sem dæmi má nefna Prestastíg sem liggur ffá Höfnum til Grindavík- ur, Skipastíg frá Grindavík til Njarðvíkur og svo Skógfellsstíginn frá Vogum til Grindavíkur. Allt eru þetta greiðfarnar gönguleiðir sem upplagt er að fara bara einn og sjálfur ef þannig liggur á manni, nú eða í fylgd einhverra sem ekki spilla um of áhrifum þess sem á vegi verður. Göngufæri er líka víðast ágætt meðffam ströndinni. Þar skiptast á þverhnípt björgin, iðandi af fuglalífi og ljúfar sandvíkur sem margir nýta hreinlega til að sóla sig. Víða er búið að lagfæra göngustíga og leggja nýja og til dæmis hafa unglingar unnið við það undanfarið að leggja merkta gönguleið út á Hafnabergið, eitt aðgengilegasta fuglabjarg landsins. Reykjanesið sjálft er sagt vera stærsta kríuvarp iandsins og því vissara að gæta að toppstykkinu þegar gengið er þar um snemma sumars. Reyndar er ekki síðra að ferðast hér um á reiðhjóli og reyndar upplagt fýrir þá sem vilja æsa sig upp til ffekari átaka. Yfir- ferð er mátulega hröð, þægilegt að stoppa þar sem þér hentar og svo kvarta fjallahjólin ekkert þótt veg- irnir séu ekki sléttir og skínandi. En fleiri forvitnilegir staðir: Garðsskagaviti er vestast á Suður- nesjum, milli Garðs og Sandgerðis. Þar er búið að gera upp gamla vit- ann og innandyra að finna merki- legt kort yfir strandstaði og skips- skaða út af Garðsskaga á þessari öld. Suður af Sandgerði er Hvals- neskirkja þar sem Hallgrímur Pétursson þjónaði í eina tíð og inni í kirkjunni m.a. legsteinn sem hann á sjálfur að hafa höggvið á leiði dóttur sinnar. Enn sunnar eru svo Básendar, aðalútgerðar- og verslunarstaður á Suðurnesj- um fyrr á öldum, en staðurinn lagðist í auðn eftir geysimikil flóð fyrir tæpum 200 árum (jan. 1799). Austur af Grindavík er ekki síðra göngu og hjólreiðasvæði alla leið austur í Selvog. Á leiðinni verður á veginum Festarfjallið og baðströnd Grindvíkinga þar und- ir, Selatangar með minjum um gamalt útræði og svo sjálft Krísu- víkurbergið. Áfram liggur leiðin svo í gegnum Krýsuvík, Herdísar- vík og austur í Selvog. í Reykjanesfólkvangi er annað ævintýralegt göngusvæði og hér er að finna flest aðgengilegustu göngufjöll (t.d. Trölladyngja og svo Keilir) sunnan heiða, jafnvel fýrir þá sem aldrei hafa lyft sér af láglendinu. Hér eru líka skemmti- leg veiðivötn og ágæt tjaldsvæði t.d. á Höskuldarvöllum og Vigdís- arvöllum. Og víðast er stutt í jarð- hita-og hverasvæði. Golfáhugamenn geta heldur ekki kvartað því golfvöllurinn í Grindavík (9 holur) þykir ffábær og Leiruvöllurinn (18 holur) er af mörgum talinn sá besti á landinu. Siglingar og sjóstangveiði eru líka óvíða aðgengilegri enda hafa mörg eftirminnilegustu sjóstang- veiðimótin verið haldin í ná- grenni Keflavíkur. Við látum þessari upprifjun á möguleikum Suðurnesja lokið og viljandi lítum við framhjá fræg- asta ferðamannastaðnum, Bláa lóninu þar sem nú er búið að endurbæta og byggja við alla þjónustu. Gefum okkur það sem staðreynd að þeir sem þurfa ffek- ari hvatningu til að bregða sér þangað séu bara best geymdir heima í sófanum. IÓPFERÐIRVEGNA ÆTFARMÓTA SÖFUM CÆÐA HÓrHIFREI: FRA U Til 65 I ARÞEGA IE1TID IJPPLÝ.SINGA TERÐAMIÐSTÍ Bildshöfða 2a, >685055. Fax 674969 Flughótel Hafnargötu d7, 230 Keflavík sími 92-15222, fax 92-15233 Veitingastofan Ásinn Heimilismatur í hádegi Skyndiréttir — kafifi og kökur Pantið tímanlega fyrir hópa Veitingastofan ÁsinnHeiðartúni 4, Garði sími: 92-27975 Ökuleiðir Leigubílar - Sendibílar Vatnsvegi 16 Sími: 1 41 41

x

Pressan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.